Morgunblaðið - 25.11.2003, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 320. TBL. 91. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 25. NÓVEMBER 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Jóga fyrir
starfsfólk
Starfsfólki Landspítalans boðið
upp á jóganámskeið Daglegt líf
Í för með þýðanda og höfundi
verksins um sögusviðið Bækur
Krakkar
í karate
Það er mikið fjör á æfingu hjá
karatedeild Fylkis Íþróttir
SKELJUNGUR, ESSO og OLÍS lækkuðu
verðið á bensíni í gær. Eftir breytingu kost-
ar lítrinn af 95 oktana bensíni 92 krónur og
lítrinn af dísilolíu 39,80 kr. á höfuðborgar-
svæðinu.
Um miðja síðustu viku hækkuðu Skelj-
ungur, ESSO og OLÍS verð á bensíni um
eina krónu og lítrann af dísilolíu um 1,70. Á
föstudag lækkaði ESSO verðið aftur eða
jafnmikið og nam hækkun fyrr í vikunni,
þ.e. um eina krónu.
Skeljungur lækkaði síðan verð á bensíni í
gær um 1,60 lítrann og lítrinn af dísilolíu
lækkaði um tvær krónur. Eftir þá breytingu
kostar lítrinn af 95 oktana bensíni 92 krónur
á Shellstöðvum á höfuðborgarsvæðinu og
lítrinn af dísilolíu 39,80. ESSO lækkaði þá
enn á ný til samræmis þ.e. 95 oktana bensín
í 92 krónur og lítrann af dísilolíu í 39,80.
OLÍS fylgdi á eftir og lækkaði tímabundið
verð á bensíni um 1,60 á lítra, verð á gasolíu
og dísilolíu um 2 krónur á lítra og verð á
skipagasolíu um 1,70 kr. á lítra. Eftir lækk-
un er sjálfsafgreiðsluverð á höfuðborgar-
svæðinu þannig að bensín kostar 92 kr. lítr-
inn og dísilolía kostar 39,80 kr. lítrinn. Verð
á ÓB-stöðvum er þannig að bensín kostar
90,80 kr. lítrinn og dísilolía 38,60 krónur.
Olíufélögin
lækkuðu
eitt af öðru
Morgunblaðið/Þorkell
Bensínmarkaður/6
EDÚARD Shevardnadze, sem
sagði af sér sem forseti Georgíu á
sunnudag, kvaðst í gær ætla að
vera um kyrrt í heimalandi sínu
og sagði ekkert hæft í fréttum
um að hann hygðist fara til
Þýskalands og lifa þar í útlegð.
Vladímír Pútín, forseti Rúss-
lands, gagnrýndi andstæðinga
Shevardnadze fyrir að knýja
hann til afsagnar en hvatti nýju
ráðamennina í Georgíu til að
bæta samskiptin við Rússland.
„Þótt ég hafi miklar mætur á
Þýskalandi tel ég að mér beri að
vera hér um kyrrt,“ sagði Shev-
ardnadze í sjónvarpsviðtali á
heimili sínu. Áður hafði þýska
stjórnin boðið Shevardnadze að
dvelja í Þýskalandi.
„Var aldrei einræðisherra“
Vladímír Pútín kvaðst hafa
„áhyggjur af því að valdaskiptin
skyldu hafa orðið vegna gífurlegs
þrýstings“ stjórnarandstæðinga
sem efndu til margra vikna mót-
mæla til að knýja Shevardnadze
til afsagnar. „Þeir sem skipu-
leggja slíkar aðgerðir taka á sig
mikla ábyrgð gagnvart þjóðinni,“
sagði Pútín.
„Það er augljóst að Shevar-
dnadze var aldrei einræðisherra,“
sagði Pútín en viðurkenndi að
valdaskiptin hefðu orðið vegna
„margra mistaka í innanríkis- og
utanríkismálum“ af hálfu forset-
ans fyrrverandi.
Pútín kvaðst einnig vona að
nýju ráðamennirnir bættu tengsl-
in við Rússland, en þau hafa verið
stirð frá því að Sovétríkin leyst-
ust upp, einkum vegna tilrauna
stjórnvalda í Georgíu til að fá að-
ild að Atlantshafsbandalaginu.
Reuters
Verkakona hreinsar götu við þinghúsið í Tbilisi eftir fjöldamótmæli andstæðinga Edúards Shevardnadze.
Shevardnadze ætlar
ekki að fara í útlegð
Pútín skorar á Georgíumenn að bæta tengslin við Rússa
Sigurvíman/16
Berlín, Moskvu. AFP.
KVIÐDÓMUR í Virginia Beach í
Bandaríkjunum mælti með því í gær
að John Allen Muhammad yrði
dæmdur til dauða fyrir eitt af tíu
morðum sem hann er talinn hafa
framið ásamt 17 ára unglingi í Wash-
ingtonborg og nágrenni fyrir ári.
Morðin ollu mikilli skelfingu á Wash-
ington-svæðinu.
