Morgunblaðið - 31.08.2003, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. ÁGÚST 2003 19
ICELANDAIR hefur gripið til þess
ráðs að efna til aukaferðar til Kaup-
mannahafnar vegna tónleika Stuð-
manna í Tívolí laugardagskvöldið 13.
september nk. Tónleikarnir eru
haldnir af Stuðmönnum og Iceland-
air sem býður sérstök fargjöld á tón-
leikana.
Mörg hundruð manns hafa nú
þegar bókað sig og vegna hins mikla
áhuga ákvað Icelandair að bæta við
áætlun félagsins einni ferð til Kaup-
mannahafnar og til baka. Aukaflugið
er frá Íslandi fimmtudag 11. sept-
ember klukkan 18 og frá Kaup-
mannahöfn sunnudaginn 14. septem-
ber klukkan 18 að staðartíma.
Aukaferð
vegna tón-
leika Stuð-
manna
ÍBÚAR Akraness mættu vel í bæj-
arþingssalinn í síðustu viku þar sem
skipulags- og umhverfisnefnd Akra-
neskaupstaðar stóð fyrir opnum
fundi þar sem framkomnar tillögur
að framtíðarskipulagi Miðbæjarreits
voru kynntar en sá reitur gengur
undir nafninu Skagaverstún á Akra-
nesi.
Fullt var út úr dyrum í bæjar-
þingssalnum og mátti m.a. sjá þar
stofnanda Bónuss, Jóhannes Jóns-
son, á fundinum auk margra kaup-
manna af Akranesi.
Björn S. Lárusson, fulltrúi Skaga-
torgs ehf., kynnti framkomnar til-
lögur um deiliskipulag á svæðinu
norðan Stillholts. Þar er gert ráð
fyrir tveimur 10 hæða íbúð-
arblokkum, með um 84 íbúðum,
verslunarmiðstöð á einni hæð en á
efri hæðum þjónustuhúss er gert ráð
fyrir hóteli, fundasölum, veit-
ingastað, skrifstofuhúsnæði og
fleiru.
Eftir að kynningunni lauk fóru
fram pallborðsumræður en þar bar
Sveinn Knútsson, verslunarmaður í
Skagaveri, formlega upp mótmæli
um að ekki hefði verið haft samráð
við hann vegna fyrirhugaðra fram-
kvæmda. Í máli fundarmanna kom
fram að margir voru vantrúaðir á að
Akranes stæði undir framkvæmd á
stærð við þessa, auk þess sem skiptar
skoðanir voru um hæð fyrirhugaðra
íbúðarblokka. Fundarmenn ræddu
einnig um áhrif framkvæmdanna á
verslunar- og þjónustufyrirtæki í
gamla miðbænum en fulltrúi verk-
taka sem standa að framkvæmd-
unum lagði á það áherslu að byggt
yrði í áföngum á svæðinu og að fyr-
irhuguð stækkun Norðuráls hefði
einnig áhrif á framkvæmdirnar.
Skiptar
skoðanir
um mið-
bæjarreit
Morgunblaðið/Sigurður Elvar
Nú hillir undir að fleiri verslanir flytjist á miðbæjarsvæðið því Gnógur ehf.,
hefur hug á því að byggja á öllum lóðunum sem í boði eru.
Gangi áætlanir Gnógs ehf. og fasteignasölunnar Eign.is eftir munu fram-
kvæmdir á Miðbæjarreit Akurnesinga hefjast næsta vor.
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir eftir
vitnum að árekstri á gatnamótum
Miklubrautar og Kringlumýrar-
brautar fimmtudaginn 28. ágúst
klukkan 12:17. Þar rákust saman silf-
urgrá Toyota-fólksbifreið, sem ekið
var norður Kringlumýrarbraut og
beygt til vinstri áleiðis vestur Miklu-
braut, og græn Toyota-jeppabifreið,
sem ekið var suður
Kringlumýrarbraut eftir vinstri ak-
rein. Þeir sem gætu gefið upplýsingar
um stöðu umferðarljósanna þegar
áreksturinn varð eru beðnir að hafa
samband við lögregluna í Reykjavík í
síma 569 9020 eða 569 9014.
Lýst eftir
vitnum