Morgunblaðið - 25.11.2003, Síða 50
Heimildarmynd um herstöðina sýnd í Bæjarbíói
HEIMILDARMYNDIN Mið-
nesheiði, saga herstöðvar í herlausu
landi verður sýnd á vegum Kvik-
myndasafns Íslands í Bæjarbíói í
Hafnarfirði í kvöld og á laugardag-
inn. Höfundur er Sigurður Snæberg
Jónsson en um er að ræða 90 mín-
útna langa mynd frá árinu 1987.
Myndin var lengi í vinnslu þannig að
fyrstu tökur eru eldri.
Myndin fjallar um hlutverk hersins
í tengslum við varnir í Norður-
Atlantshafi og hvernig Ísland yrði
varið ef til stríðsátaka kæmi. Einnig
er fjallað um áhrifin sem vera hersins
hefur á íslenskt samfélag og þá sér-
staklega nágrannabyggðir herstöðv-
arinnar.
„Kvikmyndasafnið væntir þess að
sýning myndarinnar geti orðið for-
vitnilegt innlegg í umræðuna nú um
veru bandaríska hersins hér á landi,“
segir í tilkynningu frá safninu.
Leikstjórinn Sigurður Snæberg
tekur undir það. „Hún virðist eiga
mjög vel við núna,“ segir hann en
myndin var sýnd í Sjónvarpinu ’87 og
hefur ekki verið sýnd síðan. „Þetta er
kjörið tækifæri til að sjá hana. Mynd-
in hefur elst mjög vel finnst mér, þó
ég segi sjálfur frá. Umræðan í þjóð-
félaginu í dag er mjög áþekk um-
ræðunni í myndinni,“ segir hann.
„Ástæðan til að ég fór út í þetta var
sú að ég var við nám og störf í Banda-
ríkjunum og kynntist því hvað þeir
eru strangir hvað varðar innflytj-
endur,“ rifjar hann upp. „Svo eru þeir
með hermenn heima hjá mér en eru
með stæla við mig út af tittlingaskít.“
Sigurður Snæberg ítrekar að hann
hafi ekki verið virkur herstöðvarand-
stæðingur og segir að myndin snúist
ekki um að senda herinn burt, heldur
vekja umræður um hlutverk hans.
„Markmiðið með myndinni var að
skoða þetta mál og ýta undir umræð-
ur. Það sem kemur vel fram í mynd-
inni er atvinnuástandið. Þarna eru
menn að segja fyrir 16, 17, 18 árum
síðan að helsta vandamálið á Suð-
urnesjum sé að atvinnuppbygging
þar hafi setið á hakanum vegna her-
stöðvarinnar. Og núna standa málin
þannig að það er búið að segja upp
hundrað manns á Keflavíkurflugvelli
og menn hafa miklar áhyggjur af því
vegna þess að það er enga aðra vinnu
að hafa.“
Hlutverk og áhrif
Morgunblaðið/Þorkell
Hermenn frá Varnarliðinu í þyrlu á sveimi yfir Reykjanesskaga.
Miðnesheiði, saga herstöðvar í
herlausu landi, verður sýnd í
Kvikmyndasafni Íslands í Bæj-
arbíói í Hafnarfirði í dag kl. 20 og
á laugardaginn kl. 16. Miðasala
opnuð hálftíma fyrir sýningu og
miðaverð er 500 kr.
50 ÞRIÐJUDAGUR 25. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
HUGSAÐU STÓRTMiðasala opnar kl. 15.30
3D
gleraugu
fylgja hverjum
miða
Það sem þú veist um ótta kemst
ekki nálægt þessu.
Sýnd kl. 8 og 10.10. B.i. 16
kl. 5.40, 8 og 10.10. B.i. 16 ára
Stranglega bönnuð innan 16 ára!
Kvikmyndir.com
Skonrokk FM909
ÞÞ FBL
HJ MBL
HK DV
Kl. 4, 6, 8 og 10. B.i. 10.
Sýnd kl. 4 og 6. Með íslensku tali.
Kl. 8 og 10.30. B.i. 16.
Sýnd kl. 4 og 6.
Medallían er annað öflugasta
vopn í heimi. Hann er það
öflugasta! Frábær mynd stútfull
af gríni og spennu!
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. B.i. 10.
Beint átoppinn í
USA!
Will Ferrell
Kvikmyndir.com
Hann hélt alltaf að hann væri bara venjulegur álfur,
þangað til annað kom í ljós. Nú er hann á leiðinni í
stórborgina að finna pabba sinn.
Will
Ferrell
Kvikmyndir.com
Stranglega bönnuð innan 16 ára!
Beint átoppinn í
USA!
Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 16.
Það sem þú veist um ótta kemst
ekki nálægt þessu.
Sýnd kl. 6. Með ísl. tali.
Frábær skemmtun fyrir alla
fjölskylduna
Sýnd kl. 8. B.i. 10.Sýnd kl. 10.Sýnd kl. 6.
