Morgunblaðið - 07.12.2003, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 07.12.2003, Blaðsíða 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 7. DESEMBER 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 300 KR. MEÐ VSK. Ein gata, eitt hverfi eða allur bærinn www.postur.is Kortleggðu næstu markaðssókn með Fjölpósti. LÖGREGLAN á Egilsstöðum stöðvaði tvo starfsmenn á veghefli og jarðýtu á Fljótsdals- heiði síðdegis á föstudag og reyndust báðir mennirnir vera undir áhrifum áfengis. Lögreglan var á eftirlitsferð um virkjunar- svæðið þegar hún stöðvaði mennina þar sem þeir voru við störf á vinnuvélunum í tengslum við virkjunarframkvæmdirnar á Kárahnjúkum. Voru þeir færðir til Egilsstaða til blóðsýnatöku og vegna frekari rannsóknar. Talið er að menn- irnir hafi verið talsvert undir áhrifum áfengis, samkvæmt upplýsingum lögreglunnar. Fljótsdalsheiði Tveir teknir ölv- aðir á vinnuvélum ÞESSI börn höfðu sannarlega unnið fyrir bíóferð og poppinu í hléinu því þarna voru á ferðinni tombólubörn Rauða kross Íslands en þau hafa safnað nærri 400 þúsund krón- þakklætisvott fyrir aðstoðina og Laug- arásbíó bauð tombólubörnum á höfuðborg- arsvæðinu í bíó að sjá myndina Adam og Evu. um á árinu. Féð verður notað til að aðstoða fötluð börn í Afganistan. Um 270 ungir sjálfboðaliðar, sem söfnuðu peningum á þessu ári, hafa fengið sent skírteini sem Morgunblaðið/Árni Torfason Tombólubörnum boðið í bíó KARLMAÐUR um þrítugt réðst á unga konu sem var á morgunskokki í Laug- ardalnum á níunda tímanum í gærmorgun. Maðurinn, sem var vopnaður eggjárni eða hnífi, reyndi að þröngva konunni inn í runna en hún snerist til varnar og réð niðurlögum hans og hljóp hann þá á brott. Lögregla leit- ar mannsins. Hann var dökkklæddur og með svarta húfu og er sennilega um þrítugt, skv. lýsingu hennar. Greip um háls konunnar „Ég var á morgunskokki og var búin að hlaupa í um 40 mínútur þegar ég tók eftir manni á Sundlaugarveginum,“ sagði konan í samtali við Morgunblaðið í gær en hún vildi ekki láta nafns síns getið. ,,Ég tók svo eftir að þessi sami maður sneri við og hélt í hum- átt á eftir mér. Þegar ég var komin inn í dal- inn heyrði ég þunglamalegt hlaup fyrir aftan mig. Það var greinilegt að þar var ekki hlaupari á ferð og hafði ég allan varann á. Ég var sem betur fer í viðbragðsstöðu,“ segir hún. Maðurinn réðst á konuna skammt frá Þróttaraheimilinu í Laugardal. Hún segist hafa gert þau mistök að hlaupa nálægt runna við göngustíginn. „Þegar hann var kominn að mér greip hann um hálsinn á mér aftanfrá og ætlaði sér að ýta mér inn í runnann. Ég brást þannig við að ég sneri mér við og reyndi að fleygja honum. Þá brá honum. Ég sá að það glitti á eggjárn í hendi hans. Ég man ekki hvað gerðist fyrr en hann var kom- inn um tíu metra frá mér og þá kallaði ég á eftir honum að ég hafi séð til hans.“ Konan er líkamsræktarþjálfari og vel á sig komin og gat snúið manninn niður. „Hann hefur ábyggilega séð að ég var orð- in þreytt því ég hafði hlaupið í um 40 mín- útur og hann hefur talið að það yrði ekki mikið mál að ná mér. Hann var ekki vel á sig kominn. Ég hafði nóg til að taka á móti. Það var alveg ljóst hvað hann ætlaði sér og hefði getað gerst þarna en ég var mjög ákveðin og það bjargaði mér,“ segir hún. Skokkar oft um Laugardalinn Konan var að vonum eftir sig eftir þessa óhugnanlegu lífsreynslu þegar Morgunblaðið ræddi við hana í gærmorgun. Hún segist skokka á þessum slóðum þrisvar í viku og aldrei hafa látið sér til hugar koma að hún yrði fyrir árás. „Borgin er bara að breytast og