Morgunblaðið - 30.11.2003, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 30.11.2003, Blaðsíða 2
FRÉTTIR 2 SUNNUDAGUR 30. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ FLEIRI SYKURSJÚK BÖRN Gríðarleg aukning hefur orðið á tilfellum sykursýki barna hér á landi sem og í löndunum í kringum okkur. Hættan á að barn greinist með sýk- ursýki hefur tvöfaldast séu borin saman börn fædd 1995–2000 og börn fædd árið 1980. Engin ástæða hefur fundist fyrir þessari aukningu. Jarðgöng frá Akureyri Jón Þ. Heiðarsson hagfræðingur segir raunhæfan kost að gera tvenn jarðgöng frá Akureyri og austur um yfir í Fnjóskadal og að Stórutjarnar- skóla. Það myndi stytta vegalengd- ina um 22 kílómetra. Þetta myndi þó kosta skattgreiðendur milljarði meira en núverandi útfærsla af Vaðlaheiðargöngum. Stoðir kaupa í Högum Fjárfestingarfélagið Stoðir hefur aukið hlut sinn í Högum, sem áður hét Baugur Ísland. Eiga Stoðir nú 27% í félaginu. Stoðir starfa á fast- eignamarkaði og segja forsvarsmenn félagsins þetta ekki stefnubreytingu. Thule-málið til Strass- borgar Inútíar frá Thule á Grænlandi ætla að kæra danska ríkið fyrir Mannrétt- indadómstól Evrópu eftir að hæsti- réttur Danmerkur komst að þeirri niðurstöðu að danska ríkinu bæri ekki að greiða bætur til inúíta sem reknir voru frá heimahögum sínum 1953 þegar stækka þurfti bandaríska herstöð. Sunnudagur 30. nóvember 2003 atvinnatilboðútboðfundirtilsölutilleigutilkynningarkennslahúsnæðiþjónustauppboð mbl.is/atvinna Gestir í vikunni 9.422  Innlit 17.167  Flettingar 71.384  Heimild: Samræmd vefmæling Heilbrigðisstofnun Austurlands Staða læknis á Egilsstöðum Frá 01.01.2004 (eða eftir nánara samkomulagi) er staða læknis við Heilbrigðisstofnun Austur- lands á Egilsstöðum laus til umsóknar. Stofn- unin samanstendur af, heilsugæslustöð og sjúkradeild og heilsugæsluseli á Borgarfirði. Heilsugæslan og sjúkradeildin eru í sömu byggingu. Við stofnunina eru 4 stöðugildi lækna og sinna þeir í sameiningu báðum deild- um. Þjónustusvæðið, Egilsstaðalæknishérað, er víðáttumikið og dreifbýlt. Fjórðungssjúkra- húsið í Neskaupsstað er í um einnar klukku- stundar akstursfjarlægð og þar eru skurðlækn- ir, lyflæknir og svæfingalæknir. Við leitum eftir sérfræðingi í heimilislækning- um, lyflækningum, öldrunarlækningum, eða öðrum sérgreinum. Umsóknarfrestur er til 15. desember nk. Frekari upplýsingar veita Pétur Heimisson, yfirlæknir og Anna Dóra Helgadótt- ir, rekstrarstjóri í síma 471 1400. Umsóknir skulu sendar til Heilbrigðisstofnun Austurlands Egilsstöðum, Lagarási 17, 700 Egilsstöðum. Héraðið og Egilsstaðir. Í læknishéraðinu voru 1. des. 2002 rúmlega 3000 manns, þar af ca 1700 á Egilsstöðum. Veruleg íbúafjölgun er í læknishéraðinu í tengslum við nýhafnar virkjunar- og stóriðju- framkvæmdir. Auk þeirrar stöðu sem nú er auglýst er tímabundið setin 5. staða læknis á vegum stofnunarinnar við Kárhnjúkavirkjun. Á Egilsstöðum er leikskóli (bygging annars slíks að hefjast), deilda- skiptur grunnskóli, menntaskóli og háskólasetur er nýtekið til starfa. Aðstaða til íþróttaiðkunar er