Morgunblaðið - 25.11.2003, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 25.11.2003, Blaðsíða 38
38 ÞRIÐJUDAGUR 25. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ ATVINNU- AUGLÝSINGAR I I Lögfræðistofa Reykjavíkur er ein af stærstu lögmannsstof- um landsins en þar starfa nú átta lögmenn. Samtals starfa nú 16 manns hjá stofunni. Vegna aukinna verkefna leitar nú Lögfræðistofa Reykjavíkur að móttöku- og innheimtu- fulltrúa í fullt starf. Móttöku- og innheimtufulltrúi Starfssvið: •Vinna við almenn móttökustörf, m.a. símavarsla, skjalavinnsla o.fl. •Vinna við innheimtumál, stofnun innheimtumála, þjónusta við kröfuhafa o.fl. Menntunar- og hæfniskröfur: •Reynsla af móttökustörfum og innheimtumálum. •Þekking á IL + innheimtukerfinu. •Góð tölvukunnátta. •Traust og fáguð framkoma. •Góð færni í mannlegum samskiptum. Í boði er áhugavert framtíðarstarf hjá öflugri lögmannsstofu. Starfið hentar metnaðarfullum og dugmiklum einstaklingi. Vinsamlegast sendið umsókn til Lögfræðistofu Reykjavíkur ehf., Vegmúla 2, 4. hæð, 108 Reykjavík, merkt starfsumsókn eða á netfang steinar@icelaw.is, fyrir kl. 12.00 föstudaginn 28. nóvember nk. Nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri, Steinar Þór Guðgeirsson hdl. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Raunvísindastofnun Háskólans Framkvæmdastjóri Starf framkvæmdastjóra Raunvísinda- stofnunar Háskólans er laust til umsóknar. Framkvæmdastjórinn veitir sameiginlegri skrif- stofu stofnunarinnar forstöðu og sér um dag- legan rekstur. Hann sér um framkvæmd þeirra mála sem stjórn stofnunarinnar felur honum og sinnir öllum samskiptum við fjársýslu ríkis- ins, ráðuneyti og aðrar stofnanir, fyrirtæki og erlenda aðila varðandi málefni Raunvísinda- stofnunar. Umsækjandi skal hafa lokið háskólaprófi eða hafa jafngilda starfsreynslu. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Æskilegt er að nýr framkvæmdastjóri geti hafið störf frá og með 1. janúar 2004. Umsóknir með ítarleg- um upplýsingum um menntun og starfsferil skulu hafa borist formanni stjórnar Raunvís- indastofnunar, Dunhaga 3, 107 Reykjavík, eigi síðar en 8. desember nk. Öllum umsóknum verður svarað og umsækj- endum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Raunvísindastofnun Háskólans. Stýrimaður Stýrimann vantar í 10 daga á Eldhamar frá Grindavík sem er á netaveiðum. Einnig vantar vanan háseta (ekki afleysing). Uppl. í síma 426 8286, 854 2013, 894 2013. R A Ð A U G L Ý S I N G A R TILKYNNINGAR Deiliskipulag skóla- og íþróttasvæðis Tillaga að breytingu á deiliskipulagi skóla- og íþróttasvæðis í Bessastaðahreppi aug- lýsist hér með samkvæmt 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Breytingin nær til lóðar Álftanesskóla og lóðar íþróttamið- stöðvar. Í skipulagstillögunni er gert ráð fyrir breytingu á byggingarreitum íþróttamiðstöðvar og Álftanesskóla frá gildandi deiliskipulagi. Byggingarreitur íþróttasalar er lengdur og nýir byggingarreitir fyrir anddyri íþróttamiðstöðvar settir inn. Byggingarreitur list- og verkgreina- álmu Álftanesskóla minnkar að