Morgunblaðið - 02.11.2003, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. NÓVEMBER 2003 51
DAGBÓK
Hann?
Jóhanna Guðrún
Jónsdóttir,
fjölskylduráðgjafi
Skemmtilegt námskeið fyrir konur á öllum aldri
af öllum stærðum og gerðum verður haldið í
Brautarholti 4a, laugardaginn 15. nóvember 13-17.
Efni námskeiðsins er m.a:
Eigi vil ek hornkerling vera
BE- ástandið
“Þóknast þér“ skeiðið
Seinkunartæknin
Hverjir voru heimsmeistarar í
sektarkennd 2002 Skráning í símum 588 2092 og 862 7916
Góðir hálsar!!!
Pantið tíma í síma 511 1551
Hársnyrting
Villa Þórs
er komin
á Krókháls 1
Reiki-, heilunar- og sjálfstyrkingarnámskeið
Skráning á námskeið í síma 553 3934 kl. 10–12 virka daga.
Guðrún Óladóttir, reikimeistari.
Hvað fá þátttake
ndur út
úr slíkum námsk
eiðum?
Læra að nýta sér orku til að lækna sig
(meðfæddur eiginleiki hjá öllum)
og/eða koma sér í orkulegt og tilfinningalegt jafnvægi.
Læra að beita hugarorkunni á jákvæðan og uppbyggilegan
hátt í staðinn fyrir að beita henni til niðurrifs.
Læra að hjálpa öðrum til þess sama.
Ath! Þeir, sem hafa áhuga á dagnámskeiði, hafi samband
Námskeið í Reykjavík
8.-9. nóv. 1. stig helgarnámskeið
10.-12. nóv. 1. stig kvöldnámskeið
24.-26. nóv. 2. stig kvöldnámskeið
Afmælisþakkir
í tilefni af áttræðisafmæli mínu 26. október.
Börnum, frændum, frænkum, góðum grönnum,
gömlum vinum, nýjum, trúum, sönnum.
Ég fyllstu þakkir flyt af alhugheitum.
Sem glöddu mig með gjöfum, blómum,
heimsóknum og skeytum.
(Hjörtína) Kristín Geirsdóttir,
Birkiteigi 6, Keflavík.
Skemmtifundur hjá Félagi
harmonikuunnenda í Reykjavík í Glæsibæ
kl. 15.00 í dag
Meðal harmonikuleikara er Guðbjörn Kristinsson.
Kynntur nýr diskur „Lögin hans Valda“ með gömlu
dönsunum frá Eskifirði.
Kaffikonur sjá um veitingar.
Mætum öll og tökum með okkur gesti.
Skemmtinefndin.
Félag
harmonikuunnenda
í Reykjavík
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
SPORÐDREKI
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú átt erfitt með að sjá hvern-
ig hægt er að skipta hlutunum
bróðurlega, hvort sem um er
að ræða ábyrgð eða eignir.
Farðu varlega.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Hafðu ekki áhyggjur þótt þú
hafir ekki sett þér lang-
tímamarkmið. Þú munt gera
það innan tíðar. Þetta getur þó
gert samræður þínar við yf-
irmann þinn innihaldslausar.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú átt erfitt með að gera
ferðaáætlanir og áætlanir
varðandi útgáfumál og fram-
haldsmenntun. Þú ert ekki
nógu ákveðin/n í því hvað þú
vilt gera.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Það er hætt við misskilningi
eða ruglingi í ástarmálunum í
dag. Reyndu að vera ekki með
stjörnur í augunum yfir því
sem ekkert er.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Dagurinn hentar ekki vel til að
taka mikilvægar ákvarðanir
varðandi heimilið. Það er ólík-
legt að þú fáir þitt fram.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Farðu varlega í mikilvægum
samningaviðræðum í dag og
forðastu að lofa upp í ermina á
þér. Það er hætt við að þú of-
metir möguleika þína og getu.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Reyndu að vera raunsæ/r í því
sem þú tekur þér fyrir hendur
í dag. Það er hætt við að Nept-
únus dragi úr raunsæi þínu.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Ýttu frá þér öllum efasemdum
um eigið ágæti. Láttu það alls
ekki eftir þér að einangra þig
þeirra vegna. Það mun ein-
ungis gera illt verra.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú átt auðvelt með að sjá feg-
urðina í kring um þig. Á sama
tíma er hætt við að þú sjáir
ekki hlutina í réttu ljósi.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Hugsaðu þig tvisvar um áður
en þú eyðir peningum í dag.