góð, einn fullkomnasti frjálsíþróttavöllur landsins, íþróttahús og sundlaugar, níu holu golfvöllur og stutt í skíðasvæði. Hestamennska er vaxandi og metnaðarfull uppbygging nýs svæðis fyrir þá íþrótt er hafin. Tónlistar- og menningarlíf er öflugt og t.d. er hægt að ljúka 8. stigi söngnáms við tónskólann á Egilsstöðum. Á Egilsstöðum er nýtt hótel sem verið er að stækka, mörg öflug verslunar- og þjónustufyrirtæk i og fer þeim fjölgandi. Fullkominn flugvöllur og 3-5 flugferðir til Reykjavíkur alla daga. Auk þess er sl. tvö sumur vikulegt flug beint til Evrópu og 20 mínútna akstur er á Seyðisfjörð um borð í ferjuna Norrænu sem á sumrin siglir milli Norðurlanda og Seyðisfjarðar. Vegasamgöngur í héraðinu og til nágrannabyggða á fjörðum eru mjög góðar, enda lega Egils- staða frábær, í miðju veganeti Austurlands. Ferðamennska er mikil, bæði á sumri og vetri enda býður svæðið uppá ótal möguleika til útivistar og ferðalaga. Vanur sölumaður fasteigna óskast. Verður að hafa reynslu í að verðmeta íbúðir á höfðuborgarsvæðinu. Þarf að geta hafið störf ekki seinna en 1. jan. 2004. Greidd föst mánaðarlaun. Umsóknir sendist til auglýs- ingadeildar Mbl. eða á box@ mbl.is merktar: „V — 14609“, fyrir 10. des. Lyfjastofnun Lyfjafræðingur í skráningardeild Lyfjastofnun óskar eftir lyfjafræðingi til starfa í skráningardeild frá og með 1. febrúar n.k. Helstu verkefni:  Veiting markaðsleyfa fyrir lyf ásamt umfjöl- lun og afgreiðslu á breytingum á forsendum markaðsleyfa. Starfið felur m.a. í sér umfjöl- lun um lyfjafræðilegar og klínískar breyting- ar á lyfjum  Önnur verkefni í samráði við yfirmann Menntunar- og hæfniskröfur:  Háskólapróf í lyfjafræði  Góð íslenskukunnátta  Tölvukunnátta  Öguð og sjálfstæð vinnubrögð  Góðir samskiptahæfileikar  Góð enskukunnátta nauðsynleg og annað/ önnur Evrópumál æskileg Í boði er fjölbreytt og krefjandi starf. Launakjör samkvæmt samningum Lyfjafræð- ingafélags Íslands. Upplýsingar um starfið gefa Guðrún Baldursd- óttir deildarstjóri skráningardeildar eða Þorbjörg Kjartansdóttir skrifstofustjóri, sími 520 2100. Umsókn um starfið óskast send, ásamt upplýs- ingum um fyrri störf og meðmælum til Lyfja- stofnunar merkt: Starfsumsókn. Umsóknarfrestur er til og með 10. desember n.k. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Hjúkrunarfræðingur Rannsóknir Cutis ehf. (www.cutis.is) er fyrirtæki sem starfar að rannsóknum á húðsjúkdómum. Við óskum eftir að ráða hjúkrunarfræðing til starfa við rannsóknir. Starfið felst í að vinna með húðsjúkdómalæknum, við að fylgja eftir sjúk- lingum sem taka þátt í vísindarannsóknum. Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi góða þekkingu á ensku, hafi reynslu af því að vinna við tölvur og eigi auðvelt með að starfa sjálfstætt. Umsóknum, þar sem koma fram upplýsingar um nám og fyrri störf má skila á tölvupósti á póstfangið cutis@hudlaeknastodin.is, eða bréflega á Húðlæknastöðina, Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, merkt Cutis ehf. Húsabakkaskóli Svarfaðardal Laust starf til umsóknar Fullt starf skólaliða er laust til umsóknar við Húsabakkaskóla í Svarfaðardal. Starf skólaliða skiptist annars vegar í aðstoð í mötuneyti skól- ans og hins vegar í ræstingarhúsnæði skólans og í Sundskála Svarfdæla. Leitað er að einstaklingi sem getur umgengist börn og ungmenni af umburðarlyndi og já- kvæðni. