Morgunblaðið - 04.09.2003, Blaðsíða 33
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. SEPTEMBER 2003 33
hlæjandi saman í skemmtiferð á
Spáni.
Já, elsku besti pabbi, það er
margs að minnast og allar þessar
minningar eru minn fjársjóður og
hann geymi ég um ókomin ár.
Síðustu árin varstu orðinn mikið
veikari en við gerðum okkur grein
fyrir og lýsa orð læknissins því best
þegar hann sagði að umbúðirnar
hefðu verið svo flottar og það eru
orð að sönnu því þú varst glæsilegur
fram á síðasta dag.
Elsku hjartans pabbi minn, það er
sárt að kveðja, en ég vil þakka þér
með öllu hjarta mínu fyrir allt sem
þú hefur gert fyrir mig alla tíð og ég
veit að þú tekur á móti mér brosandi
þegar minn tími kemur. Hvíldu í
guðs friði.
Þín dóttir
Erna.
Elsku pabbi.
Á löngu lífskeiði er margs að
minnast, og oft erfitt að taka ein-
hverjar sérstakar stundir fram fyrir
aðrar. Samt stendur uppi nú sá allt
of stutti tími sem ég eyddi með þér
og mömmu í sumarparadísinni ykk-
ar á Spáni í sumar.
Paradís, þar sem þú naust þín
aldeilis í blóma og aldingarðinum
þínum, ávallt lagandi, dyttandi að og
setjandi niður eitthvað gullfallegt og
dásamlegt.
Paradís, þar sem allir höfðu unun
af að koma í og heimsækja ykkur
mömmu. Það fólk kom aldeilis ekki
að tómum „kofanum“. Þarna var
töfrað fram allskyns trakteringar og
góðgæti á augabragði og það oft á
dag.
Já, paradís sem þú hefðir átt að
njóta miklu miklu meir og lengur
elsku pabbi minn eftir allar glæsi-
legu breytingarnar sem þú sást um í
vor og þér var einum lagið á að
framkvæma.
Þrátt fyrir veikindi fórstu út í vor
og sást til þess að allar framkvæmd-
ir yrðu rétt gerðar og klárar áður en
þú fékkst flestalla litlu augasteinana
þína, barnabörn og barnabarnabarn
í heimsókn stuttu síðar.
Eins og ég þá njóta þau þess að
hafa verið með afa þessar stuttu
stundir, syngjandi og trallandi á sjó
og landi. Afa sem þekkti næstum
hverja þúfu og vík á Costa Blanca
ströndinni, svo gaman þótti honum
að ferðast um, skoða og kanna eitt-
hvað nýtt, helst á hverjum degi.
Eftir að þú komst heim í júlí, þá
vildir þú koma þessari miklu aðgerð
frá, svo þú gætir farið að stússast og
hlaupa um eins og þín var von og
vísa. En því miður þá var þetta bara
allt, allt of seint. Hjartað, fullt af ást
og örlæti, væntumþykju, hamingju
og gleði gat bara ekki meir. Stundin
sem mamma og við systkinin áttum
með þér á gjörgæslunni síðustu and-
artökin í lífi þínu, elsku pabbi minn,
líða okkur aldrei úr minni.
Þú varst svo sterkur alla tíð og
barðist til síðustu mínútu, en þarna
varðst þú bara að fá hvíld og frið.
Elsku pabbi, þetta eru bara fáein
fátækleg orð af óteljandi sem ég
vildi skrifa um þig, allt hitt á 40 ára
lífsleiðinni á ég sjálfur, geymi vel og
hlúi að.
Og þó ég vilji ekki vera eigingjarn
þá öfunda ég alla þá sem hópast í
kring um þig núna, því þeir fá að
njóta þeirra dásemda á himnum að
smakka allar Hnallþórurnar, stríðs-
terturnar, „Sigga“-brauðtertustræt-
isvagnana og hvað þetta allt nú heit-
ir, elsku kallinn minn.
Hvíldu þig vel, þú átt það svo
sannarlega skilið elsku pabbi minn,
Þinn sonur
Ingi.
Elsku hjartans pabbi minn, ekki
hvarflaði það að mér þegar ég heim-
sótti þig á spítalann daginn fyrir að-
gerðina að komið væri að kveðju-
stundinni. Ég hélt að svona stór og
stæðilegur maður sem bar sig jafn-
vel og þú ættir alveg að geta komist
í gegnum þetta eins og allt annað
sem þú gerðir. En hvernig gat ég
vitað að þú værir svona mikið veikur
eins og átti eftir að koma í ljós? Þú
slóst bara á létta strengi eins og
alltaf og þótt ég hefði óttast um þig
þá sást þú til þess að ég kvaddi þig
brosandi. Þannig varst þú alltaf,
stutt í glettnina og spaugið og um-
hugað um vellíðan okkar.
