Morgunblaðið - 07.12.2003, Síða 55

Morgunblaðið - 07.12.2003, Síða 55
FÓLK Í FRÉTTUM MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. DESEMBER 2003 55 Dreifing. Hönnun og umbrot • S. 577 1888 Fæst í næstu bókabú› Jólin í boltanum Vegna mikillar aðsóknar í fyrra, pantið borð tímanlega! Síminn er 568 0878 • www.kringlukrain.is 23. desember Verð aðeins kr.2.490 Skötuveisla og fiskihlaðborð Þorláksmessuskatan Sterk kæst skata Lítið kæst skata Kæst tindabikkja Kæstur hákarl Saltfiskur Sigin ýsa Ný soðin ýsa Djúpsteikt ýsa Pönnusteikt rauðspretta Soðinn lax Fiskibollur Plokkfiskur Hnoðmör og hamsatólg Brætt smjör Gulrætur og rófur Soðnar kartöflur Rúgbrauð og smjör Nýbakað brauð Fyrir þremur áratugum eðasvo var ekki hlaupið að því aðkomast yfir bandarískanblús og þjóðlagatónlist, en nóg í boði af proggi, poppi og ámóta. Vestur í bæ var aftur á móti bóka- safn í tengslum við bandarísku menningarstofnunina og á því safni var hægt að fá lánaðar plötur. Þar innan um var hægt að finna sitthvað merkilegt, gamlan blús, þjóðlaga- popp og þjóðlega tónlist almennt, en skemmtilegustu plöturnar voru margar frá sama fyrirtækinu, Folkways. Síðar komst ég í samband við eiganda þess fyrirtækis, Moses Asch, skrifaðist á við hann um tíma, og keypti frá honum kassettur með Folkways-tónlist, enda var það ódýrara en að kaupa plötur. Moses Asch er löngu dauður, lést 1986 skömmu fyrir 81. afmælisdaginn sinn, en framlag hans til bandarískr- ar tónlistarsögu verður æ merki- legra eftir því sem árin líða. Í bluegrass-æðinu mikla sem gekk yfir heimsbyggðina í kjölfar kvik- myndarinnar ágætu O Brother Where Art Thou, kviknaði líka áhugi fyrir þjóðlegri tónlist almennt, hvort sem það var sveitablús frá Miss- issippi eða sveitasöngvar frá Appa- lachian-fjöllum. Í þeirri vakningu sóttu menn oftar en ekki í upp- tökusafn Folkways-útgáfu Moses Asch sem er nú í eigu og umsjá Smithsonian stofnunarinnar banda- rísku, en þar er að finna eitt mesta og merkasta safn af þjóðlegri tónlist sem um getur. Byrjað á jaðrinum Moses „Moe“ Asch var pólskur gyðingur, fæddur í Varsjá í byrjun desember 1905 og fluttist til New York með foreldrum sínum barn- ungur að aldri. Hann sneri aftur til Evrópu um tíma, lærði útvarps- virkjun í Þýskalandi, en sneri svo aftur heim til Bandaríkjanna um miðjan þriðja áratuginn. Hann vann við útvarpsstöðvar en tók síðan að sér upptökustjórn á útvarpsþáttum og í framhaldi af því að hljóðrita tón- list, ræður og upplestra fyrir ýmis plötufyrirtæki. Hann sérhæfði sig í að taka upp það sem stórfyrirtækin höfðu ekki áhuga á, tónlist ýmissa menningarkima, messur og þjóð- lagasöng. Á fjórða áratugnum varð til þjóð- lagasöngvahefð á austurströnd Bandaríkjanna. Eitt af einkennum hennar var vinstrimennska. Kemur kannski ekki á óvart að stórfyrir- tæki voru ekki ýkja spennt fyrir því að hljóðrita söngva þar sem hvatt var til þess að þau yrðu þjóðnýtt eða lögð niður og því leituðu tónlist- armenn til smáfyrirtækja og ein- staklinga þar á meðal Moses Asch. Í upphafi fimmta áratugarins hafði Asch komið sér upp hljóðveri og lagði höfuðáherslu á cantor- söngva og aðra trúarlega tónlist gyðinga. Hann var þó til í að taka upp alla tónlist sem eitthvað var spunnið í á annað borð og þangað kom Huddie William Ledbetter, sem þekktur er sem Leadbelly að taka upp og í kjölfar hans fleiri þjóðlaga- tónlistarmenn, djassarar og blús- söngvarar, Mary Lou Williams, Sonny Terry, Woody Guthrie, Josh White og Pete Seeger. Hann gerði meira en að taka upp, hann gaf líka út, fyrst á útgáfu sem hann kallaði Disc og síðan á Folkways-merkinu frá seinni hluta fimmta áratugarins. 