Morgunblaðið - 07.12.2003, Síða 30
30 SUNNUDAGUR 7. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Landsnámsjörðin Reykjavík varð síð-
ar miðstöð stjórnsýslu í landinu. Hér
er gripið niður í frásögn Péturs H.
Ármannssonar af ráðherrabústaðn-
um og húsunum við Tjörnina.
Flutningur framkvæmdavaldsfrá Kaupmannahöfn tilReykjavíkur með skipun„heimastjórnar“ árið 1904
markaði þáttaskil í þróun Reykjavík-
ur sem höfuðstaðar landsins. Um
sama leyti varð vakning í hinum
tæknilega þætti mannvirkjagerðar
þegar fagmenn með sérfræðimennt-
un tóku að starfa hér á landi. Íslands-
banki hf. var stofnaður þetta sama ár
sem varð til að auðvelda uppbyggingu
atvinnulífs og fjármögnun fram-
kvæmda. Ný stétt iðnaðarmanna var
áberandi á flestum sviðum samfélags-
ins.
Áhrif þessarar sögulegu vakningar
sjást hvergi betur en í byggðinni um-
hverfis Reykjavíkurtjörn sem tók á
sig mynd á fyrsta áratug aldarinnar.
Embætti landshöfðingja var lagt nið-
ur snemma árs 1904 og bústað hans
við Lækjartorg breytt í stjórnarskrif-
stofur fyrir nýskipaðan ráðherra
landsins. Hinir nýju embættismenn
heimastjórnarinnar voru flestir bú-
settir utan Reykjavíkur og urðu því
að koma yfir sig þaki í höfuðstaðnum,
þar sem mikill hörgull var á húsnæði
og fáar byggingarlóðir á lausu.
Í hópi þeirra sem fluttust í bæinn
norðan úr landi voru bræðurnir Páll
og Eggert Briem. Þriðji bróðirinn,
Sigurður póstmeistari í Reykjavík,
þurfti um líkt leyti að rýma íbúð sem
hann hafði í pósthúsinu því síminn
þurfti hennar með. Í vandræðum sín-
um hugkvæmdist þeim bræðrum að
festa kaup á túnbrekkunni vestan við
Reykjavíkurtjörn og reisa þar íbúðar-
hús. Gerðu þeir kaupsamning við eig-
anda túnsins ásamt Birni Ólafssyni
augnlækni. Fljótlega bættist Klem-
ens Jónsson, nýskipaður landritari, í
hópinn. Hann kom frá Akureyri líkt
og Páll Briem sem búið hafði undir
brekkunni í Innbænum þar sem poll-
urinn blasti við. Sagt er að hugmynd
þeirra um húsaröðina undir tjarnar-
brekkunni sé þaðan fengin. Áform
þeirra félaga vöktu deilur í bæjar-
stjórn en þau þóttu brjóta í bága við
áður samþykkta tillögu um lagningu
skemmtistígs umhverfis Tjörnina.
Var þeim gert að leggja götu til al-
menningsnota suður með Tjörninni
vestan megin, en þess má geta að
fyrsti uppdráttur að skemmtigarði
við suðurenda Tjarnarinnar var gerð-
ur um 1908.
Ráðherrabústaðurinn byggður
Þegar Hannes Hafstein tók við
embætti Íslandsráðherra 1904 flutti
hann til bráðabirgða í íbúð í nýreistu
steinsteyptu húsi í Ingólfshvoli. En
fyrir þann tíma voru þegar hafnar
umræður um byggingu ráðherrabú-
staðar.
Áður en til þess kom að ríkið
byggði ráðherrabústað ákvað Hannes
Hafstein að reisa sér íbúðarhús á lóð
syðst við Tjarnargötu er hann keypti
vorið 1906. Vinur Hannesar var Hans
Ellefsen forstjóri sem reisti hvalveiði-
stöð á Sólbakka í Önundarfirði um
1890. Árið 1901 brunnu verksmiðju-
húsin og ákvað Ellefsen þá að flytja
starfsemi sína til Austfjarða. Bauð
hann Hannesi að gjöf (til kaups á eina
krónu) veglegt íbúðarhús úr timbri
sem hann hafði reist sér á Sólbakka
árið 1892. Var húsið tekið niður, flutt
sjóleiðis til Reykjavíkur og endurreist
við Tjarnargötu sumarið 1906. Á yf-
irlitsmynd af Sólbakka sem tekin var
af sjó má greina megindrætti hússins
eins og það leit út fyrir vestan. Sést
þar að húsið er einlyft með port-
byggðu risi og einum miðjukvisti. Um
uppruna er fátt vitað en stílgerð og
byggingarlag bendir til þess að það
hafi komið tilsniðið frá Noregi.
Í safni byggingarfulltrúa Reykja-
víkur er varðveitt teikning af „húsi
ráðherra H. Hafstein“, stílhreinu húsi
í sveitserstíl með sama lagi og líkri
gluggaskipan og greina má á mynd-
inni af Sólbakka. Teikningin er ódag-
sett og án undirskriftar en rithönd
Rögnvaldar Á. Ólafssonar er auð-
þekkjanleg í handskrifuðum merk-
ingum. Húsið á teikningunni er eins
að grunnfleti og húsið sem reis við
Tjarnargötu 32 en þakhalli er minni
og aðeins einn kvistur á framhlið.
