Morgunblaðið - 31.08.2003, Side 20

Morgunblaðið - 31.08.2003, Side 20
20 SUNNUDAGUR 31. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ ÍLOK júlímánaðar síðast liðinslagði hópur fólks af stað í leið-angur á vegum ferðafélagsinsAugnabliks. Ætlunin var aðfara í sex daga göngu um fyr- irhugað lónstæði Kárahnjúkavirkj- unar, suður með Jöklu (Jökulsá á Brú) frá Kárahnjúkum, meðfram Kringilsá, upp fyrir upptök hennar upp á Brúarjökul og inn á friðlandið í Kringilsárrana. Síðan hugðumst við ganga til baka yfir jökul og koma niður austan við Kverká og ganga þaðan í Grágæsadal. Í hópnum voru 35 manns, fólk með ólíkan bakgrunn, sá elsti 75 ára og tvær 14 ára stöllur voru yngstar. Sumir voru þaulvanir göngumenn, aðrir ekki. Við höfðum ólíkar hugmyndir um svæðið en átt- um það sameiginlegt að vilja sjá með eigin augum landið sem hverfur. Sól skein á bláhimni og upptakt- urinn á flugvelli Egilsstaða jók hjart- slátt okkar og eftirvæntingu. Leið- sögumenn og frumkvöðlar að ferðinni voru þær Ásta Arnardóttir og Ósk Vilhjálmsdóttir. Hér viljum við deila með lesendum ferðasögunni og nokkrum hugrenningum ferða- félaga. Við Kárahnjúka Ekið var á bíl frá Egilsstöðum að stíflustæðinu. Þar var staldrað við uppi á formhreinu Sandfelli sem breytist í litla eyju ef svokallað Háls- lón verður að veruleika. Gott skyggni var og vel sást inn eftir Brú- ardölum í átt að því svæði sem ætl- unin var að ganga um. Hugur manna varð þungur og dapur við að líta þau spellvirki sem verið er að vinna á landinu. Við stíflusvæðið sameinuð- ust ferðafélagarnir í þögulli mót- mælastöðu. Í þögninni urðu hljóðin frá stórvirkum vinnuvélum sem níddust á bjargbrúninni yfirgnæf- andi. Kolsvartir fossar úr möl og grjóti runnu án afláts niður bjarg- brúnina og steyptust ofan í gljúfrin. Þessi blæðandi sár voru í hrópandi andstöðu við hvítflissandi fossana, sem við upplifðum stuttu seinna þeg- ar við gengum niður gil Sauðár. ,,Alla þessa fossa er búið að selja fyr- ir ál,“ varð einum ferðafélaga að orði í lok dagsins. Eftir að hafa rölt á þægilegum hraða meðfram hlæjandi Sauðánni var haldið upp með Jöklu í suðurátt að Tröllagilslæk, en þar var fyrsti náttstaður. Á augabragði risu skrautlegar tjaldbúðir í víðivöxnum hlíðum. Margir í hópnum höfðu ekki gert sér grein fyrir umfangi fyrir- hugaðs Hálslóns. Einn ferðafélag- anna hafði meðferðis kort og hafði merkt inn á það landsvæði sem kem- ur til með að hverfa undir vatn. Þeg- ar við gengum fram á hvítar stikur ofarlega í gróðursælum hlíðum vor- um við minnt harkalega á umfang þess lands sem áætlað er að hverfi – óafturkræft. Gert er ráð fyrir að lón- ið verði 57 ferkílómetrar að stærð, en það samsvarar stærð Hvalfjarðar. Þessi tilfinning magnaðist þegar við fengum okkur kvöldgöngu og könn- uðum gljúfur Jöklu neðan við Trölla- gil. Þar mátti sjá mikilfenglegar stuðlabergsmyndanir og flúðir. Ofan í gljúfrinu voru einstakar bergklapp- ir í rauðum og appelsínugulum litum, en það er sjaldgæf og ótrúleg sjón. Hér urðum við næstum steinrunnin eins og Gljúfrabúinn sem stendur hljóður sinn vörð. Við buðum honum góða nótt, meðan við máttum enn hreyfa okkur, héldum til baka og slógum okkur til rólegheita enda langt liðið á kvöld. Gróður allt um kring Annar dagur ferðalagsins heilsaði okkur með hlýjum sólargeislum. Fararstjórarnir vöktu mannskapinn með tvírödduðu „Mér um hug og hjarta nú“, blítt sungið – er hægt að vakna á mýkri hátt? Nú skyldi iðkað morgunjóga. Að því loknu var fögg- um pakkað. Tók það dágóða stund enda margir ekki komnir í „allt á bakinu“ gírinn. Það gerði ekkert til, enginn var að flýta sér. Það sem beið okkar var enn meiri náttúra og ekki lá henni á. Gengið var áfram í suðurátt með- fram Jöklu og staldrað við hjá Gljúfrabúanum sem var nú orðinn eins og góður vinur. Áfram skyldi haldið í átt að Töfrafossi í Kringilsá sem reyndist breiður og kraftmikill eins og Dettifoss þótt fallhæðin sé minni. Hið dulúðuga sjónarspil í kröftugum úðanum frá fossinum var töfrum líkast. Aldursforsetinn í ferð- inni skírskotaði til þess þegar virkja átti Gullfoss. „Hver einasti ferða- maður sem kemur að Gullfossi skilur eftir fjárhæð sem er arður af því að hann var ekki virkjaður. Sama myndi verða við Stóruflúð, Gljúfra- búann, Töfrafoss og fjölmarga aðra staði sem sökkva á undir lón. Svæðið er allt eins og bankainnistæða sem við getum tekið út af þegar okkur þóknast eins og við gerum daglega af Gullfossi, bara ef því yrði ekki sökkt.