Morgunblaðið - 25.11.2003, Qupperneq 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 25. NÓVEMBER 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
ÍSLENSKA útgáfufyrirtækið Sonet hefur
fengið endurútgáfuréttinn á lögum með
einum frægasta drengjasópran heims, Ro-
bertino, sem kom hingað til lands árið
1961 og hélt tónleika í Austurbæjarbíói, þá
þrettán ára gamall. Lög með Robertino
frá æskuárum hans hafa ekki verið fáan-
leg á geisladiski áður.
Drengurinn
með gullröddina
Sonet fær/4
HÓPUR frá Starfsgreinasam-
bandi Íslands (SGS) fer á fund
Samtaka atvinnulífsins í dag þar
sem formleg kröfugerð fyrir næstu
kjarasamninga verður lögð fram.
Gengið var frá kröfugerðinni á fjöl-
mennum formannafundi aðildar-
félaganna fyrir helgi. Mun SGS
vera lengst komið í sinni kjara-
vinnu, samkvæmt upplýsingum frá
ASÍ, enda renna samningar sam-
bandsins út um næstu áramót.
Halldór Björnsson, formaður
SGS, vill ekki upplýsa um innihald
kröfugerðarinnar að öðru leyti en
því að mesta áherslan væri lögð á
hugmyndir að breyttu launakerfi.
Fram hefði komið að Starfsgreina-
sambandið legði áherslu á hækkun
lægstu launataxta, tryggingar-
ákvæði samninga og áhugi væri
fyrir kjarasamningum til lengri
tíma til að tryggja stöðugleikann.
Ef atvinnurekendur vildu styttri
samning væri SGS reiðubúið til
viðræðna um gildistíma í 20 til 24
mánuði.
Flóabandalagið svonefnda legg-
ur sína kröfugerð fram fljótlega, að
sögn Sigurðar Bessasonar, for-
manns Eflingar – stéttarfélags,
sem á aðild að bandalaginu ásamt
Verkalýðs- og sjómannafélagi
Keflavíkur og Hlíf í Hafnarfirði.
Samningar Flóabandalagsins
renna út um áramótin en þó að
samninganefndir starfi aðskildar
fer ákveðið samstarf fram við
Starfsgreinasambandið, t.d. í
samningum gagnvart ríkinu.
Kjarakröfur lagðar fram
JÓN H. Snorrason yfirmaður efnahagsbrota-
deildar ríkislögreglustjóra hefur staðfest að
kæra Kaupþings Búnaðarbanka á hendur fyrr-
verandi starfsmanni bankans sé til rannsóknar
hjá efnahagsbrotadeildinni. Hann segir rann-
sóknina langt komna en nokkrar vikur eru frá því
málið var tekið fyrir. Ekki fást nánari upplýs-
ingar um gang rannsóknarinnar, þ.e. um yfir-
heyrslur og haldlagningar á þeim gögnum sem
starfsmaðurinn fyrrverandi er kærður fyrir að
hafa tekið með sér úr bankanum.
Kæruefnið varðar m.a. rétt á hugverkum og
getur varðað við íslenska löggjöf um höfundar-
rétt. Hjá efnahagsbrotadeildinni liggur þó ekki
fyrir hvort rannsóknin muni leiða til opinberrar
málshöfðunar með útgáfu ákæru. Jón segir ekki
ljóst hvenær vænta megi niðurstöðu í þeim efn-
um.
Sólon R. Sigurðsson forstjóri Kaupþings Bún-
aðarbanka segir fyrirtækið standa fast á kærunni
og að megintilgangurinn með henni hafi verið sá
að hindra að gögnin sem starfsmaðurinn er
kærður fyrir að taka, er hann sagði sjálfur upp
starfi sínu, bærust í hendur keppinautarins.
„Viðkomandi starfsmaður tilkynnti við upp-
sögnina í haust, að hann hefði ráðið sig til Lands-
bankans,“ segir Sólon. „Um svipað leyti urðum
við vör við að hann hafði sent í heimatölvu sína
mikilvæg gögn úr vinnutölvu sinni og um það bil
viku síðar lögðum við fram kæruna. Um er að
ræða Excel-skjal sem þróað hefur verið innan
bankans og nýtist við útreikninga á því hvernig
vaxtabreytingar geta haft áhrif á rekstur bank-
ans. Það eina sem við höfðum áhuga á í þessu
sambandi var að hindra að þessi gögn kæmust í
hendur keppinautar okkar,“ segir hann.
