Morgunblaðið - 31.10.2003, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 31.10.2003, Blaðsíða 47
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. OKTÓBER 2003 47 VESTURLAND varð hlut- skarpast í keppni á milli landsfjórðunga í Orkuþraut- inni, sem var að ljúka. Keppnin fór fram í sjón- varpsþættinum Orkuboltinn sem sýndur hefur verið í Ríkissjónvarpinu síðustu vikur. Hildur Vala Bald- ursdóttir, 11 ára, og Eyþór Björn Arnórsson, 11 ára, sem kepptu fyrir hönd Vest- urlands, stóðu uppi sem sig- urvegarar eftir harða, en drengilega keppni. Fjögur lið tóku þátt í keppninni og voru tvö börn í hverju liði. Börnin þurftu að leysa af hendi ýmsar þrautir og þau tóku á öllu sínu til að ná sem bestum árangri, segir í frétta- tilkynningu. Sigurvegarar í orkuþrautinni Hundar í miðbæ Reykjavíkur, Keflavíkur og Akureyar. Hunda- ræktarfélags Íslands hefur skipulagt árlega göngu hunda og manna niður Laugaveg í Reykjavík, laugardaginn 1. nóvember. Gengið verður frá Hlemmi að Ráðhúsinu í Reykjavík og verður lagt af stað frá Hlemmi kl. 13.30. Unglingadeild HRFÍ mun leiða gönguna auk þess sem hljóðfæraleik- arar leika. Suðurnesingar og Akureyringar hefja sína göngu á sama tíma. Svæða- félagið á Akureyri hefur göngu sína við Umferðarmiðstöðina í Hafn- arstræti. Í Keflavík verður lagt af stað frá pósthúsinu. Að öllu jöfnu er bannað að vera með hunda á Laugaveginum, en Hunda- ræktarfélag Íslands hefur fengið leyfi til göngunnar hjá yfirvöldum og þró- unarfélagi miðborgarinnar, segir í fréttatilkynningu. Stofnfundur eigenda og rækt- endafélags landnámshænsna verður haldinn í Bændahöllinni við Hagatorg á morgun, laugardaginn 1. nóvember kl. 14. Félagið er stofnað til að halda utanum stofn landnáms- hænsna á Íslandi og vera eigendum og ræktendum hvatning til að við- halda erfðaeiginleikum þessara sér- stöku hænsna, segir í fréttatilkynn- ingu. Langur laugardagur verður á Laugavegi og nágrenni á morgun, laugardaginn. M.a. mun brassband og slagverkssveit spila fyrir gesti og gangandi og hundaræktarfélagið mun ganga með hunda sína niður Laugaveginn kl. 13.30. 159 verslanir eru á Laugaveginum og verða þær opnar frá kl. 10–17, boðið verður upp á ýmis tilboð. Frítt er í bílastæðahús allan daginn og í stöðumæla eftir kl.13. Stofnfundur Samtaka foreldra og aðstandenda samkynhneigðra (FAS) verður á morgun, laugardag- inn 1. nóvember í safnaðarheimili Grensáskirkju í Reykjavík og hefst kl. 15. Hópurinn sem á frumkvæðið að því að stofna þessi nýju samtök hefur starfað frá árinu 2000. Fundir eru haldnir tvisvar í mánuði yfir vetr- armánuðina og fundað í félagsmið- stöð Samtakanna 7́8, Laugavegi 3. Markmið með stofnun samtakanna er m.a. að hittast og deila reynslu og efla umræðu um samkynhneigð í sam- félaginu. Páll Óskar og Monika Abendroth hörpuleikari flytja tónlist. Erindi halda: Sigfinnur Þorleifsson, Brynja Jónsdóttir og Sigríður Birna Vals- dóttir. Boðið verður upp á léttar veit- ingar. Fundurinn er opinn öllu áhugafólki um málefnið. Fræðsludagur fyrir aðstandendur barna með sérþarfir verður á morg- un, 1. nóvember. FFA-fræðsla fyrir fatlaða og aðstandendur standa fyrir kynningu á ýmsum úrræðum fyrir foreldra barna 0–6 ára með sérþarfir. Meðal þess sem kynnt verður er starfsemi Greiningarstöðvar, barna- spítala, svæðisskrifstofa, trygg- ingastofnunar, leikskóla, auk sér- tækra þjónustustofnana