Morgunblaðið - 04.09.2003, Page 1

Morgunblaðið - 04.09.2003, Page 1
Saman á siglingu Nýir menn standa nú í brúnni hjá Samskipum Viðskipti 2 Áfram Ásgeir Hinn hægláti trymbill Stuð- manna með sólóplötu Fólk 48 Viðtöl um dauðann Læknir og listamaður rugla saman reytum Listir 21 STOFNAÐ 1913 238. TBL. 91. ÁRG. FIMMTUDAGUR 4. SEPTEMBER 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is FRYSTITOGARINN Arnar HU kom til heimahafnar á Skagaströnd í gær með yfir 500 tonn af flökum sem þýðir að skipið veiddi rúm 1.000 tonn af fiski í veiðiferðinni. Eftir því sem næst verður komist hefur íslenskt fiskiskip aldrei komið með meira af flökum í land eftir eina veiðiferð. Arnar HU hefur síðastliðnar fimm vikur verið að veiðum á Vestfjarðamiðum og hefur afl- inn verið flakaður og frystur um borð. Af aflanum voru um 708 tonn af ufsa og 281 tonn af þorski. Áætlað verðmæti aflans er um 112 milljónir króna. Þar af nam verðmæti þorskhausa um 1,5 milljónum króna. Óskar Þór Kristinsson, skip- verji á Arnari HU, sagði í sam- tali við Morgunblaðið í gær, að aflabrögðin hefðu verið mjög góð allan tímann. „Við vorum að fá allt upp í 25 tonn í hali og þá var ekki togað nema í nokkrar mínútur.“ Óskar sagði skipverja að von- um ánægða með aflann en við- urkenndi að heldur hefði verið farið að draga af mönnum undir lokin. „Nú stendur til að setja skipið í slipp og þá fá menn góð- an tíma til að hvíla sig og safna orku fyrir næstu veiðiferð.“ Morgunblaðið/Ólafur Bernódusson Yfir 1.000 tonn í veiðiferð Aflaverðmætið um 112 milljónir Arnar HU frá Skagaströnd. GUÐNI Ágústsson landbúnaðar- ráðherra bauð fulltrúum úr ung- liðahreyfingum stjórnmálaflokk- anna í sveitaferð um Suðurland í gær til að kynna þeim nýjungar í íslenskum landbúnaði. Hópurinn lagði af stað í bítið frá Reykjavík og kom rjóður í kinnum til baka um kvöldmatarleytið, reynslunni ríkari. Á myndinni sést hvar Björn „skógarbjörn“ Jónsson, fram- kvæmdastjóri Suðurlandsskóga, hitar „skógarkaffi“ yfir opnum eldi á Spóastöðum þar sem tilraunir hafa verið gerðar með uppgræðslu nytjaskóga. Niels Árni Lund, skrifstofustjóri í landbúnaðarráðuneytinu, hafði á orði að hér á landi skorti „skógar- menningu“ eins og tíðkast hjá ná- grönnum okkar á Norðurlönd- unum. Hvað gæti því verið betra en að laga sér skógarkaffi yfir opnum eldi úti í guðsgrænni nátt- úrunni? Morgunblaðið/Árni Sæberg „Má bjóða ykkur upp á skógarkaffi?“  Sjá landbúnað/4 SAMKVÆMT sex mánaða uppgjöri Reykjavíkurborgar stefnir í að út- gjöld til fjárhagsaðstoðar fari 191,5 milljónir fram úr fjárheimildum og nemi 1,1 milljarði króna, samanborið við 954 milljónir króna á síðasta ári. Hækkunin milli ára nemur 17,1%. Sex mánaða uppgjörið var kynnt á fundi borgarráðs á þriðjudag og verð- ur tekið fyrir í borgarstjórn í dag. Í greinargerð fjármáladeildar Reykjavíkurborgar segir að aukna fjárhagsaðstoð megi annars vegar Björk segir að atvinnuleysi hafi aukist í borginni. „Við erum í meira mæli en áður að greiða leikskólagjöld fyrir barnmargar fjölskyldur og í fleiri tilvikum er borgin að grípa inn í vegna sérstakra erfiðleika eins og skuldasöfnunar. Þetta og fleira til skýrir aukna fjárhagsaðstoð,“ segir Björk og vonar að með þeim flýti- framkvæmdum sem ákveðið hafi ver- ið að ráðast í á höfuðborgarsvæðinu muni atvinnuástandið batna og þeim fækka sem þurfi á aðstoð að halda. hafi fjárhagsaðstoð til þeirra sem verst eru settir stöðugt aukist og vissulega sé sú þróun áhyggjuefni. Endurskoða þurfi aðstoðina þannig að þeim verst settu verði sinnt betur. Þó sé ljóst að borgarsjóður þoli ekki aukin útgjöld á sama tíma og skattfé aukist ekki, m.a. vegna fjölgunar einkahlutafélaga. rekja