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Launa- nefndar sveitarfélga og Einingar Iðju. Viðkomandi þarf að geta hafið störf 5. janúar 2004. Umsóknarfrestur er til 10. desember. Allar nánari upplýsingar gefur skólastjóri, vs. 466 1551, hs. 466 3264, netfang ingileif@dalvik.is. MUNUR á reglulegum laun- um milli kynja er mestur meðal stjórnenda og tækna og sér- menntaðs starfsfólks en minnstur meðal verkamanna og iðnaðarmanna. Hjá verkafólki og iðnaðarmönnum virðist munur á heildarlaunum skýrast að hluta til vegna meiri vinnu karla, en það sama er ekki hægt að segja um stjórnendur, enda vinna kvenstjórnendur að með- altali lengri vinnuviku en karl- stjórnendur. Þetta kemur fram í nýrri könnun Kjararannsókn- arnefndar á launaþróun á þriðja ársfjórðungi. Samkvæmt könnuninni er minnstur kynjamunur á laun- um iðnaðarmanna en hlutfall reglulegra launa kvenna af launum karla er þar um 88%. Hlutfall reglulegra launa verka- kvenna af launum verkamanna er á svipuðum nótum, um 83%. Hins vegar er hlutfall reglu- legra launa kvenna meðal tækna og sérmenntaðs starfs- fólks um 64% af launum karla og meðal stjórnenda er hlutfall- ið 67%. Laun afgreiðslufólks hækka mest Einnig kemur fram að laun hafa alls hækkað um 5,5% að meðaltali á landsvísu. Laun kvenna hafa hækkað um 6,4% á síðustu tólf mánuðum á meðan laun karla hækkuðu um 4,5%. Laun þjónustu-, sölu- og af- greiðslufólks hækkuðu mest á tímabilinu, um 7,4% en laun iðn- aðarmanna hækkuðu minnst, um 3,9%. Kjararannsóknarnefnd fjallar einnig um þróun launa innan starfsstétta undanfarin ár. Á síðu nefndarinnar, www.kjara.is, er launaþróunin rakin, en frá fyrsta ársfjórðungi 1998 til þriðja ársfjórðungs 2003 hafa regluleg laun hækkað að meðaltali um 47,5%. Mesta hækkun reglulegra launa var hjá afgreiðslufólki, 51,5%, en minnsta hjá sérfræðingum, 39,1%. Á sama tímabili hækk- uðu heildarlaun að meðaltali um 40,6%. Mesta hækkun heildar- launa var hjá tæknum, 45,3%, en minnsta hjá iðnaðarmönnum 34,2%. Vinnutími styttist að meðaltali um 3,5%.                                                                       !  " #$% &    $                    Launamunur kynja mikill hjá stjórnendum Launakönnun Kjararannsóknanefndar Minnstur launamunur meðal iðnaðarmanna og verkafólks SUMIR vilja meina að launa- munur kynjanna sé hluti af leif- um feðraveldis og með ungum og ferskum viðskiptamönnum komi nýr tími þar sem konur og karlar fá sömu laun fyrir sömu störf. Már Örlygsson listamaður og hugbúnaðarhönnuður segir þó aðra sögu. „Mér misbauð al- gjörlega um daginn að heyra að í stóru leikverki sem var sýnt í allt sumar voru kvenleikararnir og dansararnir allar á mun, mun lægri launum en karlleik- ararnir og dansararnir sem svitnuðu og púluðu með þeim á sviðinu í nákvæmlega eins hlut- verkum. Mér fannst það töff þegar konan mín og vinkona hennar höfnuðu ítrekuðum beiðnum um að taka að sér stöður búninga- og sviðsmyndahönnuða verksins í vor af því framleiðendurnir harðneituðu að borga þeim eðli- leg lágmarkslaun.