Morgunblaðið - 07.12.2003, Side 50
DAGBÓK
50 SUNNUDAGUR 7. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Laugarnes og
Vædderen koma í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Salles kemur í dag.
Sankuru fer í dag.
Fréttir
Bókatíðindi 2003.
Númer sunnudagsins
7. desember er 065041.
Mannamót
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31 og Furu-
gerði 1. Sameiginlegt
jólahlaðborð fé-
lagsmiðstöðvanna
Hæðargarði og Furu-
gerði verður föstudag-
inn 12. desember. Há-
tíðin byrjar kl. 17,
veisluhlaðborð og
skemmtiatriði, meðal
annars Jólaþula og
Dísirnar syngja.
Hljómsveit Hjördísar
Geirs leikur fyrir dansi
og veislustjóri er Helgi
Seljan, miðar seldir í
Hæðargarði og Furu-
gerði.
Aflagrandi 40. Jóla-
ferð verður farin mið-
vikudaginn 10. desem-
ber, jólagrautur
snæddur í sveitinni,
jólaskreytingar borg-
arinnar skoðaðar, jóla-
lögin sungin undir
harmonikkuleik jóla-
sveinsins. Að lokum
kaffi og aðventukaka á
Aflagranda. Lagt af
stað kl.10.30. Skráning
í síma 562 2571 og á
staðnum.
Félgsstarf aldraðra,
Garðabæ. Mánudaginn
8. desember verður
opnað mínigolf á
Garðatogi fyrir framan
bókasafnið. Bæjar-
stjórinn slær fyrsta
höggið. Opnunin verð-
ur kl. 14 og keppt verð-
ur í mínigolfi og pílu-
kasti og boðið upp á
kaffi í Garðabergi.
Þriðjudaginn 9. desem-
ber mun Erling Jó-
hannesson, leikari og
bæjarlistamaður, lesa
upp í Garðabergi kl. 14
á vegum bókasafnsins
og félagsstarfs aldr-
aðra. Garðakórinn
syngur létt jólalög.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Dansleikur í
kvöld kl. 20, Caprí-tríó
leikur fyrir dansi.
Gerðuberg, fé-
lagsstarf. Fjölbreytt
vetrardagskrá í boði
hvern virkan dag kl. 9-
16.30. S. 575 7720.
Félag kennara á eft-
irlaunum. Jólafund-
urinn verður í Húna-
búð, Skeifunni 11, í dag
klukkan 13.30. Á dag-
skrá er félagsvist,
veislukaffi, ræðumaður
Þorsteinn Ólafsson,
Ekkókórinn syngur.
NA (Ónefndir fíklar).
Neyðar- og upplýs-
ingasími 661 2915.
Opnir fundir kl. 21 á
þriðjudögum í Héðins-
húsinu og á fimmtu-
dögum í KFUM & K,
Austurstræti.
Kvenfélag Grens-
ássóknar, jólafund-
urinn verður mánudag-
inn 8. desember og
hefst kl. 20 með helgi-
stund í kirkjunni, síðan
gengið til jóladagskrár
í safnaðarheimilinu.
Kvenfélag Breiðholts.
Jólafundurinn verður
þirðjudaginn 9. desem-
ber og hefst með borð-
haldi kl. 19.30, munið
jólapakkana.
Sjálfsbjörg, Hátúni 12.
Jólahlutavelta og kaffi-
sala, opið frá kl. 14-17.
SVDK, Hraunprýði.
Jólafundurinn verður
haldinn í Skútunni
þriðjudaginn 9. desem-
ber kl. 19. Á dagskrá
söngur, Kvennakór
Hafnarfjarðar, Flosi
Ólafsson og frú verða
gestir köldsins og Flosi
mun lesa úr bók sinni
og árita hana, jóla-
happdrætti, jóla-
hugvekja. Konur
hvattar til að mæta og
taka með sér gesti.
Árnesingafélagið í
Reykjavík Aðalfundur
í Seljakirkju mánu-
dagskvöldið 8. des. kl.
20. Venjuleg aðalfund-
arstörf, kaffiveitingar.
Skátamiðstöðin. End-
urfundir skáta eru ann-
an mánudag í hverjum
mánuði. Næsta sam-
verustund verður
mánudaginn 8. desem-
ber kl. 12. Veitingar
tengjast jólum, grjóna-
grautur og flatbrauð
og hangikjöt. Skáta-
kórinn kemur og tekur
lagið og sr. Þór Hauks-
son flytur jóla-
hugvekju.
