Morgunblaðið - 07.12.2003, Side 43
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. DESEMBER 2003 43
✝ Petrína MargrétMagnúsdóttir
fæddist í Reykjavík
20. maí 1921. Hún
andaðist á Landspít-
alanum við Hring-
braut hinn 21. nóv-
ember síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Magnús Péturs-
son, verkamaður í
Reykjavík, ættaður
frá Miðdal í Kjós, f.
14.9. 1891, d. 9.1.
1981, og eiginkona
hans Pálína Þor-
finnsdóttir, verka-
kona í Reykjavík, ættuð frá Hurð-
arbaki í Kjós, f. 18.4. 1890, d. 19.7.
1977. Albróðir Petrínu var Sigur-
oddur Magnússon rafverktaki, f.
27.8. 1918, d. 29.10. 2003, hann átti
eina dóttur og fjóra syni með eig-
12. 1917, d. 10. 6. 1996. Bogi lauk
prófi frá stýrimannaskólanum á
Ísafirði 1942. Hann var stýrimaður
á ýmsum skipum til 1947 en þá
gerðist hann verkstjóri hjá Eim-
skipafélagi Íslands. Hann vann
samfellt hjá Eimskip til 1975 en
gerðist þá verkstjóri hjá Íslensk-
um aðalverktökum á Keflavíkur-
flugvelli til 1985 er hann varð
verkstjóri fyrir Aðalverktaka við
Höfðabakka til ársins 1990. For-
eldrar hans voru Guðmundur Þor-
varðarson skútuskipstjóri á Hellis-
sandi, f. 12.1. 1880, d. 11. . 1952, og
eiginkona hans Sigríður Bogadótt-
ir Gunnlaugsson frá Flatey, f. 7.7.
1886, d. 6. 9. 1961. Petrína og Bogi
eignuðust eina dóttur, Sigríði, f.
23.11. 1943. Eiginmaður hennar
var Foster A. Hockett. Börn þeirra
eru: 1) Þór Hockett, f. 9.8. 1963. 2)
Pétur Bogi Hockett, f. 19.12. 1966.
3) Stephanie Sunna Hockett, f.
2.10. 1970. 4) Allan Örn Hockett, f.
3.7. 1973.
Útför Petrínu fór fram í kyrrþey
að ósk hinnar látnu frá Fríkirkj-
unni í Reykjavík 2. desember.
inkonu sinni Fanneyju
Einarsdóttur Long,
kjólameistara, f. 4.7.
1922, d. 13.11. 2002.
Petrína átti tvær hálf-
systur, Úlfhildi Þor-
finnsdóttur, f. 14.3.
1911, d. 16.12. 1971 en
hún átti tvo syni, og
Sólveigu S. Þorfinns-
dóttur, f. 21.9. 1912, d.
15.4. 1974. Hún átti
tvo syni og tvær dætur
og var gift Kristni
Jónssyni, f. 30.5. 1909,
d. 16.6. 1994, frá
Gunnlaugsstöðum í
Borgarfirði. Petrína og Sigurodd-
ur ólust upp hjá foreldrum, lengst
af á Urðarstíg 10 í Reykjavík.
Hinn 18. desember 1943 giftist
Petrína Boga Ingjaldi Guðmunds-
syni, f. á Sjólyst á Hellissandi 18.
Hinn 21. nóvember sl. lést föður-
systir mín og vinkona Petrína Mar-
grét Magnúsdóttir 82 ára, eftir stutta
legu á Landspítala - Háskólasjúkra-
húsi við Hringbraut. Faðir minn og
albróðir hennar, Siguroddur Magnús-
son, lá á sama sjúkrahúsi á sama tíma
en hann lést þar einnig hinn 29. októ-
ber sl.
Hún var í farsælu hjónabandi með
eiginmanni sínum, Boga Ingjaldi
Guðmundssyni, í 53 ár en hann lést
hinn 10. júní 1996. Petrína eða Peta
eins og hún var alltaf kölluð innan
fjölskyldunnar fæddist og ólst upp í
Reykjavík, lengst af á Urðarstíg 10.
Eftir barnaskólanám var hún að
mestu sjálfmenntuð fyrir utan ýmis
námskeið. Þegar hún var 22 ára gift-
ist hún Boga og á sama ári fæddist
augasteinn þeirra hjóna, dóttirin Sig-
ríður Bogadóttir. Peta vann ekki
fasta vinnu utan heimilis en tók að sér
margs konar tímabundin störf því
hún var vinnusöm og hörkudugleg. Í
kringum miðja síðustu öld þegar erf-
itt var um vinnu bakaði hún og seldi í
bakarí. Síðan tóku við mörg ár af
saumaskap fyrir aðra. Hún varð
þekkt fyrir fallegt handbragð og
vandvirkni. Það var alveg sama hvað
hún tók sér fyrir hendur, allt lék í
höndunum á henni. Það sem ein-
kenndi hennar störf var hve hratt og
örugglega hún hreyfði sig við það sem
hún var að gera hverju sinni.