“ Nokkrum dögum síðar var ungur karlhönnuður ráðinn í hluta starfsins á hærra kaupi en þær höfðu beðið um, og tvær óreyndar stúlkur á mjög lágum launum ráðnar til að sjá um af- ganginn. „Mér sárnaði að heyra af þessum dæmum um launa- misrétti kynjanna á meðal ungs fólks sem ég þekkti – og að mismununin virtist vera mark- viss viðskiptaákvörðun ungra athafnamanna af minni kyn- slóð. Algjör tímaskekkja.“ Fortíðarvandi? Sunnudagur 30.11.03 Þórunn Maggý: miðill á milli heims hins lifandi fólks og þeirra sem komnir eru yfir landamærin LESIÐ Í BLÓÐ RANNSÓKNIR ÍSLENSKRA SÉRFRÆÐINGA Í SAKAMÁLUM Yf ir l i t Í dag Sigmund 8 Myndasögur 48 Af listum 30 Bréf 48/49 Listir 30/36 Dagbók 50/51 Af listum 28 Krossgáta 52 Forystugrein 3 Auðlesið efni 53 Reykjavíkurbréf 32 Leikhús 54 Skoðun 36/38 Fólk 54/61 Þjónusta 37 Bíó 58/61 Hugvekja 42 Sjónvarp 62 Minningar 43/44 Veður 63 * * * Kynningar – Blaðinu í dag fylgir blað- iðið Heilsuhagur sérblað um heilsu- hagfræði og heilbrigðismál frá PharmaNor. Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, fréttastjóri guna@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Listir Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport- @mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Fólk í fréttum Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Jólin 2003 MIKIL verðbólga virðist hlaupin í veiðileyfamarkaðinn og er hún tals- vert meiri en almenn verðlagsþróun í þjóðfélaginu. Þetta kemur fram í nýútkominni verðskrá Stangaveiði- félags Reykjavíkur, sem er ævin- lega fyrst verðskráa til að koma út og gefur gjarnan vísbendingar um það sem koma skal. Sem dæmi um mestu hækkanir má nefna Hítará á Snæfellsnesi, en hæsta verð fyrir stangardaginn í henni á nýliðnu sumri var 41.000 krónur, en fer nú í 54.900 næsta sumar, auk þess sem verðtímabil upp á 50.900, 47.900 og 44.900 er þar að finna. Annað dæmi er Skógá sem fer úr 11.500 í 21.900 og svæði 1 og 2 í Stóru-Laxá fara úr 17.900 í 25.900. Nær öll laxveiðisvæði SVFR hækka meira og minna og flest sil- ungasvæðin að auki. Í einhverjum tilvika er þó boðið upp á sama verð og sl. sumar. Miklar hækkanir á stang- veiðileyfum næsta sumar Morgunblaðið/Sigurður Sigmunds Veiðileyfin verða æ dýrari með hverju árinu.  Gríðarleg/45 Morgunblaðið/Árni Sæberg Allt gert klárt í Náttúrufræðihúsinu Unnið var að því hörðum höndum í gærmorgun að gera allt klárt í Nátt- úrufræðihúsi Háskóla Íslands í Vatnsmýrinni áður en Páll Skúlason 1996. Kennsla hefst í Náttúrufræði- húsinu eftir áramót, en formleg vígsla þess fer ekki fram fyrr en 27. febrúar næstkomandi. rektor lagði hornstein að húsinu við hátíðlega athöfn. Langþráðum áfanga var þar með náð, en húsið hefur verið í byggingu frá ársbyrjun HÖSKULDUR Ásgeirsson, fram- kvæmdastjóri Flugstöðvar Leifs Ei- ríkssonar, fagnar niðurstöðu Héraðs- dóms Reykjavíkur frá því