Morgunblaðið - 07.12.2003, Síða 45

Morgunblaðið - 07.12.2003, Síða 45
Morgunblaðið/Árni Sæberg HIN árlega aðventustund Garða- sóknar verður í kvöld kl. 20 í Ví- dalínskirkju. Að venju verður fjölbreyttur söngur, sem hvílir að mestu á herðum kirkjukórsins, en stjórnandi hans er Jóhann Bald- vinsson, organisti. Hugleiðingu kvöldsins flytur Erling Jóhannesson, leikari og bæjarlistamaður Garðabæjar, en upplestur er í höndum Kristínar Helgu Gunnarsdóttur, rithöf- undar. Bænamálið er í höndum presta safnaðarins og djákna. Eftir stundina í kirkjunni verður boðið upp á heitt súkkulaði og piparkökur í safnaðarheimilinu, en þar heldur dagskráin áfram við kertaljós með upplestri og söng. Það er von okkar, sem að dag- skránni stöndum, að sóknarfólk fjölmenni í Vídalínskirkju í kvöld og eigi þar ljúfa stund og íhugi erindi aðventu og jóla til sér- hvers einstaklings. Sr. Friðrik J. Hjartar. Aðventu- stund í Vída- línskirkju KIRKJUSTARF MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. DESEMBER 2003 45 Grensáskirkja. Unglingastarf 9. og 10. bekkjar sunnudagskvöld kl. 19.30. Háteigskirkja. Eldri borgarar. Fé- lagsvist á morgun í Setrinu kl. 13. Skráning í síma 511 5405. Neskirkja. Umræður um Palestínu kl. 20. Sr. Mary Lawrence segir frá friðarstarfi í Palestínu og svar- ar fyrirspurnum. Kaffi og umræð- ur. Foreldramorgunn miðvikudag kl. 10-12. Seltjarnarneskirkja. Æskulýðs- félagið kl. 20-22 (fyrir 8.-10. bekk). Árbæjarkirkja. Kl. 20 Lúkas, æskulýðsfélag Árbæjarsafnaðar, með fundi í safnaðarheimilinu. Grafarvogskirkja. Bænahópur kl. 20. Tekið er við bænarefnum alla virka daga frá kl. 9-17 í síma 587 9070. Hjallakirkja. Æskulýðsfélag fyrir 9. og 10. bekk kl. 20. Mánudagur: Æskulýðsfélag fyrir 8. bekk kl. 20. Bessastaðasókn. Sunnudagaskól- inn er í sal Álftanesskóla kl. 11. Umsjón með sunnudagaskólanum hafa Kristjana og Ásgeir Páll. Allir velkomnir. Þorlákskirkja. TTT-starf í kvöld, sunnudagskvöld, kl. 19.30. Krossinn. Almenn samkoma í Hlíðasmára 5 kl. 16.30. Allir vel- komnir. Fríkirkjan KEFAS, Vatnsenda- bletti 601. Í dag er samkoma kl. 14. Sigrún Einarsdóttir talar. Lof- gjörð og fyrirbænir. Tvískipt barna- starf fyrir 1-6 ára og 7-12 ára börn á samkomutíma. Kaffi og sam- félag eftir samkomu. Allir vel- komnir. Nánari upplýsingar á www.kefas.is Fíladelfía. Brauðsbrotning kl. 11. Ræðumaður G. Theodór Birgis- son. Almenn samkoma kl. 16.30. Ræðumaður Jón Þór Eyjólfsson. Mikil lofgjörð í umsjón Gospelkórs Fíladelfíu. Fyrirbænir. Allir vel- komnir. Bænastundir alla virka morgna kl. 06. www.gospel.is Safnaðarstarf Ástkær móðir okkar, MARÍA JÓHANNSDÓTTIR, fyrrv. stöðvarstjóri Pósts og síma, Flateyri, andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði föstudaginn 5. desember. Jóhanna Guðrún Kristjánsdóttir, Einar Oddur Kristjánsson. Faðir okkar, JÓN VALGEIR ÓLAFSSON, áður búsettur á Búðarstíg, Eyrarbakka, lést á Ljósheimum, Selfossi, að kvöldi miðviku- dagsins 3. desember. Jarðarförin fer fram frá Eyrarbakkakirkju laugardaginn 13. október kl. 11.00. Börn hins látna. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, JÓN DALMANN ÁRMANNSSON, Hjallalundi 14, Akureyri, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri föstu- daginn 28. nóbemver. Hann verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju mánudaginn 8. desember kl. 13.30. Fyrir okkar hönd og annarra aðstandenda, Ásta Björg Þorsteinsdóttir, Sigríður Dalmannsdóttir, Drífa Björk Dalmannsdóttir Radiskovic, Zoran Radiskovic, Aleksandar Radiskovic, Sara Radiskovic. ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Flatahrauni 5A, sími 565 5892 ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Símar 581 3300 - 896 8242 Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is Sverrir Olsen, útfararstjóri. Sverrir Einarsson, útfararstjóri. Kistur - Krossar Prestur - Kirkja Kistulagning Blóm - Fáni Val á sálmum Tónlistarfólk Sálmaskrá Tilk. í fjölmiðla Erfisdrykkja Gestabók Legstaður Flutningur kistu á Komum heim til aðstandenda ef óskað er Bryndís Valbjarnardóttir, útfararstjóri. milli landa og landshluta Landsbyggðar- þjónusta Baldur Frederiksen, útfararstjóri. Blómastofa Friðfinns, Suðurlandsbraut 10, sími 553 1099, fax 568 4499. Opið til kl. 19 öll kvöld Kransar • Krossar • Kistuskreytingar Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SVÖVU GUÐNADÓTTUR frá Melstað. Sigurdóra Kristinsdóttir, Hrólfur Ingimundarson, Þorsteinn S. Kristinsson, Guðmundur B. Kristinsson, Kristín G. Jónsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elsku- legrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, OLGU SIGURÐARDÓTTUR frá Hnífsdal. Sérstakar þakkir til starfsfólks á elli- og hjúkr- unarheimilinu Grund. Guð blessi ykkur öll. Guðmunda S. Gunnlaugsdóttir, Marinó Friðjónsson, Elísabet Þóra Gunnlaugsdóttir, Reynir Heide, Málfríður Gunnlaugsdóttir, Sigmar Holbergsson, barnabörn og langömmubörn. Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug við andlát föður okkar, sonar og bróður, KJARTANS HALLDÓRS RAFNSSONAR. Arnar Már, Rakel Ýr, Frederik og Victoria, Sóldís K. Russell, Rafn Sigurðsson og systkini. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug við andlát og útför móður minnar, PETRÍNU MARGRÉTAR MAGNÚSDÓTTUR, Dalbraut 18, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks lyflækninga- deildar 11G Landspítala Hringbraut fyrir ein- staka umönnun. Jarðarförin fór fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík 2. desember í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Fyrir hönd aðstandenda, Sigríður Bogadóttir. Útfararþjónustan ehf. Stofnuð 1990 Rúnar Geirmundsson Útfararstjóri Sími 5679110, 8938638 Heimasíða okkar er www.utfarir.is Þar eru upplýsingar um allt er lýtur að útför: - Söngfólk og kórar - Erfidrykkja - Aðstoð við skrif minningargreina - Panta kross og frágang á leiði Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTÍN SIGRÍÐUR KRISTJÁNSDÓTTIR, hjúkrunarheimilinu Eir, áður til heimilis í Stórholti 20, Reykjavík, verður jarðsungin frá Áskirkju þriðjudaginn 9. desember kl. 13.30. Guðrún Þóra Hafliðadóttir, Rúnar Guðbjartsson, Gísli Sævar Hafliðason, Anna M. Jónsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Öllum þeim fjölmörgu sem sýndu okkur vinar- hug, samúð og hlýju vegna fráfalls og útfarar okkar kæru systur, mágkonu og frænku, KRISTÍNAR PÁLSDÓTTUR fóstru, og vottuðu henni virðingu með einum eða öðrum hætti, færum við okkar innilegustu þakkir. Guð blessi ykkur öll. Steinunn Pálsdóttir, Þorkell G. Sigurbjörnsson, Svandís Ólafsdóttir, Eyþór Einarsson, Sigurður Pálsson, Jóhanna G. Möller, Guðfinna Guðmundsdóttir, systrabörn og bræðrabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.