Seinna þegar fór að hægjast um
hjá henni keypti hún sér lítið orgel og
lærði að spila ýmis lög sem hún spil-
aði ljómandi vel. Þá tók hún til við
leirmunagerð og renndi blómavasa,
tekatla og fleiri muni sem hún
skreytti mjög fagurlega. Fyrir nokkr-
um árum lærði hún að mála með
vatns- og olíulitum og eftir hana
liggja nokkur mjög falleg málverk
sem hanga uppi á vegg hér og þar
innan fjölskyldunnar. Þá eru ótalin
veggteppi og haganlega gerðir dúkar
sem hún greip í að handsauma þegar
næði gafst í gegnum tíðina.
Fyrst þegar ég man eftir mér
bjuggu þau Peta og Bogi á Nesveg 78
í einu af sænsku húsunum við Nes-
veginn. Þau steyptu kjallara undir
timburhúsið þannig að þetta var
ágætis hús. Síðar bjuggu þau á Leifs-
götu, Melhaga og í mörg ár á Laug-
arásvegi 26. Alls staðar sem þau
bjuggu, nema á Leifsgötu, byggðu
þau sjálf, frá fokheldu, af atorku,
smekkvísi og mikilli vinnugleði. Einn-
ig byggðu þau sumarbústað í Gríms-
nesi og undu þar mörgum stundum
meðan heilsan var ennþá í góðu lagi.
Þó sumum hafi þótt Peta hrjúf á yf-
irborðinu var hún trygglynd, ljúf og
góð og átti marga vini. Hún var höfð-
ingi heim að sækja og þótti mjög
gaman að skemmta sér í góðra vina
hópi. Hún hafði ákveðnar skoðanir á
þjóðfélagsmálum og fylgdi ávallt jafn-
aðarstefnunni. Hlátur hennar var ein-
staklega innilegur og hún gat hrifið
fólk með sér ef eitthvað fyndið átti sér
stað. Ég minnist ótal jólaboða sem
Peta annaðist fyrir ömmu og afa á
Urðarstíg 10. Þar var Peta liðtæk í að
syngja ættjarðarsöngva og jólasálma.
Einnig var Peta oft með stórfjöl-
skylduveislur heima hjá sér þar sem
veitt var af rausn í mat og drykk.
Nú þegar Peta er látin eru allir úr
elstu kynslóð okkar fjölskyldu látnir
og hvíla saman í friði á æðri brautum
almættisins. Þetta fólk var gott fólk
og við sem eftir lifum eigum aðeins
góðar minningar um Pálínu ömmu,
Magnús afa og alla þeirra afkomend-
ur.
Elsku Sigga og börn, nú er Peta
dáin og ég veit að hjá ykkur eru erf-
iðar stundir um hríð. Það er erfitt að
missa akkeri lífsins og andlát eins og
hennar kemur alltaf á óvart þó að við
vitum að þetta er lífsins gangur. Við
Rúna og börnin okkar sendum ykkur
hlýjar samúðarkveðjur og biðjum
þess að guð veri með ykkur.
Magnús Siguroddsson.
PETRÍNA MARGRÉT
MAGNÚSDÓTTIR
✝ Magnea Einars-dóttir, yfirleitt
kennd við Klöpp í
Sandgerði, fæddist í
Fagurhlíð í Sand-
gerði 4. nóvember
1932. Hún lést á
Fjórðungssjúkrahús-
inu á Akureyri 26.
nóvember síðastlið-
inn eftir stutta sjúk-
dómslegu. Magnea
var dóttir hjónanna
Ólínu Jónsdóttur frá
Skrapatungu í Lax-
árdal í A-Húnavatns-
sýslu, f. 24.9. 1899, d.
27.12. 1980, og Einars Helga Magn-
ússonar frá Veghúsum í Miðnes-
hreppi, f. 8.2. 1902, d. 27.10. 1985.
Systkini Magneu voru Friðrik Sig-
urðsson (látinn) vélstjóri og sjó-
maður, Sandgerði, kvæntur Jó-
hönnu Guðmundsdóttur (látin);
Ingibjörg, húsmóðir, Reykjavík,
stjóri, f. 15.4. 1967, Kelduhverfi,
eiginkona Sigurfljóð Sveinbjörns-
dóttir, skólaliði, frá Mýrarkoti á
Tjörnesi. Þeirra börn eru Magnea
Dröfn, Friðbjörn Bragi og Unnar
Þór. 3) Helga Þyri, verslunarmað-
ur, f. 4.8. 1967, Akureyri, eigin-
maður Þórður Helgason, verslun-
armaður, frá Grænavatni í
Mývatnssveit. Þeirra börn eru
Bjarki, Freyr, Sólveig María og
Ari.
