Morgunblaðið - 07.12.2003, Blaðsíða 53
AUÐLESIÐ EFNI
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. DESEMBER 2003 53
MÖRG þúsund snjótittlingar
voru um daginn við
kartöflugarða á Suðurlandi.
Bændurnir á bæjunum þar
sem garðarnir eru hafa aldrei
séð annað eins. Jóhann Óli
Hilmarsson fuglafræðingur
segist aldrei hafa séð annað
eins heldur. Snjótittlingar eru
oft margir saman í hóp en
þarna voru þeir um 5.000.
„Fuglarnir hafa greinilega nóg
að éta en þeir koma sér
eitthvað annað þegar þeir eru
búnir með þennan kornakur,“
sagði Jóhann Óli.
Ljósmynd/Jóhann Óli HilmarssonFrá Helgastöðum á Skeiðum.
Fimm þúsund snjótittlingar
Fatlaðir
mæta vel
í vinnuna
FATLAÐIR eru sjaldnar veikir
en aðrir og mæta betur til
vinnu. Fatlaðir hafa oft langa
starfsreynslu hjá sama
fyrirtæki. Þeir eru tryggir
vinnuveitendum sínum. Um
þetta var talað á þingi um mál
fatlaðra í liðinni viku.
„Fatlaðir eru duglegir,
samviskusamir og ánægðir
með sinn vinnustað,“ sagði
Rannveig Tryggvadóttir sem
hefur rannsakað vinnustaði
fatlaðra. Að veita fötluðu fólki
vinnu er liður í velgengni
fyrirtækis og að skapa
jákvæða ímynd og umfjöllun,
sagði Rannveig.
Finnur Geirsson, forstjóri
Nóa-Síríusar, sagði að nokkrir
fatlaðir einstaklingar hefðu
starfað lengi í fyrirtækinu og
að reynslan hefði verið góð.
Finnur sagði að sem betur fer
væru engir tveir menn eins því
að fjölbreytnin væri góð.
Á þinginu var talað um að
það yrði að eyða fordómum.
Nú er Evrópuár fatlaðra og er
markmiðið að skapa „eitt
samfélag fyrir alla“.
Netfang: auefni@mbl.is
SPRENGING varð í
járnbrautarlest í suðurhluta
Rússlands í gærmorgun.
Talið er að um
sjálfsmorðsárás hafi verið að
ræða. Að minnsta kosti 40
manns fórust í árásinni. Um
150 særðust.
Sprengingin varð um kl.
fimm að íslenskum tíma.
Sprengingin var mjög öflug.
Einn járnbrautarvagnanna
tættist í sundur. Lestin
sprakk í loft upp í hjá bænum
Míneralnje Vodí. Hann er í
Stavropol-héraði við
landamæri Tétsníu.
ITAR-TASS-fréttastofan hafði
eftir innanríkisráðherra
Rússlands að um
sjálfsmorðsárás hafi verið að
ræða. Kona hefði borið
sprengjuna og fórnað lífi sínu
í árásinni.
Tétsneskir skæruliðar eru
taldir bera ábyrgð á nokkrum
hryðjuverkum þarna. Tvær
sprengingar urðu fyrir tveimur
mánuðum á sama
járnbrautarspori. Þá fórust 4
og 32 slösuðust.
Skæruliðar berjast fyrir
stofnun sjálfstæðs ríkis í
Tétsníu. Tétsnía tilheyrir nú
Rússlandi.
Fjöldamorð
í Rússlandi„ÞETTA var hreint út sagt
æðisleg tilfinning og algjör
draumur að rætast hjá mér,“
sagði Ólafur Ingi Skúlason,
20 ára landsliðsmaður í
knattspyrnu, eftir að hann
fékk fyrsta tækifæri sitt með
aðalliði Arsenal – þegar liðið
burstaði Wolves, 5:1, í fjórðu
umferð
deildabikarkeppninnar fyrir
framan 29 þúsund
áhorfendur á Highbury,
heimavelli Arsenal, á
þriðjudagskvöld.
Ólafur Ingi kom inn á á 55.
mínútu í stöðu hægri
bakvarðar og hann kom við
sögu í öðru marki liðsins.
Hann átti góða sendingu á
Sylvain Wiltord upp í hægra
hornið og eftir fyrirgjöf
Wiltords skoraði Kanu af
stuttu færi.
„Það kom mér á óvart
þegar ég var beðinn um að
gera mig kláran. Ég var rétt
byrjaður að skokka þegar
kallið kom þar sem Justin
Hoyte meiddist. Ég hafði því
engan tíma til að gera mig
kláran andlega. Ég var
taugaóstyrkur fyrstu fimm
mínúturnar eða svo en þegar
ég náði að vinna fyrstu
tæklinguna náði ég að hrista
af mér stressið og ég var
bara mjög sáttur við mína
frammistöðu,“ sagði Ólafur
Ingi, en heilræðið sem hann
fékk frá Arsene Wenger,
knattspyrnustjóra Arsenal, er
hann fór inná var að hann
ætti fyrst og fremst að
einbeita sér og fara sér að
engu óðslega.
Þegar Ólafur Ingi var
spurður hvernig hafi verið að
leika með stórstjörnum eins
og Patrick Vieira, Sylvain
Wiltord og Kanu, sagði hann:
„Það var alveg frábært. Ég
var með Wiltord fyrir framan
mig sem var mjög gott og
Vieira var eins og kóngur á
miðjunni. Þeir hjálpuðu okkur
yngri leikmönnum og Vieira
stappaði í mig stálinu þegar
ég kom inn á. Hann sagði
mér að slaka á og njóta þess
að vera kominn inn á sem ég
og gerði en stemningin á
Highbury var frábær að
vanda. Það er gaman að geta
sagt að ég hafi spilað með
mönnum eins og Vieira og
Wiltord.“
Ólafur Ingi lék með Arsenal
Arsenal FC/Stuart MacFarlane
Ólafur Ingi Skúlason á ferð-
inni með knöttinn með aðal-
liði Arsenal.
ÍSLENSKU -
tónlistarverðlaunin verða
afhent á næsta ári í janúar.
En fyrst þarf að tilnefna þá
sem koma til greina. Það var
gert á fimmtudaginn í
Borgarleikhúsinu. Þá voru
lesin upp nöfn þeirra sem
koma til greina.
Verðlaun verða veitt fyrir
klassík, popp og djass. Í
klassík fékk Kammersveit
Reykjavíkur flestar
tilnefningar eða þrjár. Í poppi
fékk rokkhljómsveitin Mínus
fjórar tilnefningar.
Söngvarinn í hljómsveitinni
fékk líka tilnefningu sem
besti söngvarinn. Hann er
kallaður Krummi og er sonur
söngvarans Björgvins
Halldórssonar. Það er gaman
að Björgvin var líka tilnefndur
sem besti söngvarinn.
Plata Mínus kemur til
greina sem besta plata
ársins 2003.
Í djassi fékk Hilmar
Jensson flestar tilnefningar,
þrjár.
Ljósmynd/Börkur Sigþórsson
Grallararnir í Mínus. Krummi er í miðjunni.
Tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna
Mínus fékk
flestar til-
nefningar