HINN alræmdi dómari úr Americ-
an Idol, Simon Cowell, heldur því
fram að meinlegar athugasemdir
hans séu til þess fallnar að byggja
upp, en ekki að brjóta niður þá
keppendur sem koma fram í þætt-
inum.
Cowell liggur ekki á skoðunum
sínum varðandi tónlistargeirann og
American Idol í hinni hreinskilnu
bók I Don’t Mean to Be Rude, But
..., sem mun koma út 2. desember
nk. í Bandaríkjunum. Hann segist
vera ánægður með bókina og stend-
ur við allt sem þar kemur fram.
„Það sem ég geri í þáttunum er
að miðla af reynslu minni. Ég hef
lært meira af fólki sem segir mér
sannleikann í stað þess að hlaða
mig lofi sem ég á ekki skilið. Ég sé
því ekkert því til fyrirstöðu að gera
það sama í mínu starfi og þegar ég
dæmi keppendur.“ Bókin skiptist í
þrjá hluta:
„Ævisaga Cowells“, þar sem seg-
ir frá fjölskyldu hans og leið hans
til frægðar og frama; „Slúður úr
American Idol“; og loks gefur hann
upprennandi stjörnum góð ráð.
„Vondi“ Idol-dómarinn
Segist
byggja upp
en ekki
brjóta niður
Simon Cowell segist ekki vera
vondur í eðli sínu.
NOISE er tiltölulega
ung rokksveit, leidd af
tvíburunum Stefáni
og Einari Vilberg sem
báðir eru á nítjánda
ári. Sveitin var stofn-
uð í ársbyrjun 2001 en
fyrst vakti hún eft-
irtekt þegar hún tók
þátt í Músíktilraunum
það árið. Komst hún
þá í úrslit. Allar götur
síðan hefur sveitin
reglulega haldið tón-
leika hér og þar á höf-
uðborgarsvæðinu. Nú
er komin út fyrsta
plata sveitarinnar og
nefnist hún Pretty
Ugly.
Stefán, sem er
bassaleikari sveit-
arinnar, segir að sjálfar upptök-
urnar fyrir plötuna hafi ekki tekið
langan tíma en eftirvinnsla og það að
koma gripnum út hafi tafist vegna
fjárskorts.
„Framleiðslukostnaður er svo
mikill,“ segir Stefán. „Platan er eig-
inlega búin að vera tilbúin í átta
mánuði.“
Það vekur athygli að Ragnar Sól-
berg sér að mestu um trommuleik á
plötunni. Ragnar er aðalsprautan í
Sign, þar sem hann leikur á gítar og
syngur.
„Við höfðum heyrt að hann væri
góður trommari. Ég prófaði að
hringja í hann og þetta virkaði mjög
vel. Hann er þrusutrommari,“ segir
Stefán.
Platan var tekin upp í hljóðveri
Rafns Jónssonar sem jafnframt gef-
ur plötuna út undir merkjum R&R
Music.
Á bandarískan safndisk
„Við sáum um alla hönnun á plöt-
unni sjálfir en filmuvinna og fram-
leiðsla hljóp á hundruðum þúsunda,“
segir Stefán. „En þetta er það sem
við viljum gera. Við erum að vinna
að draumnum.“
Nafn Noise hefur verið áberandi
undanfarið í tónleikahaldi. Stefán
segir þá engu að síður hafa tekið sér
hálfs árs hlé í fyrra vegna manna-
breytinga. Nú er gamli trommarinn,
Hálfdán Helgi Harðarson, hins veg-
ar genginn til liðs við sveitina á nýj-
an leik.
Faðir Stefáns og Einars er Einar
Vilberg, tónlistarmaður. Stefán seg-
ir þá staðreynd hafa hjálpað þeim
frekar en hitt.
„Hann styður okkur með ráðum
og dáð og hvetur okkur áfram.“
Tónlist Noise er óneitanlega undir
sterkum áhrifum frá bandaríska
gruggrokkinu.
„Við byrjuðum í þessu öllu saman
útaf Nirvana,“ útskýrir Stefán. „Við
erum miklir gruggarar og hlustum
mest á þannig tónlist. Mér finnst
tónlistin okkar í dag þó vera aðeins
þyngri og tilraunakenndari en í blá-
byrjun. Við vorum pínulitlir þegar
við fórum að hlusta á Nirvana þann-
ig að það hlýtur að hafa áhrif.“
Pretty Ugly verður fylgt eftir
næstu mánuði með tónleikum. Lagið
„Freeloader“ er þá að koma út á
safndiski í Bandaríkjunum sem
verður dreift til yfir 150 útvarps-
stöðva þar í landi.
Noise kynnir Pretty Ugly á Gauknum
Það er hart að vera rokkari
Noise heldur útgáfutónleika á Gauknum í kvöld.
Útgáfutónleikar vegna Pretty
Ugly eru í kvöld á Gauk á Stöng
og hefjast kl. 22.00. Lokbrá hit-
ar upp. Aðgangur er ókeypis og
diskurinn verður til sölu á sér-
stöku tilboðsverði.
arnart@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert