Morgunblaðið - 19.11.2003, Page 20
AKUREYRI
20 MIÐVIKUDAGUR 19. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Fundarsetning
Bjarni Aðalgeirsson, formaður Útvegsmannafélags Norðurlands
Samantekt um sjávarútveg á Norðurlandi
Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja
Markaðsmálin, staða og horfur
Björn Valdimarsson, markaðsstjóri Þormóðs ramma - Sæbergs hf.
Sjávarútvegurinn á krossgötum - hvar verðum við eftir 10 ár?
Guðbrandur Sigurðsson, forstjóri Brims
Sjávarlíftækni á Norðurlandi
Úlfar Steindórsson, stjórnarformaður Primex
Fiskveiðistjórnun og framþróunin - hverju skilar kerfið?
Jón Eðvald Friðriksson, framkvæmdastjóri Fiskiðjunnar Skagfirðings
Sveitarfélögin og sjávarútvegurinn
Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri, Akureyri
Magnús B. Jónsson, sveitarstjóri, Skagaströnd
Sjónarmið fiskiðnaðarfólks
Björn Snæbjörnsson, formaður Einingar-Iðju
Sjónarmið sjómanna
Árni Bjarnason, forseti Farmanna- og fiskimannasambandsins
Sjónarmið sjómanna
Konráð Alfreðsson, formaður Sjómannafélags Eyjafjarðar
og varaformaður Sjómannasambands Íslands
Kaffihlé
Fyrirspurnir og panelumræður
Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja
Björn Valdimarsson, markaðsstjóri Þormóðs ramma - Sæbergs
Úlfar Steindórsson, stjórnarformaður Primex
Konráð Alfreðsson, formaður Sjómannafélags Eyjafjarðar
Valdimar Bragason, bæjarstjóri í Dalvíkurbyggð
Helgi Laxdal, formaður Vélstjórafélags Íslands
Sjávarútvegur á Norðurlandi
staða, ógnir & tækifæri
Opin ráðstefna Útvegsmannafélags Norðurlands í matsal
Útgerðarfélags Akureyringa hf.
föstudaginn 21. nóvember kl. 13.30.
ÚTVEGSMANNAFÉLAG NORÐURLANDS
Fundarstjóri verður Atli Rúnar Halldórsson, Athygli ehf.
A
th
yg
li,
A
ku
re
yr
i
DAGSKRÁ
Samvera eldri borgara í Glerárkirkju
fimmtudaginn 20. nóv.
Samvera eldri borgara í kirkjunni
kl. 15.00. Kaffiveitingar og spjall.
Sr. Magnús G. Gunnarsson þenur harmonikuna.
Söngur, upplestur, ljóð og frásagnir.
Barnakór Glerárkirkju syngur undir stjórn Ástu Magnúsdóttur.
Sr. Arnaldur Bárðarson leiðir bænastund.
GLERÁRKIRKJA
BÖRNIN í Brekkuskóla kunnu
greinilega vel að meta ljúfa tóna Sin-
fóníuhljómsveitar Norðurlands en
hún heimsótti skólann í gærmorgun
og lék fyrir börn og starfsfólk. Að
sjálfsögðu við góðar undirtektir.
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands
leikur að jafnaði á 30 skólatónleikum
á hverju ári og fá skólabörn á Ak-
ureyri, í Eyjafirði og Suður-
Þingeyjarsýslu að njóta tónlistar-
innar. Eitt árið brá hljómsveitin sér
einnig í Skagafjörð, en metnaður for-
svarsmanna hennar er að leika fyrir
sem sem flest börn á svæðinu. Til-
gangurinn er að kynna fyrir skóla-
börnum klassíska tónlist, enda eru
þau framtíðarhlustendur hljómsveit-
arinnar. Þá telja forráðamenn SN
einnig að börnin eigi að fá að upplifa
lifandi tónleika áður en þau halda út í
lífið, hvað það er að sitja á tónleikum
og hlusta á lifandi tónlist. Hljóm-
sveitin hefur fengið jákvæð viðbrögð
við skólatónleikunum og hvarvetna
verið vel tekið. Menningar- og við-
urkenningasjóður KEA hefur styrkt
hljómsveitina til skólatónleikahalds-
ins og einnig Barnamenningarsjóður.
