Morgunblaðið - 07.12.2003, Side 18
18 SUNNUDAGUR 7. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Páll VI. var páfi kaþólskra í Vatíkaninu 1967. Hann tók upp á því að gefa út tilskipan til hinna rétttrúuðu um það, að þeim
bæri ekki lengur skylda til þess að borða fisk á föstudögum, en það höfðu þeir orðið að gera í árhundruð. Þetta var feiki-
legt reiðarslag fyrir fisksala heimsins, því fiskát á föstudögum í hinum vestræna heimi var megin uppistaða í sölu á sjáv-
armeti. Við landar, sem unnum við fisksölu í Bandaríkjunum, sáum fram á bága tíma, því þótt kaþólskir væru ekki
meirihluti íbúanna í landinu, hafði það tíðkast, að fiskur var svo til eingöngu á boðstólum á veitingastöðum og í mötu-
neytum á föstudögum. Þegar frá leið kom svo reyndar í ljós, að þessi tilskipan páfans varð til góðs á endanum, því
nú urðu fiskframleiðendur að sannfæra neytendur um það, að fiskur væri góður til átu, en
ekki bara fæða, sem menn yrðu að pína í sig, trúarinnar vegna, á einum degi vik-
unnar. En skiljanlega gátum við, felmtri slegnir fisksalar, ekki séð inn í
framtíðina, og vorum því örvæntingarfullir og framlágir í langan
tíma. Því skal bætt hér við, að Páll VI. gekkst fyrstur allra páfa
undir uppskurð.
Mig dreymdi mikið, þegarég var unglingur. Umtíma hélt ég, að égmyndi verða draum-
spakur á fullorðinsárum eins og
margir fornmenn, en því miður brást
það. Mig dreymir reyndar oft nú á
dögum, en það er jafnan einhver bölv-
uð vitleysan, sem lítið er mark á tak-
andi. En stundum getur hún verið
skemmtileg, eins og til dæmis í fyrri-
nótt …
Ég var í Páfagarði að heimsækja
húsráðanda. Einn af hirðmönnum
hans vísaði leiðina, eftir löngum göng-
um, upp flísalagða stiga og loks að
stórri eikarhurð. Inn gekk ég í frekar
lítið herbergi, hlýlegt og notalegt.
Bækur þöktu stærsta vegginn, mynd-
ir og málverk héngu hér og hvar, og í
einu horninu stóð sjónvarp. Í einum af
þremur, stórum leðurklæddum hæg-
indastólum sat afslappaður sjálfur
páfinn og var að horfa á „Dýrlinginn“
með Roger Moore. Hann bandaði
mér að koma inn og setjast, því þátt-
urinn var að verða búinn og skömmu
seinna slökkti hann á sjónvarpinu.
„Hvernig hefir
herra páfinn það eftir
uppskurðinn?“ Ég
varpaði fram spurn-
ingu um leið og ég sett-
ist niður.
„Takk fyrir bærilegt.
Það var auðvitað niður-
lægjandi fyrir mig að
þurfa að láta krukka í
minn skrokk fyrstur
allra páfa, en það er
kannske ekki við
öðru að búast á þessum
síðustu og verstu tímum.
Það virðist ekkert heilagt nú á
dögum og allt getur komið fyrir.
Nunnur vilja stytta pils sín, prestar
vilja giftast og kaþólsk hjón vilja frek-
ar treysta pillunni en handleiðslu
skaparans í tímgunarmálum. Við
hverju getur maður búist?“
„Ég verð nú að segja, herra páfi, að
okkur Íslendingum fannst þér auka
frekar á ringulreiðina með því að
leyfa hinum fjölmörgu sóknarbörnum
yðar um alla heimskringluna sleppa
við fiskátið á föstudögum. Bæði hefir
það orðið til þess, að þeim finnst ef til
vill, að þau geti sloppið við fleiri kvað-
ir kirkjunnar, og svo líka hitt, að þetta
hefir skaðað efnahagslíf Íslands.
Þetta var erfitt ár hjá okkur fyrir,
þótt þessi ósköp bættust ekki ofan á.
Nígeríumenn hafa til dæmis verið svo
uppteknir að berja hver á öðrum, að
þeir hafa ekki mátt vera að því að éta
skreið. Fiskimjölsmarkaðurinn hefir
verið afar lélegur og halda sumir Ís-
lendingar, að kaþólskir bændur hafi
hætt að blanda mjölinu í fóðrið fyrir
kýr sínar síðan þér gáfuð út bannið.
