Morgunblaðið - 17.10.2003, Page 37
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. OKTÓBER 2003 37
ÁHERSLURNAR á vægi verk-
náms í framhaldsskólum hafa um
árabil verið allt of litlar. Skólastefn-
an hefur verið á villi-
götum hvað varðar
þróun iðn-, verk- og
listnáms og allt of
mikið verið lagt upp
úr bóknámi. Afleið-
ingarnar er t.d. him-
inhátt brottfall sem
á sér ekki hliðstæðu í hinum vest-
ræna heimi. Námsmenn finna ekki
sína fjöl og lenda á vergangi í skóla-
kerfinu. Sóunin og skaðinn fyrir ein-
staklinginn er mikill, enda vandrat-
að aftur inn í skólastofurnar eftir
langa fjarveru.
Samfylkingin hefur markað ít-
arlega stefnu til eflingar starfsnáms
og styttri námsbrauta. Það er eitt af
okkar helstu þingmálum í vetur og
verður að öllum líkindum mælt fyrir
því á Alþingi í dag. Þetta er á meðal
brýnustu verkefna menntamálanna
og vonandi íslenskum skólamálum
til heilla að málið nái fram að ganga
á Alþingi í vetur.
Múrar á milli bóknáms
og verknáms
Markmiðið með því að efla starfs-
námið með miklu átaki er m.a. að
draga úr brottfalli í framhalds-
skólum, eyða úreltri aðgreiningu á
milli verknáms og bóknáms, endur-
skoða samsetningu náms í grunn-
skólum, efla framhaldsskólastigið
markvisst og tryggja nægjanlegt
framboð á verkmenntuðu fólki á at-
vinnumarkaði. Sérstaklega þarf að
endurskoðað reiknilíkan það sem er
notað til að dreifa fjármagni til fram-
haldsskólanna og er að sumu leyti
rót þess mikla vanda sem verknámið
á nú í.
Nám í framhaldsskólum hefur
ekki þróast í takt við tímann með
þeim afleiðingum að fjöldi ung-
menna finnur ekki sína fjöl í lífinu í
gegnum framhaldsskólakerfið sem
merkir það eitt að skólakerfið bregst
þessu fólki með afgerandi hætti.
Hefðbundið bóknám hentar fjarri
því öllum og verkefnið er m.a. að
brjóta niður múrana á milli bóknáms
og starfsnáms hverskonar með það
að leiðarljósi að allt starfsnám og
styttri námsbrautir eru áfangar til
viðbótar við þá menntun, sýnist
námsmanninum svo síðar. Því þarf
að greiða leiðina enn frekar til við-
bótarnáms síðar.
Virðing fyrir verknáminu
Í kynningu á iðnnámi þarf að
leggja megináherslu á að það er ekki
andstæða langskólanáms og vinna
þarf gegn því hvernig skorið er á
milli verknáms og bóknáms. Iðnnám
þarf að kynna sem áfanga á leið, eft-
irsóknarverðan áfanga, sem opnar
leiðir og skapar fjölmörg tækifæri á
vinnumarkaði til fjölbreyttra og vel
launaðra starfa og ekki síður fjöl-
margar leiðir til áframhaldandi
náms. Hvort heldur er tækni- eða
háskólanáms.
Það er eftirspurn eftir fólki með
fjölbreytilega samsetningu náms og
fjöldi starfa felur í sér blöndu af
verklegri og bóklegri kunnáttu. En á
meðan starfsnámið er fjársvelt, lítið
kynnt og lítið kennt í grunnskólum
mun því halda áfram að hnigna, sam-
félaginu öllu til mikils skaða.
Það er áríðandi að gripið sé til
markvissra aðgerða til að rétta hlut
verknámsins. Samhliða því að
tryggja því það fjármagn sem til
þarf. Það mun hafa alvarlegar afleið-
ingar fyrir íslenskt atvinnulíf ef
hnignun verknámsins heldur áfram
og ekki verður gripið til markvissra
aðgerða til að snúa þessari þróun
við.
Samhliða átaki í kennslu og kynn-
ingu verknáms og fjölgun styttri
námsbrauta þarf einnig að breyta
uppbyggingu og samsetningu náms í
grunnskólunum og gera list- og
verknámsgreinum hærra undir
höfði. Lítil verkleg kennsla á sér
stað á grunnskólastiginu og fer því
sáralítil kynning á kostum starfs-
náms fram á því skólastigi. Sem er
afar áríðandi að fram fari þar enda
grundvallaratriði að eyða þeim
gamla greinarmun sem gerður var á
bóknámi annarsvegar og starfsnámi
hinsvegar. Þróunin er sú að sá
greinarmunur á ekki lengur rétt á
sér enda á flæðið þar á milli að vera
stöðugt og mikið. Til að skapa börn-
um jöfn tækifæri strax í grunnskóla
þarf að byggja upp fjölbreyttara
nám sem þroskar verkvitið samhliða
bókvitinu.
