Morgunblaðið - 31.10.2003, Page 52
ÍÞRÓTTIR
52 FÖSTUDAGUR 31. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÞRÍR núverandi og
a.m.k. þrír fyrrver-
andi lærisveinar
Bogdans Kowalczyck,
fyrrverandi landsliðs-
þjálfara Íslendinga,
eru í pólska landslið-
inu sem glímir við það
íslenska í þremur vin-
áttulandsleikjum í
handknattleik um
helgina. Bogdan þjálf-
ar nú Wisla Plock sem
hafnaði í öðru sæti í
pólsku deildinni í vor.
Leikmennirnir þrír
eru Andrzej Marsz-
alek, markvörður,
Tomasz Pauluch og
Adam Wisniewski er
allir leika nú með Plock undir stjórn Bogdans. Þá eru í
landsliðinu tveir leikmenn til viðbótar sem voru með
Plock á síðustu leiktíð en spila nú með þýskum liðum,
örvhenta skyttan Mariusz Jurasik, sem hefur farið á
kostum með Kronau/
Östringen í þýsku 1.
deildinni á leiktíðinni,
og Szmal Slawomir
sem nú stendur í marki
Tus N-Nettelstedt, en
Slawomir og Marszalek
skiptu á milli sín mark-
varðarstöðunni hjá
Plock í fyrravetur.
Marszalek er gamal-
reyndur markvörður
en Slawomir er 25 ára
og talinn framtíð-
armarkvörður pólska
landsliðsins.
Sjötti lærisveinn
Bogdans er síðan stór-
skyttan Grzegorz
Tkaczyk, sem nú leikur
hjá Alfreð Gíslasyni hjá Magdeburg. Hann er alinn upp
undir handarjaðri Bogdans hjá KS Warszaawianka
Warszawa, en Bogdan þjálfaði það lið árum saman áð-
ur en hann tók við þjálfun Wisla Plock.
BOGDAN Kowalczyck, fyrrverandi
landsliðsþjálfari í handknattleik,
kemur til landsins í dag í boði
Handknattleikssambands Íslands
og verður á meðal heiðursgesta á
landsleikjum Íslands og Póllands í
Kaplakrika, Ólafsvík og í Laug-
ardalshöll um helgina. Bogdan er
Pólverji og var landsliðsþjálfari Ís-
lands frá 1983 til 1990 auk þess sem
hann þjálfaði Víking um fimm ára
skeið áður en hann tók við landslið-
inu. Bogdan þjálfar nú Wisla Plock
í heimalandi sínu en það er í efsta
sæti pólsku 1. deildarinnar með
fullt hús stiga þegar sex umferðir
eru að baki.
Bogdan kom síðast í heimsókn
hingað til lands fyrir sex árum.
KÖRFUKNATTLEIKSDEILD
Tindastóls hefur gengið frá samning-
um við bandarísku leikmennina Clift-
on Cook og Adrian Parks, sem hafa
leikið með liðinu í úrvalsdeildinni í
vetur. Þeir voru til reynslu hjá félag-
inu en þar sem þeir hafa staðið undir
væntingum var skrifað undir samn-
inga við þá út tímabilið nú í vikunni.
NICK Boyd, sem kom síðar til
Tindastóls, eftir að Carlton Brown
var látinn fara, er hinsvegar enn á
reynslutíma hjá Sauðkrækingum.
Boyd hefur spilað þrjá leiki í úrvals-
deildinni og skorað í þeim 19 stig að
meðaltali í leik.
ÓLAFUR Adolfsson, fyrrum lands-
liðsmaður í knattspyrnu, hefur verið
endurráðinn þjálfari Skallagríms úr
Borgarnesi. Ólafur tók við Borgar-
nesliðinu fyrir síðasta tímabil og lék
nokkra leiki með því í 3. deildinni í
sumar.
RAY Anthony Jónsson og Guð-
mundur Andri Bjarnason, tveir af
yngri leikmönnum Grindavíkur í
knattspyrnunni, hafa skrifað undir
nýja samninga við félagið til þriggja
ára. Þeir voru báðir fastamenn í liðinu
í sumar, Guðmundur spilaði alla 18
deildaleikina og Ray Anthony 15.
NILS Arne Eggen, fyrrum þjálfari
norska meistaraliðsins Rosenborg,
sagði við P4-fréttastofuna í gær að
hann gæti vel hugsað sér að taka að
sér norska landsliðið í framtíðinni.