Margt annað slæmt hefir gerst og
hefir allt þetta orðið til þess, að við
höfum neyðst til að lækka gengið á
krónunni okkar um 30%.“
„Ég er nú svo aldeilis hissa að
heyra þetta,“ sagði páfi, um leið og
hann stóð upp og fór að ganga um
gólf, flyksandi pilsinu sínu. „Ekki
gerði ég mér grein fyrir því, að þetta
gæti haft svona alvarlegar afleiðing-
ar. Ég var búinn að segja það við
Giuseppi, fisksalann okkar, að ég
myndi afnema föstudagsfiskátið, ef
hann gæti ekki útvegað okkur betri
fisk í matinn hér í Vatíkaninu. Ég hefi
ekki sterkan maga og var bókstaflega
hættur að þola að éta þetta óæti, sem
var á boðstólum á hverjum föstudegi.
Þess vegna lét ég til skarar skríða og
er þetta allt annað líf síðan. Nú fæ ég
oftast kjötsúpu á föstudögum.“
„Mynduð þér ekki vera tilleiðanleg-
ur, herra páfi, að endurskoða afstöðu
yðar með tilliti til föstudagsfiská-
tsins? Ég veit, að Íslendingar myndu
verða yður ævinlega þakklátir.“
Þessu stundi ég upp í hálfgerðum
bænartón.
„Fyrst verð ég að athuga, hvort
Giuseppi hefir nokkuð aukið fiskúr-
valið hjá sér. Svo væri líka gaman að
vita, hve þakklátir Íslendingar
myndu verða. Þetta er reyndar lítið
útibú, sem ég hefi á Íslandi, og hefi ég
ekki orðið var við, að margir nýir
sauðir hafi bæst í flokk okkar þar.
Skilst mér, að aðal gagnið, sem lands-
menn hafa af myndarlegu kirkjunni
okkar í höfuðstaðnum sé það, að
klukkur hennar láta þá vita, hvenær
þeim beri að loka sölubúðum sínum.“
„Það er ómögulegt að vita, nema
Íslendingar gætu orðið yður að ein-
hverju gagni, herra páfi. Ég hefi lesið
í fréttum, að Vatíkanið hafi í hyggju
að sækja um inngöngu í Sameinuðu
þjóðirnar. Þar gætum við verið innan
handar, því við höfum þar mikil áhrif,
síðan við gáfum samtökunum fundar-
hamarinn. Við höfum í vaxandi mæli
verið að beita okkur á alþjóðavett-
vangi. Ekki fyrir allt of löngu knésett-
um við brezka heimsveldið í fiskveiði-
deilunni. Nýlega höfðum við forgöngu
um að víta herforingjastjórnina í
Grikklandi, og var það gert með fullri
vitneskju um það, að við myndum
Bókarkafli Trúmál, sögulegir hlutir, heimsmálin, svipmyndir af samferðafólki, stjórnmál og æskuminningar. Allt hefur þetta orðið
Þóri S. Gröndal að umfjöllunarefni í greinum hans undanfarna áratugi. Hér segir af kynlegum samskiptum Þóris og sjálfs páfans.
Teflt við páfann
Við þekkjum orðið stóran hópfastra viðskiptavina versl-unarinnar eftir áralöng við-
skipti. Stundum koma viðskiptavinir
okkar hingað inn og muna ekki hvaða
tegund af glösum eða öðrum vörum
úr versluninni barnið þeirra eða ein-
hver annar nákominn í fjölskyldunni
eða vinahópnum er að safna. Þá er
gaman að geta nefnt tegundina án
þess að þurfa að gá í tölvuna,“ segir
Margrét Rögnvaldsdóttir, annar eig-
andi gjafavöruverslunar Hjartar
Nielsen. Verslunin flutti í nýtt versl-
unarhúsnæði í verslunarmiðstöðinni
Smáralind stuttu eftir 50 ára afmæli
sitt 5. nóvember sl.
„Smekklegar vörur“
Gjafavöruverslun Hjartar Nielsen
er ein af elstu gjafavöruverslunum á
Íslandi. „Hjörtur Nielsen stofnaði
verslunina í Templarasundi 3 5. nóv-
ember árið 1953. Verslunin hafði á
boðstólum hvers kyns kristalsvörur,
s.s. vasa, skálar, krúsir, könnur og
glös. Kristallinn var allur handskor-
inn frá Tékkóslóvakíu rétt eins og
kristallinn í versluninni er enn þann
dag í dag,“ segir Margrét og rifjar
upp að í Morgunblaðsgrein um versl-
unina á opnunardeginum væri tekið
fram að þar væru á boðstólum
„smekklegar vörur“.