Lög úr James
Bond og Toy story
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands
varð 10 ára gömul í síðasta mánuði og
var þá efnt til afmælistónleika. Aðrir
tónleikar hennar í vetur verða á
sunnudag, sannkallaðir fjölskyldu-
tónleikar því þá flytur sveitin efni
sem hún hefur leikið fyrir skólabörn-
in síðustu vikur. Þar munu hljóma lög
eins og titillagið úr James Bond,
syrpa úr Hringadróttinsögu, íslensk
rímnadanslög, Nautabanasöngur og
lag úr Toy story svo eitthvað sé nefnt.
Tónleikarnir verða haldnir kl. 16 á
sunnudag, 23. nóvember í Gler-
árkirkju og stjórnandi er Guðmundur
Óli Guðmundsson.
Morgunblaðið/Kristján
Vandvirkni: Félagar úr Sinfóníuhljómsveit Norðurlands á tónleikunum.
Morgunblaðið/Kristján
Áhugi: Nemendur Brekkuskóla hlýddu á tónlistina af miklum áhuga.
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands lék við góðar undirtektir í Brekkuskóla
Hlýddu á ljúfa tóna sinfóníunnar
Á SÍÐASTA fundi bæjarráðs Dal-
víkurbyggðar var lagt fram minn-
isblað bæjarstjóra um fund sem
haldinn var nýlega um sameiningu
sveitarfélaga sem fulltrúar frá
Siglufirði, Ólafsfirði, Dalvík-
urbyggð og Akureyri sátu. Sameig-
inleg niðurstaða fundarins var að
leggja til við sveitarstjórnir Siglu-
fjarðar, Ólafsfjarðar, Dalvík-
urbyggðar og Akureyrar að farið
yrði í sameiginlega athugun á sam-
einingu allra sveitarfélaga á svæð-
inu. Skipaður yrði vinnuhópur með
einum fulltrúa frá hverju sveitarfé-
lagi til að stýra þessu verkefni og
áætla kostnað af því. Jafnframt
yrði stýrihópnum falið að kanna
vilja annarra sveitarfélaga á svæð-
inu til þátttöku í verkefninu.
Sameining allra
sveitarfélaga á
svæðinu athuguð
VERSLUNARMENN á Akureyri
eru komnir í jólaskap eða um það
bil að komast í gírinn, þótt enn sé
rúmur mánuður til jóla. Ekki er
ráð nema í tíma sé tekið og hafa
verslanir bæði í miðbænum, á
Glerártorgi og víðar, verið klædd-
ar í jólabúning. Þeir félagar Sig-
þór Bjarnason og Jón M. Ragn-
arsson voru að undirbúa
skreytingar á þeim verslunun sem
þeir starfa í, JMJ og Joés og
hengdu jólaljós á rauðgreni sem
mest þeir máttu. Ragnar Sverr-
isson formaður Kaupmannafélags
Akureyrar og kaupmaður í JMJ
og Joe’s hefur jafnan verið stór-
tækur í jólaskreytingum og verður
engin undantekning þetta árið.
Ragnar hefur, ásamt sonum sín-
um, þegar skreytt íbúðarhús sitt
og garð með um 2000 jóla-
ljósaperum og í kjölfarið hefur
umferð um Áshlíðina, þar sem
Ragnar býr, aukist til mikilla
muna.
Morgunblaðið/Kristján
Sigþór Bjarnason og Jón M. Ragnarsson hengja jólaljós á rauðgreni.
Komnir í jólaskapSkilorð vegna árásar | Karlmað-ur á þrítugsaldri hefur í HéraðsdómiNorðurlands eystra verið dæmdur í
tveggja mánaða fangelsi vegna lík-
amsárásar. Refsingunni er frestað
og hún fellur niður að tveimur árum
liðnum haldi maðurinn almennt skil-
orð. Þá var manninum gert að greiða
um 103 þúsund krónur í skaðabætur.
