Morgunblaðið - 30.11.2003, Side 19
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. NÓVEMBER 2003 19
SAMÞYKKT var einróma ályktun á
fundi háskólaráðs 27. nóvember sl.,
þar sem fjárframlag til Háskólans í
fjárlagafrumvarpi 2004 var til um-
ræðu og fjármál og starfsemi Há-
skólans almennt.
„Háskólaráð beinir þeim ein-
dregnu tilmælum til stjórnvalda að
fjárframlag til Háskóla Íslands
verði hækkað í samræmi við þá
fjölgun nemenda sem ljóst er að
verða mun á árinu 2004.
Jafnframt beinir háskólaráð þeim
eindregnu tilmælum til stjórnvalda
að ekki verði dregið úr framlögum
til rannsókna við Háskólann eins og
gert er í fjárlagafrumvarpinu með
niðurfellingu viðbótarframlags skv.
rannsókna-samningi. Ennfremur
fer háskólaráð fram á að nemenda-
framlög verði leiðrétt vegna launa-
hækkana undanfarinna ára sem
ekki hafa verið bættar,“ segir í
ályktuninni.
Háskólaráð Háskóla Íslands
Fjárframlag til HÍ
verði hækkað SLÖKKVILIÐ Vopnafjarðar var
kvatt að veiðihúsi við Selá á fimmtu-
dagsmorgun. Enginn eldur var laus,
heldur var um að ræða bilun í bruna-
varnakerfi hússins. Kerfið er tengt
við Securitas og létu þeir neyðarlínu
vita. Hvammsgerði, en svo heitir
veiðihúsið, er u.þ.b. 10 km norðan við
kauptúnið og ekki er þorandi annað
en að senda allt slökkviliðið á vett-
vang þegar boð koma um eld frá
kerfinu. Þetta er í annað sinn á árinu
sem kerfið sendir boð um eld og í
bæði skiptin var um bilun að ræða.
Tilkynnt
um eld í
veiðihúsi
Vopnafjörður. Morgunblaðið
ARNAR Pálsson hefur varið
doktorsritgerð við erfðafræðideild
fylkisháskólans í Norður-Karólínu
(North Carolina
State Univers-
ity). Titill ritgerð-
ar er ,,Molecular
quantitative
genetics of wing
shape in Drosop-
hila melanog-
aster.“
Kortlagning
erfðaþátta með
lítil eða veik áhrif á svipgerð er sér-
stök áskorun fyrir nútíma erfða-
fræði. Nákvæm einangrun á slíkum
kirnabreytingum sýnir hvaða erfða-
breytileiki er til staðar fyrir nátt-
úrulegt val, sem mótar þróun teg-
undanna. Frá sjónarmiði
hagnýtingar mun kortlagning þess-
ara erfðaþátta varpa ljósi á m.a. eðli
flókinna sjúkdóma með því að skil-
greina breytileika í lífsameindum
sem auka líkur á ákveðnum kvillum.
Í verkefninu var lögun vængja
ávaxtaflugunnar Drosophila notuð
sem líkan fyrir kortlagningu gena
með lítil áhrif. Tvær mismunandi til-
raunir bentu til áhrifa ákveðinna
hluta erfðamengisins á lögun vængj-
anna. Í kjölfarið var gerð fín-
kortlagning á einum litningahluta,
sem leiddi í ljós breytingu í stýrilröð
Egfr gensins (epidermal growth fac-
tor receptor), sem stýrir myndun
viðtaka fyrir vaxtarþætti. Áhrif
breytingarinnar var sú sama í
tveimur stofnum flugunnar frá
Norður Ameríku og einum stofni frá
Afríku.
Helsta niðurstaða verkefnisins er
að kortlagning erfðaþátta með lítil
áhrif er gerleg, en niðurstöðurnar
eru einnig áminning um að hluti
erfðabreytileikans í náttúrulegum
stofnum (manna jafnt sem dýra)
verður alltaf utan seilingar, vegna
smæðar áhrifa, breytileika-
umhverfis og óvissulögmálsins.
Arnar Pálsson lauk B.S. prófi frá
líffræðiskor raunvísindadeildar Há-
skóla Íslands. Hann innritaðist í
meistaranám við skorina og lauk MS
prófi árið 1998. Titill MS ritgerðar
hans er ,,Markvissarstökkbreyt-
ingar í lígasageni hjá Thermus
scotoductus“.
Arnar starfar nú við University of
Chicago í rannsóknahópi prófessors
Martin Kreitman við rannsóknir á
áhrifum breytileika í stýrilröðum
gena á svipfar.
Arnar er kvæntur Sólveigu Hall-
dórsdóttur líffræðingi og eiga þau
einn son.
Varði dokt-
orsritgerð í
erfðafræði
VIÐSKIPTASTOFA SPRON spáir
því að vísitala neysluverðs hækki um
0,1% á milli mánaðanna nóvember og
desember. Gangi spáin eftir er 12
mánaða verðbólga því 2,5% og hækk-
ar frá fyrri mánuði, en þá mældist 12
mánaða verðbólga 2,4% og verð-
bólga án húsnæðis 1,1%. Verðbólgan
er því í takt við verðbólgumarkmið
Seðlabankans gangi spáin eftir.
Í verðbólguspá SPRON er gert
ráð fyrir að breytingar á gjaldskrá
Landssímans, sem voru tilkynntar
þann 20. nóvember sl., komi til með
að hafa mest áhrif á hækkun vísitöl-
unnar. Samkvæmt útreikningum
Landssímans kemur meðalsím-
areikningur heimila til með að
hækka um 1,6%. Áhrif verðbreyting-
anna á vísitölu neysluverðs hafa ver-
ið metin og nema þau 0,05% sé miðað
við meðalsímareikning. Jafnframt er
gert ráð fyrir að verð á matvöru
komi til með að hækka lítillega á
milli mánaða.
Spáir 0,1%
hækkun
á vísitölu
neysluverðs
♦ ♦ ♦