Morgunblaðið - 30.11.2003, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. NÓVEMBER 2003 51
DAGBÓK
Hverafold 1-3 • Torgið Grafarvogi
Sími 577 4949
Opnunartími: Frá kl. 11-18 mánud.-föstud. og frá kl. 12-16 laugard.
Ársskeið, jólaskeið og
jólasveinaskeið
Fallega íslenska silfrið • Landsins mesta úrval
Gull- og silfursmiðjan Erna
Skipholti 3
Sími 552 0775 – síðan 1924 - www.erna.is
Ólafur Gunnlaugsson
sérfræðingur í lyflækningum og meltingarsjúkdómum
flytur hinn 1. desember nk. stofu sína í
Læknasetrið, Þönglabakka 1, 109 Reykjavík.
Tímapantanir alla virka daga í síma 535 7700
Fundarefni er fjárlög og velferðarmál
Framsögu hafa Einar Oddur Kristjánsson
alþingismaður, varaformaður fjárlaganefndar Alþingis
og Guðlaugur Þór Þórðarson alþingismaður,
varaformaður félagsmálanefndar.
Fundarstjóri verður Salome Þorkelsdóttir
fyrrverandi forseti Alþingis.
Aðventuhugvekju flytur sr. Hjálmar Jónsson,
dómkirkjuprestur.
Allir velkomnir!
Fjárlög og velferðarmál
Félagsfundur verður í Samtökum
eldri sjálfstæðismanna, SES, í Valhöll
fimmtudaginn 4. desember kl. 17.00
Einar Oddur
Guðlaugur Þór
Salome
Sr. Hjálmar
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
BOGMAÐUR
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert varkár og vel gefin/n.
Þú ferð oft hægt af stað en
setur síðan kraft í hlutina
þegar þú ert komin/n í gang.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Heilsa þín og aðstæður á
vinnustað munu batna á næst-
unni. Þú verður að trúa því að
þetta geti gerst.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú þarft að gera ferðaáætlnir
fyrir komandi ár. Þú hefur
einstakt tækifæri til að leyfa
sköpunargáfu þinni að njóta
sín. Samkvæmislífið og ást-
arlífið ættu einnig að ganga
vel.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Ef þú ert að huga að fast-
eignakaupum ættirðu að drífa
í því á næstu sex mánuðum.
Samningar ættu að verða þér í
hag.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú hefur einstakt tækifæri til
að bæta samskipti þín við
systkini þín á næstu mán-
uðum. Minntu þig á að meta
þá sem þú ert í daglegum
samskiptum við.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Hafðu augun opin fyrir tæki-
færum til að auka tekjur þín-
ar. Hinn heppni júpiter hefur
áhrif á þennan hluta stjörnu-
korts þíns næstu tíu mán-
uðina.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Komandi ár verður besta árið
þitt á næsta áratug. Það þýðir
ekki að það verði fullkomið
heldur að þú róir með
straumnum og með vindinn í
bakið.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú sérð greinilega hvað geng-
ur upp í lífi þínu og hvað ekki.
Gefðu það sem ekki gengur
upp á bátinn.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Undanfarna mánuði hefur
verið einhver spenna í sam-
skiptum þínum við maka þinn
og börn. Þú getur huggað þig
við það að þessu tímabili muni
ljúka eftir u.þ.b. mánuð.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Júpiter er á hádegi í stjörnu-
kortinu þínu og því ætti þér að
ganga vel í vinnunni. Þú gætir
líka hitt áhrifamikið fólk.
Nýttu þau tækifæri sem þú
færð.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Það er mikið að gera hjá þér.
Þú kemur miklu í verk og
nærð auk þess að hitta systk-
ini þín og ættingja. Þetta er
ekki rétti dagurinn til að sitja
heima og lesa.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú ættir að huga að skuldum
þínum og reikningum.