Maðurinn var ákærður fyrir að hafa
í febrúar síðastliðnum slegið mann
hnefahögg í andlit á veitingastað í
bænum, en sá er fyrir högginu varð
vankaðist. Nokkru síðar fyrir utan
staðinn sló maðurinn til hans með
flösku þannig að hann hlaut skurð.
Maðurinn játaði brot sitt, en
greindi frá því að áður en til átaka
kom utan við veitingastaðinn hefði
honum verið haldið, hent í götuna,
og sparkað í höfuð hans. Ákærða til
málsbóta var talið að hann játaði
greiðlega og samþykkti greiðslu
skaðabóta.
Öruggur sigurvegari | Óvæntur
en öruggur sigurvegari á haust-
hraðskákmóti Skákfélags Akureyr-
ar var Tómas Veigar Sigurðarson,
en hann hlaut 12 vinninga úr 16
skákum. Í næstu sætum með 10
vinninga komu svo nýbakaður Norð-
urlandsmeistari Halldór B. Hall-
dórsson og Haki Jóhannesson. Í síð-
ustu viku hélt svo
félagiðforgjafarmót þar sem hart
var barist. Þar var það Stefán
Bergsson sem stóð uppi sem sig-
urvegari, hársbreidd á undan Svein-
birni Sigurðssyni.
Atskákmót Akureyrar hefst svo
nk. fimmtudag, 20. nóvember kl. 20.
Því lýkur á sunnudag. Að venju er
teflt í Íþróttahöllinni og eru allir vel-
komnir.
Hreyfiþjálfun | Símenntun HA
heldur dagana 21., 22., 29. og 30. nóv.
í samstarfi við Endurmenntun HÍ
námskeiðið Hreyfiþjálfun: Frá barn-
æsku til efri ára. Námskeiðið er ætl-
að fagfólki á heilbrigðis-, félags- og
uppeldissviði. Námskeiðið er á fram-
haldsstigi og má meta til 2 eininga af
námi til meistaraprófs.
Fjallað er m.a. um þróun hreyfi-
þroskans, ágreiningsefni sem uppi
eru um hreyfivirkni, æfingar,
reynslu úr íþróttum, hreyfiþroska og
áhrif alls þessa á vitrænan og tilfinn-
ingalegan þroska á mismunandi ald-
ursskeiðum. Kennari er Carola Að-
albjörnsson Ph.D. í hreyfingarfræði,
starfar hjá Delta. Kennt er á ensku.
Náms- og starfsval | Sif Einars-
dóttir fjallar um kenningar um
náms- og starfsval í fyrirlestri á Fé-
lagsvísindatorgi háskólans í dag,
miðvikudag, 19. nóvember kl. 16.30 í
Þingvallastræti 23, stofu 14. Heitir
hans er: Náms- og starfsval, ígrund-
uð ákvörðun eða hugljómun?
Sif mun m.a. fjalla um hvernig að-
stoða megi ungt fólk við náms- og
starfsval og leitar svara við spurn-
ingunni um það hvort ungt fólk á Ís-
landi hafi aðgang að þeim upplýs-
ingum sem þarf til að geta tekið
ígrundaðar ákvarðanir um náms- og
starfsval.
Beint flug | Bæjarráð Dalvík-
urbyggðar harmar þá ákvörðun
Grænlandsflugs að hætta beinu flugi
milli Kaupmannahafnar og Akureyr-
ar. Miklar væntingar voru bundnar
þessari flugleið fyrir uppbyggingu
ferðaþjónustu og til eflingar atvinnu
og búsetu við Eyjafjörð. Það er
skoðun bæjarráðs að ekki hafi að
fullu verið reynt á möguleika þess-
arar flugleiðar, enda reynslutíminn
mjög stuttur og hæpið að markaðs-
starf hafi verið farið að skila sér.
Sundmót | Íþrótta- og tóm-
stundaráð hefur samþykkt ósk
Sundfélagsins Óðins þess efnis að fé-
lagið fái afnot af Sundlaug Akureyr-
ar dagana 25.- 27. júní 2004 fyrir
Aldursflokkameistaramót Íslands í
sundi. Ráðið getur hins vegar ekki
orðið við óskum sundfélagsins um að
sundlaugin verði lokuð á meðan á
mótshaldinu stendur.