Morgunblaðið - 25.11.2003, Side 10
FRÉTTIR
10 ÞRIÐJUDAGUR 25. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
AÐ meðaltali lásu 52,3% landsmanna
Morgunblaðið dag hvern í vikunni
24.–30. október. Meðallesturinn hef-
ur aukist um 2,2% frá því hann var
kannaður í ágúst sl., að því er fram
kemur í niðurstöðum nýrrar fjöl-
miðlakönnunar IMG Gallup.
Meðallestur á Fréttablaðinu á
landinu öllu er 64,8% skv. könnuninni
og hefur minnkað úr 67,7% í ágúst.
Meðallestur á DV mælist nú 19,8% en
var 22,6% í ágúst, en mælingin var
gerð áður en breytingar voru gerðar
á rekstri blaðsins.
Fram kemur í könnuninni að
72,7% lásu Morgunblaðið eitthvað í
vikunni, sem er hækkun um 3,1% frá
því í könnuninni í ágúst. Alls lásu
87,8% Fréttablaðið einhvern dag vik-
unnar og hefur lesturinn minnkað um
3% frá því í könnun IMG Gallup í
ágúst. Samtals lásu 40,5% DV eitt-
hvað í vikunni sem könnunin var
gerð, en 44,4% lásu blaðið eitthvað í
vikunni í könnuninni í ágúst.
65% horfðu eitthvað
á Sjónvarpið
Áhorf á sjónvarpsstöðvar var einn-
ig mælt, og horfðu 65,6% svarenda
eitthvað á Sjónvarpið á virkum dög-
um, en 73,8% horfðu eitthvað um
helgina. Á Stöð 2 horfðu 46,9% eitt-
hvað á virkum dögum, en 37,9% yfir
helgina. 37,8% horfðu eitthvað á Skjá
1 á virkum dögum og 36,6% um
helgina.
Áhorf á fréttir Stöðvar tvö minnk-
aði verulega, 18,9% horfðu eitthvað á
fréttirnar yfir vikuna, en áhorfið
mældist 30,7% í ágúst og lækkaði
áhorfið því um 11,8% milli kannana.
Áhorfið á fréttir Sjónvarpsins mæld-
ist 41% og stendur það því sem næst í
stað frá síðustu könnun, þegar það
mældist 41,2%.
Mbl.is langmest
sótti netmiðillinn
Mbl.is er langmest sótti netmiðill-
inn, en svarendur fjölmiðlakönnunar-
innar heimsóttu vefinn að meðaltali
3,6 sinnum í viku, sem er sami fjöldi
heimsókna og mældist í síðustu könn-
un. Heimsóknir á vefinn ruv.is voru
að meðaltali 0,3 í vikunni og fækkaði
um 0,1 frá síðustu könnun. Á vefinn
textavarp.is fóru svarendur að með-
altali 0,5 sinnum í vikunni og stendur
það í stað frá síðustu könnun.
IMG Gallup vann könnunina fyrir
samstarfshóp um fjölmiðlakannanir,
sem samanstendur af Sambandi ís-
lenskra auglýsingastofa, Samtökum
auglýsenda og helstu fjölmiðlum
landsins. Úrtakið var 1.637 Íslend-
ingar á aldrinum 12–80 ára, valdir
með tilviljunaraðferð úr þjóðskrá og
var svarhlutfall 69,9%. Könnunin var
framkvæmd þannig að þátttakendur
skráðu fjölmiðlanotkun sína í dag-
bók.
Niðurstöður nýrrar könnunar IMG Gallup á notkun fjölmiðla gerðar opinberar
!
"
"
"
"
""
!
"
!
!
!
"
""
!
"
# $%
& $%
'(
Meðallestur á
Morgunblaðinu
eykst um 2,2%
Áhorf á fréttir Stöðvar 2 mælist nú
18,9% og minnkar um tæp 12%
BJÖRN Bjarnason dómsmálaráðherra hefur staðfest
sameiningu almannavarnanefnda á höfuðborgarsvæð-
inu og starfar lögreglustjórinn í Reykjavík með nefnd-
inni að ákvörðun ráðherra. Þórólfur Árnason stjórn-
arformaður Slökkviliðs höfuðborgarsvæðsins fagnaði
þessum tímamótum í ræðu sinni á ársfundi SHS í gær
og sagði að hér eftir yrði skipulag viðbragðs við
hættuástandi allt á einni hendi af hálfu þeirra átta
sveitarfélaga sem sameinuð almannavarnanefnd starf-
ar fyrir. Með sameiningu krafta og einföldun á við-
búnaði yrði hann jafnframt gerður skilvirkari með
betri nýtingu fjármuna, að sögn borgarstjóra.
Hann sagði að enn ætti þó eftir að fá svör við áleitn-
um spurningum um almannavarnir. Forræði í slíkum
aðgerðum væri ekki hjá sveitarfélögunum sem komið
hafa sér upp búnaði og mannafla til að takast á við
verkefnin. Sveitarfélögin brygðust daglega við elds-
voðum, slysum, umhverfisóhöppum og fleiru með
rekstri SHS. En þegar kæmi að skilgreindu almanna-
varnaástandi brygði svo við að forræðið færðist til
ríkisvaldsins. Stjórnun aðgerða í almannavarna-
ástandi væri á höndum sveitarfélaga í mörgum ná-
grannalöndunum og hefði það reynst vel, sagði borg-
arstjóri.