Reyndu að gera þér grein fyr-
ir því hvað þú skuldar mikið.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Tunglið er í merkinu þínu og
það veitir þér svolítið forskot
á önnur merki. Notaðu tæki-
færið á meðan það varir.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
STÚLKULÝSING
Líneik leit ég sjónar glæðum,
logn var mjöllu stráð,
gullreik gekk af hjarnar hæðum
glitri sólar fáð,
eins veik yfir græna láð
sem fagurfley í vindi
flytja seglin gljáð.
Bjarni Thorarensen
LJÓÐABROT
ÁRNAÐ HEILLA
80 ÁRA afmæli. Ámorgun, mánudag-
inn 1. desember, er átt-
ræður Leifur Eiríksson,
matreiðslumeistari frá
Felli, Akurgerði 1, Reykja-
vík. Hann verður að heim-
an.
NORÐMAÐURINN
Glenn Grötheim fær mörg
prik fyrir hugdirfsku, en
slík prik eru oft létt í vasa
við spilaborðið. Þar er
barist um önnur prik –
impa-prikin. Og þau lentu
öll hjá Ítölum:
Norður
♠ G9742
♥ 109763
♦ 7
♣Á3
Grötheim var með spilin
að ofan í undanúrslita-
leiknum við Ítali í Monte
Carlo. Austur var gjafari
og AV á hættu:
Vestur Norður Austur Suður
Fantoni Grötheim Nunes Aa
-- -- 1 grand Pass
3 spaðar * Pass 3 grönd Pass
Pass 4 lauf !? Dobl Pass
Pass Redobl Pass 4 hjörtu
Pass Pass Dobl Allir pass
Stökk Fantonis í þrjá
spaða sýnir lágliti og
lengri spaða en hjarta.
Nunes valdi þrjú grönd
og þegar sú sögn kom til
Grötheims ákvað hann í
ljósi stöðunnar að reyna
fórn í annan hálitinn.
Hann byrjaði á fjórum
laufum og redoblaði svo á
eftir til að knýja makker
til að velja á milli hálit-
anna.
Þessi djarfa áætlun
hefði getað gengið upp, en
heppnin var ekki með
Grötheim í þetta sinn:
Norður
♠ G9742
♥ 109763
♦ 7
♣Á3
Vestur Austur
♠ D65 ♠ ÁK103
♥ G ♥ ÁD42
♦ ÁDG5 ♦ 104
♣KDG76 ♣952
Suður
♠ 8
♥ K85
♦ K98632
♣1084
Það varð hlutskipti
Terje Aa að spila fjögur
hjörtu dobluð úr suð-
ursætinu.
Fantoni kom út með
hjartagosann og Aa fékk
fyrsta slaginn á kónginn.
Hann spilaði spaða, en
austur tók þann slag á
tíuna og lagði niður ÁD í
hjarta.
Góð vörn og þegar slát-
urtíðinni lauk gátu AV
skráð 1400 í sinn dálk fyr-
ir að taka spilið sex niður.
Á hinu borðinu spiluðu
AV þrjú grönd og unnu
sex: 690. Sem þýddi að
Ítalir fengu 12 „prik“ fyrir
spilið.
BRIDS
Guðmundur
Páll Arnarson
1. e4 e6 2. d4 d5 3. e5 c5 4.
c3 Rc6 5. Rf3 Bd7 6. a3 c4 7.
g3 Ra5 8. Rbd2 Bc6 9. Bh3
Dd7 10. 0-0 Ba4 11. De2 0-
0-0 12. Re1 Kb8 13. f4 g6 14.
Rdf3 Rb3 15. Hb1 h5 16.
Be3 Rh6 17. Rg5 Ra5 18.
Ref3 Rc6 19. Bf2 Re7 20.
Bg2 Rc8 21. h3 De8 22. Hfc1
Rb6 23. Rd2 Rf5 24. Df3
Hc8 25. Rf1 Be7 26. Rh2
Bb3 27. De2 Bd8 28. Hf1
Hc7 29. Rhf3 Da4 30. Hbc1
Db5 31. g4 Rg7 32. Bg3 De8
33. Hf2 Ka8 34. Rd2 Da4 35.
Rgf3 a5 36. Rxb3
Dxb3 37. Rd2 Da4
38. Hff1 Be7 39. Hb1
Dc6 40. Hf2 a4 41.
