Morgunblaðið - 31.08.2003, Síða 29
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. ÁGÚST 2003 29
Innritun hefst á morgun, 1. sept., og fer fram daglega virka daga kl. 14:00 til 17:00 í skól-
anum, Síðumúla 17, sími: 588-3730, fax: 588-3731, tölvupóstur: ol-gaukur@islandia.is
Heimasíða: www.gitarskoli-olgauks.is Á þessari önn verða í boði þau námskeið sem
talin eru upp hér að neðan, miðað við næga þátttöku. Nánari upplýsingar í síma á inn-
ritunartíma og einnig sendum við ítarlegan bækling um skólann til þeirra sem þess óska.
LÉTTUR
UNDIRLEIKUR
Hægt
að fá leigða
HEIMAGÍTARA
kr. 3000 á önn
Sendum vandaðan
upplýsingabækling
Heimasíða:
www.gitarskoli-olgauks.is
HEFÐBUNDINN
GÍTARLEIKUR
ÖNNUR
NÁMSKEIÐ
1. FORÞREP FULLORÐINNA
Byrjendakennsla, undirstaða, léttur undir-
leikur við alþekkt lög. Geisladiskur með
æfingum fylgir.
2. FORÞREP UNGLINGA
Byrjendakennsla, sama og Forþrep fullorð-
inna. Geisladiskur með æfingum fylgir.
3. LÍTIÐ FORÞREP
Spennandi, styttra, ódýrara námskeið fyrir
börn 8-10 ára. Geisladiskur með heima-
æfingum fylgir.
4. FRAMHALDSFORÞREP
Skemmtilegt námskeið í beinu framhaldi af
Forþrepi. Geisladiskur með æfingum fylgir.
5. FORÞREP – PLOKK
Mjög áhugavert námskeið. Kenndur svo-
nefndur „plokk“-ásláttur eftir auðveldum
aðferðum. Fyrir þá sem lokið hafa For-
þrepi eða Framhaldsforþrepi /eða hafa
leikið eitthvað áður. Geisladiskur fylgir.
6. FORÞREP – ÞVERGRIP
NÝTT NÁMSKEIÐ.
Nauðsynlegt að nem-
andi hafi lokið við
FORÞREP OG FRAM-
HALDSFORÞREP eða hafi töluverða
reynslu af undirleik á gítr. Á námskeiðinu
eru kennd öll höfuðatriði þvergripanna og
hvernig samhengi þeirra er háttað.
Aðeins eru notuð þvergrip í námskeiðinu
og það þarfnast því töluverðrar æfingar,
einkum í byrjun. Ekki ráðlegt nema fyrir
þá sem hafa mikinn áhuga. Geisladiskur
fylgir.
7. TÓMSTUNDAGÍTAR
Byrjendakennsla (sama og Forþrep fullorð-
inna, en styttra) fyrir 16 ára og eldri í sam-
vinnu við Tómstundaskólann. – Geisladiskur
fylgir.
8. FYRSTA ÞREP
Undirstöðuatriði nótnalesturs fyrir
byrjendur lærð með því að leika léttar
laglínur á gítarinn o.m.fl. Forstig
tónfræði. Próf. Geisladiskur með
heimaæfingum fylgir.
9. ANNAÐ ÞREP
Framhald Fyrsta þreps, leikin þekkt
smálög eftir nótum, framhald tónfræði-
og tónheyrnarkennslu. Próf. Geisla-
diskur með heimaæfingum fylgir.
10. ÞRIÐJA ÞREP
Beint framhald Annars þreps. Verk-
efnin þyngjast smátt og smátt. Fram-
hald tónfræði- og tónheyrnarkennslu.
Próf.
11. FJÓRÐA ÞREP
Beint framhald Þriðja þreps. Bæði
smálög og hefðbundið gítarkennsluefni
eftir þekkt tónskáld. Tónfræði, tón-
heyrn, tekur tvær annir. Próf.
12. FIMMTA ÞREP
Beint framhald Fjórða þreps. Leikið
námsefni verður fjölbreyttara. Tón-
fræði, tónheyrn. Tekur tvær annir. Próf.
13. JAZZ-POPP I
Þvergrip, hljómauppbygging,
tónstigar, hljómsveitarleikur o.m.fl.
Einhver nótnakunnátta áskilin.
14. JAZZ-POPP II/III
Spuni, tónstigar, hljómfræði,
nótnalestur, tónsmíð, útsetning.
15. TÓNSMÍÐAR I/II
Byrjunarkennsla á hagnýtum atriðum
varðandi tónsmíðar. Einhver
undirstaða nauðsynleg.
