Morgunblaðið - 17.10.2003, Page 61
BÍÓIN Í BORGINNI
Sæbjörn Valdimarsson/Hildur Loftsdóttir/Heiða Jóhannsdóttir
Meistaraverk Ómissandi Miðjumoð Tímasóun 0 Botninn
Nói albínói
Hrífandi og hugljúf, gamansöm og dramatísk.
Bjargar íslenska Eddu-árinu. (S.V.) Háskólabíó.
Hundabær (Dogville)
Langdregin en snjöll og frumleg líkingasaga
sem heldur áhorfandanum föngnum, (S.V.)
Adam (Young Adam)
Ewan McGregor er magnaður í skoskri bítnik-
mynd, ólgandi af girnd og sektarkennd.
Regnboginn – Kvikimyndahátíð Eddu.
Hetja (Ying xiong/Hero)
Stílfærð og ljóðræn skylmingakeppni með
ballettívafi. (S.V..) Regnboginn – Kvikmyndahátíð Eddu.
Seabiscuit
Vel unnar leikmyndir og búningar og hrífandi
tilþrif þriggja, afburða leikara. (S.V.) Laugarásbíó, Regnboginn.
Eldspýtnakarlarnir
(The Matchstick Men)
Cage er frábær í hlutverki bragðarefs en fléttan
þolir illa nærskoðun. (S.V.) Háskólabíó.
Geggjaður föstudagur
(Freaky Friday)
Samskiptavandamál kynslóðabilsins leysast
þegar mæðgur hafa hamskipti. (S.V.) Sambíóin.
Stormviðri (Stormy Weather)
Vel leikið og áhrifaríkt drama. (S.G.) Háskólabíó.
Sinbad sæfari (Sinbad)
Vel gerð fjölskylduskemmtun, mettuð andblæ
gamla sagnaheimsins. (S.V.) Sambíóin, Háskólabíó.
Einu sinni var í Mexíkó
(Once Upon a Time in Mexico)
Ansi þunn naglasúpa en þó vel krydduð með
góðu leikaraliði.(H.J.) Sambíóin.
Niður með ástina
(Down With Love)
Vel heppnuð en innihaldsrýr rómantísk gam-
anmynd.(H.J.) Smárabíó.
Fíll (Elephant)
Van Sant velur þann kostinn að halda sig í óra-
fjarlægð frá viðfangsefninu, fyrir vikið er mynd-
in nístingsköld. Harmleikurinn kemur því und-
arlega lítið við mann þrátt fyrir allt. (S.V.)
Regnboginn – Kvikmyndahátíð Eddu.
Veronica Guerin
Blanchett óaðfinnanleg í tragísku titilhlutverki
en handritið skortir samkennd. (S.V..) Háskólabíó.
Doktor svefn (Doctor Sleep)
Frumleg, stundum fullhrottaleg hrollvekja, lag-
lega leikin og gerð.(S.V.) Háskólabíó.
jörn Valdimar son/Heiða Jóhannsdóttir/Skarphéðinn Guðmundsson
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. OKTÓBER 2003 61
ÁLFABAKKI
Kl. 10.10. B.i. 16.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 8.
KEFLAVÍK
Sýnd kl.6.
KRINGLAN
Sýnd kl. 10.10.
KRINGLAN
Sýnd kl. 6 og 8.
ÁLFABAKKI
Kl. 4, 6.30 og 9. B.i.10
AKUREYRI
Kl. 10.15.
ÁLFABAKKI
Kl. 5.40, 8 og 10.20.
KRINGLAN
Kl. 10.10.
KEFLAVÍK
kl. 8 og 10.15. B.i. 12
ÁLFABAKKI
Kl. 4 og 6. Ísl tal.
STÓRMYND HAUSTSINS STÓRMYND HAUSTSINS
Nýjasta mynd Coen bræðra.
Stórstjörnurnar George Clooney og Catherine Zeta-Jones
fara á kostum í myndinni. Frábær rómantísk
gamanmynd sem bragð er að.
Nýjasta mynd Coen bræðra.
Stórstjörnurnar George Clooney og Catherine Zeta-Jones
fara á kostum í myndinni.
Frábær rómantísk gamanmynd sem bragð er að.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10.
FRUMSÝNING FRUMSÝNING
Forsala hafin
Forsýningar í Sambíóunum Álfabakka
laugardag kl. 1.50 og 3.50. Með íslensku tali
sunnudag kl. 1.50 og 3.50. Með íslensku tali
Vinsælasta mynd ársins í USA
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 5.50, 8 OG 10.10.
AKUREYRI
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
LOU Barlow hefur um langa hríð
verið einn helsti neðanjarðartón-
listarmaður Bandaríkjanna, eða allt
síðan hann vakti fyrst athygli með
hinni áhrifaríku sveit Dinosaur Jr
sem bassaleikari um miðbik níunda
áratugarins. Eftir helgi, nánar til-
tekið á miðvikudaginn 22. október á
Grand Rokk, mun Barlow og sveit
hans Sebadoh troða upp órafmagn-
að en að sögn Örvars Þóreyjarson-
ar Smárasonar múmliða er hljóð-
maður múm, Ajay, í vinfengi við
Barlow og fleiri bandarískar neð-
anjarðarhetjur. Hann bætir því
ennfremur við að Sebadoh ætli að
einbeita sér að „slögurum“ en Örv-
ar og félagar aðstoða sveitina við að
koma hingað til lands. Sebadoh er á
ferðalagi um Evrópu um þessar
mundir og ætla að kíkja á klakann
undir rest.
Lou Barlow er oft kallaður kon-
ungur „lo fi“ tónlistarinnar, stefnu
sem runnin er upp í Bandaríkjun-
um og gerir hugmyndaauðgi hærra
undir höfði en vönduðum flutningi
og fínum hljómi. Eftir að Barlow
hætti í Dinosaur Jr. einbeitti hann
sér að Sebadoh og ásamt Pavement
varð hann holdgervingur „lo fi“ tón-
listarinnar. Barlow hefur aldrei
gert tilraunir til að ná til fjöldans
með tónlist sinni heldur lagt sig í
líma við að þróa tónmál sitt í gegn-
um Sebadoh og önnur verkefni eins
og Sentridoh og Folk Implosion.
Almenningur varð þó var við Bar-
low í gegnum lög hans fyrir hina
umdeildu mynd Kids árið 1995.
Barlow hefur einkum sinnt Folk
Implosion undanfarið en heil fjögur
ár eru síðan síðasta Sebadoh-plata
kom út. Kannski þetta útstáelsi á
Barlow og félögum þýði að þeir
hugsi sér til hreyfings á næstunni…
Sebadoh leikur á Íslandi
Litlu risarnir
Vegur Sebadoh hefur vaxið hægt og hljótt en örugglega…
Tónleikar Sebadoh verða á
Grandrokk miðvikudaginn 22.
október. Aðgangseyrir er 800 kr.
Einnig leikur Skakkamanage
(Svavar Pétur) og aðdáandi
Sebadoh nr. 1 á Íslandi, Zúri
gæinn, mun þeyta skífum.
ÆJARINS BESTU