Morgunblaðið - 27.09.2003, Síða 45

Morgunblaðið - 27.09.2003, Síða 45
hann kvaddi mig alltaf með sömu orðunum: „Mundu að vera góður við hana mömmu þína og bróður þinn.“ Seinustu árin hitti ég afa eiginlega bara á jólunum og það er fallegasta minningin sem ég á, þegar við sátum saman í sófanum og hann sagði mér sögur á meðan amma og mamma eld- uðu matinn. Afi var nefnilega algjört jólabarn og þegar hann sýndi mér nýjasta jólaskrautið sitt, sem oftast var upptrekkjanlegur jólasveinn sem gerði einhverjar kúnstir, ljómaði hann allur af barnslegri gleði og hlýju, hlýju sem kom frá hjartanu og smitaði alla í kringum hann. Einar Sigurðsson. Elsku afi. Manstu þegar ég var lít- ill og lá á maganum á þér og þú sagð- ir mér sögur og varst með epli og hníf og gafst mér með þér? Þegar þú áttir heima á Ásaveginum og lyftir mér upp og leyfðir mér að hanga á bit- anum í stofunni? Það er svo ósann- gjarnt að góður og skemmtilegur maður þurfi að fara svona snemma úr lífi mínu en mundu, þú munt alltaf eiga stóran sess í hjartanu mínu. Afi, þú ert átrúnaðargoðið mitt. Þegar ég eldist vil ég vera nákvæm eftirmynd af þér, af því að það geislaði af þér ánægja og hressleiki. Manstu þegar við bjuggum til lóðina heima hjá þér á Nýjabæjarbrautinni, húsinu sem þú bjóst til með þínum eigin hönd- um? Manstu þegar við máluðum hús- þakið heima hjá þér á Nýjó og vorum svaka töffarar, berir að ofan í sól og blíðu? Það var svo gaman hjá okkur og ég fékk að heyra fullt af sögum og svo bakaðir þú handa mér jólaköku, þetta eru langbestu kökurnar í öllum heiminum. Það er gott að tala við þig, þú talar við mig sem jafningja og læt- ur ekki eins og þú vitir miklu betur en ég en samt veit ég að þú veist allt miklu betur en ég. Manstu þegar þið amma fóruð með okkur í sumarfrí? Það voru skemmtilegustu fríin sem ég hef farið í. Manstu í sumar þegar við vorum að gera við slökkvibílinn og þú leyfðir mér að keyra hann og það sýndi mér að þú treystir mér full- komlega? Þetta er svo ósanngjarnt, það þekktu allir Vestmannaeyingar þig og það er umtalað hve skemmti- legur og hress þú varst. Addi afi, þú ert maðurinn sem ég lít upp til og mun alltaf gera það. Ég ætla að spila allt næsta sumar fyrir þig og gera allt sem ég get til að koma inná hjá meistaraflokki fyrir þig af því að ég veit að þig langar svo mikið að sjá mig þar að spila fótbolta með meist- araflokki ÍBV. Ef það gerist þá lít ég upp til himins og veifa þér, ég geri allt mitt besta fyrir þig, elsku afi minn. Amma, þú hefur misst besta afa í öllum heiminum eins og við öll. Kær kveðja. Þinn Adólf. Nú hefur aldeilis breyst lífið hér á Selalæk. Hann afi á Nýjó er dáinn og mikið skarð höggvið í okkar hvers- dagslíf. Við erum þó þakklát fyrir allt sem hann gaf okkur. Sögurnar um afa í sveitinni, Trygg, Neró, Krulla, Ljómalind og öll hin dýrin. Lögin öll sem hann söng af svo mikilli innlifun. Ótrúlegar mannlífslýsingar. Ráð við hverjum vanda. Óendanlega gæsku, gleði og hamingju. Allt þetta litaði líf okkar fögrum litum. Við þökkum honum afa fyrir að vera svona góður afi og allar dásamlegu minningarnar sem munu lifa í hjarta okkar um alla eilífð. Elísa, Magnús, Halla Þór- dís, Anna Vigdís, Benóný Sigurður og Elín Elfa. Hann Guð er búinn að ákveða að taka sér smá frí og þurfti hann bestu manneskjuna á jarðríki til að taka við af sér á meðan og þá kemur enginn annar til greina en hann afi minn. Ég man hvernig það var að koma í heim- sókn til hans og ömmu og fá að kúra á bumbunni hans, hún var alltaf svo mjúk og manni fannst þetta vera öruggasti staður í heimi. Hann var alltaf svo góður og yndislegur við alla. Ég man þegar hann kom seinast í heimsókn, hann var svo ánægður enda á leiðinni í sumarbústað með ömmu, svo tók kvöldið enda og ég kvaddi hann en mér datt aldrei í hug að ég væri að kveðja hann í seinasta sinn. Nú er hann dáinn