til fjölgunar þeirra einstaklinga sem fá aðstoð og hins vegar til hækk- unar á viðmiði fjárhagsaðstoðar um 6% hjá einstaklingum og 2% hjá hjón- um þann 1. júlí sl. Á síðasta ári nutu 3.198 heimili í borginni fjárhagsað- stoðar. Björk Vilhelmsdóttir, formaður fé- lagsmálaráðs, segir að frá árinu 2001 Fjárhagsaðstoð borgar- innar eykst um 17,1% Þróunin frá 2001 áhyggjuefni, segir formaður félagsmálaráðs BANDARÍSKIR hermenn reyndu í gær að afvopna vopnaðar lífvarða- sveitir herskás sjítaklerks í Najaf í Írak, Moqtada al-Sadrs, en urðu frá að hverfa, að sögn fulltrúa Sadrs. Bandaríkjamenn eru andvígir sjálf- skipuðum liðssveitum af þessu tagi vegna ólgunnar í landinu. Gerð var skotárás á háttsettan klerk úr röðum sjía-múslíma í Írak, Sayeed Ali al- Waadi al-Musawi, á þriðjudagskvöld en hann slapp naumlega. Um tíu menn, sem höfðu komið sér fyrir á húsþökum og í bílum, skutu á klerkinn er hann var á leið til bæna í einni af helgustu moskum Bagdad, Khadimiya. Sayeed Ali sagðist í gær telja að markmið árásarmanna hefði verið að reyna að sá misklíð milli sjíta og súnníta. Skotmennirnir hefðu sennilega verið erlendir súnnítar úr al-Qaeda-hryðjuverkasamtökunum sem ættu samstarf við stuðnings- menn Saddams Husseins, fyrrver- andi forseta, sem er sjálfur súnníti. „Við viljum að súnnítar og sjítar standi saman en erlendir útsendarar reyna að koma af stað misklíð í sam- félaginu,“ sagði Sayeed Ali. Ný bráðabirgðastjórn sór í gær embættiseið í Bagdad en fram- kvæmdaráð Íraks, skipað fulltrúum helstu fylkinga, tilnefndi ráðherra í hana. Bandaríkjamenn sögðust í gær ætla að beita sér af alefli fyrir því að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna legði blessun sína yfir alþjóðlegt friðar- gæslulið í Írak undir forystu banda- rísks yfirmanns. Einnig yrði í drögum að nýrri ályktun tekið fram hvenær stefnt væri að því að Írakar tækju sjálfir við völdum í landi sínu. Frakkar sögðu í gær að ný ályktun yrði að kveða skýrt á um að írösk rík- isstjórn, er nyti alþjóðlegrar viður- kenningar, tæki sem fyrst við. Ljóst þykir að næstu daga verði mikið um þreifingar bak við tjöldin í aðalstöðv- um SÞ um drögin. Sjítar í Írak vilja þjóðarsamstöðu með súnnítum Erlendir útsendarar sagðir sá sundrungu Bagdad, Najaf, Washington. AFP, AP.  Bush/27 EINN af vinsælustu barnaþáttunum í Bandaríkjunum síð- ustu áratugina er kenndur við Sesam- stræti og brúðurnar Big Bird, Elmo og fé- lagar þeirra eru í há- vegum hafðar. Banda- ríski landherinn kostar að hluta fyr- irtækið sem framleiðir þættina sem nú eru sýndir í um 120 löndum, að sögn fréttavefjar BBC. Talsmenn utanríkisráðuneytisins í Washington eru áfjáðir í að berjast gegn andúðinni sem Bandaríkin sæta víða í múslímalöndum. „Mjúka valdið“ svonefnda, jákvæð áhrif sem bandarísk afþreyingarframleiðsla hefur um allan heim, er mótvægi gegn útbreiddri tortryggni og hat- ursfullum áróðri þar sem Banda- ríkjamenn eru sagðir vera froðufellandi vígamenn og fantar, heimsvaldasinnar sem engu eiri. Bandarísk og vestræn gildi laum- ast oft inn í vitund ar- abískra barna sem sitja límd við skjáinn þegar Sesam-stræti er á dag- skránni, kapítalismi jafnt sem kvenfrelsi. Reynt er að auka skilning milli Ísraela og Palest- ínumanna með því að bæta inn í þættina gyðinga- og arababrúðum. Hermenn sem yfirheyrðu íraska fanga virðast ekki hafa verið alveg með á nótunum þegar þeir reyndu að buga fangana og fá þá til að leysa frá skjóðunni. Ein aðferðin var að neyða þá til að hlusta í sífellu á kynningarlag Sesam-strætis og græjurnar voru hafðar í botni. Sesam-stræti nýtist sem áróðursvopn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.