“ Þótt við værum búin að ganga alla þessa leið þá hékk vinnuvélagnýrinn í loftinu og fylgdi okkur eins og draugur. Þessi hrópandi mótsögn, ósnortin náttúran framundan og manngerð spjöllin að baki. „Það er óhugsandi að þeir stjórnmálamenn, sem bera ábyrgð á framkvæmdun- um hafi gengið um þetta svæði. Þetta er nefnilega ekki hægt að upp- lifa út um jepparúðu!“, gall í einni á göngunni. Nú tók að rigna og vitin fylltust ilmi af gróðrinum sem var allt um kring, mosi og lyng, mjúkt undir fót. Blautt og hljótt! Við vorum fegin að koma loks í náttstað í ná- grenni Þorláksmýra og Hrauköldu. Þriðji dagur brast á og jökulganga fram undan. Veður var grámyglulegt og við í um 700 metra hæð yfir sjáv- armáli. Þegar við nálguðumst Brúar- jökul fóru leiðsögumenn ítarlega yfir þau atriði sem hafa skal í huga þegar gengið er á jökli. Áð var um stund og broddar settir undir skó. Varast skyldi sprungur og halda alltaf hóp- inn í einfaldri röð. Hugur var í fólki þótt allir vissu að þetta yrði dálítið erfitt. Við gengum í þögn, bæði til að halda einbeitingu og til að geta betur notið umhverfisins. Eftir sjö kíló- metra göngu á jökli sáum við loks inn á friðland Kringilsárrana, þar skyldi tjaldað til tveggja nátta. Það rigndi töluvert auk þess sem bætti í vind- inn. Nú reyndi á kunnáttu við að tjalda, strekkja stög og bera grjót á hæla. Leiðangursmenn voru hvíld- inni fegnir og bjuggu sig undir vætu- sama nótt, enda var hann búinn að snúa sér í norðaustan. Friðlandið Kringilsárrani Fjórði dagur og sólin heilsaði okk- ur á ný, útsýni til allra átta, hvílík fegurð! Konungur íslenskra fjalla, Snæfell, reif af sér og heiðraði okkur með ásýnd sinni í austri. Í vestri stóðu Kverkfjöllin í allri sinni dýrð og í norðri Herðubreið, drottningin sjálf. Allt þetta höfðum við fyrir aug- unum á göngu okkar um friðlandið Kringilsárrana þar sem við áttum heilan dag til að skoða hrauka, jök- ulmenjar, gróður og dýralíf. Við sáum hreindýrahjarðir og gæsir í sárum lágu í hópum við tjarnirnar. Og þarna, mitt í dýrðinni og ham- ingju, þyrmir fyrirvaralaust yfir mann þyngslunum yfir því að svæð- inu skuli fórnað. Það er þó ástæða til að gleðjast yfir því að í undirbúningi er stofnun þjóðgarðs norðan Vatna- jökuls, sem tekur til alls vatnasviðs Jökulsár á Fjöllum og allir stjórn- málaflokkarnir nema Sjálfstæðis- flokkurinn styðja. En þó er ljóst að þetta verður þjóðgarður rúinn kór- ónu sinni. Einhver í hópnum minnti á sjónvarpsmynd Ómars Ragnarsson- ar frá því í vetur um þjóðgarða og Vatnajökul ásamt svæðinu norðan hans. Þar kemur fram að þurft hefur að hætta við virkjanir og virkjana- áform í Bandaríkjunum og Noregi sem voru komin mun lengra áleiðis en Kárahnjúkavirkjun. Svo enn er von. Augnablik í óbyggðum Skiptar skoðanir eru meðal landsmanna um Kára- hnjúkavirkjun og hafa margir lagt þangað leið sína undanfarið. Gönguferð um fyrirhugað lónsstæði virkjunarinnar sannfærði þær Þóru Leósdóttur, Þuríði Einarsdóttur og Önnu Líndal um mikilvægi þeirrar náttúruperlu sem þar fer undir vatn. Gönguhópurinn í Grágæsardal þar sem Völundur Jóhannesson tók á móti þeim. Morgunblaðið/RAX Um fjórðungur friðlandsins í Kringilsárrana mun fara undir Hálslón. Myndin sýnir Jökullæk innan Töðuhrauka neðarlega í hlíðinni upp af Jöklu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.