Morgunblaðið - 17.10.2003, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. OKTÓBER 2003 49
DAGBÓK
Gnoðarvogi 44, sími 588 8686
Föstudagur
til fjár
Vertu hagsýn fyrir helgina
Glæný ýsuflök
450 kr./kg
Verið vandlát, það erum við
Sími 588 8686 Opið frá kl. 9.00-18.00
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
VOG
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert sjálfsörugg/ur og
stórhuga og leggur mikla
áherslu á sjálfsþekkingu. Á
komandi ári verða mik-
ilvægar breytingar í lífi þínu
sem beina þér á nýja braut.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú ert örlát/ur í eðli þínu.
Treystu innsæi þínu og veittu
vini eða vinum þínum hjálp-
arhönd í dag. Mundu að örlæti
öðlast aukna merkingu þegar
þess er þörf.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Varastu að gera óraunhæfar
kröfur til ástvinar þíns í dag.
Þú þarft að gefa viðkomandi
tækifæri til að gera hlutina
eftir sínu eigin höfði.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Það þarft ekki að bera vott um
undirlægjuhátt þótt þú hjálpir
samstarfsfólki þínu í dag. Það
sýnir bara umhyggjusemi
þína og hjálpsemi.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú gætir orðið ástfanginn eða
skotinn í einhverjum í dag. Þú
sérð heiminn í rósrauðum
bjarma. Njóttu þess á meðan
það varir.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Það er hætt við að þau sam-
bönd sem stofnað er til í dag
byggi ekki á traustum grunni.
Það er óskhyggja í loftinu sem
slævir dómgreind þína. Farðu
varlega.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Staldraðu við og íhugaðu hvað
það er mikil ást í lífi þínu. Var-
astu að líta á ástvini þína sem
sjálfsagðan hlut. Láttu þá
finna að þeir skipti þig máli.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú ert eitthvað annars hugar í
dag. Leyfðu huga þínum að
reika. Það er ekki hægt að
ætlast til þess að hann sé ein-
beittur hverja einustu stund.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú finnur til samkenndar með
einhverjum í fjölskyldunni í
dag. Það er hugsanlegt að
þessi tilfinning tengist tilfinn-
ingum þínum til barnsins í
sjálfri/sjálfum þér.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú finnur til óvenju mikillar
samúðar með þeim sem minna
mega sín í dag. Þig langar til
að gera eitthvað fyrir aðra.
Taktu þér tíma í það.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Láttu ekki vin þinn telja þig á
að kaupa einhvern óþarfa í
dag. Þér hættir til of mikillar
áhrifagirni. Reyndu að berjast
gegn henni.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Það er líklegt að sambönd
rofni í dag. Láttu það ekki
valda þér of miklum von-
brigðum. Sambönd rofna yf-
irleitt vegna þess að fólk er
vaxið upp úr þeim.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Það er hætt við að einhver
valdi þér vonbrigðum í dag.
Mundu að það má oft rekja
vonbrigði til væntinga sem
ekki hafa verið látnar í ljós.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
HRÍSLAN OG LÆKURINN
Gott átt þú, hrísla’ á grænum bala,
glöðum að hlýða lækjarnið.
Þið megið saman aldur ala,
unnast og sjást og talast við.
Það slítur aldrei ykkar fundi,
indæl þig svæfa ljóðin hans.
Vekja þig æ af blíðum blundi
brennandi kossar unnustans.
Svo þegar hnígur sól til fjalla,
sveigir þú niður limarnar
og lætur á kvöldin laufblað falla
í lækinn honum til ununar.
Hvíslar þá lækjar bláa buna
og brosandi kyssir laufið þitt:
„Þig skal ég ætíð, ætíð muna,
ástríka, blíða hjartað mitt!“
- - -
Páll Ólafsson
LJÓÐABROT
ÁRNAÐ HEILLA
ÞEGAR litið er á hönd
norðurs er ekki að sjá að
mikill hörgull sé á inn-
komum – allir ásarnir og
ýmislegt kjöt á beinunum.
En Stefán Jóhannsson hefði
viljað eiga einn aukamiða yf-
ir á blindan þegar hann var
að spila alslemmu í laufi úr
sæti suðurs. Þetta var í
landsliðskeppninni um síð-
ustu helgi:
Norður gefur; enginn á
hættu.
Norður
♠ ÁDG
♥ Á764
♦ ÁKG87
♣Á
Vestur Austur
♠ 965 ♠ K732
♥ DG3 ♥ 109852
♦ D653 ♦ 102
♣954 ♣G6
Suður
♠ 1084
♥ K
♦ 94
♣KD108732
Stefán og Ragnar Magn-
ússon voru í NS gegn Run-
ólfi Jónssyni og Hermanni
Friðrikssyni:
Vestur Norður Austur Suður
Runólfur Ragnar Hermann Stefán
– 2 grönd Pass 4 lauf *
Pass 4 hjörtu * Pass 7 lauf
Pass Pass Pass
Opnunin á tveimur grönd-
um sýndi 23–24 punkta og
fjögur lauf var ásaspurning.
Þegar Stefán frétti af fjór-
um ásum taldi hann sig eiga
góða möguleika í alslemmu
og þæfði málið ekki frekar.
Stefán fékk út tromp og
missti þar með strax eina
innkomu blinds, sem ella
hefði nýst til að fría tígulinn.
