Morgunblaðið - 07.12.2003, Page 31

Morgunblaðið - 07.12.2003, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. DESEMBER 2003 31 stækkuð og breytingar gerðar á út- byggingu til suðurs. Árið 1940 var eldhúsálma stækkuð með lítilli við- byggingu og herbergi sameinuð. Með heimastjórn varð vakning í verklegum framkvæmdum hér á landi. Fyrstu menntuðu verkfræðing- arnir og húsameistararnir voru að koma heim frá námi um þetta leyti en áður hafði hönnun og eftirlit með byggingum verið í höndum danskra fagmanna. Árið 1906 var Rögnvaldur Á. Ólafsson (1874–1917) ráðinn ráðu- nautur landstjórnarinnar um húsa- gerð. Hann stundaði nám í húsagerð- arlist við Det Tekniske Selskabs Skole í Kaupmannahöfn um þriggja ára skeið en lauk ekki prófi vegna berklaveiki. Með náminu vann hann hjá kunnum húsameistara, prófessor Fenger. Rögnvaldur fluttist heim árið 1904 og hóf fyrstur manna að starfa sem arkitekt í Reykjavík. Verkefni hans fyrir ríkið voru einkum á sviði kirkjubygginga, skóla og sjúkrahúsa en auk þess vann hann að verkefnum fyrir einkaaðila. Vitað er um á annan tug húsa sem Rögnvaldur teiknaði í Reykjavík og nokkur að auki sem lík- legt er að hann hafi teiknað þó skjal- festar heimildir skorti. Hvergi er á einum stað hægt að sjá fleiri dæmi um verk frumherjans í stétt íslenskra arkitekta en við Tjörnina í Reykjavík. Heilleg varðveisla Flest timburhúsanna við Tjörnina falla undir það stílbrigði sem nefnist „bárujárnssveitser“. Timburhúsabyggðin við Tjörnina er sérstök fyrir það að hafa varðveist sem heild og nánast því í uppruna- legri mynd sinni. Aðeins fáein hús hafa vikið: samkomuhúsið Báran og Tjarnargata 11, sem stóðu þar sem nú er ráðhús Reykjavíkur, og íshúsið Ís- björninn, vegleg, tvílyft timburbygg- ing sem Thor Jensen reisti árið 1905 við suðvesturhorn Tjarnarinnar. Á 5., 6. og 7. áratug 20. aldar voru gerðar ýmsar tillögur að endurskipulagi mið- bæjarins þar sem ráð var fyrir gert að timburhúsin við Tjörnina yrðu öll rif- in og í þeirra stað reist stórhýsi úr steinsteypu. Aldrei kom til þess að þau áform næðu fram og er gamla byggðin við Tjörnina nú talin eitt helsta djásnið í byggingarlist Reykja- víkur. Húsaröðin undir brekkunni við Tjarnargötu, frá nr. 18 til nr. 32, var friðuð sem samstæð heild árið 1991 en áður höfðu þrjú hús í eigu Reykjavík- urborgar, nr. 20, 33 og 35 verið friðuð að frumkvæði borgaryfirvalda árið 1978. Tjarnargata 33, seinna hús Hannesar Hafstein, eftir Rögnvald Á. Ólafsson arkitekt, reist 1909. Stigi og forstofa í ráðherrabústaðnum árið 2003. Af norskum rótum – Gömul timburhús á Íslandi kemur út hjá Máli og menn- ingu. Ritnefnd skipuðu Hjörleifur Stef- ánsson, Kjell H. Halvorsen og Magnús Skúlason, en höfundar kaflanna eru 15 talsins. Bókin er 286 bls. að lengd og prýdd fjölda mynda. …augnablik til eilífðar Tákn um gæði OMEGA - Swissnesk framleiðsla frá 1848 Cindy Crawford velur KRINGLAN/LEIFSSTÖÐ SÍMI 588 7230 w w w . l e o n a r d . i s

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.