en ekki farinn því ég held í minningar um hann í hjarta mínu og hann verður ætíð þar. Nú kveð ég besta afa í heimi með sorg í hjarta. Ég mun aldrei gleyma honum elsku afa mínum. Ástarkveðj- ur. Gyða Lind. MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 2003 45  Fleiri minningargreinar um Elías Baldvinsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ATVINNU- AUGLÝSINGAR I I Vesturbær — „amma“ óskast! Amma óskast fyrir 15 mánaða blíðan strák 5—6 tíma á dag. Uppl. í síma 864 2211. R A Ð A U G L Ý S I N G A R NAUÐUNGARSALA Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður haldið á þeim sjálfum miðvikudaginn 1. október 2003 sem hér segir: Árbæjarkantur 3, þingl. eig. Útgerðarfélagið Fell ehf., gerðarbeiðend- ur Byggðastofnun og Sjóvá Almennar tryggingar hf., kl. 14.00. Hólsvegur 6, þingl. eig. Gunnar Sigurðsson og Hlédís Sigurb. Hálf- dánardóttir, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, kl. 14.30. Sýslumaðurinn í Bolungarvík, 26. september 2003. Uppboð Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins á Borgarbraut 2, Stykkishólmi, sem hér segir á eftirfarandi eignum: Akrar, Snæfellsbæ, þingl. eig. Ólína Gunnlaugsdóttir, gerðarbeiðandi innheimtumaður ríkissjóðs, fimmtudaginn 2. október 2003 kl. 14:00. Borgarbraut 6, 0201, Grundarfirði, þingl. eig. Þorsteinn Bjarki Ólafs- son, gerðarbeiðandi Sparisjóður Hafnarfjarðar, fimmtudaginn 2. október 2003 kl. 14:00. Búðir, hótel, Snæfellsbæ, þingl. eig. Hótel Búðir ehf., gerðarbeiðend- ur Ferðamálasjóður, Gestur Ólafur Auðunsson og Icelandair ehf., fimmtudaginn 2. október 2003 kl. 14:00. Ennisbraut 6, Snæfellsbæ, þingl. eig. Margaret Mary Byrne, gerðar- beiðandi Kreditkort hf., fimmtudaginn 2. október 2003 kl. 14:00. Fjöruhús, Brekkubæjarlandi, Snæfellsbæ, þingl. eig. Ólína Gunn- laugsdóttir, gerðarbeiðandi innheimtumaður ríkissjóðs, fimmtudag- inn 2. október 2003 kl. 14:00. Grundarbraut 4, Snæfellsbæ, þingl. eig. Nóntindur ehf, gerðarbeið- endur Landvélar ehf., Rafmagnsveitur ríkisins, Reykjavík, Sameinaði lífeyrissjóðurinn, Set ehf., Snæfellsbær, Söfnunarsjóður lífeyrisrétt- inda og Tryggingamiðstöðin hf., fimmtudaginn 2. október 2003 kl. 14:00. Grundargata 21, Grundarfirði, þingl. eig. Trausti G. Björgvinsson, gerðarbeiðendur innheimtumaður ríkissjóðs og Íbúðalánasjóður, fimmtudaginn 2. október 2003 kl. 14:00. Grundargata 69, 0201, Grundarfirði, þingl. eig. Rögnvaldur Bjarna- son, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, fimmtudaginn 2. október 2003 kl. 14:00. Íbúðarhús að Ytri-Skógum, Kolbeinsstaðahreppi, þingl. eig. Benedikt Hákon Ingvarsson, gerðarbeiðandi Lögreglustjóraskrifstofa, fimmtu- daginn 2. október 2003 kl. 14:00. Naustabúð 8, Snæfellsbæ, þingl. eig. Dís Aðalsteinsdóttir, gerðar- beiðendur Hegas ehf., Kreditkort hf. og Sjóvá-Almennar tryggingar hf., fimmtudaginn 2. október 2003 kl. 14:00. Ólafsbraut 66, 0101, Snæfellsbæ, þingl. eig. Dariusz Wasiewicz og Katarzyna Wioletta Rawluszko, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, fimmtudaginn 2. október 2003 kl. 14:00. Skólastígur 26, Stykkishólmi, þingl. eig. Guðmundur Ágústsson, gerðarbeiðandi Ferðamálasjóður, fimmtudaginn 2. október 2003 kl. 14:00. Smiðjustígur 3, 15,1% efri hæðar, Stykkishólmi, þingl. eig. Erlar Jón Kristjánsson, gerðarbeiðandi Lífeyrissjóður verkfræðinga, fimmtudaginn 2. október 2003 kl. 14:00. Snoppuvegur 4, 0103, Snæfellsbæ, þingl. eig. Eddi ehf., gerðarbeið- endur innheimtumaður ríkissjóðs og Ker hf., fimmtudaginn 2. október 2003 kl. 14:00. Snoppuvegur 4, 0104, Snæfellsbæ, þingl. eig. Eddi ehf., gerðarbeið- andi innheimtumaður ríkissjóðs, fimmtudaginn 2. október 2003 kl. 14:00. Snoppuvegur 6, 0102, hluti, Snæfellsbæ, þingl. eig. Útgerðarfélagið Víglundur ehf., gerðarbeiðendur innheimtumaður ríkissjóðs og Ker hf., fimmtudaginn 2. október 2003 kl. 