Kviðdómurinn mælti með því að
Muhammad yrði tekinn af lífi í raf-
magnsstól eða með banvænni
sprautu fyrir morð og hryðjuverk.
Dómarinn við réttinn á lokaorðið
um refsingu Muhammads og getur
dæmt hann í lífstíðarfangelsi án
möguleika á reynslulausn en mjög
sjaldgæft er að dómarar í Virginíu-
ríki mildi niðurstöðu kviðdóma í
morðmálum. Dómurinn verður kveð-
inn upp 12. febrúar.
Engin svipbrigði sáust á
Muhammad þegar kviðdómurinn
skýrði frá niðurstöðu sinni.
Muhammad er 42 ára fyrrverandi
hermaður og tók þátt í Persaflóa-
styrjöldinni 1991.
AP
John Allen Muhammad hlýðir á nið-
urstöðu kviðdóms í Virginíuríki.
Mælt með
dauðadómi
Virginia Beach. AP, AFP.
NEFND sérfræðinga banda-
rísku rekstrarhagfræðisam-
takanna NABE spáði því í gær
að hagvöxturinn í Bandaríkj-
unum á næsta
ári yrði hinn
mesti í tvo ára-
tugi.
Nefndin,
sem er skipuð
28 virtum hag-
fræðingum,
spáði því að
fjárfestingar bandarískra fyr-
irtækja ykjust um 10% á
næsta ári og hagnaður þeirra
um 15,5%. Þetta myndi styrkja
mjög efnahaginn sem hefur
þegar tekið við sér vegna mik-
illa skattalækkana og mjög
lágra vaxta.
Nefndin sagði að flest benti
til þess að hagvöxturinn yrði
3% í ár og 4,5% á næsta ári.
Gangi spáin eftir verður þetta
mesti hagvöxtur í Bandaríkj-
unum frá 1984.
Spá mesta
hagvexti í
20 ár vestra
Washington. AFP.
ÖNNUR umræða um fjárlagafrumvarpið 2004 fer
fram á Alþingi í dag. Gert er ráð fyrir að tekjur
hækki um 2,6 milljarða króna frá frumvarpinu, en
meiri hluti fjárlaganefndar leggur til að útgjöld
hækki samtals um 2,2 milljarða króna. Þar af er
lagt til að fjárheimild menntamálaráðuneytisins
verði aukin um rúman milljarð, en í því felst meðal
annars 600 milljóna króna hækkun til reksturs
framhaldsskóla.
Samkvæmt fjárlagafrumvarpinu er gert ráð
fyrir 94,5 milljónum króna til reksturs framhalds-
skóla, en tvær skýringar eru gefnar á tillögu um
600 millj. kr. hækkun. Annars vegar er sagt að
menntamálaráðuneytið hafi endurskoðað spár um
nemendafjölda sem bendi til nokkurrar fjölgunar
frá fyrri spá. Hins vegar sé miðað við að hækka
framlag á nemanda samkvæmt reiknilíkani. Ráðu-
neytið áformi að gera samninga við skólana um
hámarksframlög og hámarksfjölda ársnemenda
sem hverjum skóla verði greitt fyrir þannig að út-
gjöld framhaldsskólanna árið 2004 verði í sam-
ræmi við fjárveitingar til þeirra í fjárlögum, en
miðað sé við að ráðuneytið skipti fjárveitingu á
milli skólanna í samræmi við samninga.
Í frumvarpinu er gert ráð fyrir 52,6 millj. kr. í
ýmsan löggæslukostnað, en gerð er tillaga um 8
millj. kr. hækkun á framlagi til vopnaleitar. Fram
kemur að í fjárlögum fyrir árið 2002 hafi verið
veitt 12 m.kr. framlag til vopnaleitar vegna milli-
landaflugs frá innanlandsflugvöllum en eftirlitið
sé afleiðing hryðjuverkanna í Bandaríkjunum og
aukinnar spennu á alþjóðavettvangi í kjölfarið.
Hækkun nú stafi af auknu eftirliti á Reykjavík-
urflugvelli en þó einkum á Akureyri vegna áætl-
unarflugs milli Akureyrar og Kaupmannahafnar.
Fjárveiting til framhaldsskóla
aukist um 600 milljónir króna
Hálfbróðir
Christensens
MEIRI hluti fjárlaganefndar leggur til að fjár-
heimild sjávarútvegsráðuneytis verði aukin um
32,4 m.kr. til að koma breytingum á varðandi
þjónustumælingar og vísindarannsóknir hjá
Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins.
Stefnt sé að því að hætta þjónustumælingum
sem séu í samkeppni við einkaaðila og hafi farið
fram í útibúunum á Ísafirði, Akureyri og í Vest-
mannaeyjum og draga mjög úr þeim í Reykjavík,
en í staðinn verði vísindarannsóknir í útibúunum
efldar. Tillaga er um að 26 m.kr. verði varið til
að efla varanleg störf við vísindarannsóknir í
útibúunum og 6,4 m.kr. til að greiða tímabund-
inn kostnað við breytingarnar.
Hætta mælingum í sam-
keppni við einkaaðila