Þér var alltaf mikið í mun að fjöl-
skyldan kæmi saman á heimili ykk-
ar mömmu til skrafs og ráðagerða
enda er það svo enn í dag að ég tala
um að fara „heim“ þegar ég fer inní
Álfheima. Sjálfum leið þér best þeg-
ar við vörum öll saman komin
„heima“ í einhverri af fjölmörgu
veislunum sem þið mamma höfðuð
skipulagt og séð um allan undirbún-
ing á og þessar veislur voru alltaf
glæsilegar og sýndu handbragð
listamannsins í þér.
Ég mun ætíð búa að öllu því sem
þú kenndir mér um lífið sjálft, sorg-
ina, gleðina, baráttuna og það að
vernda þá sem manni þykir vænt
um. Þú hefur fyrir löngu gefið mér
það veganesti sem sérhver mann-
eskja þarf á lífsleiðinni og fyrir það
mun ég vera þér þakklát alla tíð.
Elsku pabbi, í mínum huga varst
þú miðpunkturinn í öllu, glæsilegur
höfðingi og leiðtogi sem stóðst upp
úr mannhafinu svo eftir þér var tek-
ið. Ég mun ætíð geyma í minning-
unni umhyggjusemi, væntumþykju
og rausnarskap þinn, í því varstu
góð fyrirmynd fyrir okkur öll. Ég
mun alltaf sakna þín vegna þess
hvernig maður þú varst og þó að
sorgin virðist óyfirstíganleg núna þá
veit ég að þú átt eftir að gleðja mig í
sérhvert skipti sem ég hugsa til þín.
Guð geymi þig, elsku pabbi minn.
Þín
Berglind (Beddý).
Í dag kveð ég elskulegan tengda-
föður minn Sigurð Ragnar Ingi-
mundarson.
Siggi, eins og þú varst jafnan kall-
aður, varst ekki bara tengdapabbi
minn heldur líka einn minn besti
vinur. Þegar ég lít til baka og rifja
upp allar þær stundir sem við vor-
um saman við ýmsar framkvæmdir
á verslunarhúsnæði þínu í Álfheim-
um, svo sem smíðar, múrverk, mál-
un, flísa- eða dúklagnir, get ég ekki
annað en þakkað fyrir að hafa fengið
að njóta samveru þinnar og lær-
dóms. Öll þau verk sem ráðist var í,
stór sem smá, vannstu af svo mikl-
um krafti, fagmennsku og ósérhlífni
að unun var að fylgjast með og mað-
ur velti oft fyrir sér hvaðan allt
þetta þrek og kraftur kom, því oft er
við höfðum unnið saman við múr-
brot og aðra erfiðisvinnu langt fram
á kvöld og ég var að niðurlotum
kominn endaðir þú á því að þrífa allt
hátt og lágt því þú gast aldrei í ró
farið nema allt væri snyrtilegt og
vel frá gengið.
Er við Anna eignuðumst okkar
fyrsta heimili í Skipasundi áttir þú
hvað mestan þátt í því að innrétta
það með okkur, rétta af gólf, smíða
skápa og eldhúsinnréttingu, mála,
parket- og teppaleggja. Þetta
vannst þú eins og alltaf af ánægju
og gleði því þú varst maður fram-
kvæmda. Svona get ég haldið áfram
lengi vel, en læt hér staðar numið
við aðeins brot af því sem þú gerðir
fyrir okkur Önnu. Að lokum vil ég
þakka þér Siggi minn allar þær
stundir sem við áttum saman, oftast
í galsa og grallaraskap, því það var
svo stutt í þinn skemmtilega húmor.
Hvíl í friði.
Megi Guð blessa þig og fjölskyld-
una alla, elsku Dóra mín.
Þinn
Konráð.
Á æskuárum mínum átti ég oft
viðskipti við hávaxinn mann með
hár sem hann sveiflaði aftur á
hnakkann. Ég man að það gustaði
oft um kallinn þegar hann kom inní
sjoppuna þegar við strákarnir vor-
um að kaupa góðgæti af dætrum
hans. Ég bar óttablandna virðingu
fyrir þessum manni enda ekki annað
hægt því hann var bæði fumlaus og
ákveðinn í fasi. Sigurður var líka
töffari eins og við orðuðum það enda
fékk hann viðurnefnið „Siggi Holly-
wood“ hjá okkur strákunum vegna
þess að hann var alltaf svo flottur í
tauinu. Fáir einstaklingar eru jafn-
samofnir minningunni úr Lang-
holtshverfinu og hann Sigurður.
Raunveruleg kynni mín af honum
hófust hins vegar ekki fyrr en fyrir
örfáum árum. Okkur varð strax vel
til vina og áttum við oft langar sam-
ræður þar sem ýmiskonar málefni
voru rædd og oftar en ekki tengdust
þau fjölskyldunni en honum var
mjög umhugað um velferð hennar.