versna,“ segir hún. Kærði hún árásina til lögreglu og gat gefið nokkra lýsingu á manninum. Réðst með eggvopni á unga konu sem var á morgunskokki í Laugardal „Ég var mjög ákveðin og það bjargaði mér“ MIKLAR og jákvæðar breytingar hafa orðið á íslensku samfélagi undanfarin ár að mati Geirs Jóns Þórissonar, yfirlögregluþjóns í Reykjavík, en hann ræðir við Árna Þórarinsson í Tímariti Morgunblaðsins í dag. Geir Jón segir neyslu eit- urlyfja meðal ungs fólks á götum miðborgarinnar hafa minnkað til muna auk þess sem hópamyndun í úthverf- unum hafi einnig nær horfið. „Ég er bjartsýnn á, þangað til annað kemur í ljós, að þessi breyting hafi ekki að- eins orðið fyrir aðgerðir okk- ar heldur eigi sér einnig ræt- ur inni á heimilunum, í bættum samskiptum foreldra og barna. Það eru því ýmis ljós í myrkr- inu,“ segir Geir Jón og bætir við að samstarf líknarfélaga og stofnana ríkis og borgar hafi skilað góðum árangri í umönnun þeirra sem verða undir í samfélaginu. Geir Jón, sem áður var lögreglumaður í Vest- mannaeyjum, segir að það hafi verið mikil við- brigði að hefja störf í Reykjavík árið 1992. „Fyrstu helgina, sem ég starfaði hér, komu upp fleiri mál en á heilu ári í Vestmannaeyjum! Og ég hugsaði með mér: Í hverju er ég lentur!“ Hann segir að þúsundaskarinn í miðborginni hafi verið hættulegur hópur. „Við fyrstu sýn var þetta eins og á þjóðhátíð í Eyjum en svo kom fljótlega í ljós að bragurinn var annar, því miður. Fylliríið var ískyggilegt og spennan í loftinu. Mér blöskraði. Það var hrækt á okkur, sparkað í okkur, flöskum hent í okkur, fyrir utan munn- söfnuðinn. Menn voru hreinlega í stórhættu þarna, helgi eftir helgi.“ Jákvæðar breytingar á íslensku samfélagi Geir Jón Þórisson Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn VERÐLAGSNEFND búvara hefur tekið sam- eiginlega ákvörðun um að heildsöluverð á mjólk og mjólkurafurðum, sem nefndin verð- leggur, breytist ekki um næstu áramót eins og til stóð. Í tilkynningu nefndarinnar segir að verð til framleiðenda hækki um 2,4% sem sé í fullu samræmi við hækkun á vísitölu neysluverðs en að fulltrúar mjólkuriðnaðarins hafi lýst því yf- ir að ekki komi til verðbreytinga á öðrum mjólkurvörum að svo stöddu. Ólafur Friðriksson, formaður nefndarinnar, segir mjólkuriðnaðinn taka á sig hækkunina til framleiðenda, hann greiði hækkunina til fram- leiðanda en að auki muni beingreiðslurnar hækka. Kostar mjólkuriðnaðinn 100 milljónir „Svona gróft má segja að þetta kosti mjólk- uriðnaðinn um 100 milljónir en auk þess fá þeir ekki hækkun vegna vinnslukostnaðar þótt hann hafi vitaskuld hækkað á árinu eins og annað. Þannig að iðnaðurinn tekur á sig tölu- verðan kostnað,“ segir Ólafur. Mjólkurvörur hækka ekki EGGERT Magnússon, formaður Knatt- spyrnusambands Íslands, ræddi við Giovanni Trapattoni, landsliðsþjálfara Ítalíu, í Frank- furt í Þýskalandi á fimmtudagskvöldið og bauð honum að koma með landslið sitt til Ís- lands næsta sumar. „Þegar ég ræddi við Trappattoni benti ég honum á að það væri tilvalið tækifæri að leika æfingaleik við Ísland fyrir Evrópukeppnina sem verður í Portúgal í júní. Sagði honum að við lékjum svipaða knattspyrnu og Svíar og Danir, sem eru með Ítölum í riðli. Trappat- toni tók ekki illa í boðið og fannst það áhuga- vert. Við munum hafa samband við ítalska knattspyrnusambandið á næstu dögum til að ítreka boðið. Það væri stórkostlegt að fá landslið Ítalíu í heimsókn til Íslands,“ sagði Eggert við Morgunblaðið. Bauð Ítölum til landsleiks á Íslandi ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.