á fimmtudag. Þar voru flugstöðin og Samkeppnisráð sýknuð af kröfum Ís- lensks markaðar hf. um að ógilda úr- skurð áfrýjunarnefndar samkeppnis- mála frá sl. vori vegna forvals á rekstraraðilum í flugstöðinni. Dómur- inn telur sérlög um stöðina ganga framar samkeppnislögum. Íslenskur markaður hefur ekki tekið ákvörðun um að áfrýja dómnum til Hæstarétt- ar. Höskuldur segir niðurstöðuna staðfesta rétt félagsins til að útdeila vöruflokkum og verslunarhúsnæði út frá sínum forsendum. Tilgangurinn með forvalinu hafi verið að auka þjón- ustu við farþegana og tryggja meiri fjölbreytni í vöruúrvali. Áfram verði forvalsaðferðinni beitt. Höskuldur segir að fljótlega verði hugmyndir lagðar fram hjá Sam- keppnisstofnun um aðskilnað rekstr- arþátta fasteigna- og verslunarsviðs flugstöðvarinnar. Eftir samráð við Samkeppnisstofnun hafi sú vinna ver- ið í biðstöðu vegna dómsmálsins sem Íslenskur markaður höfðaði. Logi Úlfarsson, framkvæmdastjóri Íslensks markaðar, segir niðurstöð- una vera vonbrigði. Stjórn fyrirtæk- isins muni fjalla um dóminn eftir helgi og taka afstöðu til áfrýjunar. Fagnar niður- stöðu héraðsdóms um Leifsstöð VALTÝR Sigurðsson, héraðsdómari og formaður stjórnar Persónuvernd- ar, segir stjórn Persónuverndar ekki enn hafa fjallað um nýgenginn dóm Hæstaréttar Íslands þar sem viður- kenndur var réttur konu til að banna að upplýsingar úr sjúkraskrá látins föður hennar væru settar inn í gagnagrunn á heilbrigðissviði. Stjórnin muni fjalla um dóminn á næstunni, að sögn Valtýs. „Við skoðum hvað heilbrigðisráðu- neytið aðhefst í þessu, hvort það sér einhverjar ástæður til þess að end- urskoða rekstrarleyfi handa Ís- lenskri erfðagreiningu. Við vinnum okkar vinnu áfram þar til við fáum um það önnur fyrirmæli,“ segir hann. Valtýr segir dóm Hæstaréttar staðfesta að vinna við dulkóðun per- sónuupplýsinga sem settar verða í gagnagrunninn sé í lagi. „Þeir gefa það í skyn að það skorti lagaskýringu á því hvað eigi að dul- kóða og hvað eigi að setja í grunn- inn,“ segir Valtýr. Hann kveðst vísa því alfarið á bug sem fram hafi komið af hálfu for- svarsmanns Íslenskrar erfðagrein- ingar að Persónuvernd haldi gagna- grunnsmálinu í gíslingu. Valtýr segir að margoft hafi verið óskað eft- ir upplýsingum um ákveðin atriði frá ÍE vegna málsins og sagðist telja að um málið stæði enginn ágreiningur. Valtýr Sigurðsson um dóm Hæstaréttar Staðfestir að dulkóð- un sé í lagi SPÁÐ er norðaustanátt, víða 10–15 m/s, en hægari inn til landsins á Suðvesturlandi í dag. Skýjað með köflum og stöku él af og til. Norðan 8–13 og bjartviðri á morgun. Frost 0 til 6 stig. Norðan og norðaustanátt, víða 8–15 m/s, en hægari norð- austanlands. Él norðanlands, snjókoma eða slydda með köfl- um suðaustan- og austanlands, en úrkomulítið á Suðvestur- landi. Él á Norður- og Austur- landi í dag, en bjartviðri eða léttskýjað að mestu á Suður- og Vesturlandi. Frost á bilinu 0 til 6 stig, en sums staðar kaldara í innsveitum og hiti í dag í kring- um frostmark sunnanlands. Frost um allt land
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.