Vildu hindra að gögnin
kæmust til keppinautar
SEGJA má að veðurfarssaga landsins end-
urspeglist í þessum ísihlaðna klettavegg á
Snæfellsjökli. Ísinn er veðurbarinn og ber þess
merki að veður geta orðið válynd á þessum
slóðum, enda inngangurinn að miðju jarðar
nærri ef trúa má rithöfundinum Jules Verne.
Morgunblaðið/RAX
Skuggamyndir við innganginn að miðju jarðar
INGVAR Ásmundsson FIDE-meist-
ari vann sinn sjötta sigur í röð á
Heimsmeistaramóti öldunga í skák,
þegar hann sigraði
lettneska stór-
meistarann Janis
Klovans, stiga-
hæsta keppanda
mótsins, í 6. umferð
sem fram fór í Bad
Zwischenahn í
Þýskalandi í gær.
Ingvar er einn
efstur með fullt
hús, 6 vinninga af
sex mögulegum, en hann er 22. stiga-
hæsti keppandi mótsins. Í 2. til 5. sæti
með 5,5 vinninga eru Hans Karl frá
Sviss, Genrikh Chepukaitis frá Rúss-
landi, Peter Rahlls frá Þýskalandi og
Yuri Shabanov frá Rússlandi.
Í dag mætir Ingvar rússneska al-
þjóðlega meistaranum Yuri Shabanov.
Ingvar einn í
efsta sætinu
Ingvar
Ásmundsson
MIKIL árekstrahrina gekk yfir umferðina í
Reykjavík í gær og flest óhappanna voru
rakin til talsverðrar hálku sem segja má að
sé fyrsta alvarlega hálkan á götum borg-
arinnar það sem af er vetri. Alls urðu 26
árekstrar, sem er langt yfir dagsmeðaltal-
inu en það er 11 árekstrar. Að sögn lögregl-
unnar urðu þó engin alvarleg meiðsli á fólki
í þessum óhöppum en nokkuð var um
skemmdir á bifreiðum.
Árekstrahrina
í hálkunni
LÖGREGLAN á Keflavíkurflugvelli
stöðvaði tvo drengi, 16 og 17 ára
gamla, frá Sri Lanka á laugardaginn
er þeir komu með flugi til landsins frá
Ósló. Þeir komu til landsins á fölsuðum
vegabréfum og vilja fá pólitískt hæli
hérlendis.
Að sögn Jóhanns R. Benediktsson-
ar, sýslumanns á Keflavíkurflugvelli,
er um mjög sérstakt mál að ræða.
Hann sagði það þekkt í öðrum löndum
að senda börn sem pólitíska flótta-
menn milli landa. „Erfiðara er að neita
börnum um hæli en fullorðnum þar
sem þau njóta meiri verndar.“ Dreng-
irnir eru í umsjá Rauða kross Íslands.
Tveir dreng-
ir óska hælis
Í TILKYNNINGU frá Landsbankanum segir að
hinn kærði starfi ekki og hafi ekki starfað í
bankanum. Að sögn Atla Atlasonar, starfs-
mannastjóra bankans, var hætt við að ráða
manninn eftir að kæran var lögð fram. „Það er
ekki rétt sem komið hefur fram í fjölmiðlum að
umræddur fyrrum starfsmaður Kaupþings-
Búnaðarbanka hafi komið til starfa hjá Lands-
bankanum. Umræddur aðili starfar ekki og hef-
ur ekki starfað í Landsbankanum. Um tíma
kom til greina að svo yrði, en ekki varð af ráðn-
ingu,“ segir í tilkynningunni. Atli segir umrædd
gögn ekki í vörslu eða notkun bankans, þau hafi
aldrei komið inn fyrir dyr bankans.
Starfar ekki hjá
Landsbankanum