Morgunblaðið - 31.10.2003, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 31.10.2003, Blaðsíða 22
AUSTURLAND 22 FÖSTUDAGUR 31. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ Alltaf á laugardögum Smáauglýsing á aðeins 500 kr.* Áskrifendum Morgunblaðsins býðst smáauglýsing fyrir aðeins 500 kr.* Almennt verð er 1.689 kr. Pantanafrestur er til kl. 12.00 á föstudögum. *5 línur; tilboðið gildir til 31. desember 2003. Hafðu samband! Auglýsingadeild Morgunblaðsins, sími 569 1111 eða augl@mbl.is ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S M O R 21 22 0 0 9/ 20 03 Reyðarfirði | Fyrirtækið Leiguíbúðir í Fjarðabyggð ehf. hefur í hyggju að byggja fjögur fjölbýlishús á Odd- nýjarhæð á Reyðarfirði, með samtals 104 íbúðum. Undirbúningi miðar vel og hönnun húsanna er á lokastigi. Auglýsing um breytingu deiliskipulags á þessu svæði liggur frammi þar til seint í nóvember og undirbúningur fjármögnunar er í fullum gangi. Mikill húsnæðisskortur er á Reyðarfirði og hentar þetta fyrirkomulag mjög vel. Gert er ráð fyrir því að eldri borgarar og fatlaðir hafi greiðan aðgang að hús- unum. Fjölbýlishúsin verða sex hæðir og kjallari. Að utan verða þau klædd viðhaldslitlum granítsalla, áli og sedrusviði. Í hverju húsi verða 26 íbúðir, tveggja, þriggja og fjögurra herbergja, í þremur stærðarflokk- um, 70 til 105 fermetrar. Áætlað er að byrja í desember nk. á tveimur húsum sem eiga að verða tilbúin árið 2005, og seinni tvö húsin 2006. Um tvö hundruð manns sóttu kynningarfund um byggingarnar, þar sem framkvæmdirnar voru reifaðar. Stjórnarformaður Leiguíbúða í Fjarðabyggð ehf. er Franz Jezorski hdl. og framkvæmdastjóri Ágúst Bene- diktsson. Djúpavogi | Dvalarheimilið Helga- fell á Djúpavogi var tekið í notkun árið 1995 og þar búa nú níu manns. Þegar fréttaritari Morgunblaðsins kíkti í heimsókn á dögunum voru íbúar að borða dýrindis selkjöt sem þeir Stefán Aðalsteinsson og Tryggvi Sigurðsson, íbúar á Helga- felli, höfðu fært kokknum nokkrum dögum áður. Stefán, sem verður áttræður í næsta mánuði og Tryggvi, sem er sjötíu og fjögurra ára, eru iðnir við að draga björg í bú og fara reglu- lega á svartfuglaskytterí á Svala, bát sem Stefán á og smíðaði sjálf- ur. Stefán hefur smíðað marga báta um ævina og er enn að. Þeir fé- lagar veiða líka fisk í soðið fyrir heimilismenn á Helgafelli og bjóða af og til upp á siginn fisk og fleiri krásir. Stefán segist alltaf hafa verið mikill veiðimaður og var m.a. tófu- skytta frá því árið 1947 og þar til í vor. Hann hefur líka sínar skoðanir á því hvernig best sé að elda að- föngin og gefur Guðrúnu Aradótt- ur, kokki á Helgafelli, góð ráð við eldamennskuna þegar þeir félagar hafa fært henni eitthvað í pottinn. Prjónar ullarsokka og sendir inn í Kárahnjúka Halldór Jónsson hefur séð um að setja niður kartöflur þannig að það má segja að á Helgafelli sé stund- aður sjálfsþurftarbúskapur. En það eru fleiri kraftmiklir íbú- ar á Helgafelli. Þórður Snjólfsson er einn þeirra, en hann saumar út og prjónar ullarsokka sem hann sendir starfsmönnum á Kára- hnjúkum. Allir eru þeir ánægðir með dvöl- ina á Helgafelli enda nóg við að vera. Þrisvar í viku er opið hús fyr- ir íbúa Djúpavogshrepps, sextíu ára og eldri, og þá er boðið upp á leikfimi, föndur og fleira. Hlíf Her- björnsdóttir er starfsmaður á Helgafelli og segir að reynt sé að bjóða upp á eitthvað við allra hæfi. Mikilvægast sé þó að fólk hittist, spjalli og eigi saman góðar stundir. Fram undan er svo heimsókn í Breiðdal, laufabrauðsgerð og jóla- hlaðborð, þannig að það verður nóg að gera á næstunni hjá íbúum Djúpavogshrepps, sextíu ára og eldri. Heimilismenn á Helgafelli draga björg í bú fyrir dvalarheimilið Morgunblaðið/Sólný Pálsdóttir Þeir draga björg í bú: Tryggvi Sigurðs- son og Stefán Aðalsteinsson á Helgafelli. Saumar út og prjónar ullar- sokka og sendir í Kárahnjúka: Þórður Snjólfsson á Djúpavogi. Siginn fiskur og fleiri krásir Fjögur fjölbýlishús rísa á Reyðarfirði Morgunblaðið/Hallfríður Bjarnadóttir Bæjarmyndin breytist: Svona munu fjölbýlishúsin við Melgerði á Reyðarfirði líta út. Bókasafn | Flytja á bæjarbókasafn Neskaupstaðar í nýbyggingu við grunnskóla bæjarins. Safnið hefur í fjörutíu ár verið í Egilsbúð í 50 fer- metra húsnæði, en flyst í vor í 250 fermetra. Setja á samhliða upp tölvuvætt útlánakerfi í safninu og góða lestraraðstöðu fyrir þá er safn- ið nýta.    Nýbýlavegi 12 • 200 Kópavogi • Sími 554 4433 Opið virka daga 10-18, laugardaga 11-15 Föt fyrir allar konur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.