grunnfleti og heimild gefin fyrir fullar þrjár hæðir hússins í stað tveggja hæða og nýtanlegs rýmis ofan 2. hæðar. Nýr byggingarreitur grunndeildar skólans er settur inn og gefin er heimild til að tengja lausar kennslustofur á lóð skólans. Skipulagstillagan verður til sýnis á skrifstofu Bessastaðahrepps, Bjarnastöðum, frá kl. 8:00— 16:00 alla virka daga frá 26. nóvember 2003 til 9. janúar 2004. Þeim sem telja sig eiga hags- muna að gæta er gefinn kostur á að gera at- hugasemdir við tillöguna. Frestur til að skila inn athugasemdum rennur út 9. janúar 2004. Athugasemdum skal skilað til sveitarstjóra Bessastaðahrepps, Bjarnastöð- um. Þeir, sem ekki gera athugasemdir við til- löguna innan tilskilins frests, teljast samþykkir henni. Deiliskipulag innst við Miðskóga Tillaga að breytingu á deiliskipulagi innst við Miðskóga í Bessastaðahreppi auglýsist hér með samkvæmt 25. gr. skipulags- og bygg- ingarlaga nr. 73/1997. Breytingin nær til lóðar Tjarnarlands og fjögurra óbyggðra lóða innst við götuna. Auk þess er norðurmörkum skipu- lagssvæðisins breytt. Skipulagstillagan verður til sýnis á skrifstofu Bessastaðahrepps, Bjarnastöðum, frá kl. 8:00— 16:00 alla virka daga frá 26. nóvember 2003 til 9. janúar 2004. Þeim sem telja sig eiga hags- muna að gæta er gefinn kostur á að gera at- hugasemdir við breytingartillöguna. Frestur til að skila inn athugasemdum rennur út 9. janúar 2004. Athugasemdum skal skilað til sveitarstjóra Bessastaðahrepps, Bjarnastöðum Þeir, sem ekki gera athugasemdir við tillöguna innan tilskilins frests, teljast samþykkir henni. Sveitarstjórinn í Bessastaðahreppi. Uppboð Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins í Hafnarstræti 107, Akureyri, sem hér segir á eftirfarandi eignum: Hraunholt 2, Akureyri, þingl. eig. Stefanía Jóhannsdóttir og Bragi Steinsson, gerðarbeiðendur Íslandsbanki hf. og Landsbanki Íslands hf., föstudaginn 28. nóvember 2003 kl. 10:00. Huldugil 64, eignarhl., Akureyri, þingl. eig. Elías Hákonarson, gerðar- beiðandi Frjálsi fjárfestingarbankinn hf., föstudaginn 28. nóvember 2003 kl. 10:00. Kotárgerði 17, Akureyri, þingl. eig. Erling Ingvason og Margrét Stein- unn Thorarensen, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, föstudaginn 28. nóvember 2003 kl. 10:00. Melgerði 2, parhús, 02-0101, eignarhl., Akureyri, þingl. eig. Snorri Ragnar Bragason, gerðarbeiðendur sýslumaðurinn á Akureyri og Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda, föstudaginn 28. nóvember 2003 kl. 10:00. Skriðuland, eignarhl., Arnarneshreppi, þingl. eig. Halldóra L. Frið- riksdóttir, gerðarbeiðandi Verkval, verktaki, föstudaginn 28. nóvem- ber 2003 kl. 10:00. Sveinbjarnargerði III, eignarhl., Svalbarðsstrandarhreppi, þingl. eig. Anný Petra Larsdóttir, gerðarbeiðandi sýslumaðurinn á Akureyri föstudaginn 28. nóvember 2003 kl. 10:00. Sýslumaðurinn á Akureyri, 24. nóvember 2003. Harpa Ævarrsdóttir, ftr. UPPBOÐ Sérfræðingur í svæfingum Staða sérfræðings á sviði svæfinga og deyfinga á svæfinga- og skurðdeild Sjúkra- hússins og heilsugæslustöðvarinnar á Akran- esi er laus til