Morgunblaðið - 31.08.2003, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 31.08.2003, Qupperneq 34
FRÉTTIR 34 SUNNUDAGUR 31. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ BÚJARÐIR - BÚJARÐIR Til sölu hjá okkur er nú fjöldi áhugaverðra jarða, m.a. hlunnindajarðir, jarðir með greiðslumarki í sauðfé og mjólk, einnig jarðir fyrir garðyrkju, skógrækt, hrossarækt, svínarækt, frístundabúskap og ferðaþjónustu. Jarðir þessar eru víðsvegar um landið. Erum einnig með á söluskrá fjölda sumarhúsa og hesthúsa. Hjá okkur er einnig oft til sölu sauðfjár og mjólkurframleiðsluréttur. Fáið senda söluskrá í pósti eða nálgist eintak á skrifstofu. Minnum einnig á fmeignir.is og mbl.is. Til leigu 1080 m² verslunar/skrifstofuhæð við Guðríðarstíg í Grafarholti í glæsilegu og vönduðu steinsteyptu húsi. Húsið er byggt árið 2003, eignin er einstaklega vel staðsett með tilliti til auglýsingagildis frá Vesturlandsvegi og hentar vel undir ýmis skonar atvinnurekstur, verslun, þjónustu, léttan iðnað o.fl. Húsnæðið er bjart og með stórri gluggaframhlíð til norðurs og suðurs og með sérlega glæsilegu útsýni til norðurs. Eigninni hefur ekki verið skipt miður og er hún því í dag einn geymur með tvennum innkeyrsludyrum (möguleiki er að bæta við innkeyrsludyrum með vörudyrum.) Lofthæðin er u.þ.b. 3,2 metrar. Eignin er laus til afhendingar strax. Opið hús Ásholt 2 — Reykjavík 2ja herb. útsýnisíbúð með stæði í bílageymslu Til sýnis og sölu glæsileg 47,7 fm íbúð á 5. hæð í góðu lyftuhúsi með miklu útsýni yfir borgina og út á sjóinn. Húsvörður er í húsinu. Eigninni fylgir stæði í bíla- geymslu. Lokaður skrúðgarður er við húsið. Verð 10,9 millj. Áhv. byggsj. 4,7 millj. Margrét verður með heitt á könnunni og tekur vel á móti þér og þínum í dag, sunnudag, milli kl. 13.00 og 17.00. Fasteignasala Brynjólfs Jónssonar, sími 511 1555. www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli Árni Stefánsson viðskiptafræðingur og lögg. fasteignasali FASTEIGNASALAN GIMLI GRENSÁSVEGI 13,SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810 Traust þjónusta í 20 ár MARÍUBAKKI 18 - 3. hæð - LAUS STRAX Sérlega björt og rúmgóð 3ja herb. 81 fm íbúð á 3. hæð (efstu) í fjöl- býli sem búið er að klæða að utan á þrjá vegu. Í kjallara er sérgeymsla, þurrkherbergi ásamt hjóla- og vagnageymslu. Íbúðin er afar vel skipulögð og björt. Tvö svefnher- bergi, bæði með fataskáp. Baðher- bergið flísalagt í hólf og golf. Rúm- gott flísalagt þvottahús með glugga innan íbúðar. Parket á öllu nema eldhúsi þar er dúkur. Verð 10,9 millj. Áhv. 5,0 millj. Inga Jónasdóttir tekur á móti ykkur í dag frá kl. 14.00-16.00. Um er að ræða gullfallega og mikið endurnýjaða 3ja herbergja 93 fm íbúð á 2. hæð. Fallegar innréttingar. Parket. Nýtt rafmagn. Nýtt þak o.fl. Verð 13,6 millj. Gjörið svo vel að líta inn. Einar og Íris taka vel á móti ykkur. Sími 568 5556 SKAFTAHLÍÐ 6 OPIÐ HÚS Í DAG, SUNNUDAG, MILLI KL. 14 OG 17 TIL AÐ tryggja réttindi og mann- sæmandi kjör sem flestra starfsmanna er nauðsynlegt að verkalýðsfélög hugsi stórt og semji við fyrirtæki á sem breiðustum grund- velli, að sögn Philips J. Jennings, aðalrit- ara Union Network International (UNI). Jennings var staddur hér á dög- unum í boði Lands- sambands íslenskra verslunarmanna og hélt fyrirlestur um stöðu mála hjá alþjóðlegum verkalýðshreyfingum. Landsamband íslenskra verslunar- manna er eitt fjögurra íslenskra aðildaríkja að UNI en Samband ís- lenskra bankamanna, Póstmanna- félag Íslands og Félag íslenskra símamanna eru einnig aðilar að UNI. Jennings segir að UNI leggi mikla áherslu á að ná til stórfyr- irtækja með starfsemi í mörgum löndum og gera við þau samninga sem gilda fyrir alla starfsmenn fyrirtækisins. „Nýlega gerðum við t.d. samning við ISS, sem er stórt alþjóðlegt ræstingarfyrirtæki, um að fyrirtækið viðurkenni rétt allra starfsmanna sinna til að mynda verkalýðsfélag og semja um kaup og kjör. Samningurinn við ISS var