Hann fór heim á hjartakóng,
tók laufhjónin og sneri sér
svo að tíglinum. Svíning var
á móti líkum, og Stefán tók
ÁK og stakk tígul. En ekki
kom drottningin og þar með
var svíning í spaða óhjá-
kvæmileg. Einn niður. Eins
og sést vinnst alslemman
auðveldlega með rauðu spili
út, því þá verður hægt að
fría og nýta fimmta tígulinn.
Þeir félagar voru parið
sem spilaði sjö lauf. Þrjú pör
spiluðu sex lauf og tvö pör
þrjú grönd.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson
1. d4 Rf6 2. Rf3 c5 3. e3 d5 4.
c4 cxd4 5. exd4 e6 6. Rc3
Be7 7. cxd5 Rxd5 8. Bd3
O-O 9. O-O Rc6 10.
He1 Rf6 11. Bg5 b6
12. De2 Bb7 13.
Had1 Rb4 14. Bb1
Ba6 15. De3 He8 16.
Re5 Hc8 17. Dh3 g6
18. Df3 Rbd5 19.
Rxd5 exd5 20. h4
Hc7 21. h5 Bc8 22.
hxg6 fxg6 Diagram
Staðan kom upp í
kvennaflokki Evr-
ópukeppni landsliða
sem fram fer nú í
Plovdiv í Búlgaríu.
Elina Danielian
(2400) hafði hvítt
gegn Moniku Calzettu
(2274). 23. Rxg6! hxg6 Hvít-
ur vinnur einnig eftir
23...Bg4 24. Dg3. 24. Bxf6
Bxf6 25. Hxe8+ Dxe8 26.
Dxf6 Bg4 27. Bxg6 Dc8 28.
He1 og svartur gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
GULLBRÚÐKAUP. Í dag, föstudaginn 17. október, eiga 50
ára hjúskaparafmæli hjónin Sigríður Ólafsdóttir og
Tryggvi Sigurðsson, Birkihlíð 11, Vestmannaeyjum. Þau
verða að heiman í dag.
Skugginn/Barbara Birgis.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 13. júlí sl. í Lágafells-
kirkju af sr. Jóni Þorsteins-
syni þau Inga Birna Bern-
burg og Troy D. Vickers,
Jr.
Skugginn/Barbara Birgis.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 17. maí sl. í Háteigs-
kirkju af sr. Helgu Soffíu
Konráðsdóttur þau Ingunn
Jónsdóttir og Jón Hjalti Ás-
mundsson.
Landsmót Æskulýðsfélaga kirkjunnar
verður haldið í Ólafsvík á Snæfellsnesi um
þessa helgi, 17.–19. október. Mótið er
ætlað unglingum sem eru virk í æskulýðs-
starfi kirkjunar og í ár stefnir í metþáttöku
því yfir 280 unglingar hafa skráð sig á mót-
ið.
Hallgrímskirkja. Eldriborgarastarf kl. 13.
Leikfimi, súpa, kaffi og spjall.
Háteigskirkja. Eldri borgarar. Bridsaðstoð
kl. 13. Kaffi kl. 15.
Neskirkja. Kóræfing laugardag kl. 11–13.
Nýstofnaður kór sérstaklega fyrir þá sem
hefur lengi langað til að syngja en aldrei
þorað. Stjórnandi Steingrímur Þórhallsson
organisti. Uppl. og skráning í síma
896 8192.
Breiðholtskirkja. Fjölskyldumorgnar kl.
10–12. Kaffi og spjall.
Landakirkja í Kópavogi. Kl. 15 yngrideild-
arstarf Lindakirkju og KFUM&K í húsinu á
sléttunni, Uppsölum 3. Krakkar á aldrin-
um 8–12 ára velkomnir.
Lágafellskirkja. Barnastarf kirkjunnar,
Kirkjukrakkar, fyrir 6 og 7 ára börn er í
Lágafellsskóla kl. 13.20–14.30. Umsjón
hefur Þórdís djákni.
Ytri-Njarðvíkurkirkja. Stjörnukórinn;
barnakór fyrir 3 til 5 ára gömul börn æfir í
kirkjunni laugardaginn 18. okt. kl. 14.15.
Kennari Natalía Chow Hewlett og undir-
leikari Julian Michael Hewlett.
Kirkjuskólinn í Mýrdal. Munið samveruna í
Víkurskóla á morgun, laugardag, kl.
11.15. Söngur, sögur og litastund. Rebbi
refur kemur í heimsókn. Starfsfólk Kirkju-
skólans.
Boðunarkirkjan, Hlíðarsmára 9. Samkom-
ur alla laugardaga kl. 11:00. Bænastund
alla þriðjudaga kl. 20:00. Biblíufræðsla
allan sólarhringinn á Útvarpi Boðun FM
105,5. Allir velkomnir.
Fríkirkjan Kefas: Í kvöld er 13–16 ára
starf kl. 19.30. Samvera, fræðsla og fjör.
Hjálpræðisherinn á Akureyri. Kl. 17.30
barnagospel fyrir krakka 4–12 ára. Kl. 10–
18 okkar vinsæli flóamarkaður opinn.
Safnaðarstarf
Morgunblaðið/Sverrir
Hallgrímskirkja
KIRKJUSTARF
MEÐ MORGUNKAFFINU
Hann kom hérna
líka í fyrra, þegar
sirkusinn var í
bænum …
Þetta er
örugglega
skynvilla!