Morgunblaðið - 25.11.2003, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 25.11.2003, Blaðsíða 33
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. NÓVEMBER 2003 33 isson, hljómlistarmann. Helga og Már hófu búskap við Eiríksgötu, síð- ar við Rauðalæk. Þar kom að þau festu kaup á íbúð í Stóragerði 4 og hafa búið þar síðan. Þótt Helga væri flutt til Reykja- víkur voru æskuminningar hennar tengdar Akureyri og átti hún alla tíð létt með að rifja upp minningar frá bernskuárum sínum við Eyjafjörð og sérstakt dálæti hafði hún á Vagla- skógi. Hún þekkti marga og kann- aðist við enn fleiri. Margt af því fólki flutti síðar til Reykjavíkur. Sérstök tryggðabönd batt hún við tvær af vinkonum sínum frá Akureyri, en þær eru Árnína Jónsdóttir og Helga Stefánsdóttir Mogensen. Þær hafa haldið vináttuböndum í meira en 75 ár. Traustur vinskapur þar. Seinast hittust þær í afmæli Helgu, en hún varð áttræð 11. október síðastliðinn. Þegar aðstæður leyfðu hóf Helga að nýju að vinna utan heimilis og vann til margra ára á Borgarspítal- anum og sá þar um skipan og dreif- ingu á líni spítalans og var það nokk- uð krefjandi starf. Henni féll þó vel við það og var þar í góðum fé- lagsskap. Áhugamál Helgu voru einkum tengd útivist á sumardögum. Hún hafði sérstakt dálæti á náttúruperlu eins og Þórsmörk og fór þangað ótal sinnum, og þá var farið í flestar gönguferðir og klifið á hóla, hæðir og fjöll. Helga hafði yndi af lestri bóka, einkum fagurbókmennta. Hún gat líka lesið aftur og aftur sumar frá- bærar bækur, og ég man að hún hafði miklar mætur á bókinni „Veröld sem var“ eftir Stefan Zweig, sem segir svolítið um bókasmekk hennar. Helga var í meðallagi há, ávallt grannvaxin, bein í baki og mittis- grönn. Hárið á yngri árum dökkjarpt, en síðari árin fallega grátt. Hár hennar var ætíð vel til haft og svo var einnig þau árin er hún dvaldi á Droplaugarstöðum. Helga var mér indæl mágkona, var per- sónurík, hafði jafnaðargeð og hlýtt viðmót. Ég kveð þessa mætu mágkonu mína með söknuði. Samúðarkveðjur til svila míns, Más, og barna þeirra. Blessuð sé minning hennar. Trausti Thorberg. Bara nokkur orð um góða konu sem var mér mjög kær. Þegar ég kom inn í fjölskyldu mannsins míns tók hún mér mjög vel sem endranær. Ég hafði af henni í mörg ár góð kynni og alla tíð var hún jafn gestrisin og prúð í framgöngu. Í lok sumars ár hvert, á meðan heilsa hennar leyfði, fórum við í sumarbústað minn og dvöldum þar yfir helgi ásamt manni hennar og annarri svilkonu minni. Þar áttum við margar góðar stundir. Helga mín, ég veit þú ert komin á góðan stað núna og öllu þínu stríði lokið. Unnur Jóhannesdóttir. ✝ Friðrik Þórissonfæddist í Reykjavík 23. sept- ember 1934. Hann lést á Landspítalan- um við Hringbraut mánudaginn 17. nóvember síðastlið- inn. Foreldrar hans voru Jón Þórir Tryggvason, f. 26.3. 1903, og Sigþrúður Helgadóttir, f. 12.11. 1915. Systkini Friðriks eru Nína Þórdís, f. 12.1. 1936, Ingimar Haukur, f. 6.9. 1943, Guðmundur Snorri, f. 22.2. 1948, og Tryggvi, f. 29.6. 1951. Eiginkona Friðriks er Inga Ósk Guðmundsdóttir, f. 6.5. 1948. Börn þeirra eru: Þórir Ingi, f. 18.11. 1967, maki Margrét Guð- mundsdóttir, börn Alexandra Sif og Róbert Smári. Sig- þrúður Hrönn, f. 10.1. 1970, maki Einar Már Stein- grímsson, börn Hilmar Már, Lilja Hrönn og Finnur Mauritz. Þóra Björk, f. 5.1. 1973, maki Halldór Sveinsson, börn Birkir Grétar, Karl- otta og Fríða Ósk. Friðrik Þór, f. 9.11. 