mikilvægur fyrir okkur, hann bætti ímynd þeirra og setti öðrum fyrirtækjum á þessu sviði for- dæmi,“ segir Jennings en UNI hefur gert sambærilega samninga við þrjú önn- ur stórfyrirtæki; Tele- fonica, eitt stærsta fjar- skiptafyrirtæki í Rómönsku Ameríku, OTI, grískt fjarskipta- fyrirtæki sem starfar víða á Balkanskaganum og frönsku verslunar- keðjuna Carrefour. „Allt eru þetta stór- fyrirtæki með starfsemi í fjölmörgum löndum og þessir fjórir samningar taka til um milljón starfsmanna. Alls eru um 25 svona samningar til í heiminum í dag og þeim mun fjölga,“ segir Jennings en bendir á að gerð slíkra samninga sé ekki sjálfgefin. Erfið barátta „Þetta er erfið barátta, sérstak- lega þegar litið er til þess að bandaríska hagkerfið byggist á fyrirtækjum sem eru andvíg verkalýðsfélögum. Þessi fyrirtæki reyna að koma viðhorfum sínum inn annars staðar.“ Jennings segir að verkalýðs- hreyfingar hafi víða tekið höndum saman við aðrar hreyfingar, þ.á m. umhverfisverndarsamtök, í barátt- unni fyrir bættu viðskiptasiðferði. „Baráttan fyrir bættu siðferði í viðskiptum snýst meðal annars um að fyrirtæki komi fram við starfs- menn á sama hátt hvar sem er í heiminum og virði réttindi þeirra.“ Fimmtán milljónir starfsmanna frá um 140 löndum eru félagar í UNI. Samtökin urðu til fyrir fjór- um árum þegar fjögur stór verka- lýðssamtök runnu saman í eitt. „Ástæðan fyrir því að samtökin fjögur ákváðu að sameinast, er að á tímum alþjóðavæðingar þarf stóra alþjóðlega verkalýðshreyf- ingu til að halda uppi réttindabar- áttu starfsmanna og skapa sterka rödd á alþjóðavettvangi. Alþjóða- væðing og ný tækni hefur breytt mörgum störfum innan hagkerfis- ins og því var þörf á breyttum starfsháttum hjá gamalgrónum verkalýðshreyfingunum. Okkur fannst við þar með setja fordæmi fyrir aðrar verkalýðshreyfingar, bæði þær sem starfa innanlands sem og alþjóðlega,“ segir Jenn- ings. Forystan þekkir flokksmenn með nafni Jennings heimsótti aðildarfélög UNI á Íslandi. „Félögin hérna hafa mjög gott og náið samband við félaga sína, forystumenn í fé- lögunum þekktu meira að segja fé- lagsmenn með nafni! Þegar ég var í heimsókn hjá Landssambandi verslunarmanna sá ég að þeir eru með virka símaþjónustu fyrir fé- lagsmenn og daginn sem ég kom höfðu félaginu borist um fjögur hundruð símhringingar. Ég var einnig mjög hrifinn af auglýsingum sem félögin hafa látið vinna sem og könnunum sem þau standa fyrir meðal starfsmanna ákveðinna fyr- irtækja um hvernig fyrirtækin standi sig. Ég ætla að reyna að koma einhverjum af þessum hug- myndum á framfæri annars stað- ar.“ Jennings kom síðast til Íslands fyrir fjórtán árum, þá í sinni fyrstu ferð sem aðalritari FIET en það var eitt þeirra fjögurra félaga sem sameinaðist undir merkjum UNI. „Það hefur margt stækkað og mik- ið verið byggt síðan ég var hérna síðast. Atvinnulífið er orðið fjöl- breyttara, að því er mér virðist,“ segir Jennings, sem er frá Wales en býr í Sviss þar sem höfuðstöðv- ar UNI eru til húsa. Philip Jennings, formaður Union Network International Verkalýðsfélög verða að hugsa stórt Philip Jennings FRÍTEKJUMÖRK greiðslna almannatrygginga hækka um 6% frá og með 1. september samkvæmt reglugerð heil- brigðis- og tryggingamálaráðu- neytisins. Þetta þýðir t.d. að ellilífeyrir almannatrygginga, sem er 20.630 kr. á mánuði, byrjar að skerðast við eigin mánaðar- tekjur ellilífeyrisþega að upp- hæð 124.675 kr., en tekjur og/ eða greiðslur úr lífeyrissjóði koma þó ekki til skerðingar. Við eigin mánaðarlegar tekjur yfir 193.441 kr. fellur ellilífeyrir niður. Tekjutrygging ellilífeyris- þega, 38.500 kr., byrjar að skerðast við tekjur sem eru 40.007 kr. á mánuði. Þegar hjón eiga í hlut þar sem annað er líf- eyrisþegi en hitt ekki eru tekju- mörkin 67.546 kr. og 153.102, að því er fram kemur á heima- síðu Tryggingastofnunar. Greiðslur almannatrygginga Frítekju- mörk hækka um 6%

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.