Morgunblaðið/Júlíus
Forsvarsmenn sveitarfélaga sátu ársfund Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins, m.a. bæjarstjórarnir Lúðvík Geirsson
Hafnarfirði og Sigurður Geirdal Kópavogi í fremstu röð. Á milli þeirra er Hrólfur Jónsson slökkviliðsstjóri
Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins. Ásdís Halla Bragadóttir, bæjarstjóri Garðabæjar, er í annarri röð lengst t.h.
Almannavarnanefndir á höfuð-
borgarsvæðinu sameinaðar
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi yfirlýsing frá stjórn
Heimdallar, félags ungra sjálfstæð-
ismanna í Reykjavík:
„Stjórn Heimdallar fagnar þeirri
niðurstöðu miðstjórnar Sjálfstæðis-
flokksins að löglega hafi verið staðið
að framkvæmd aðalfundar félagsins
og meðferð nýskráninga. Með þeim
úrskurði hafnar miðstjórn
kröfum tólf félagsmanna í Heim-
dalli sem vildu fá aðalfundinn lýstan
ógildan og að boðað yrði til nýs
fundar. Miðstjórn ákvað jafnframt
að taka nýskráningarferli flokksins
til endurskoðunar með það að mark-
miði að minnka líkur á misnotkun.
Stjórn Heimdallar ákvað í síðustu
viku að allar nýskráningar sem bár-
ust félaginu skömmu fyrir aðalfund-
inn yrðu samþykktar. Þetta gerði
stjórnin m.a. til að koma til móts við
tólfmenningana og rétta fram sátt-
arhönd. Einstaklingar sem starfa í
stjórnum annarra ungliðahreyfinga
eða hafa þegar haft samband og lýst
yfir andstöðu við skráningu voru
ekki innritaðir í félagið enda hefði
slíkt verið gegn lögum Heimdallar.
Niðurstaða miðstjórnar er afger-
andi og ljóst að gífuryrði og ásak-
anir sem hafa komið fram í fjöl-
miðlum áttu ekki við rök að
styðjast. Því skorar stjórn Heim-
dallar á tólfmenningana að taka nú
þátt í flokksstarfinu ásamt öðrum
félagsmönnum enda eru mörg
spennandi og krefjandi verkefni á
döfinni.“
Fagna
niðurstöðu
miðstjórnar
Sjálfstæðis-
flokksins
Yfirlýsing frá
stjórn Heimdallar
NOKKUR dæmi hafa komið
upp hér á landi, frá árinu 2001,
þar sem staðfest hefur verið að
útlenskir dansarar á nætur-
klúbbi hafi skrifað undir óút-
fylltan ráðningarsamning sem
atvinnurekandi útfyllti síðar á
þann hátt að samningurinn
stóðst ekki ákvæði íslenskra
laga. Þetta kemur fram í skrif-
legu svari Árna Magnússonar
félagsmálaráðherra við fyrir-
spurn Jóhönnu Sigurðardóttur,
þingmanns Samfylkingarinnar.
Fram kemur að Vinnumála-
stofnun hafi í umræddum til-
vikum hafnað öllum atvinnu-
umsóknum frá næturklúbbnum
í kjölfarið.
Skv. lögum um atvinnurétt-
indi útlendinga er skilyrði þess
að tímabundið atvinnuleyfi er
veitt atvinnurekanda m.a. það
að fyrir liggi undirskrifaður
ráðningarsamningur til tiltek-
ins tíma sem tryggi starfs-
manni laun og önnur starfskjör
til jafns við heimamenn.
Í svarinu segir að einu sinni
hafi borist kvörtum um að und-
irskrift starfsmanns á ráðning-
arsamningi hafi verið fölsuð.
Segir í svarinu að það mál sé nú
til athugunar. Hefur Vinnu-
málastofnun í því sambandi
óskað eftir upplýsingum frá
Danmörku sem hún vill að liggi
fyrir áður en gripið er til frek-
ari aðgerða.
Jóhanna spyr einnig að því
hve oft á sl. tveimur árum mál-
um vegna ætlaðra brota á lög-
um um atvinnuréttindi útlend-
inga hafi verið vísað til
opinberrar rannsóknar. Í
svarinu segir að Vinnumála-
stofnun hafi í a.m.k. fimm til-
vikum vísað máli til rannsóknar
hjá lögreglu á þessum tíma.
Brotið á
starfs-
fólki næt-
urklúbbs
EFNAHAGS- og viðskiptanefnd Al-
þingis ákvað í gær að láta starfskjör
og kaupréttarsamninga stjórnenda
og starfsmanna í skráðum hlutafélög-
um til sín taka. Álfheiður Ingadóttir,
varaþingmaður Vinstrihreyfingarinn-
ar-græns framboðs, fór þess á leit við
nefndina að hún tæki sér tíma til að
fara vandlega yfir þau mál sem varða
starfskjör og kaupréttarsamninga
stjórnenda og starfsmanna í skráðum
hlutafélögum á markaði.
Farið yfir
kaupréttar-
samninga