Minningarkort
Minningarkort Lands-
samtaka hjartasjúkl-
inga fást á eftirtöldum
stöðum á Suðurlandi:
Skóverslun Axel Ó.
Lárussonar, Vest-
mannabraut 23, Vest-
mannaeyjum, s.
481 1826, Mosfell sf.,
Þrúðvangi 6, Hellu, s.
487 5828 Sólveig Ólafs-
dóttir, Verslunin
Grund, Flúðum, s.
486 6633, Sjúkrahús
Suðurlands og Heilsu-
gæslustöð, Árvegi, Sel-
fossi, s. 482 1300,
Verslunin Íris, Aust-
urvegi 4, Selfossi, s.
482 1468, Blómabúðin
hjá Jóhönnu, Una-
bakka 4, 815 Þorláks-
höfn, s. 483 3794.
Minningarkort Sam-
taka sykursjúkra fást
á skrifstofu samtak-
anna Tryggvagötu 26,
Reykjavík. Opið virka
daga frá kl. 9–13, s.
562 5605, bréfsími
562 5715
Í dag er sunnudagur 7. desem-
ber, 341. dagur ársins 2003,
Ambrósíumessa. Orð dagsins:
Sækist eins og nýfædd börn eftir
hinni andlegu, ósviknu mjólk, til
þess að þér af henni getið dafnað
til hjálpræðis.
(1Pt. 2, 2.)
Benedikt Jóhannessonrifjar það upp í tíma-
ritinu Vísbendingu að
fyrir nokkrum árum not-
aði fyrirtækið Bónus
kjörorðið: „Gróði en ekki
græðgi.“ Svo segir hann:
„Af einhverjum ástæðum
hefur þeta verið minna
notað á undanförnum ár-
um en áður og er það
miður, því að það lýsir
einmitt vel grundvallar-
sjónarmiðum frjálsrar
samkeppni. Þegar mark-
aðir eru opnir, þ.e. að-
gangshindranir eru litl-
ar, þá gerist það af sjálfu
sér að gróði verður hóf-
legur. Einhver þarf gróð-
inn að vera, annars vill
enginn stunda viðskipti.“
Benedikt segir enginönnur lögmál gilda
hjá einstaklingum sem
þurfi að hafa nægilega
mikið fyrir sinn snúð.
„Auðvitað vilja menn líka
fá meira eftir því sem
þeir geta og kunna
meira. Samt er það líka
svo að hámenntaðir
menn og færir á sínu
sviði fá ekki há laun og
jafnvel enga vinnu. Ein-
falt dæmi er samanburð-
armálfræðingur sem hef-
ur sérhæft sig í fornum,
jafnvel útdauðum málum.
Þekking hans kann að
vera einstök en eft-
irspurn eftir slíkum
mönnum er svo lítil, að
finnist vinna við hæfi er
eins víst að hún sé illa
launuð. Stráklingar sem
hafa rétta kunnáttu í
tölvufræðum en litla í
öðru hafa hins vegar
flennikaup þegar eft-
irspurn er mikil.“
Hann segir alla þurfaað hafa nóg. „Það
hlýtur líka að gilda um
forstjóra og það er auð-
velt að skilja það að for-
stjórar sem eru í miklum
samskiptum við erlenda
kollega geti ekki komið
fyrir eins og einhverjar
betlikerlingar heldur
verða þeir að geta sýnt
þann stæl sem þeirra
samkeppnisumhverfi
krefst.“ Síðan telur
Benedikt upp það sem
hann segir lífsnauðsynjar
forstjóra. Miðar á leik í
ensku knattspyrnunni
nokkrum sinnum á vetri
og flugferðir vegna
þeirra, að minnsta kosti
tvær ferðir á formúlu 1 á
hverri vertíð (flugferð og
hótel), skemmtisnekkjur
á Miðjarðarhafinu og
Karíbahafinu, einka-
flugvél (afnot nauðsyn,
eign æskileg.)