Ekki er ólíklegt að teikningin sé gerð
eftir mælingu á húsi Ellefsens fyrir
vestan. Eftir að hún var gerð hefur
verið afráðið að hækka þak hússins og
fjölga kvistum á framhlið, væntanlega
til að skapa meira rými á efri hæðinni.
Við það fékk húsið núverandi svip
með hinum þremur einkennandi
burstum á götuhlið. Teikning af þess-
um breytingum hefur ekki varðveist
en næsta víst er að Rögnvaldur sé
höfundurinn. Ljósmynd sem tekin
var af húsinu við risgjöld sýnir vel
tæknilega uppbyggingu þess: neðri
hæð aðalálmu er endurbyggð úr
stokkverki hússins á Sólbakka en of-
an á og til hliðar er nýsmíðuð grind
fyrir hækkun þakhæðar og bakálmu.
Í aprílmánuði árið 1909 fékk Hann-
es Hafstein lausn frá embætti ráð-
herra. Kom þá upp sú hugmynd að
landsjóður keypti hús hans við Tjarn-
argötu og gerði að föstum bústað fyr-
ir ráðherra landsins. „Þótti ekki ann-
að hús í Reykjavík veglegra eða
hentugra til þess að vera ráðherrabú-
staður.“ Í apríllok samþykkti Alþingi
breytingu við fjáraukalög þar sem
stjórninni var veitt heimild til að festa
kaup á húseign fyrrv. ráðherra H.
Hafstein í Tjarnargötu. Um líkt leyti
flutti Hannes úr húsinu og stuttu síð-
ar sótti hann um leyfi til að reisa sér
nýtt íbúðarhús handan götunnar, á
lóðinni nr. 33 við Tjarnargötu. Síðari
hluta maímánaðar flutti Björn Jóns-
son ráðherra inn í hinn nýja embætt-
isbústað. Var hann búinn húsgögnum
sem keypt höfðu verið vegna kon-
ungskomunnar 1907.
Í blaðinu Ísafold segir svo um húsa-
kaupin: „Þingið sá sér þann hag helst-
an að áminnstum húsakaupum að þá
væri fyrir girt að farið yrði að fleygja
stórfé, 100–200 þús. í ráðherrahöll.
Þingið leit svo á að við þetta mundi vel
mega hlíta þangað til landið hefði efni
á veglegri embættisbústað handa sín-
um æðsta valdsmanni hér.“
Allir ráðherrar landsins og for-
sætisráðherrar til ársins 1943 bjuggu
í ráðherrabústaðnum á Tjarnargötu
32 að Jóni Magnússyni einum und-
anskildum, en hann lét búseturéttinn
ganga til meðráðherra sinna. Frá
1943 hefur húsið verið notað sem mót-
tökuhús utanríkisráðuneytis og ríkis-
stjórnar. Það heyrir nú undir forsæt-
isráðuneytið. Þar hafa margir tignir
gestir gist, m.a. þjóðhöfðingjar allra
Norðurlandanna. Fyrir Alþingishá-
tíðina 1930 voru gerðar breytingar á
neðri hæð hússins. Borðstofan var
Bókarkafli Í lok nítjándu aldar og upphafi þeirrar tuttugustu höfðu Norð-
menn töluverð umsvif í síld- og hvalveiðum við Ísland. Sumir þeirra settust
hér að og þeim fylgdu nýir straumar og menningartengsl í ýmsum efnum,
m.a. í byggingarlist. Hér varð til séríslenskt afbrigði af svonefndum sveitser-
stíl í húsagerð sem á rætur að rekja til Evrópu en var útbreiddur í Noregi.
Húsin við Tjörnina
Tjarnargata 32, hús Hannesar Hafstein ráðherra, nýbyggt.
SMIÐJAN
Innrömmun - Listhús
Ármúla 36, sími 568 3890.
Sýningin opnuð í dag, sunnudag, kl. 16-18.
Allir velkomnir. Opið virka daga kl. 10-18, lau. 12-16.
Með ósk um gleðileg jól og farsæld á nýju ári.
G. Blöndal
Þorvaldur Skúlason
Jóhann Briem
Sigurbjörn Jónsson
Valgarður Gunnarsson
Tolli
Guðbjörg Lind
Svavar Guðnason
Jóhannes Jóhannesson
Kjarval
Jón Engilberts
Þiðrik Hansson
Leitum eftir myndum á næstu sýningu okkar.
Innrömmum allar gerðir myndverka.
Gæði og góð þjónusta
Ásgrímur Jónsson Júlíana Sveinsdóttir
Jón StefánsHafsteinn Austmann
Jólasýning
Gosh snyrtivörurnar eru ofnæmisprófaðar og ilmefnalausar,
....og verðið það gerist ekki betra.
Gosh gjafapakkningar eru tilvaldar í jólapakkann!
Mánudaginn 8. des. Apóketið Iðufelli
Þriðjudaginn 9. des. Apótekið Hverafold
Miðvikudaginn 10. des. Lyfja Smáratorgi
Fimmtudaginn 11. des. Lyfja Lágmúla
Föstudaginn 12. des. Lyfja Spöng
Laugardaginn 13. des. Lyfja Lágmúla
R A F T Æ K J A V E R S L U N
HEKLUHÚSINU • LAUGAVEGI 172 • 105 REYKJAVÍK • SÍMI 590 5090
Brauðrist
Verð 4.990,-kr