Rf1 Hcc8 42. Re3
hxg4 43. hxg4 Hcg8
44. Bf3 Hh3 45. Rf1
Hgh8 46. Hh2 Hxh2
47. Bxh2 De8 48.
Re3 Dg8 49. Bg2
Ka7 50. Df3 Dh7 51.
Bg3 Dg8 52. Kf2 Ka6
53. Hg1 De8 54. He1
Db5 55. He2 De8 56.
Bf1 Ka7 57. Kg1 Dg8
58. Hg2 De8 59. Be2
Hh3 60. Rf1 Dh8 61.
Hh2 Ra8 62. Hxh3 Dxh3 63.
Re3 Rc7 64. Bf1 Dh7 65.
Bg2 b5 66. Bf2 f5 67. exf6
Bxf6 68. Bg3 Kb6
Staðan kom upp í áskor-
endaflokki Mjólk-
urskákmótsins sem lauk
fyrir skömmu á Hótel Sel-
fossi. Regína Pokorna
(2.429) hafði hvítt gegn Jóni
Árna Halldórssyni (2.200).
69. f5! með þessu gegn-
umbroti opnast skálínur fyr-
ir biskupa hvíts og riðar
staða svarts til falls skömmu
eftir það. 69. …gxf5 70. Df4
Rge8 71. gxf5 exf5 72. Bxd5
Dd7 73. Bg2 Rg7? 74.
Dxc7+ Dxc7 75. Rd5+ og
svartur gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
Í PISTLI 2. nóv. var rætt
um so. að deyja og önnur
sagnorð, sem höfð eru um
viðskilnað af þessum
heimi. Þó er ekki unnt að
nota öll þeirra sem sam-
heiti, þar sem viðskilnaður
verður á ýmsa vegu. Í lok
pistilsins spurði ég lesend-
ur, hvort þeir deildu með
mér þeirri skoðun, að so.
að deyja væri e.t.v. ofnot-
að og ætti raunar alls ekki
við í ákveðnum sambönd-
um. Gaf ég því upp bæði
símanúmer mitt og tölvu-
fang, og það bar árangur.
Þakka ég þær undirtektir.
Eins og lesendur hafa tek-
ið eftir, er pistill þessi í
mjög þröngum skorðum í
blaðinu. Verður því að
stikla á stærstu atriðum,
sem berast. Svarendur
höfðu sömu tilfinningu og
ég, eins og ég gat búizt
við. Nöfnum þeirra verð
ég að sleppa, en rek efn-
islega það, sem fram kom.
Afleysingamaður á frétta-
stofu RÚV fyrir nokkrum
áratugum segist vera mér
sammála um ofnotkun so.
að deyja og segir svo: „Á
tímabili heyrðist ekki önn-
ur sögn en að látast, hvort
sem menn gáfu upp önd-
ina voveiflega eða af eðli-
legum ástæðum og það
átti bæði við um Frétta-
stofu útvarps og sjón-
varps. Þáverandi frétta-
stjóri hafði ríka tilfinningu
fyrir blæbrigðum málsins.
Þá var m.a. talað um að
látast eða bíða bana í slys-
um á landi, en farast í sjó-
slysum eða drukkna.“
Annar bréfritari tekur
fram, að hann sé ekki
„sáttur við fréttamenn út-
varps“, þegar talað er um,
að menn hafi látizt í bar-
daga eða sprengingu. „Í
mínum huga,“ segir hann,
„hafa menn alltaf fallið í
orrustum eða beðið bana.“
Ýmislegt fleira kom fram í
svörum lesenda, sem bíð-
ur næsta pistils. Síma-
númer mitt 557 4977 og
tölvufang er jaj@simnet.-
is – J.A.J.
ORÐABÓKIN
Falla – bíða bana
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 24. ágúst sl. þau Julie
Kerr og Haki Þór Ant-
onsson. Þau voru gefin sam-
an af séra Bowden frá Bel-
fast í St. Salvator’s Chapel,
Univeristy of St. Andrews.
Heimili þeirra er í Cam-
bridge, Bretlandi.