Morgunblaðið - 02.10.2003, Síða 1
STOFNAÐ 1913 266. TBL. 91. ÁRG. FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Stytting
skólanáms
Misjöfn viðbrögð skólastjórn-
enda við tillögunum Fréttir 11
Þrettán kvikmyndir
frá sex löndum Fólk 60
Bókastefna
í Gautaborg
Yfir 800 fyrirtæki og mun
fleiri ræðumenn Listir 30
Kvikmyndahátíð
Eddunnar
130. löggjafarþing Íslendinga var sett í gær, í upp-
hafi haustmánaðar. Fjárlagafrumvarp fyrir árið
2004 var lagt fram í gær. Tæpur þriðjungur þing-
heims er nýkjörinn og ennfremur tekur fyrsti
heyrnarlausi þingmaðurinn nú sæti á Alþingi. Þing-
menn, ásamt forseta Íslands, biskupi Íslands og
gestum, gengu að lokinni messu í Dómkirkjunni í
Reykjavík til þinghússins þar sem forsetinn setti
þingið.
Að venju stóð lögreglan í Reykjavík heiðursvörð á
meðan þingsetningin fór fram og gætti jafnframt ör-
yggis á staðnum.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
130. löggjafarþingið sett
Þetta kemur m.a. fram í fjárlaga-
frumvarpinu fyrir árið 2004 sem Geir
H. Haarde fjármálaráðherra lagði
fram á Alþingi í gær. Með frumvarp-
inu fylgir langtímastefnumörkun í
ríkisfjármálum. Geir sagði að stefnt
væri að því að útgjöld vegna fram-
kvæmda á vegum ríkisins lækkuðu
um fimm milljarða næstu tvö árin en
hækkuðu svo svo aftur um sömu upp-
hæð 2007–2008. Þá er stefnt að því að
lækka skatta um 20 milljarða á ár-
unum 2005–2007.
Í fjárlagafrumvarpinu er sagt að
hátekjuskattur verði lækkaður úr 5%
í 4%. Þessi skattur er tímabundinn og
rennur út um næstu áramót nema
heimild til þess að leggja hann á verði
endurnýjuð. Davíð Oddsson sagði á
landsfundi Sjálfstæðisflokksins í lok
mars sl. að tímabili hátekjuskatts
væri lokið og hann ætti að hverfa.
Ekki er stefnt að því á næsta ári sam-
kvæmt frumvarpi til fjárlaga.
Tekjuáætlun ríkissjóðs er sögð
bera skýr merki þess að uppsveiflan
sé hafin og fram undan sé tímabil
aukins hagvaxtar. Forsendur þessar-
ar spár eru m.a. þessar:
Kaupmáttur almennings hækki
um 2,5%.
Hagvöxtur verði 3,5%.
Verðbólgan sé um 2,5% og í sam-
ræmi við markmið Seðlabankans.
Geir sagði að gerðar væru auknar
kröfur um ábyrga hagstjórn við þess-
ar aðstæður til að ógna ekki stöðug-
leikanum. Í fjárlagafrumvarpinu seg-
ir að útgjaldahlið þess markist af
sérstökum ráðstöfunum sem eigi að
spara 3,7 milljarða. Sé miðað við áætl-
uð útgjöld 2003 en ekki fjárlögin sé
gert ráð fyrir að raunlækkun heildar-
útgjalda ríkisins verði um 1,6%.
Reynt að stilla ríkisútgjöldum í hóf í fjárlagafrumvarpinu sem lagt var fram á Alþingi í gær
Tímabil
hagvaxtar
framundan
GERT er ráð fyrir að rekstur ríkissjóðs verði jákvæður um 6,4 milljarða
króna á næsta ári. Heildarútgjöld eru áætluð 273 milljarðar króna og heildar-
tekjur 279 milljarðar. Skatttekjur hækka um 14,5 milljarða milli ára vegna
aukinna umsvifa og útgjöld um 8,2 milljarða miðað við fjárlög 2003.
Fjárlagafrumvarp/Miðopna
!"
#$%"
#&"&
' '#("&
!% #"&
)*)
+,
-.
/
0
12
&&#
2 2
0
/
3 / 4
.