eins og Æfingarstöðvar Styrktarfélags lam- aðra og fatlaðra og dagheimilisins Lyngáss. Aðgangur er ókeypis og verður kynningin á Grand hótel Reykjavík, Gullteig kl. 9. Íslenskir tónlistardagar hefjast í Hagkaupum á morgun, laugardag, og standa út nóvembermánuð. Af því tilefni verða allir íslenskir geisla- diskar seldir án virðisaukaskatts. Á meðan íslenskir tónlistardagar standa, verða tónlistaruppákomur á föstudögum, laugardögum og sunnu- dögum. Ýmist í Hagkaupum Smára- lind, Kringlunni, Skeifunni eða á Ak- ureyri. Þar munu listamenn skemmta og árita diska sína. Einnig verður gefið út tímaritið NÚ. Tónlistardögunum lýkur með tón- leikum í Hagkaupum í Smáralind 30. nóvember nk. Námskeið og fyrirlestrar um orku- heilun. Orkuheilarinn Karina Becker kennari hjá Barbara Brennan School of Healing mun halda námskeið og fyrirlestra um orkuheilun á Heilsu- setri Þórgunnu, Skipholti 50c, 4. hæð. Námskeiðin verða haldin: 1. og 2. nóvember kl. 10–17, 5. nóvember kl. 9.30–16.30 og 8. og 9. nóvember kl. 10–17. Á námskeiðinu verður m.a. kennt að tengja á milli ástands orkulíkama þíns og efnislíkama, tilfinninga, hugar og andlegrar heilsu, segir í frétta- tilkynningu. Basar Barðstrendinga Kvennadeild Barðstrendingafélags- ins verður með árlegan basar og kaffisölu í Breiðfirðingabúð, Faxafeni 14. Á basarnum verður ýmiskonar handavinna, heimabakaðar kökur og margt fleira. Einnig verður happ- drætti og er eingöngu dregið úr seld- um miðum. Ágóðinn rennur til styrkt- ar öldruðum úr sýslunni og til líknarmála, segir í fréttatilkynningu. Basar og kaffisala í Sunnuhlíð Haust- og jólabasar Dagdvalar Sunnuhlíðar, Kópavogsbrautar 1c verður á morgun. Einnig verður kaffisala í matsal þjónustukjarna til styrktar Dagdvölinni. Á basarnum verða til sölu t.d. ýmsir munir til jóla- gjafa, heimabakaðar kökur og lukku- pakkar. Markmið Dagdvalar er að vera stuðn- ingur við aldraða sem búa heima og veita þeim ýmsa aðstoð og þjónustu. Á MORGUN Athafnakonur – sýning og ráð- stefna í Þorlákshöfn. Kvenna- sjóður, Kvenréttindafélag Íslands, Kvenfélagasamband Íslands og at- vinnu- og jafnréttisráðgjafar Byggðastofnunar standa saman að kynningu á fyrirtækjum sem eru rekin af konum. Verkefnið gengur undir nafninu Athafnakonur. Næsta sýning verður í ráðhúsinu í Þorlákshöfn í dag, 31. október, og á morgun 1. nóvember. Sýningin er opin kl. 16–16 í dag, föstudag, og kl. 13–18 á morgun, laugardag. Þann sama dag verður konum boðið upp á örnámskeið sem byggist á hag- nýti þekkingu tengdri fyrirtækja- rekstri og mun það standa frá kl. 10–12, þátttakendum að kostn- aðarlausu. Ráðstefnan Konur og landgæði verður kl. 13–15.30. Með- al fyrirlesara eru Anna Margrét Stefánsdóttir frá Lifandi landbún- aði, Róbert Jónsson frá At- vinnuþróunarsjóði Suðurlands, Rannveig Anna Jónsdóttir menn- ingarfræðingur og Drífa Hjart- ardóttir alþingismaður. Ólafur Ragnarsson bæjarstjóri sveitarfé- lagsins Ölfuss flytur ávarp. Fyrirlestur um Aloe Vera verður í dag, 31. október kl. 20 á Nordica Hótel við Suðurlandsbraut. Fyr- irlestur heldur Peter Atherton læknir. Hann mun kynna notk- unarmöguleika jurtarinnar, bæði fyrir heilbrigðisstéttum sem og al- menningi. Aðgangseyrir er 700 kr. og verða miðar seldir við inngang- inn. Peter Atherton stýrir Tyringham Clinic sem er stærsta náttúrulækn- ingamiðstöð Evrópu, segir í frétta- tilkynningu. Í DAG Í GÆR víxluðust myndir af Magnúsi Árna Skúlasyni og Magnúsi Árna Magnússyni í viðskiptablaði Morgun- blaðsins. Eru upplýsingar um þá því birtar hér aftur með mynd. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum.  Magnús Árni Skúlason hagfræð- ingur hefur verið ráðinn forstöðumað- ur Rannsóknar- seturs í hús- næðismálum á Bifröst frá 1. nóv- ember 2003. Magnús Árni er útskrifaður með MSc-gráðu í hag- fræði frá Háskóla Íslands árið 1996 og MBA-gráðu frá University of Cambridge árið 2001. Sl. tvö ár hefur hann starfað sem framkvæmdastjóri Leikfélags Reykjavíkur, auk þess að vera stundakennari við Viðskiptahá- skólann á Bifröst og fleiri háskóla á Íslandi. Magnús Árni mun sinna kennslu við Viðskiptaháskólann sam- hliða starfi forstöðumanns.  Magnús Árni Magnússon, MA, M.Phil., hefur hlotið framgang í stöðu dósents við við- skiptadeild. Magnús lauk BA- prófi í heimspeki frá Háskóla Ís- lands 1997, MA- prófi í hagfræði frá University of San Francisco 1998 og M.Phil.- prófi í Evrópufræði frá University of Cambridge haustið 2000. Magnús hefur starfað við Viðskiptaháskólann á Bifröst frá árinu 2000. Hann gegnir að auki starfi aðstoðarrektors og deildarforseta viðskiptadeildar. LEIÐRÉTT LÝÐRÆÐIS- og jafnréttis- nefnd Hafnarfjarðar hefur sent frá sér ályktun um vændisfrum- varpið svokallaða sem er nú til umræðu á Alþingi. Frumvarpið felur í sér breytingu á hegning- arlögum þess efnis að sá sem kaupir vændi er sekur en ekki sá sem selur eða er seldur af þriðja aðila. Meirihluti nefndarinnar fagnar frumvarpinu og telur að það muni leiða til þarfrar um- ræðu í þjóðfélaginu um kynlífs- iðnað og afleiðingar hans. Fagna frum- varpi um vændi FJÖLFÖLDUN Hljóðbókagerðar Blindrafélagsins hefur nú verið sam- einuð Blindravinnustofunni ehf. Blindravinnustofan var stofnuð árið 1941 og er hún að fullu í eigu Blindrafélagsins. Frá stofnun hefur hún verið ómissandi hlekkur í at- vinnumálum blindra og sjónskertra. Markmiðið með starfrækslu hennar er að veita blindum og sjónskertum atvinnu, þjálfun og endurhæfingu til annarra starfa. Starfsmenn eru 25, þar af 19 blindir eða alvarlega sjón- skertir. Starfsemi Fjölföldunar verður óbreytt, en hún hefur verið starf- rækt frá árinu 1977 og annast nú öll helstu fjölföldunarverkefni á geisla- diska jafnt sem snældur. Lögð er áhersla á gæði, hraða og góða þjón- ustu. Viðskiptavinir hafa verið fjöl- margir í gegnum tíðina, einstakling- ar, félög, fyrirtæki og stofnanir, á sl. ári voru fjölfaldaðar 33.446 snældur og 20.888 geisladiskar. Auk fjölföld- unar tekur Blindravinnustofan að sér röðun í umslög, samsetningu hluta og pakkninga, flokkun og pökkun hinna ýmsu vara. Hrein- gerningavörur Blindravinnustofunn- ar er að finna í öllum helstu versl- unum landsins, segir í fréttatil- kynningu. Fjölföldun Hljóðbókagerðar sameinuð Blindravinnustofunni HARRY Potter og Fönixreglan er komin út hér á landi í íslenskri þýðingu og þegar er farið að rífa hana út úr verslunum landsins. Aldrei hefur verið fyrir hendi eins stórt upplag af bók í einu lagi og hér á myndinni sem tekin var í gærmorgun afferma þau Olga Oddsdóttir og Viðar Elliðason heilan gám af bókinni en henni var pakkað í plast hjá Plasthúðun og pökkun ehf. áður en henni var stillt upp í verslunum.Morgunblaðið/Kristinn Gámafylli af Potter
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.