1974, maki Ina Poulsen, börn Linda Rose, Camilla Björg og Elías Þór. Útför Friðriks verður gerð frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Nú ertu farinn en ég á ennþá bágt með að kyngja því enda er alltaf erfitt og sárt að horfa á eftir góðum vinum. Þetta var svo fjar- lægur möguleiki því mér fannst þú alltaf svo hress en þetta sýnir manni hvað lífið er hverfult og að maður á að njóta þess meðan það er. Ég man vel þegar ég hitti þig fyrst á heimili þínu, þá nýbúinn að kynnast yngri dóttur þinni. Ég las úr svip þínum: „Ætlar þessi maður að taka frá mér litlu stelpuna mína?“ Litla stelpan var aldrei tekin frá þér heldur bættist frekar í barna- hópinn því með tímanum fór ég að hugsa meira um þig sem föður en tengdaföður. Oft sátum við og töluðum um heima og geima og þá sérstaklega um ólæknandi sjúkdóminn sem við gengum báðir með; bíladelluna. Ég hlustaði hugfanginn á lýsingar þín- ar frá því þú varst ungur, hvernig bílarnir voru og hvernig allt í kringum það var. Það skein alveg í gegn að þú varst töffari á þeim tíma, fínn í tauinu og á góðum bíl- um. Í seinni tíð bar minna á töff- aranum þó svo að hann blundaði í þér. Það gladdi mig mikið hvað þú bauðst börnin mín strax velkomin í fjölskylduna og var eins og þau væru þín barnabörn. Jafn barn- góður og ljúfur maður er vand- fundinn en þegar maður hugsar til baka kemur upp í hugann að þú hafir samt ekki farið að lifa lífinu til fulls fyrr en eftir að þú veiktist og þurftir að hætta að vinna. Þú sem hafðir alla tíð unnið myrkr- anna á milli hafðir allt í einu mik- inn tíma aflögu og fékk fjölskyldan að njóta þess í tíu frábær ár. Á þessum tíma hefur fjölskyldan stækkað mikið og það var svo greinilegt hvað það gladdi þig að hafa mikinn tíma fyrir fjölskyld- una, þú hafðir alltaf tíma fyrir börnin, að hlusta á þau og tala við þau. Það verður skrítið að geta ekki skroppið í kaffi og spjall til þín lengur. Það er margt sem mér finnst að ég hafi átt að segja við þig og þá kannski sérstaklega hvað mér þætti vænt um þig, von- andi hefur þú fundið það. Það verður erfitt fyrir okkur öll á komandi hátíð að hafa þig ekki hjá okkur en við vitum að þú ert hjá okkur meðan við munum þig og hugsum til þín. Ég kveð þig að sinni, minn kæri vinur, og veit að þú vakir yfir okk- ur. Halldór Sveinsson. Elsku bróðir og frændi. Við mæðgur viljum þakka fyrir ást þína vináttu og umhyggju í gegnum öll árin. Guð geymi þig. Það er svo tæpt að trúa heimsins glaumi, því táradöggvar falla stundum skjótt, og vinir berast burt á tímans straumi, og blómin fölna á einni hélunótt. – Því er oss bezt að forðast raup og reiði og rjúfa hvergi tryggð né vinarkoss, en ef við sjáum sólskinsblett í heiði að setjast allir þar og gleðja oss. (Jónas Hallgrímsson.) Megi góður guð veita okkur ást- vinum þínum styrk í sorginni. Nína, Kristín og Inga Sigþrúður. FRIÐRIK ÞÓRISSON fyrir mér hávaxinn mann, teinrétt- an í baki, með ákveðinn svip, en það var ávallt stutt í glettnina. Hann var mikill útivistarmaður og náttúruunnandi, hans aðal- áhugamál var að ferðast um land- ið, með sitt eigið hús, stoppa á fal- legum stað, dvelja í kyrrð og vera kóngur í ríki sínu. Við hjónin viljum þakka honum samfylgdina, þakka fyrir öll ferða- lögin, sem við fórum í saman, úti- legurnar og ekki síst þökkum við samveruna á Laugarvatni sl. sum- ar, sem verður okkur öllum ógleymanleg. Þar sat hann gjarn- an með Nínu fyrir utan hjólhýsið þeirra, í hjólastólnum og hlustaði á söng fuglanna, þytinn í trjánum, eða horfði á fólk ganga hjá og rétti þá upp hönd í kveðjuskyni, orð voru óþörf. Ég veit hann vill þakka Nínu sinni fyrir hjálpina og umhyggjuna síðasta tímann. Við biðjum Guð að blessa hana. Nú er Friðrik umvafinn kær- leika á nýjum stað. Guð blessi minningu hans. Ásgerður Jónasdóttir. Í