Eftir að Magnea yfirgaf föður-
hús vann hún ýmis störf í Sand-
gerði og Reykjavík. Þau hjónin
stofnuðu heimili á Túngötu 4 í
Sandgerði og bjuggu þar lengst af
og starfaði hún sem heimavinnandi
húsmóðir og fiskverkakona í Sand-
gerði. Hún sat um skeið í stjórn
Verkalýðs- og sjómannafélags Mið-
neshrepps. Árið 1985 fluttu þau að
Garði í Kelduhverfi. Heimili þeirra
þar nefndist Heiðarbrún. Störfuðu
þau aðallega við loðdýrarækt sem
og veitinga- og hótelrekstur í
Skúlagarði þar til fyrir nokkrum
árum að þau settust í helgan stein.
Útför Magneu fór fram í kyrrþey
frá Garðskirkju í Kelduhverfi des-
ember.
gift Kjartani Helga-
syni kennara og versl-
unarmanni; Ari (lát-
inn) húsgagnasmiður,
Klöpp, Sandgerði,
kvæntur Erlu Thor-
arensen húsmóður;
Jón Karl, skipstjóri og
hafnarvörður, Sand-
gerði, kvæntur Grétu
Fredriksen húsmóður.
Hinn 3. janúar 1953
gekk Magnea að eiga
Braga Sigurðsson sjó-
mann og vélstjóra, f.
25. nóv. 1921, frá
Ráðagerði á Seltjarn-
arnesi. Þau Magnea og Bragi eign-
uðust þrjú börn. Þau eru: 1) Þor-
björg, kennari, f. 23. apríl 1954,
Sandgerði, eiginmaður Jón Sig-
urðsson lengst af bóndi í Garði í
Kelduhverfi. Þeirra börn eru
Brynja Dögg, Bragi, Sigurður og
Sandra Rún. 2) Hlynur, bifreiða-
Það er margs að minnast þegar hug-
urinn reikar um farinn veg. Ekki óraði
mig fyrir því að við ættum ekki eftir að
heimsækja mömmu aftur í Keldu-
hverfið þegar við vorum þar í haust, en
eftir talsverð veikindi og stutta sjúkra-
húslegu var hún farin frá okkur. En
svona er nú krabbameinið. Það fer ekki
í manngreinarálit.
Þegar ég var barn var pabbi sjómað-
ur. Þá hlustaði mamma alltaf á veðrið
síðan hlustuðum við saman á bátana og
biðum þess að pabbi kæmi heim.
Mamma kunni mikið af vísum og kunn-
um við systkinin heilu bækurnar utan
að svo mikið var nú sungið fyrir okkur,
en mest gaman þótti mér að þulunum
sem hún lék þegar hún las.
Nóvember og desember voru mán-
uðir mömmu. Henni fannst svo gaman
að undirbúa jólin. Þá var þrifið, bakað,
föndrað, búin til jólakort, jólaskraut,
jólagjafir og saumuð jólafötin á okkur
öll systkinin. Allt var búið til heima,
hún meira að segja tileinkaði sér laufa-
brauðið eftir að hún flutti norður fyrir
18 árum. Þá var nú gaman að fara með
henni að salta síld. Þá fékk ég að raða í
hringinn efst í tunnunni og jafnvel
kalla tunna og var þá ekkert smárogg-
in þegar peningurinn datt niður í stíg-
vélið. Hún var talin vera mjög snögg í
allri vinnu sem hún tók sér fyrir hend-
ur.
Mamma var alveg frábær kokkur,
og ef átti að halda veislu eða bara fá
einhverja uppskrift var alltaf hringt í
hana sem hafði óþrjótandi hugmyndir
og alltaf var hún tilbúin að prófa eitt-
hvað nýtt. Mamma var mjög heima-
kær og ekki mikið fyrir það að húsvitja.
Heldur var hún heima og sinnti heimili
og fjölskyldu eins og þau væru á sjö
stjörnu hóteli.
Þegar pabbi og mamma byrjuðu að
búa byggðu þau sér hús á Túngötunni í
Sandgerði. Þar bjuggu þau í yfir 30 ár.