2.100 plötur Moses Asch var ótrúlega drífandi maður og áhugasamur um það sem hann tók sér fyrir hendur eins og sannaðast á því gríðarlega magni sem hann hljóðritaði af tónlist og gaf út næstu áratugina, en einnig gaf hann út talsvert af tónlist sem hon- um barst utan úr heimi, barna- tónlist, þjóðlega tónlist víða að og svo má telja. Alls gaf hann út um 2.100 plötur á Folkways-merkinu frá 1948 þar til hann lést, en eitt af sér- kennum hans sem útgefanda var sú ófrávíkjanlega regla að allar plötur skyldur vera fáanlegar hjá útgáf- unni; engin plata hætti að vera fáan- leg þó fáir eða enginn vildi kaupa, en hann lét þau orð falla eitt sinn að hætta að eiga til plötur vegna þess að fáir vilji kaupa sé eins og hætta að nota þá bókstafi úr stafrófinu sem minnst eru notaðir. Áður er getið tónlistarmanna eins og Woody Guthrie og Pete Seeger sem Asch hljóðritaði og gaf út, en hann gaf einnig út fyrstu lög Bobs Dylans, sem Dylan hljóðritaði undir nafninu Blind Boy Grunt, plötu með Phil Ochs, Dock Boggs, Elizabeth Cotten, Woody Guthrie, Doc Wat- son, Dave Van Ronk og ekki má gleyma fyrstu breiðskífum Lucinda Williams, Ramblin’ og Happy Wom- an Blues, sem Folkways gaf út. Smithson-stofnunin tekur við Eins og fram kemur í upphafi lést Asch fyrir rúmum sautján árum, en áður en hann féll frá var hann búinn að búa svo um hnútana að Smit- hsonian-stofnunin bandaríska keypti af honum útgáfurétt að öllum plöt- unum og skuldbatt sig til að allar yrðu alltaf fáanlegar. Það hefur og gengið eftir því hægt er að fá hvaða plötu sem er af þeim ríflega 2.000 sem Folkways gaf út, ef ekki sem eiginlega útgáfu þá sem brennda diska, CDR. Einnig hefur stofnunin tekið saman ýmsar safnplötur og sérútgáfur af Folkways-upptökum og gert einkar vel og veglega. Þær plötur eru gefnar út undir heitinu Smithsonian Folkways og allat gæðagripir, hvort sem það eru fram- úrskarandi upptökur með Woodie Guthrie, safn af fjallatónlist frá Ken- tucky eða tónlist úgandískra gyð- inga. Því er þessi samantekt til orðin að ég rakst á verslun sem selur plötur frá Smithsonian Folkways, er reyndar með umboð fyrir þær út- gáfur og fleiri til. Rafgrein heitir sú og er í Álfheimum 6. Opið er á sér- stökum tímumn, á virkum dögum milli kl. 16 og 18 og á laugardögum milli kl. 15 og 17, en vel er þess virði að kíkja í heimsókn. Mæli sér- staklega með Woodie Guthrie- skífunum, sem eru það besta sem eftir hann liggur, en plötur Lucinda Williams eru ekkert slor, Mountain Music of Kentucky, gamla platan endurbætt og aukin, er mikil snilld- arskífa og Abayudaya, tónlist gyð- inga í Úganda, sem er hreint af- bragð, en sú er hljóðrituð á síðasta ári, enda heldur Smithsonian- stofnunin uppi merki Folkways með miklum sóma. Tónlist á sunnudegi Árni Matthíasson Mesta og merkasta safnið Merkasta útgáfa á þjóðlaga- og þjóðlegri tónlist vestan hafs, og þótt víðar væri leitað, var Folk- ways-útgáfa Moses Asch. Tónlistin sem hann hljóðritaði er nú fáanleg hér á landi aftur eftir langt hlé í útgáfu Smithsonian-stofnunarinnar. Morgunblaðið/Árni Torfason Ingi Ingason rekur Rafgrein í Álfheimunum og selur Smith- sonian-Folkways plötur. Nokkuð dæmigerðir Folkways-listamenn; af umslagi plöt- unnar frábæru Mountain Music of Kentucky.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.