Morgunblaðið - 19.11.2003, Page 23
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. NÓVEMBER 2003 23
Borgartúni 28, símar 520 7901/520 7900
ÍS
LE
NS
KA
A
UG
LÝ
SI
NG
AS
TO
FA
N/
SI
A.
IS
M
OR
2
27
64
1
1/
20
03
Smáauglýsing
á aðeins 500 kr.*
Alla daga
Sími 569 1111 eða augl@mbl.is
*5 línur; tilboðið gildir til 31. des.
Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri og Orkuveitan
Morgunblaðið/Ásdís Haraldsdóttir
Gagnkvæm þekkingarmiðlun: Magnús B. Jónsson, rektor LBH, og Ásgeir
Margeirsson, aðstoðarforstjóri OR, undirrita samstarfssamninginn.
Samningur um gagn-
kvæma þekkingarmiðlun
Hvanneyri | Landbúnaðarháskól-
inn á Hvanneyri og Orkuveita
Reykjavíkur undirrituðu sam-
starfssamning á föstudaginn. Í
samningnum felst gagnkvæm
þekkingarmiðlun og munu starfs-
menn Orkuveitunnar koma að
kennslu og rannsóknum við há-
skólann og geta sjálfir sótt þekk-
ingu þangað með því að sækja ein-
staka námsáfanga.
Með samningnum er kveðið á
um samstarf Landbúnaðarháskól-
ans og Orkuveitunnar um rann-
sóknir á þeim sviðum sem tilheyra
námsbrautum skólans. Þar er
meðal annars átt við umhverfis-
mál, jarðfræði, orkunotkun og
orkuvinnslu, nýtingu jarðvarma,
gæðamál og hönnun veitukerfa.
Einnig er kveðið á um aðgengi
nemenda og kennara háskólans að
upplýsingaveitum OR, svo sem
landupplýsingakerfi.
Landbúnaðarháskólinn hefur
gert samstarfssamninga við marg-
ar stofnanir en í máli Magnúsar B.
Jónssonar rektors kom fram að
þetta sé í fyrsta sinn sem slíkur
samningur er gerður við fyrirtæki.
Ásgeir Margeirsson, aðstoðar-
forstjóri OR, lagði áherslu á mik-
ilvægi samningsins við LBH. Þar
færi fram kennsla í landnýtingu og
umhverfisskipulagi, en OR væri
landeigandi og legði mikla áherslu
á skynsamlega nýtingu góða um-
gengni um landið.
Við sama tækifæri var jafnframt
tekið í notkun nýtt tölvuver há-
skólans í nýju skrifstofubygging-
unni að Hvanneyrarbraut 3 með
styrk frá Orkuveitu Reykjavíkur
sem einnig studdi háskólann við
tölvukaup. Í tölvuverinu eru 19
nýjar og öflugar tölvur sem henta
vel stórum forritum sem nemend-
ur háskólans nota í náminu. Auk
þeirra er fullkominn kennslubún-
aður í verinu. Auk Orkuveitunnar
studdu Sparisjóður Mýrasýslu,
Norðurál, Kaupfélag Borgfirðinga,
Vátryggingafélag Íslands, Opin
kerfi, Sjóvá-Almennar og Búnað-
arbanki Íslands tölvukaupin.
Tískuverslun Laugavegi 25
ATVINNA mbl.is FASTEIGNIR mbl.is