Pabbi sem sjómaður og síðar vélstjóri í
landi en mamma í fiskverkun ýmiss
konar. Þegar ég flutti norður í Keldu-
hverfið voru þau farin að koma fimm
sinnum á ári í heimsókn. Þá rifu þau
sig upp með rótum og fluttu norður á
eftir mér því systkini mín voru alveg
sátt við hugmyndina. Þarna leið þeim
mjög vel og bjuggum við á sömu torf-
unni í fimmtán ár. Þetta var yndislegur
tími sem geymdur er en ekki gleymd-
ur. Söknuðurinn er sár, en þá huggar
maður sig við að hún þurfi ekki að þjást
lengur.
Elsku pabbi, Hlynur og Helga Þyri,
megi góður Guð styrkja ykkur og
hugga í sorg ykkar.
Þorbjörg.
Það var fyrstu helgina í júlí sl. sem
ég ákvað að drífa mig frá vel heppnuðu
Pollamóti á Akureyri og hitta Möggu
og Braga að Heiðarbrún í Kelduhverfi,
aðallega til að fá þau til að tala inn á
spólu um afa og ömmu í Klöpp. Ekki
grunaði okkur að það yrði síðasta
skiptið sem ég næði almennilegu sam-
bandi við hana. Enda kom það flatt upp
á alla fyrir örfáum vikum að hún væri
orðin svo veik sem raun var. Stuttu síð-
ar kom svo áfallið: Magga var látin.
Þessi dugnaðarforkur og kjarnakona
varð að lúta í lægra haldi fyrir óvægum
sjúkdómi sem hefur vafalaust verið að
grafa um sig í langan tíma.
Magga var 16 ára þegar ég kom
tveggja mánaða gamall inn á heimili
afa og ömmu að Klöpp í Sandgerði þar
sem hún og Kalli voru fyrir, þá tán-
ingar.
Hún var ávallt drífandi og dugleg.
Þau eru ófá barnaafmælin þar sem hún
dreif okkur krakkana út í kýló eða fall-
in spýtan, stjórnaði og tók þátt í leikj-
unum af fítonskrafti og innlifun.
Hún var mér eins og eldri systir eða
móðir, allt eftir tilefninu. Heimili þeirra
Braga var mér ætíð opið enda var oft
komið þar við og úðað í sig heimabök-
uðum góðgjörðum meðan skeggrætt
var um heima og geima eða gantast
með hitt og þetta.
Margar voru líka ferðirnar sem ég
fór með þeim hjónunum og Þorbjörgu
vítt og breitt um landið og þá var ekki
verið að eltast við sjoppur, sælgæti og
súkkulaði því veislukosturinn í fartesk-
inu sló öllu slíku við.
Það er með innilegu þakklæti sem
ég minnist allra gleðistundanna og al-
mennilegheita þessara heiðurshjóna
sem svo samstiga þræddu lífsins veg
þó ólík væru. Ég mun ætíð minnast
Möggu frænku fyrir dugnaðinn og
ósérhlífnina, ferðirnar og góðgjörðirn-
ar. Það er mikill sjónarsviptir að henni.
Kæri Bragi, Þorbjörg, Hlynur,
Helga Þyri, barnabörn Möggu og aðrir
ástvinir: Við Karen sendum ykkur
innilegar samúðarkveðjur. Guð styrki
ykkur öll og huggi.
Einar Valgeir.
MAGNEA
EINARSDÓTTIR
Sími 551 3485 • Fax 551 3645
Áratuga reynsla í umsjón útfara
Önnumst alla þætti
Davíð Osvaldsson
útfararstjóri
Sími 896 8284
Eyþór Eðvarðsson
útfararstjóri
Sími 892 5057
Vaktsími allan sólarhringinn
Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og
langamma,
HALLDÓRA ELÍASDÓTTIR,
Eskihlíð 7,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Reykjavík
þriðjudaginn 9. desember kl. 13.30.
Kristinn Halldórsson, Fjóla Björnsdóttir,
Jean Noel Lareau,
Halldór Kristinsson,
Áslaug Kristinsdóttir,
Eva Kristinsdóttir,
Þórdís Jóhanna Lareau
og langömmubörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
GUÐNÝ ÓLAFÍA EINARSDÓTTIR,
Garðvangi, Garði,
áður Aðalgötu 5, Keflavík,
verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju þriðju-
daginn 9. desember kl. 14.00.
Guðrún Ágústa Lárusdóttir, Marínus Schmitz,
Lárus Ólafur Lárusson, Ingibjörg Magnúsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Móðir okkar, amma og langamma,
AÐALHEIÐUR GÍSLADÓTTIR,
Sigtúni 53,
Reykjavík,
sem lést fimmtudaginn 27. nóvember, verður
jarðsungin frá Laugarneskirkju þriðjudaginn
9. desember kl. 13.30.
Anna Heiða Guðrúnardóttir,
Brian Jakob Campbell,
Jakob Allan Samúelsson.