Hins vegar hefur norska knatt-
spyrnusambandið, NFF, ekki boðið
honum til viðræðna um starfið en
Eggen hefur í gegnum tíðina gagn-
rýnt NFF fyrir margar sakir.
DOUG Ellis, stjórnarformaður
Aston Villa, segir að tyrkneski knatt-
spyrnumaðurinn Alpay hafi kostað
félagið um 10 milljónir punda, nærri
1,3 milljörðum króna, á þeim þremur
árum sem hann dvaldi hjá því, en
Alpay var leystur undan samningi á
dögunum.
OLE Skobö, knattspyrnuþjálfari
frá Danmörku, hefur verið ráðinn
þjálfari gríska liðsins Aris Saloniki.
Hann lék með liðinu á áttunda og ní-
unda áratugnum en hefur upp á síð-
kastið verið tæknilegur ráðgjafi
danska úrvalsdeildarliðsins Viborg.
KÖLN rak í gær þjálfara sinn,
Friedhelm Funkel, úr starfi en liðinu
hefur vegnað illa undir hans stjórn og
situr í 16. sæti með aðeins tvo sigra í
10 leikjum í Bundesligunni. Funkel
tók við liði Köln í febrúar á síðasta ári
og kom því upp í Bundesliguna en
hvorki hefur gengið né rekið hjá lið-
inu á yfirstandandi leiktíð.
FUNKEL er fjórði þjálfarinn í
Bundesligunni sem missir starf sitt.
Edwald Lienen var rekinn frá
Borussia Mönchengladbach, Kurt
Jara frá Hamborg og Armin Veh frá
Hansa Rostock.
FÓLK
„VIÐ förum í þetta verkefni gegn
Pólverjunum af fullum krafti og við
ætlum svo sannarlega að gera okkar
besta til að vinna alla þrjá leikina.
Við erum ekki komnir heim til að
vera í fríi eða spara okkur fyrir ein-
hverja leiki sem eru erlendis. Allur
undirbúningur okkar miðar af stór-
mótunum tveimur á næsta ári og við
lítum á hvern leik sem mikilvægt
skref í þeim undirbúningi,“ sagði
Guðjón Valur Sigurðsson, landsliðs-
maður og leikmaður Essen í Þýska-
landi, þegar hann var inntur eftir
leikjunum við Pólverja um helgina.
Guðjón segir að Pólverjar hafi
verið í mikilli sókn á undanförnum
misserum og í dag státi þeir af mjög
öflugu liði. „Pólska liðið er mjög
skemmtilegt sem hefur bætt sig
gríðarlega. Innan þeirra raða eru
öflugir leikmenn eins og skyttan
Grzegorz Tkaczyk, sem er marka-
hæsti leikmaður Magdeburg á tíma-
bilinu, og örvhenta skyttan þeirra er
helsta skytta Flensburg toppliðsins í
Þýskalandi. Við megum því alveg
búast við hörkuleikjum gegn þeim.
Við mættum þeim á HM í Portúgal í
vetur og lentum í basli með þá.“
Guðjón Valur segir leiki eins og
þessa koma að góðu gagni enda hafi
liðið ekkert leikið saman síðan í maí
og því skipti miklu máli að slípa liðið
saman þó svo í það vanti Sigfús, Pat-
rek, Aron og Roland svo einhverjir
séu nefndir.
„Vonandi getum við boðið ís-
lensku þjóðinni upp á þrjá sigra sem
við stefnum að. Ég tel okkur eiga
góða möguleika á því, ég tala nú
ekki um ef fólk verður duglegt að
mæta á leikina og styðja við bakið á
okkur. Það eru stór verkefni fram-
undan hjá okkur og þessir leikir eru
fyrsta skrefið í undirbúningi liðsins.
Sjálfsagt eiga eftir að koma ein-
hverjir hnökrar á leik okkar og þá
sérstaklega í vörninni þar sem
þungavigtarmenn vantar en við
verðum bara að taka á því þegar út í
leikina er komið. Við höfum ekki
spilað án þeirra tveggja, Sigfúsar og
Patreks, en við verðum að bæta hver
annan upp og reyna að fylla skörð
þeirra.“
Við förum í þessa leiki af fullrialvöru og vonandi tekst okkur
vel upp. Það eru töluverðar breyt-
ingar á okkar liði
frá því á HM síðast-
liðnu. Það munar
um þyngdina í vörn-
inni þegar vantar
Sigfús, Patrek og Sigurð Bjarna-
son og þá vantar líka Aron og
Gústaf ásamt Roland markverði.