5
6
0
789
'# %#"&
' '#&"&
'' %#"&
( %("&
'$ !&("&
!( &("&
79)*)
2 2
NÝ skoðanakönnun vegna ríkisstjórakosninganna í Kaliforníu, sem fara
fram nk. þriðjudag, sýnir að leikarinn Arnold Schwarzenegger hefur 40%
fylgi meðal líklegra kjósenda. Næstur á eftir honum kemur demókratinn
Cruz Bustamante með 32%. Kosningarnar eru tvíþættar. Fyrst er kosið um
það hvort víkja eigi núverandi ríkisstjóra, demókratanum Gray Davis, úr
embætti. Reynist meira en helmingur kjósenda þessu andvígur skiptir
engu hversu mikið fylgi Schwarzenegger eða aðrir frambjóðendur fá.
Könnun Los Angeles Times sýndi hins vegar að 56% vilja víkja Davis úr
embætti en aðeins 42% eru því andvíg.
AP
Góð staða Schwarzeneggers
BANDARÍKJAMENN kynntu í gær
fyrir ríkjunum sem eiga fulltrúa í ör-
yggisráði Sameinuðu þjóðanna drög
að nýrri ályktun um Íraksmálin.
Segja þeir að þar sé verulega komið
til móts við skoðanir þeirra þjóða, sem
vilja að Írökum verði falin stjórn eigin
mála eins fljótt og auðið verði, en
Frakkar hafa verið þar í fararbroddi.
Bandarískur embættismaður sagði
að í drögunum væri kveðið á um hlut-
verk Sameinuðu þjóðanna í uppbygg-
ingarstarfinu í Írak með skýrari hætti
en áður hefði verið gert. Tók hann
fram að ekki væri kveðið á um það
hvenær búið skyldi að framselja vald í
hendur Írökum, líkt og Frakkar hafa
krafist, eða hvenær búið ætti að vera
að skrifa nýja stjórnarskrá fyrir Írak
og halda kosningar. Colin Powell
utanríkisráðherra hefur hins vegar
áður látið hafa eftir sér að það ætti
ekki að þurfa að taka meira en sex
mánuði að semja nýja stjórnarskrá.
Ný drög að
ályktun um
Íraksmálin
Washington. AFP.
„Sem faðir veit ég hvað er gott fyrir
börnin mín. Sum lög þarf að virða. Við
sígaunar höfum þá hefð að gifta börnin
þegar þau eru undir lögaldri,“ sagði
„sígaunakóngurinn“ Cioaba að því er
fram kom á fréttavef BBC.
Brúðguminn, Birita Mihai, er fimm-
tán ára og af vel stæðri sígaunafjöl-
skyldu. Virðist sem brúðurin, Ana-
Maria Cioaba, hafi sjálf verið ósam-
þykk ráðahagnum en hún flýði
athöfnina á laugardag í miðjum klíð-
um, og voru augu hennar þá grátbólg-
in. Ana-Maria lét þó tilleiðast að lokum.
Lögreglan í Sibiu hefur þegar yfir-
heyrt fólk vegna málsins. „Við erum að
rannsaka ásak-
anir um að sam-
ræði hafi verið
haft við mann-
eskju undir lög-
aldri,“ sagði
talsmaður lög-
reglu. Vilja sum-
ir meina að
þetta teljist
nauðgun skv. laganna bókstaf og þess
hefur verið krafist að Ana-Maria og
Birita verði bæði færð í umsjá yfir-
valda. Ana-Maria var heitbundin þegar
hún var sjö ára og mun fjölskyldan
hafa fengið 500 gullpeninga fyrir hana.
Yfirvöld fyrir-
skipa rannsókn
Ana-Maria er aðeins
tólf ára gömul.
STJÓRNVÖLD í Rúmeníu hafa fyrirskipað rannsókn vegna brúðkaups sem
fram fór í borginni Sibiu í Transylvaníu á laugardag, en brúðurin, sem er
dóttir svonefnds konungs sígauna, er aðeins tólf ára gömul. Faðir brúð-
arinnar, Florin Cioaba, ver hins vegar ráðahaginn.
Umdeilt sígaunabrúðkaup í Rúmeníu