dag kveðjum við mág minn, Friðrik Pétursson. Við hjónin vilj- um þakka honum fyrir tryggðina og allar samverustundirnar sem við áttum saman, hér í Reykjavík á heimili hans þar sem við vorum alltaf boðin velkomin og ekkert var of gott fyrir okkur. Eins fyrir norðan á heimili okkar, þar sem hann og Nína systir dvöldu oft á sumrin hjá okkur, með vagninn sinn. Hann var sveitamaður í sér og vildi alltaf fylgjast með hvernig gengi í sveitinni. Síðasta árið var hann bundinn hjólastól, en lét það ekki aftra sér að koma í sveitina til okkar, kom meira að segja tvisvar í sumar, sem var okkur mikið gleðiefni og ég vona honum líka. Þetta eru fátækleg orð, en fyrir allt þetta viljum við þakka og biðj- um góðan Guð að blessa Nínu hans. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem.) Þín mágkona, Hulda Jónasdóttir. Nú ert þú farinn í þitt hinsta ferðalag, Frissi minn. Þú hafðir mikla unun af ferðalögum og oft á ferðum þínum með Nínu hittum við ykkur hingað og þangað um sveitir. Það var alltaf gaman að hitta þig og ekki ósjaldan tókst þú í spil við dóttur okkar. Börnin litu upp til þín og alltaf varst þú til taks fyrir þau. Þegar líða tók á og erfiðara var fyrir þig að ferðast um, eignaðist þú þinn sælureit við Laugarvatn á meðal fjölskyldumeðlima og ég veit að þar leið þér vel. Það var alltaf gott að heimsækja þig ogæt- íð var maður velkominn hvar sem þú varst. Þú munt alltaf lifa í minningu okkar. Guð veri með þér. Pétur Þór Einarsson og fjölskylda. Elsku Frissi. Óskaplega eigum við erfitt með að skilja að þú sért farinn frá okk- ur. En við vitum að englarnir passa þig voða vel fyrir okkur núna. Við viljum þakka þér fyrir allar stundirnar okkar saman og allt sem þú hefur gert fyrir okkur. Elsku Frissi, við munum aldrei gleyma þér og lofum að passa hana Nínu þína rosalega vel. Þín Arney og Eyþór. Elskulegur faðir okkar og tengdafaðir, HALLDÓR KR. STEFÁNSSON, Ystabæ 5, Reykjavík, lést þriðjudaginn 18. nóvember. Útförin fer fram frá Háteigskirkju fimmtudaginn 27. nóvember kl. 13.30. Elín Hulda Halldórsdóttir, Þorsteinn Pétur Guðjónsson, Stefán Halldórsson, Farida Sif Obaid. Hjartkær bróðir okkar og vinur, GEIR PÁLSSON málari, Heiðmörk 8, Stöðvarfirði, andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað laugardaginn 22. nóvember. Útförin verður gerð frá Stöðvarfjarðarkirkju laugardaginn 29. nóvember kl. 14.00 F.h. aðstandenda, Ester Pálsdóttir, Björn Pálsson, Hlíf B. Herbjörnsdóttir, Björn Hafþór Guðmundsson, Jóna Gunnarsdóttir. Elskuleg systir okkar, mágkona og frænka, KRISTÍN PÁLSDÓTTIR fóstra, fyrrverandi forstöðukona Vistheimilis barna, til heimilis á Ránargötu 42, Reykjavík, lést á Landspítalanum í Fossvogi sunnudaginn 23. nóvember. Steinunn Pálsdóttir, Þorkell G. Sigurbjörnsson, Svandís Ólafsdóttir, Eyþór Einarsson, Sigurður Pálsson, Jóhanna G. Möller, Guðfinna Guðmundsdóttir, systrabörn og bræðrabörn. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og lang- afi, ÓLAFUR ÞÓRÐARSON húsgagnabólstrari, Stórholti 19, Reykjavík, lést á Landspítala Fossvogi föstudaginn 21. nóvember. Útförin fer fram frá Háteigs- kirkju miðvikudaginn 3. desember kl. 13.30. Gunnar Ólafsson, Sara Hjördís Sigurðardóttir, Ástríður Ólafsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SVAVA GUÐNADÓTTIR frá Melstað, lést á hjúkrunarheimilinu Víðnesi sunnudaginn 23. nóvember. Útförin fer fram frá Lágafellskirkju þriðjudaginn 2. desember kl. 13.30. Sigurdóra Kristinsdóttir, Hrólfur Ingimundarson, Þorsteinn S. Kristinsson, Guðmundur B. Kristinsson, Kristín G. Jónsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.