Kjarni tillögunnar
Leiðirnar til úrbóta eru margar.
Til að draga upp skýra mynd af mál-
inu hefur undirritaður dregið þær
saman í eftirfarandi atriði málflutn-
ingum til skýringar:
Að draga úr brottfalli í framhalds-
skólum, eyða úreltri aðgreiningu á
milli verknáms og bóknáms, endur-
skoða samsetningu náms í grunn-
skólum, efla framhaldsskólastigið
markvisst og tryggja nægjanlegt
framboð á verkmenntuðu fólki á at-
vinnumarkaði. Sérstaklega skal end-
urskoðað reiknilíkanið sem er notað
til að dreifa fjármagni til framhalds-
skólanna.
Fram fari endurskoðun á reikni-
líkani framhaldsskólanna með það
að markmiði að efla starfsnám
hverskonar og styttri námsbrautir
við framhaldsskólana.
Auka aðsókn að starfsnámi en að-
sókn að starfsnámi hefur minnkað,
verknámið er að mestu leyti hætt að
kenna á landsbyggðinni og framboð
á starfsmenntun hverskonar hefur
dregist saman í fjölbrautaskólum
landsins.
Markviss kynning eigi sér stað á
kostum starfsnáms og styttri náms-
brauta.
Samsetning náms í grunnskólum
verði breytt og kennsla og fræðsla
um starfsnám aukist.
Unnið verði gegn miklu brottfalli
úr íslenskum framhaldsskólum en
samkvæmt opinberum tölum út-
skrifast innan við 70% íslenskra
framhaldsskólanema en meðaltalið
er 82% innan OECD-ríkjanna og yf-
ir 90% í Svíþjóð.
Framboð á starfsmenntuðu fólki
verði nægjanlegt á næstu árum og
fullnægi kröfum iðnaðarins.
Að iðnmeistaranám verði endur-
skoðað í þá veru að það sé sambæri-
legt við það sem best gerist erlendis
og áhersla verði lögð á að samræma
það á milli greina.
Skilgreina þarfir atvinnulífsins
fyrir starfsmenntun og móta nám-
skrána með þær að leiðarljósi.
Til að koma til móts við þá sem
hafa ekki lokið námi eða vilja bæta
við menntun sína þarf að setja á kort
menntamálanna „nýtt tækifæri til
náms“. Nýtt tækifæri í menntun á að
byggjast á aðgengilegu grunnnámi,
framhaldsnámi, starfsnámi eða
námstilboðum fyrir þá sem vilja
bæta við sína fyrri menntun eða
hasla sér völl á nýjum sviðum.
Verknám á villigötum
Eftir Björgvin G. Sigurðsson
Höfundur er þingmaður
Samfylkingarinnar og á sæti í
menntamálanefnd Alþingis.
SAGT VAR frá því í hádeg-
isfréttum Ríkisútvarpsins þriðju-
daginn 7. október sl. að líklega
myndu Kínverjar
fljótlega gera
frystitogarana okk-
ar með öllu úrelta
með aukinni sam-
keppni. Myndu
undirbjóða verð og
framleiðslu stóru
togaranna á sjófrystum flökum.
Bjóða mikið lægra verð. Þessu
hélt ákveðinn alþingismaður fram í
fullri alvöru í hádegisútvarpinu og
rökstuddi mál sitt vel. Svar okkar
Íslendinga væri að framleiða
meira af nýjum fiski fyrir flug eða
ísa meira af fiski til útflutnings,
sagði þingmaðurinn. Hætta svo
smátt og smátt við frystitogarana.
Það ber að gleðjast yfir þessari
frétt útvarpsins því eyðilegging
frystitogaranna á fiskimiðunum
hefur verið mikil. Við þá er að-
allega um að sakast að þorskveiði
okkar hefur fallið úr 300–400 þús-
und tonnum eða meira árlega í
upphafi einokunarkvótans niður í
um 200 þúsund tonna árlega veiði
á þorski í dag. Svo er hrygning-
arstofn þorsks í hættu. Hann er of
lítill og stóra hrygningarþorskinn
vantar að mestu. Hætta er á hruni
þorskveiða að óbreyttu. Slæmt
mál.