Forðastu líka að lána öðrum
peninga og að fá peninga að
láni. Það er hætt við að þú sjá-
ir ekki heildarmyndina.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Ef þú efast um hæfni þína til
að fást við áhrifamikið fólk,
frestaðu því þá til morguns.
Þegar svona stendur á skiptir
sjálfstraustið miklu máli.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú átt erfitt með að einbeita
þér og því ættirðu að reyna að
fresta öllum verkefnum sem
krefjast rökhugsunar. Hafðu
þó engar áhyggjur. Hugur
þinn þarf bara á hvíld að
halda.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert sterkur leiðtogi. Þú
hefur góða aðlögunarhæfni
en vilt þó breyta hlutunum til
hins betra. Á árinu þarftu að
taka mikilvægar ákvarðanir.
HLUTAVELTA
1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 Bg7
4. e4 d6 5. Rf3 0-0 6. Be2 e5 7.
0-0 Ra6 8. Be3 Rg4 9. Bg5
De8 10. h3 h6 11. Bc1 exd4
12. Rxd4 Rf6 13. Bf3 Rh7 14.
h4 Rc5 15. He1 De5
16. Be3 Re6 17. Rxe6
fxe6 18. Dd2 Df6 19.
Bxh6 Dxh4 20. Bxg7
Kxg7 21. g3 Rg5 22.
Bg2 Rh3+ 23. Bxh3
Dxh3 24. Dd3 Hh8 25.
Df3 e5 26. Rd5 Dh2+
27. Kf1 Bh3+ 28. Ke2
Haf8 29. Hh1
Staðan kom upp í
Evrópumeistaramóti
ungmenna sem lauk
fyrir nokkru í Budva í
Júgóslavíu. Andrey
Zhigalko (2.478) hafði
svart gegn Timothy Wood-
ward (2.336). 29. ... Bg4! og
hvítur gafst upp enda fátt til
varnar. Spennan fer vaxandi
á Mjólkurskákmótinu sem
fram fer á Hótel Selfossi en
5. umferð er haldin í dag.
Skákáhugamenn eru hvattir
til að fjölmenna á skákstað.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
KVÖLDVÍSA
Dags þegar rennur fagur fákur
faxi glóanda’ í vestrið inn,
hoppar í augun hreppastrákur
á hverri stúlku, vinur minn.
En hvítur sveinn á svæfla-mar
situr og dregur ýsurnar.
Sveinbjörn Egilsson
LJÓÐABROT
Keppnisspilarar vita vel að
opnun á veiku grandi er
mikill sveifluvaki í sveita-
keppni. Ástæðurnar fyrir
því eru einkum tvær. Í
fyrsta lagi getur farið illa
þegar makker opnarans er
veikur og andstæðingarnir
reiða til höggs með dobl-
miðanum. En á hinn bóg-
inn er grandið skilvirk
hindrunarsögn, sem oft
kemur í veg fyrir að and-
stæðingarnir finni upplagt
geim. Þriðju ástæðuna má
nefna. Hún er sú að spil-
arar kunna almennt ekki
til verka í sagnbaráttunni
þegar veika grandið er
doblað. Lítum á spil frá
Yokohama-mótinu:
Vestur gefur; enginn á
hættu.
Norður
♠ K82
♥ 1072
♦ ÁK986
♣D5
Vestur Austur
♠ G5 ♠ ÁD76
♥ KG54 ♥ Á96
♦ G2 ♦ D10
♣109863 ♣ÁK74
Suður
♠ 10943
♥ D83
♦ 7543
♣G2
Á einu borðinu vakti
Ísak Örn Sigurðsson á
veiku grandi í norður.
