Morgunblaðið - 19.11.2003, Side 22
LANDIÐ
22 MIÐVIKUDAGUR 19. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Ingólfur G. Gissurarson, logg. fast. -
www.valholl.is -
Opið virka daga frá kl. 9-17.30.
Ingólfur 896 5222 - Magnús 822 8242 (atvinnuhúsn.)
Bogi 699 3444 - Þórarinn 899 1882 - Bárður 896 5221
Samhentir sölumenn í fimmtán ár tryggja þinn árangur.
Mikil eftirspurn er eftir 2ja–4ra herbergja íbúðum.
Fjölmargir kaupendur á skrá. Einnig er mikil eftirspurn
eftir sérhæðum,
rað- og einbýlishúsum.
Erum við símann núna.
Láttu okkur selja fyrir þig -
70 ára samanlögð reynsla
tryggir fagleg vinnubrögð
Stykkishólmur | Á föstudagskvöld
sigldi nýtt fiskiskip inn í höfnina í
Stykkishólmi. Það heitir Gullhólmi
SH 201 og er í eigu Sigurðar
Ágústssonar ehf. Skipið er 324
brúttórúmlestir, 49 metra langt og
7,5 metra breitt. Skipið var smíðað í
Noregi árið 1964. Það kom nýsmíð-
að til Íslands og hefur öll þessi 40
ár heitið Þórður Jónasson sem er
óvenjulega langur tími undir sama
nafni. Skipið var gert út sem nóta-
skip, en fær nýtt hlutverk.
Miklar breytingar hafa farið fram
á skipinu síðan nýir eigendur tóku
við því sem Slippstöðin á Akureyri
annaðist. Settur var í skipið nýr
skutur fyrir togveiðar. Millidekki
var breytt fyrir línu- og togveiðar.
Lestinni var breytt í kælilest og
frystilest fyrir beitu. Antveltitanki
var komið fyrir í skpinu. Aðstaða
áhafnar var bætt, m.a. var komið
fyrir sturtum og saunaklefa.
Línubeitningarbúnaðurinn er frá
Mustad og línan keypt frá Dimon.
Karl Luðvíksson teiknaði breyt-
ingarnar og Ragnar Olsen útgerð-
arstjóri sá um framkvæmdirnar
fyrir hönd útgerðar.
Í áhöfn verða 13 manns og koma
flestir frá Stykkishólmi. Skipstjóri
er Valentínus Guðnason.
Skipið verður gert út til línu- og
rækjuveiða. Reiknað er með að
skipið haldi til línuveiða á mánudag.
Aflanum verður landað í Stykkis-
hólmi og seldur á Fiskmarkaði Ís-
lands
Gullhólmi, nýtt skip til Stykkishólms
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Nýtt nafn eftir 40 ár: Gullhólmi SH 201 fánum prýddur eftir að hann kom til nýrrar heimahafnar í Stykkishólmi.
Sauðárkrókur | Á vegum
félagsmiðstöðvarinnar Friður í
Skagafirði var haldin á dögunum
keppnin: Hár, stíll og förðun, en
keppni þessi er undanrás fyrir að-
alkeppni sem fram fer í Kópavogi
hinn 22. nóvember næstkomandi.
Er þetta í annað sinn sem Friður
tekur þátt í þessari keppni og
skráðu sig þrettán lið til keppn-
innar sem var hin glæsilegasta.
Þátttakendur voru frá öllum
þrem félagsmiðstöðvunum í Skaga-
firði og var auðséð að keppendur
höfðu mikið á sig lagt, enda útkom-
an yrði sem best, en þema keppn-
innar var – eldur og því eðlilegt að
rauður litur væri áberandi í þeim
flíkum sem módelin kynntu.
Að mati dómnefndar voru tvö lið,
sem skáru sig úr og varð nokkur
töf áður en niðurstaða fékkst og úr-
slit réðust, en þó kom svo um síðir
að hópur sem nefndi sig Angel of
fire dæmdist hafa verið með bestu
og glæsilegustu hönnun og útfærslu
þemans og ávann sér þar með
keppnisrétt sem fulltrúi Skaga-
fjarðar í Kópavogi síðar í mán-
uðinum.
Í hópnum Angel of fire voru:
Lilja Sigurðardóttir módel, auk,
Sigrúnar Öldu Sigfúsdóttur, Tinnu
Ingimarsdóttur og Auðar Ásbjörns-
dóttur en þær stöllur koma úr fé-
lagsmiðstöðinni í Varmahlíð.
Morgunblaðið/Björn BjörnssonMódelin voru glæsileg þegar þau stilltu sér upp til myndatöku.