Hann sagði mér frá lífshlaupi sínu
og hvernig hann hafði sigrast á erf-
iðleikum sem að honum höfðu steðj-
að. Hann sagði mér líka frá því þeg-
ar hann kom inní Álfheimana með
tvær hendur tómar til að taka
grunninn að húsinu sem seinna varð
bæði heimili hans og vinnustaður.
Það eina sem hann átti við upphaf
þeirrar byggingar var áræðni, dug-
ur og eiginkona sem stóð við bakið á
honum.
Sigurður var listamaður og að
auki lærður bókbindari. Hann hafði
mikla ánægju af því að sýna mér
bækur sem hann hafði bundið inn í
skinnband og sú ánægja var gagn-
kvæm enda eru bækurnar fagrir
gripir. Blýantsteikningarnar hans
sýna svo ekki verður um villst að
stórgerðar hendur geta dregið fínar
línur ef þolinmæði og listfengi eru
fyrir hendi.
Ég hef misst vin sem var mér kær
og þrátt fyrir að við hefðum ekki
þekkst lengi þá kenndi þessi vinur
minn mér meira en margir sem ég
hef þekkt alla ævi.
Eftirlifandi eiginkonu Sigurðar,
Dóru Maríu, og ættingjum öllum
færi ég mínar innilegustu samúðar-
kveðjur. Guð blessi minninguna um
einstakan mann.
Atli Sigurðarson.
Fleiri minningargreinar um Sig-
urð R. Ingimundarson bíða birt-
ingar og munu birtast í blaðinu
næstu daga.
Símar 581 3300 - 896 8242
Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla
Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is
Sverrir Olsen,
útfararstjóri.
Sverrir Einarsson,
útfararstjóri.
Bryndís Valbjarnardóttir,
útfararstjóri.
Baldur Frederiksen,
útfararstjóri.
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Lundi V/Nýbýlaveg
564 4566 • www.solsteinar.is
Minningarkort
Krabbameinsfélagsins
540 1990
krabb.is/minning
Hjartans þakkir færum við öllum þeim sem
sýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug við and-
lát og útför ástkærrar móður okkar, tengda-
móður og ömmu,
JÓHÖNNU GUÐMUNDSDÓTTUR
frá Hellissandi,
Austurgerði 6,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir fær starfsfólkið á deild K1,
Landspítala, Landakoti, fyrir alúð og góða umönnun.
Guð blessi ykkur öll.
Ellert Róbertsson, Bryndís Theódórsdóttir,
Guðbjörg Róbertsdóttir, Jósavin Helgason,
Birna Róbertsdóttir,
Birgir Róbertsson
og barnabörn.
Hjartans þakkir til allra þeirra sem veittu okkur
hjálp og sýndu okkur samúð og vinarhug í
veikindum og við andlát
INGUNNAR GUÐLAUGSDÓTTUR,
Bjarkargrund 14,
Akranesi.
Brandur Sigurjónsson,
Guðlaugur Þór Brandsson,
Margrét Brandsdóttir,
Kristín Magnúsdóttir,
Guðlaugur Þór Þórðarson,
Jóhannes Guðlaugsson,
Magnea Guðlaugsdóttir,
Sturla Guðlaugsson,
Þórður Guðlaugsson og
Jófríður María Guðlaugsdóttir.
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem
sýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug við and-
lát og útför eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður og afa,
YNGVA GUÐMUNDSSONAR
fyrrv. rafmagnseftirlitsmanns,
Hlíf II,
Ísafirði.
Sérstakar þakkir til alls hjúkrunarfólks og lækna sem önnuðust hann
í veikindunum.
Sigrún Einarsdóttir,
Þuríður Yngvadóttir, Guðmundur Jónsson,
Auður Yngvadóttir,
Einar Á. Yngvason, Emelía Þórðardóttir
og barnabörn.
Hjartans þakkir til allra þeirra er auðsýndu
okkur samúð og vinarhug við andlát og útför
mannsins míns, föður okkar, tengdaföður, afa
og langafa,
ODDGEIRS SIGURBERGS JÚLÍUSSONAR.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Vesturbæjar í
Skógarbæ.
Guð blessi ykkur öll.
Guðbjörg Bryndís Sigfúsdóttir,
Ágúst Gunnar Oddgeirsson,
Sigrún Júlía Oddgeirsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartans þakkir til ykkar allra, sem sýnduð okk-
ur samúð og hlýhug við andlát og jarðarför
föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
JÓNS JÓNSSONAR
fyrrv. verkstjóra hjá Eimskip,
Austurbyggð 17,
Akureyri.
Sérstakar þakkir til heimilisfólks og starfsfólks
á dvalarheimilinu Hlíð.
Guðný Jónsdóttir, Knútur Óskarsson,
Oddný H. Jónsdóttir, Jón H. Lárusson,
Karla H. Karlsdóttir,
afabörn og langafabörn.