Nú fá nýir stjórnendur Brims
ehf. í gegnum nýja stjórn Eim-
skips gullið tækifæri til að gera
þjóð sinni og öllum Íslendingum
stórgagn og greiða. Þeir geta rek-
ið Brim ehf. áfram í bili eða næstu
árin. Brim ehf. tæki þá forystu í
þeirri þróun sem þingmaðurinn
spáði í útvarpinu og margir aðrir
eru sannfærðir um að er fram-
tíðin. Mun það skapa Íslandi mik-
inn gróða og nýjar tekjur. Þorsk-
veiðar tvöfaldast þá á næstu árum.
Er það mikill sigur.
Brim ehf. myndi þá byrja á að
leggja svona einum til tveimur af
frystitogurunum sínum. Kvótinn af
þeim væri fluttur á þau sjávarþorp
þar sem vinnu vantar í dag. Veitt
væri aðeins á línu og handfæri og
aflinn færi í flug eða væri ísaður
til útflutnings.
Gott dæmi er sjávarbyggðin í
Sandgerði svo eitt einstakt sjáv-
arþorp sé nefnt en þau eru mörg
fleiri sem vantar leigukvóta svo
sem Raufarhöfn, Seyðisfjörður,
Hofsós, Bíldudalur o.fl. Af nógu er
að taka. Vinnu vantar í þessi út-
gerðarþorp. Sandgerði er rétt við
Keflavíkurflugvöll og því sér-
staklega hentugt og stutt að fara
til að afgreiða nýjan fisk í flug
þaðan. Sagt var frá því í blöðum
fyrir stuttu að mjög góða og nýja
höfn í Sandgerði vantaði í dag
verkefni og tekjur. Kvótinn var
fyrir nokkru seldur þaðan og flutt-
ur burt líklega á Akranes. Nú get-
ur Brim ehf. lagað þetta aftur og
leigt nægan kvóta til Sandgerðis
fyrir flugfisk og ísaðan fisk.
Kínverjar eru merk og mikil
þjóð. Það væri ekki svo lítill
happadráttur fyrir Íslendinga og
okkar þorskstofn og eðlilega
stækkun hans ef Kínverjar ýta
okkar frystitogurum út af Íslands-
miðum og þvinga okkur með því til
meiri vistvænna veiða. Þorskstofn-
inn mun stækka fljótt aftur og ár-
leg þorskveiði okkar þá tvöfaldast
með tímanum. Árleg þorskveiði
myndi aukast í fyrri 400 þúsund
tonn. Það myndi tvöfalda núver-
andi útflutningstekjur af þorski og
myndi líklega rétta fljótt af núver-
andi viðskiptahalla. Er ekkert
minna en það. Einnig yrði næg at-
vinna í öllum sjávarþorpum allt í
kringum landið. Kínverjar gerðu
okkur því mjög stóran greiða með
samkeppni. Frystitogararnir okkar
færu burt af miðunum. Vistvænar
veiðar tækju við.
Áður var Landsbankinn „banki
allra landsmanna“. Nú hefur
Landsbankinn tækifæri til að gera
sitt eigið Brim ehf. að „útgerð
allra landsmanna“ með því að
leggja smátt og smátt öllum frysti-
togurum Brims ehf. Kvóti þeirra
yrði allur leigður um allt land og
eingöngu notaður til vistvænna
veiða þ.e. á línu og handfæri. Svo
færi aflinn beint í flug eða ís til út-
landa eins og þingmaðurinn spáði í
hádegisútvarpinu fyrir nokkrum
dögum.
Þökk sé Kínverjum.
Verður Brim ehf. vistvænt
og hollt þjóðinni?
Eftir Lúðvík Gizurarson
Höfundur er
hæstaréttarlögmaður.
Reykjavík Kringlan6 •StóriTurn •Sími5502000 •www.sphverdbref.is
Hafnarfjörður Strandgata •Reykjavíkurvegur Garðabær Garðatorg
Ávöxtun...
S
P
H
R
ek
st
ra
rf
él
ag
h
f.
an
n
as
t
re
k
st
u
r
S
P
H
V
er
ðb
ré
fa
sj
óð
si
n
s.
*Nafnávöxtunm.v. 01.10.2003
Skuldabréfasjóðurinn
Úrvalssjóðurinn
Alþjóðasjóðurinn
Fjármálasjóðurinn
Hátæknisjóðurinn
Lyf-oglíftæknisjóðurinn
14,0%
38,2%
-3,1%
19,2%
55,5%
24,7%
...fyrirþigogþína
12mán.ávöxtun*