Morgunblaðið - 04.09.2003, Side 36
36 FIMMTUDAGUR 4. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
ÉG er íslenskur ríkisborgari en
ekki þegn neins valds og valdníðsla
er mér ekki að skapi.
Samskipti ríkisborgara og rík-
isvaldsins og ríkisstofnana er með
ýmsum hætti og oftast góð sem
betur fer. Stundum fer þó svo að
borgarar lenda í samskiptum við
oflátunga í ríkiskerfinu eða þá að
viðkomandi ríkisstarfsmenn séu
vegna valds síns firrtir veruleika
hins almenna borgara og lifi í þeim
heimi að sköpunarverkið sé þeirra
og þeim einum ætlað. Það eru sam-
skipti við þessa sjúku einstaklinga
sem eru borgurum oft erfið vegna
þess ótta sem þeir ná að skapa í
kringum sig í krafti valdsins. Þýsk-
ir ríkisborgarar voru t.a.m. geltir
fyrir það eitt að vera ekki andlega
heilbrigðir á fjórða og fimmta ára-
tug síðustu aldar. Margir fræði-
menn og rithöfundar hafa reynt að
lýsa embættismönnum og valdhöf-
um, má þar nefna Friedrik von
Hayek og George Orwell
Íslenska löggjafarvaldið hefur
með lögum um Umboðsmann Al-
þingis reynt að gefa íslenskum rík-
isborgurum færi á að verja sig fyr-
ir yfirgangi ríkiskerfisins og mun
það hafa tekist nokkuð vel til
þessa.
Lög eru vel til þess fallin að
tryggja öryggi og velferð manna
og njóta íslenskir ríkisborgarar
þess í flestum tilfellum en því má
ekki gleyma að lög eru einnig tæki
í höndum yfirvalda til að hygla sér
og sínum jafnt efnalega sem í
áhrifum. Lög og völd eru ætíð háð
stað og stund en eru ekki nátt-
úrulögmál svo það er skylda hvers
ríkisborgara að veita valdhöfum
aðhald öllum tiltækum löglegum
ráðum vilji hann halda rétti sínum.
Íslenskir ríkisborgarar mega gera
allt sem þá langar til nema það sé
bannað með lögum en íslensk yf-
irvöld og stofnanir mega ekkert
gera nema að það sé leyft með lög-
um.
KRISTINN KORT
BJÖRNSSON,
Tómasarhaga 21.
Íslenskur
ríkisborgari
Frá Kristni Kort Björnssyni
MAGNEA Guðmundsdóttir, mark-
aðsstjóri Bláa lónsins hf., skrifaði
grein sem birtist í Velvakanda ný-
lega þar sem hún lýsti þeirri skoð-
un forsvarsmanna Bláa lónsins að
ekki væri raunhæft að bera saman
verðskrá Bláa lónsins og sund-
lauga.
Raunhæfara væri að bera
verðskrá Bláa lónsins saman við
verðskrá annarra heilsulinda og
nefnir þar m.a. Sögu, heilsu & spa.
Hún segir m.a. að gestir Bláa
lónsins komi þangað til að slaka á
og njóta „fjölbreyttrar heilsulind-
arþjónustu“.
Bláa lónið er vissulega einstakt
á heimsvísu vegna heilsubætandi
eiginleika jarðsjávarins og gestirn-
ir sækja staðinn til að slaka á og
njóta vellíðunar.
Hins vegar býður Bláa lónið
ekki upp á fjölbreytta heilsulind-
arþjónustu og þess vegna er ekki
raunhæft að bera verðskrána sam-
an við verðskrá Sögu, heilsu & spa.
Saga, heilsa & spa er heilsu-
miðstöð á Nýbýlavegi 24, Kópa-
vogi, sannkölluð heilsulind. Þar er
boðið upp á þjónustu lækna, hjúkr-
unarfræðinga, sjúkraþjálfara,
nuddara, næringarfræðinga, sál-
fræðinga o.fl. sérfræðinga.
Í heilsumiðstöðinni er sundlaug,
gufa og heitur pottur, þar er boðið
upp á fjölbreyttar nudd- og spa-
meðferðir, heilsurækt og hvers
konar dekur í fallegu og afslöpp-
uðu umhverfi. Gestir geta fengið
lífsstílsráðgjöf og fagfólk fylgir
þeim eftir til að tryggja góðan ár-
angur. Fjöldi námskeiða og fyr-
irlestra er í boði.
Saga, heilsa & spa býður einnig
upp á heilsuvernd í fyrirtækjum.
Þjónustan er margþætt og sérsnið-
in fyrir hvert fyrirtæki, s.s. lækn-
isfræðileg ráðgjöf, áhættumat,
heilsufarseftirlit, inflúensubólu-
setningar, úttekt á vinnustöðvum,
sjúkraþjálfun, axlanudd á vinnu-
staðnum, aðstoð við mótun heilsu-
stefnu og skipulagningu á heilsu-
viku.
Að þessu sögðu ætti að vera
ljóst að Saga, heilsa & spa er sann-
kölluð heilsulind með fjölbreytta
þjónustu, þar sem hugsað er um
líkama og sál í fallegu og afslöpp-
uðu umhverfi. Ekki er rétt af for-
svarsmönnum Bláa lónsins að bera
sig saman við okkar fyrirtæki enn
sem komið er hvað sem síðar verð-
ur. Það er okkar einlægi ásetn-
ingur að reka heilsulind á heims-
mælikvarða með fjölbreytta
þjónustu.
Velkomin í heilsumiðstöð Sögu,
heilsu & spa … „því að hver dagur
er dýrmætur“.
EVA ÁSRÚN
ALBERTSDÓTTIR,
sölu- og markaðsstjóri
Sögu, heilsu & spa ehf.
www.sagaheilsa.is
Saga, heilsa & spa
– heilsumiðstöð
Frá Evu Ásrúnu Albertsdóttur