„Óhætt er að segja að vöruúrvalið
hafi borið þess órækt vitni að Hjörtur
Nielsen var mikill fagurkeri. Hann
lagði sjálfur mikið upp úr því að góð-
um mat þyrfti að fylgja vandaður
borðbúnaður. Ég býst við að margir
eldri Reykvíkingar muni eftir þess-
um fágaða kaupmanni í verslun sinni
í hjarta Reykjavíkur.“
Margrét segir til marks um
smekkvísi Hjartar að margar af
upphaflegu vörutegundum versl-
unarinnar séu enn á boðstólum í
versluninni 50 árum seinna þótt úr-
valið hafi að sjálfsögðu aukist. „Ég
get nefnt að glösin í Möttu rósinni
eru ennþá söluhæstu glösin í versl-
uninni enda sérstök tilfinning að
drekka úr munnblásnu og hand-
skornu kristalsglasi. Tékkneska
hvíta stellið með gylltu röndinni er
enn í fullu gildi og áfram mætti telja.
Við verðum oft vör við að ungt fólk
kemur hingað eftir að hafa erft hluti
úr búðinni og vill bæta fleiri hlutum
af sömu tegund í safnið. Eins og
margir þekkja myndast alveg sér-
stök stemmning þegar sparistellið
og -glösin eru tekin fram við hátíðleg
tækifæri.“
Silfurskreytingar í tísku
Margrét tekur fram að þrátt fyrir
áherslu á klassískar vörur verði
vöruúrval í versluninni óneitanlega
fyrir áhrifum af tísku í hönnun og
húsbúnaði hverju sinni. „Oft verður
sjálf frumsmíðin ekki fyrir áhrifum
frá tískunni. Á hinn bóginn er stund-
um hægt að greina áhrif frá tísku-
straumum í skreytingum og ýmsum
smáatriðum í hönnuninni. Ég get
nefnt að silfur hefur verið að taka við
af gyllingum síðustu árin. Gull-
skreytingar standa þó auðvitað alltaf
fyrir sínu,“ segir hún og tekur fram
að dæmi séu um að þrjár kynslóðir í
sömu fjölskyldunni safni sama stell-
inu úr versluninni. „Hér áður fyrr
byrjaði fólk ekkert endilega að safna
sparistelli á fyrstu búskaparárunum.
Núna velja pör sér oft stell fyrir
brúðkaupið, láta brúðargjafalista
liggja frammi í einhverri gjafa-
vöruverslun fyrir brúðkaupið og
jafnvel lengur fyrir önnur tækifæri.
Við erum heldur ekki óvön því að
fletta upp í listunum fyrir pörin sjálf
því stundum muna þau ekki ná-
kvæmlega hvað þau eiga þegar þau
koma inn í búðina til að bæta við
safnið. Annars held ég að meg-
inástæðan fyrir þessum aukna
áhuga felist í tíðarandanum. Fólk
býður orðið gestum til sín í mat
miklu oftar heldur en áður og þá er
auðvitað nauðsynlegt að eiga fal-
legan borðbúnað.“ Margrét segir að
opin/hálfopin eldhús og uppþvotta-
vélar hafi valdið aukinni áherslu á
búsáhöld á síðustu árum. „Opnu og
hálfopnu eldhúsin valda því að bús-
áhöldin hafa orðið meira áberandi á
heimilum síðari árin. Nýir tísku-
straumar í eldhúsinnréttingum
valda því að oft eru búsáhöldin fyrir
allra augum í opnum hillum, gler-
skápum eða hangandi á vegg eða
lofti,“ segir Margrét og tekur fram
að hönnuðir hafi komið til móts við
þessa þróun með því að leggja meira
upp úr útliti búsáhaldanna heldur en
áður. „En útlitið er ekki allt,“ bætir
Margrét við kímin á svipinn. „Vax-
andi notkun uppþvottavéla veldur
því að tryggja verður að búsáhöld og
Glösin í Möttu rósinni enn vinsælust
Margt upphaflegu vörutegundanna er enn á boð-
stólum en verslunin hefur flutt inn tékkneska hvíta
stellið með gylltu röndinni í hálfa öld.
Nýjasta stellið hjá Hirti Nielsen er breskt postulín
frá Wedgwood. Við stellið standa munnblásin og
handskorin tékknesk kristalsglös – Matta rósin.
Stálhnífapörin eru frá Wedgwood.
Gjafavöruverslun Hjartar
Nielsen fagnar hálfrar aldar
afmæli um þessar mundir.
Anna Gunnhildur Ólafs-
dóttir kynnti sér söguna
sem að baki liggur.
Morgunblaðið/Sverrir
Hlín Kristinsdóttir og Margrét Rögnvaldsdóttir eigendur gjafavöruverslunar Hjartar Nielsen, einnar elstu
gjafavöruverslunar á landinu, í nýju versluninni sem er til húsa í Smáralind.