Og áfram heldur upp-talningin: „Ferðir í
spilavíti reglulega (til
þess að efla kynni við er-
lenda kollega, kapp-
reiðar, Ólympíuleikar,
heimsmeistarakeppni í
knattspyrnu (miðar á
góðum stað), föt og skór
við hæfi. Líkamsrækt til
þess að ná af sér kílóun-
um sem bætast á við tíða
viðskiptalönsa.“ Til þess
að lifa þarf forstjórinn
því að hafa nokkuð á
milli handanna eins og
bent er á í enda pistils-
ins: „Svona lífsstíl er
ekki haldið uppi á nein-
um Dagsbrúnartöxtum.“
STAKSTEINAR
Lifibrauð forstjóra
Víkverji skrifar...
Föndurdót er alveg ótrúlega dýrt.Það er alveg sama í hvaða fönd-
urbúð er farið, verðið er algjörlega
úr öllu samhengi við allt annað. Vík-
verji gæti trúað að það væri ódýrara
að mála alla íbúðina hjá sér en tré-
snjókarlana þrjá sem hann á heima
hjá sér og hefur ekki enn tímt að
kaupa málningu til að mála. 200
gramma túpur með akrílmálningu
kosta t.d. 700 krónur í einni búð sem
vinkona Víkverja heimsótti nýverið
og þykir það ekki mikið miðað við
það sem gengur og gerist. Vinkona
Víkverja segist hafa bundið vonir við
að föndurloft Garðheima eða fönd-
urhorn BYKO og Húsasmiðjunnar
yrðu ódýrari en sérverslanir með
föndurdót en allt kom fyrir ekki. Lít-
il sem engin samkeppni virðist ríkja
á þessum markaði.
Víkverja finnst það vægast sagt
undarlegt. Hann hefur líka heyrt að
víða erlendis sé mun ódýrara að
kaupa föndurdót og því kom ein
kunningjakona Víkverja drekk-
hlaðin af föndurdóti frá Bretlandi á
dögunum sem kostaði aðeins brot af
því sem það hefði kostað hér.
En yfir í allt annað. Víkverji hefurlent í vandræðum undanfarið ár
eða svo við að finna tískuföt á son
sinn sem er nú að verða 11 ára.
Stráksi er hár í loftinu og er löngu
hættur að passa í föt sem ætluð eru
hans aldri. En þá kárnar gamanið.
Flott tískuföt fyrir stráka á aldr-
inum 10-15 ára hefur reynst þraut-
inni þyngri að finna. Það er eins og
þetta aldursbil hafi gleymst í flest-
um búðum (reyndar virðast flestar
barnafataverslanir hafa gleymt
strákum yfir höfuð!). Víkverja og
syni hans fannst þeir því heldur bet-
ur hafa dottið í lukkupottinn þegar
þeir uppgötvuðu búðina ExS í
Kringlunni. Þar eru „akkúrat“ fötin
sem stráksi vill, flottar gallabuxur
og meira að segja spariföt sem hann
gæti hugsað sér að ganga í! Ekki
skemmir frábær þjónusta fyrir en
tveir ungir og hressir strákar að-
stoðuðu við kaupin og voru mjög
skemmtilegir og líflegir og höfðuðu
algjörlega til sonar Víkverja sem vill
nú hvergi annars staðar kaupa föt.
ExS er svöl búð!
x x x
Víkverji átti leið niður Laugaveg-inn á dögunum og áður en hann
vissi af var hann næstum búinn að
kaupa allar jólagjafirnar. Á Lauga-
veginum er fullt af litlum, sniðugum
og skemmtilegum búðum sem selja
sumar hverjar svolítið öðruvísi vörur
en fást í stóru verslunarmiðstöðv-
unum og á góðu verði líka. Víkverji
mælir líka með jólastemmningunni
sem ríkir á Laugaveginum og er
hvergi annars staðar að finna, í það
minnsta ekki á höfuðborgarsvæðinu.
Morgunblaðið/Sverrir
Margir hafa áhuga á að föndra en
föndurdót er ótrúlega dýr mun-
aðarvara að mati Víkverja.
Jólasería frá 1938
LESANDI hafði samband
við Velvakanda vegna pist-
ils sem birtist um ending-
argóða jólaseríu frá 1957.
Sagðist lesandi hafa unnið
hjá fyrirtæki sem hafði um-
boð fyrir Osram og var að
læra þar rafvirkjun.