umsóknar. Um er að ræða fullt starf. Staðan veitist frá 1. janúar 2004. Umsókn- um ber að skila á þar til gerðu eyðublaði, sem fæst á skrifstofu landlæknis og á heimasíðu embættisins. Mikilvægt er að staðfest afrit fylgi af starfsvottorðum, vottorðum um próf og nám, leyfisveitingum og vísindaritgerðum. Nánari upplýsingar um starfið veitir Þórir Berg- mundsson, lækningaforstjóri SHA, sími 430 6000, netfang thorir.bergmundsson@sha.is . Umsóknir sendist Guðjóni S. Brjánssyni, fram- kvæmdastjóra stofnunarinnar, Merkigerði 9, 300 Akranesi, fyrir 20. desember 2003. Sjúkrahúsið og heilsugæslustöðin á Akranesi (SHA) skiptist í sjúkra- svið og heilsugæslusvið. Á sjúkrasviði er starfrækt fjölgreinasjúkra- hús með örugga vaktþjónustu allan sólarhringinn árið um kring. Sjúkrahúsið veitir almenna og á vissum sviðum sérhæfða sjúkra- húsþjónustu á lyflækningadeild, handlækningadeild, fæðinga- og kvensjúkdómadeild, hjúkrunar- og endurhæfingadeild og á vel bún- um stoðdeildum þar sem höfuð áhersla er lögð á þjónustu við íbúa Vestur- og Suðvesturlands. Jafnframt er vaxandi árhersla lögð á þjónustu við íbúa höfuðborgarsvæðisins. Á heilsugæslusviði er veitt almenn heilsugæsluþjónusta fyrir íbúa í heilsugæsluumdæmi Akraness með forystuhlutverk varðandi almenna heilsuvernd og forvarnarstarf. SHA tekur þátt í menntun heilbrigðisstétta í samvinnu við Háskóla Íslands og aðrar menntastofnanir. Starfsmenn stofnunar- innar eru um 240 talsins. SHA er reyklaus stofnun. Sjá nánar heima- síðu www.sha.is . Útboð Landssími Íslands hf. óskar eftir tilboðum í pappír í símaskrá fyrir árið 2004. Helstu stærðir eru: Supercalendered Mechanical (SC) pappír 650 tonn Annar pappír 11 tonn Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Fjármála- sviðs Símans, Suðurlandsbraut 30, 2. hæð, frá og með fimmtudeginum 27. nóvember 2003 milli kl. 9:00 og 16:00. SÍMINN TILBOÐ / ÚTBOÐ Bóksala stúdenta er eina bóka- verslun sinnar tegundar á landinu. Meginmarkmið hennar er að útvega háskóla- stúdentum náms- efni og önnur aðföng til náms. Auk þess býður hún háskólasam- félaginu, sérfræði- bókasöfnum, framhaldsskólum og öðrum skólum á háskólastigi marg- þætta þjónustu. Bóksalan er ein af rekstrareiningum Félagsstofnunar stúdenta sem er sjálfseignastofnun með sjálfstæða fjárhagsábyrgð. Að henni standa stúdentar innan Háskóla Íslands, HÍ og menntamála- ráðuneytið. Í starfinu felst m.a. afgreiðsla og ráðgjöf til viðskiptavina. Krafist er almennrar menntunar, þekkingar og áhuga á bókum auk góðrar tungumálakunnáttu. Starfskrafturinn þarf að vera dugmikill, fróðleiksfús, reiðubúinn að kynna sér háskólasamfélagið og þarfir þess og viljugur að leggja sig fram við að þjóna kröfuhörðum viðskiptavinum. Upplýsingar eru veittar hjá Atvinnumiðstöð stúdenta í síma 5 700 888. Vinsamlegast sendið skriflega umsókn til Atvinnumið- stöðvar stúdenta, Stúdentaheimilinu v/Hringbraut, 101 R. eða tölvupóst til atvinna@fs.is, fyrir 5. desember n.k. Bóksala stúdenta óskar eftir starfskrafti í verslunina atvinna@fs.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.