Þetta er allt reynslumiklir menn en
á móti kemur að yngri og óreynd-
ari leikmenn fá tækifæri til að sýna
sig og sanna,“ sagði Dagur við
Morgunblaðið.
Dagur segir að leikirnir við Pól-
verja komi að góðu gagni og séu
nauðsynlegir í undirbúningi liðsins
fyrir átökin á Evrópumótinu í Slóv-
eníu í janúar.
En við hverju mega íslenskir
handboltaáhugamenn búast í leikj-
unum um helgina?
„Við gerum fastlega ráð fyrir að
mæta mjög sterku liði Pólverja.
Þeir eru komnir með hörkulið og
hafa innan sinna raða sterkar
skyttur eins og Tkaczyk sem leikur
undir stjórn Alfreðs Gíslasonar hjá
Magdeburg og Przybecki hjá Kiel
sem er hörkunagli. Pólverjarnir
spila væntanlega með vörn sína
framarlega gegn okkur þannig að
okkar leikur kemur til með að
byggjast upp á því að menn verði
duglegir að leysa inn og bæði
hornamennirnir og miðjumennirnir
verði hreyfanlegir. Væntanlega
spilum við okkar 6:0 vörn þó svo að
það vanti sterka pósta í hana. Við
förum í þessa leiki með það í huga
að vinna enda lærum við mest af
því. Helsta vandamálið fyrir þessa
leiki getur orðið varnarleikurinn
en einhvern veginn verðum við að
reyna að berja okkur saman þó svo
erfitt verði að stoppa upp í götin
sem Fúsi og Patti skilja eftir sig.“
Dagur segir það mjög skemmti-
legt að spila í Ólafsvík en annar
leikurinn verður þar á morgun og
sá þriðji í Laugardalshöll á sunnu-
dagskvöld.
Dagur er ánægður með veru sína
í Austurríki þó svo að hann sakni
margs í Japan þar sem honum lík-
aði lífið vel. Dagur samdi við Breg-
enz til tveggja ára.
Þjálfarastarfið skemmtilegt
„Það hefur bara gengið vel hjá
mér í Austurríki. Bæði hef ég spil-
að ágætlega og þjálfarastarfið er
skemmtilegt. Það er að vísu enginn
dans á rósum en þetta hefur rúllað
ágætlega hjá mér. Við erum í öðru
sæti í deildinni og fórum áfram í
Evrópukeppninni. Ég var tiltölu-
lega fjótur að detta inn í starfið
enda hafði ég góðan tíma til að
undirbúa mig. Ég hef auðvitað nýtt
mér allt sem þeir þjálfarar sem ég
hef verið hjá hafa haft fram að
færa, til að mynda Þorbjörn Jens-
son og Viggó Sigurðsson og er-
lendu þjálfararnir sem ég var hjá í
Þýskalandi og í Japan.“
Þegar Dagur eru spurður út í
styrk austurrísku deildarinnar seg-
ir hann; „Ég held að ég geti alveg
borið hana saman við íslensku
deildina. Bestu liðin í Austurríki
eru alla vega ekki slakari en þau
bestu hér heima. Við spiluðum
marga leiki á undirbúningstíma-
bilinu við lið frá Sviss og gekk vel
gegn þeim og þá unnum við þýsku
liðin Eisenach og Pfullingen svo ég
held að við séum alveg í milliklassa
af evrópskum liðum. Við höfum
Vörnin helsta
áhyggjuefnið
Dagur Sigurðsson, fyrirliði íslenska landsliðsins í handknatt-
leik, um leikina þrjá gegn Pólverjum um helgina
Morgunblaðið/Kristinn
Ekkert gefið eftir á æfingu hjá landsliðinu í handknattleik.
Einar Örn Jónsson er hér búinn að stöðva Róbert Gunnarsson.
DAGUR Sigurðsson, fyrirliði ís-
lenska landsliðsins í handknatt-
leik, reiknar með hörkuleikjum
gegn Pólverjum um helgina en
fyrsti leikur þjóðanna af þremur
verður í Kaplakrika í kvöld. Dag-
ur hafði vistaskipti í sumar.
Hann yfirgaf Japan og hélt til
Austurríkis þar sem hann þjálf-
ar og leikur með Bregenz, einu
af toppliðunum í austurrísku
deildinni.
Guðmundur
Hilmarsson
skrifar
Þrír lærisveinar Bogdans með Pólverjum
Bogdan Kowalczyck
Bogdan
heiðurs-
gestur
„Ætlum ekkert að spara okkur“