14:00. Sólvellir 5, Grundarfirði, þingl. eig. KB Bílprýði ehf., gerðarbeiðendur Byggðastofnun, Grundarfjarðarbær og Söfnunarsjóður lífeyrisrétt- inda, fimmtudaginn 2. október 2003 kl. 14:00. Túnberg, Snæfellsbæ, þingl. eig. Davíð Óli Axelsson og Guðrún Hallfríður Elíasdóttir, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, fimmtudaginn 2. október 2003 kl. 14:00. Sýslumaður Snæfellinga, 26. september 2003. Uppboð Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins á Strandgötu 52, Eskifirði, sem hér segir á eftirfarandi eign: Austurvegur 7, Reyðarfirði (217-7395), þingl. eig. Árdís Guðborg Aðalsteinsdóttir og Guðmundur Karl Bóasson, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður, Lífeyrissjóður Austurlands og sýslumaðurinn á Eskifirði, miðvikudaginn 1. október 2003 kl. 10:00. Borgarland 24, Djúpavogi (217-9407), þingl. eig. Guðlaugur Harðar- son, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, miðvikudaginn 1. október 2003 kl. 10:00. Donna SU 55, skipaskr.nr. 1175, þingl. eig. Selnes ehf., gerðarbeið- endur Hafnarfjarðarhöfn og Sigurður Marjón Ólafsson, miðvikudag- inn 1. október 2003 kl. 10:00. Guðmundur Þór SU 121, skipaskr.nr. 2045, þingl. eig. Gylfi Þór Eiðs- son, gerðarbeiðandi sýslumaðurinn á Eskifirði, miðvikudaginn 1. október 2003 kl. 10:00. Heiðmörk 5, Stöðvarfirði (217-8342), þingl. eig. Sigurlaug Helgadóttir, gerðarbeiðandi Hampiðjan hf., miðvikudaginn 1. október 2003 kl. 10:00. Kirkjustígur 1 A, Eskifirði , þingl. eig. Stefán Óskarsson og Sigurður Kristjánsson, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, miðvikudaginn 1. október 2003 kl. 10:00. Skólabraut 10, Stöðvarfirði (217-8437), þingl. eig. SMS-Samskipti með síma ehf., gerðarbeiðendur Byggðastofnun og sýslumaðurinn á Eskifirði, miðvikudaginn 1. október 2003 kl. 10:00. Steinar 4, Djúpavogi ( 217-9372 ), þingl. eig. Sigurður Anton Stefáns- son og Bergþóra Stefánsdóttir, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Sparisjóður Hornafjarðar/nágr., miðvikudaginn 1. október 2003 kl. 10:00. Sýslumaðurinn á Eskifirði, 26. september 2003. TILKYNNINGAR Félag hjartasjúklinga á Reykjavíkursvæðinu minnir á hjartagönguna frá Perlunni á morgun sunnudag kl. 14. A ug l. Þó rh ild ar 12 70 .1 17 SMÁAUGLÝSINGAR DULSPEKI Miðill sem svarar þér í dag. Hringdu og fáðu einkalestur og svör við vandamálum í starfi eða einkalífi í síma 001 352 624 1720. FÉLAGSLÍF 28. sept. Kjölur, 785 m. Gengið frá Brúsastöðum í Þing- vallasveit að gömlu réttunum í Hvalfirði. Leiðin er u.þ.b. 17—18 km og göngutími um 6—7 klst.Fararstjóri er Tómas Þröstur Rögnvaldsson. Brottför frá BSÍ kl. 10:30. Verð 1.900/2.300 kr. 1. okt. Útivistarræktin — Búrfellsgjá. Brottför frá gömlu Toppstöðinni (stóra brúna hús- inu) í Elliðaárdalnum kl. 18:30. Allir eru velkomnir í Útivistar- ræktina – ekkert þátttökugjald. Þetta er síðasta miðvikudags- ganga Útivistarræktarinnar í ár. 2.—5. okt. Norður fyrir Hofs- jökul — jeppaferð. Brottför kl. 20:00 frá Geysi. Verð á bíl kr. 3.900/4.500 og kr. 4.500 fyrir gistingu. Fararstjóri er Guðrún Inga Bjarnadóttir. 6. okt. Myndakvöld. Nánari upplýsingar á www.utivist.is Dagsferð sunnudaginn 28. september kl. 10. Hellisheiði — Kolviðarhóll. Farið verður frá BSÍ með viðkomu í Mörkinni 6. Gengið verður frá Kambabrún að Kolviðarhól. Verð kr. 1.700/ 1.900. Í dag kl. 14-18 Biblíukennsla út frá trúargreinum Hjálpræðis- hersins fyrir alla hermenn, sam- herja, heimilasambandssystur og hjálparflokkskonur. Kennari er kafteinn Bente Gundersen. Lækningasamkoma Sunnudaginn 28. september kl. 20.00 í Suðurhlíðarskóla, Suðurhlíð 36, 105 Reykjavík. Andrew Pearkes frá Englandi predikar og biður fyrir sjúkum. Mikil lofgjörð. Allir hjartanlega velkomnir. Upplýsingar í síma 564 4303. Vineyard christian fellowship international.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.