Á Þorláksmessu 1938 sá
hann seríu á lagernum sem
ekki hafði selst fyrir jólin
og spurði hvort hann gæti
fengið hana á afborgunum.
Hann fékk seríuna en var
aldrei rukkaður fyrir hana
og á hann þessa seríu – og
kassann utan af henni – enn
þá, 66 árum síðar, og verð-
ur hún sett upp um þessi jól
sem önnur.
Gott aðgengi
og góð þjónusta
ÉG vil benda á gott aðgengi
fyrir fólk í hjólastólum í
Hagkaupum í Kringlunni.
Ég nota hjólastól og oft er
svo þröngt að keyra á milli
afgreiðsluborða í verslun-
um. En í Hagkaupum er
endakassi þar sem er gott
pláss og mjög gott að fara
framhjá í hjólastól.
Eins vil ég nefna að
stúlkan sem afgreiddi mig
var mjög liðleg og setti allt í
pokann fyrir mig.
Kolbrún Dögg
Kristjánsdóttir.
Góð ferð
á góðu verði
FERÐAMENN sem ætla
að skreppa til Kanarí ættu
að skoða ferðir á netinu hjá
www.sumarferdun.is.
Ég fór í ferð á þeirra veg-
um og hún var mjög góð og
á góðu verði og frábært
hótel sem ég var á. Far-
astjórarnir fá líka hrós fyr-
ir góða framistöðu.
G.I.K.
Tapað/fundið
Geisladiskamappa
glataðist
GEISLADISKAMAPPA
með fjölmörgum diskum
gleymdist í íþróttahúsinu
við Austurberg í Breiðholti
um seinustu helgi. Þegar
eigandi möppunnar ætlaði
að ná í hana daginn eftir
var hún hvergi finnanleg.
Þessarar möppu er mjög
sárt saknað og sá sem hef-
ur upplýsingar um hvar
hana er að finna er beðinn
að hafa samband í síma
697 7565.
Lyklafjarstýring
týndist
FJARSTÝRING af bíl,
brún, ílöng, leðurklædd og
á henni stendur gamma,
datt af lyklakippu, líklega á
planinu hjá Br. Ormsson,
Lágmúla, eða við flug-
björgunarsveitarhúsið við
Flugvallarveginn fyrir ca 2
vikum. Ef einhver hefur
fundið hana þá vinsamlega
hringið í Ágúst í síma
554 1063 eða 898 1063.
Kvengleraugu týndust
BRÚN kvengleraugu týnd-
ust miðvikudaginn 26. nóv-
ember sl., líklega við bens-
ínstöð í Árbænum. Skilvís
finnandi hafi samband í
síma 899 7598.
Eyrnalokkur í óskilum
Gulleyrnalokkur fannst í
Kjörgarði við Laugaveg sl.
mánudag. Upplýsingar í
síma 552 2576 eða 698 9273.
Dýrahald
Yndislega læðu
vantar heimili
2 ára steingráa læðu vantar
heimili vegna barnseignar
eiganda. Eyrnamerkt,
geld, ormahreinsuð og
bólusett. Kassi, karfa og
klóruprik fylgja. Upplýs-
ingar gefur Siggi í síma
862 8016. Sjá einnig http://
toy.dimon.is/arri/
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
LÁRÉTT
1 gista, 4 teyga, 7 siða, 8
reipi, 9 stormur, 11 beð í
garði, 13 þvingar, 14
halda sér vel, 15 málmur,
17 mynni, 20 ýlfur, 22
seinkar, 23 gera gramt í
geði, 24 kremja, 25 hani.
LÓÐRÉTT
1 brúkar, 2 hnappur, 3
mjög, 4 þakklæti, 5 bölið,
6 tossar, 10 eldstæði, 12
álít, 13 knæpa, 15 erum
færir um, 16 hrósar, 18
bölva, 19 klettur, 20
kæpa, 21 mökk.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 baneitrað, 8 afboð, 9 tætti, 10 ill, 11 siður, 12
annað, 15 flagg, 18 hrátt, 21 jór, 22 sadda, 23 ölinu, 24
æðilangur.
Lóðrétt: 2 amboð, 3 eyðir, 4 titla, 5 aftan, 6 haus, 7 eirð,
12 ugg, 14 nær, 15 foss, 16 andað, 17 gjall, 18 hrönn, 19
álinu, 20 taug.
Krossgáta
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16