16. TÓNFRÆÐI – TÓNHEYRN I/II
Innifalin í námi.
17. TÓNFRÆÐI – TÓNHEYRN
FYRIR ÁHUGAFÓLK
Fyrir þá sem langar að kynna sér hið
einfalda en fullkomna kerfi nótnanna
til þess m.a. að geta sungið/leikið eftir
nótum.
18. SJÁLFSNÁM
Námskeið fyrir byrjendur á tveim
geisladiskum og bók, tilvalið fyrir þá
sem vegna búsetu eða af öðrum
ástæðum geta ekki sótt tíma í
skólanum en langar að kynnast
gítarnum. Sent í póstkröfu.
INNRITUN DAGLEGA KL. 14-17
588-3630
588-3730
NÝTT
ww
w.g
itar
sko
li-o
lga
uks
.is
SJÁ BLS. 17 Í ÁRSBÆKLINGI SINFÓNÍUNNAR SEM FYLGIR MORGUNBLAÐINU Í DAG
Háskólabíó við Hagatorg I Sími 545 2500 I sinfonia@sinfonia.is I www.sinfonia.is
AÐALSTYRKTARAÐILI
SINFÓNÍUHLJÓMSVEITAR
ÍSLANDS
M
Á
T
T
U
R
IN
N
&
D
Ý
R
Ð
IN
„Börn og dýr skilja
tónlist mína best“
KARLAKÓRINN Þrestir í Hafn-
arfirði er að hefja sitt 92. starfsár
og heldur sína árlegu tónleika laug-
ardaginn 4. október í Víðistaða-
kirkju og sunnudaginn 5. október í
Hafnarborg. Þrestirnir eru að
þessu sinni með hausttónleika
vegna þess að fresta þurfti vortón-
leikunum vegna forfalla.
Verkin sem flutt verða eru flest
ný í söngskrá Þrastanna, þjóðlög,
klassísk verk og nýrómantísk verk
frá Ameríku, Svíþjóð, Finnlandi og
Frakklandi auk íslenskra sönglaga.
Á haustdagskrá Þrasta eru jóla-
tónleikar auk tónleika með tveimur
kórum sem halda uppá starfs-
afmæli sitt á þessu ári, þ.e. Karla-
kór Keflavíkur og Samkór Selfoss í
október og nóvember. Auk vor-
tónleika stefnir kórinn á þátttöku í
alþjóðlegri kórakeppni í Wales
næsta sumar.
Karlakórinn Þrestir er elsti
starfandi karlakór landsins og hélt
á síðasta ári uppá 90 ára afmæli sitt
með hátíðartónleikum og sögusýn-
ingu í Hafnarborg.
Jón Kristinn Cortez hefur verið
stjórnandi Þrastanna frá 1997 og
hefur útsett mörg af lögum á efnis-
skrá kórsins, bæði íslensk og erlend
lög og eru útsetningar og raddsetn-
ingar hans víða kunnar.
Morgunblaðið/Þorkell
Félagar í Karlakórnum Þröstum á æfingu í Hafnarborg.
Þrestir hefja starfs-
árið á vortónleikum
Í menningarmiðstöðinni
Skaftfelli á Seyðisfirði
stendur nú yfir sýning á
hreyfi- og hljóðverkinu
Snjóform eftir Guðrúnu
Kristjánsdóttur.
Snjóform er eitt sex
verka úr myndröðinni
Hreyfimyndir af landi
og er unnið í samstarfi
við Dag Kára Pétursson
sem semur tónlistina.
Flytjendur ásamt hon-
um eru Orri Jónsson og
Gyða Valtýsdóttir.
Í myndlist sinni reyn-
ir Guðrún að feta ein-
stigið milli natúralisma og abstrakt-
listar. Með myndröðinni
Hreyfimyndir af landi þróar hún
þessa sýn áfram og bætir nýjum þátt-
um við: hreyfingu og tónlist.
Í apríl sl. dvaldi Guðrún í gesta-
íbúðinni í Skaftfelli og tók þá vídeó-
myndir af hlíðum fjallanna á Seyð-
isfirði. Verkið er 2 mínútur að lengd
og leika snjóformin í fjallshlíðum
Seyðisfjarðar aðalhlutverkið.
Sýningin stendur til 21. septem-
ber. Hún er opin alla daga frá kl. 11–
24.
Eitt snjóformanna á sýningunni í Skaftfelli.
Hreyfi- og hljóð-
verk í Skaftfelli