Hár, stíll og förðun í Skagafirði
Grundarfjörður | Hinn 16. nóv-
ember sl. voru 50 ár liðin frá
þeim atburði er Eddan GK fórst í
aftakaveðri á Grundarfirði. Edd-
an hafði leitað vars inni á Grund-
arfirði og lá við festar er hún
lagðist á hliðina og sökk. Flestir
skipverjanna komust á kjöl og
síðan um borð í nótabát sem rak
út fjörðinn og strandaði á skerj-
unum framan við bæinn Suður-
Bár við austanverðan Grund-
arfjörð. Af 17 manna áhöfn skips-
ins komust 8 af og var þeim
hjúkrað af heimilisfólki í Suður-
Bár.
Sjómannadagsráði Grund-
arfjarðar þótti tilhlýðilegt að
minnast þessa atburðar nú hálfri
öld síðar. Sérstök helgistund var
haldin í Grundarfjarðarkirkju sl.
sunnudag í umsjón sóknarprests-
ins Elínborgar Sturludóttur. Í at-
höfninni í kirkjunni voru heiðruð
systkinin frá Suður-Bár, Þórdís
og Tryggvi, en þau ásamt for-
eldrum sínum, sem nú eru látnir,
áttu stóran þátt í björgun og
hjúkrun skipbrotsmannanna. Eft-
ir athöfnina í Grundarfjarð-
arkirkju var stutt athöfn niðri við
Grundarfjarðarhöfn, þar rakti
séra Elínborg í stuttu máli at-
burðina fyrir 50 árum en að því
búnu var afhjúpaður minnisvarði
um atburðinn sem jafnframt er
minnisvarði um hetjudáð sjó-
manna. Það voru þau Óskar J.
Vigfússon og Þórdís Gunn-
arsdóttir sem afhjúpuðu lista-
verkið. Óskar var einn þeirra
sem komust af í Edduslysinu.
Listaverkið hefur hlotið nafnið
Dáð og er eftir Árna Johnsen.
Margt manna var samankomið
við þessa athöfn og voru það að-
standendur sjómannanna sem og
heimamenn.
Í bókinni Fólkið, fjöllin fjörð-
urinn sem gefin er út af Eyr-
byggjum, Hollvinasamtökum
Grundarfjarðar og sögunefnd
Eyrarsveitar og kom út fyrr á
þessu ári er ýtarleg umfjöllun um
Edduslysið frá sjónarhóli þeirra
sem stóðu að björgun sem og
þeirra sem björguðust og jafn-
framt sjómanna sem voru á sjó
þennan örlagaríka dag.
Systkinin frá Suður-Bár heiðruð
Fimmtíu ár frá
Edduslysinu á
Grundarfirði
Ljósmyndir/Sverrir Karlsson
Systkinin sem voru heiðruð: Þórdís Gunnarsdóttir og Tryggvi Gunnarsson
hlutu heiðursviðurkenningu sjómannadagsráðs Grundarfjarðar.
Séra Elínborg Sturludóttir flutti
stutt ávarp fyrir afhjúpunina.
Austurland | Í frétt frá Þróunarstofu
Austurlands segir að Steve R. Drew,
framkvæmdastjóri samfélags-
tengsla hjá Bechtel, hafi fyrir
skömmu átt fund með fulltrúum
Þróunarstofunnar. Bechtel undirbýr
ásamt fleirum byggingu álvers Al-
coa á Reyðarfirði. Bechtel og Alcoa
hafa bæði gerst félagar í Þróun-
arfélagi Austurlands, sem rekur
Þróunarstofu. „Þessi tengsl geta fyr-
irtæki, stofnanir og sveitarfélög sem
eru í Þróunarfélaginu nýtt sér, m.a. í
þeim tilgangi að koma á framfæri
ábendingum til Bechtel og Alcoa
sem varða hagsmuni atvinnulífs og
samfélags á Austurlandi. Í því sam-
bandi má benda á að bæði fyrirtækin
hafa lýst yfir að þau muni leitast við
að starfa með þeim hætti að sam-
félagslegur og efnahagslegur ávinn-
ingur af umsvifum þeirra verði sem
allra mestur á Austurlandi. Til að
svo geti orðið þurfa Austfirðingar
einnig að vera vel meðvitaðir um
þau áhrif sem bygging álversins hef-
ur og bregðast við á þann hátt að all-
ir leggist á eitt um að gera ávinning
þess sem mestan,“ segir í fréttinni.
Alcoa og Bechtel
bæði í Þróunarfélag
Austurlands