Makker hans í suður var
Páll Valdimasson, en í AV
voru Júlíus Sigurjónsson
og Hrannar Erlingsson:
Vestur Norður Austur Suður
Hrannar Ísak Júlíus Páll
Pass 1 grand Dobl Pass
Pass Redobl Pass 2 tíglar
Pass 3 tíglar Pass Pass
Pass
Ísak og Páll eru ekki
vanir samherjar, en virð-
ast þó hafa rætt saman um
flóttaleiðir úr doblinu. Júl-
íus og Hrannar fundu ekki
svar við þessum sögnum
og lögðu niður vopnin við
þremur tíglum. Sá samn-
ingur fór fimm niður! Út
kom lauf og Júlíus tók þar
tvo slagi. Spilaði næst
hjartaás og hjarta, þar
sem Hrannar átti tvo slagi
í viðbót. Spaðagosinn kom
svo í gegnum kónginn og
spaðastunga í kjölfarið.
Loks spilaði Hrannar
þrettánda hjartanu og
tryggði makker slag á
trompdrottninguna.
Eins og legan er, standa
fimm lauf og fjögur hjörtu
í AV, svo NS máttu vel við
una að spila þrjá tígla
ódoblaða. Þrjú pör sögðu
geim og unnu. Snorri
Karlsson og Aron Þor-
finnsson fundu fallega leið
upp í fimm lauf gegn Stef-
áni Jóhannssyni og Ragn-
ari Magnússyni:
Vestur Norður Austur Suður
Aron Stefán Snorri Ragnar
Pass 1 tígull Dobl Pass
1 hjarta Pass 2 tíglar * Pass
3 lauf Pass 3 hjörtu Pass
4 lauf Pass 5 lauf Allir pass
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson
Í ÞESSUM pistlum hefur
áður verið rætt um so. að
deyja og önnur sagnorð,
sem í raun tákna hið
sama, en eru samkv. mál-
tilfinningu minni og vafa-
laust margra annarra
ekki eða tæplega „gjald-
geng“ í öllum sambönd-
um. So. að deyja virðist
hins vegar vera á góðri
leið með að ýta til hliðar
öðrum sagnorðum, sem
merkja vissulega hið
sama, en þar sem hún á
helzt ekki heima, en er
engu að síður oft notuð í
fjölmiðlum. Hér er t.d. átt
við sagnorð eins og að
drepast, látast, falla frá,
en þau hafa áður verið
umræðuefni í pistlum
þessum. Aftur á móti mun
so. að farast ekki hafa
verið sérstaklega hér til
umfjöllunar. Talað er um,
að svo og svo margir hafi
dáið í inflúensunni, en
engum dytti í hug að nota
so. að farast í því sam-
bandi. Svo er jafnan talað
um, að margir hafi farizt í
bílslysi eða flugslysi, en
síður dáið, þótt afleiðing-
in hafi orðið hin sama. Ég
hef séð í blaði þessa fyr-
irsögn: Fangar deyja. Í
sjálfri frásögninni kom í
ljós, að eldur í fangelsi
hafi orðið „67 föngum að
bana“. Það orðalag á við
hér, en í fyrirsögninni
hefði verið eðlilegt að
segja: Fangar farast,
enda þótt því verði ekki
neitað, að þeir dóu í þess-
um eldsvoða. Svo stóð
þetta í öðru blaði um
þennan atburð: Sextíu og
sjö fangar týndu lífi í gær.
Þannig má vitaskuld orða
þess konar frásögn. Þar
sem ég hef áhuga á því að
hafa spurnir af, hvort les-
endur þessara pistla hafi
svipaða tilfinningu og ég
um notkun eða blæmun
ofangreindra sagnorða í
máli okkar, bendi ég á
síma minn 557 4977 eða
tölvufang mitt, jaj@sim-
net.is – J.A.J.
ORÐABÓKIN
Deyja – farast
Morgunblaðið/Sigríður
Þessir duglegu krakkar héldu tombólu og söfnuðu kr.
2.095 til styrktar Rauða krossi Íslands. Þau eru: Ólafur
Þorri Sigurjónsson, Þórdís Ólöf Sigurjónsdóttir, Signý
Kristín Sigurjónsdóttir, Svana Rós Helgadóttir og Snæ-
fríður Birta Einarsdóttir.
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn