Morgunblaðið - 10.01.2004, Page 6
FRÉTTIR
6 LAUGARDAGUR 10. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Útsala
50% afsláttur
Skólavörðustígur 8
Sími: 552 4499
tsalan
er hafin
„ÞETTA er frábært framtak og
þeir eiga heiður skilinn,“ sagði
Magnús Karlsson á meðan hann
dældi bensíni á bíl sinn á af-
greiðslustöð Atlantsolíu í Kópa-
vogi síðdegis í gær. „Það skiptir
sköpum að bensínverð lækki,“
bætti hann við.
Löng biðröð bíla var við sjálfs-
afgreiðslustöðvar Orkunnar og
Atlantsolíu í Kópavogi síðdegis í
gær. Biðu ökumenn eftir því að
geta keypt ódýrt bensín eftir
lækkun lítraverðsins um tvær til
þrjár krónur í fyrradag í kjölfar
þess að Atlantsolía hóf sölu á 95
oktana bensíni. Þar kostar lítrinn
nú 92,50 kr. og jöfnuðu ÓB og Esso
Express það verð. Hjá Orkunni
kostar lítrinn 92,40 kr. en 91,40
kr. við Skemmuveg í Kópavogi -
þar sem það er ódýrast á landinu.
Hver króna skiptir máli
„Okkur munar mikið um þetta.
Við tökum bensín á einkabílinn
fyrir um 30 þúsund krónur á mán-
uði og því skiptir hver króna
máli,“ sagði Sigurður Sæmunds-
son sem var að fylla bíl sinn hjá
Orkunni við Skemmuveg ásamt
Súsönnu Jónsdóttur. Sagði hann
þennan sparnað safnast fljótt sam-
an og það hefði áhrif á hvar þau
kaupi bensín.
Súsanna sagðist alveg vilja
versla við Atlantsolíu en þangað
væri langt að fara því þau byggju í
Breiðholti. Opni fyrirtækið fleiri
afgeiðslustaði muni þau alveg eins
beina viðskiptum sínum þangað, sé
verðið samkeppnishæft.
Magnús hafði beðið nokkuð
lengi í röð hjá Atlantsolíu þegar
röðin kom að honum að dæla.
Sagðist búa í Árbæ en styðja sam-
keppnina og af þeim sökum eigi
hann viðskipti við Atlantsolíu.
„Fólk leggur mikið á sig til að
koma hingað,“ sagði hann og benti
á röðina fyrir aftan bílinn. „Þeir
eru búnir að redda þjóðfélaginu,“
bætti hann við en sagðist alveg
geta verslað við aðra lækki þeir
verðið enn frekar.
Samkeppni skiptir máli
Móses Geirmundsson var að
ljúka við að setja bensín á sinn bíl
hjá Esso Express við Hæðarsmára
og sagði aukna samkeppni á bens-
ínmarkaði skipta mjög miklu máli.
Hann hafi átt leið hjá þessari af-
greiðslustöð og séð hvað verðið
var lágt þegar hann ákvað að setja
bensín á bílinn. „Þetta var greið-
færasta leiðin og mér leist ekki á
umferðina,“ var svar hans að-
spurður hvort hann verslaði við
Atlantsolíu. „Atlantsolía á þakkir
skildar og ég get vel hugsað mér
að versla þar,“ sagði hann.
„Ég hugsa ekki mikið út í sam-
keppnina,“ sagði Agnes Björg
Bergþórsdóttir sem var á sjálfs-
afgreiðslustöð ÓB við Bæjarlind.
Það var því ekki lækkunin á bens-
ínverði sem réð því að hún valdi
ÓB heldur venur hún oftast komur
sínar á sjálfsafgreiðslustöðvar
þegar hún tekur bensín. Hún átti
leið fram hjá þessari stöð og það
vantaði á tankinn. Þó sé auðvitað
gott ef bensínverðið lækki.
Þjónustustöðvar lækka verð
Olíufélagið Esso tilkynnti svo
síðdegis í gær að bensínverð á
þjónustustöðvum á höfuðborg-
arsvæðinu, Keflavík og Akureyri
lækkaði um 7,20 kr. dæli ökumenn
sjálfir. Kostar lítrinn þá 93,70 kr.
en 92,70 kr. á þjónustustöðinni í
Stórahjalla, sem er næst af-
greiðslustöð Orkunnar við
Skemmuveg. Bæði Olís og Skelj-
ungur fylgdu á eftir og lækkuðu
verð á bensíni í sjálfsafgreiðslu
einnig í 93,70 krónur. Lækkun
Skeljungs nær til afgreiðslustöðva
á höfuðborgarsvæðinu, Akranesi,
Grindavík og Selfossi, en félagið
er ekki með neina bensínstöð í
Keflavík.
Biðraðir á bensínstöðvum á höfuðborgarsvæðinu eftir ódýru bensíni
Morgunblaðið/Þorkell
Agnes Björg Bergþórsdóttir keypti bensín hjá ÓB. Magnús Skúlason keypti bensín hjá Atlantsolíu.
Sigurður Sæmundsson og Súsanna Jónsdóttir keyptu bensín hjá Orkunni.
Móses Geirmundsson keypti bensín hjá Esso Express.
„Okkur munar
mikið um þetta“
Þjónustustöðvarnar lækkuðu
einnig sjálfsafgreiðsluverðið
HÉRAÐSDÓMUR Reykja-
ness dæmdi í gær Ástrala í
fimm mánaða fangelsi fyrir
brot á lögum um útlendinga
með því að hafa smyglað til
landsins tveim kínverskum
stúlkum sem framvísuðu föls-
uðum japönskum vegabréfum í
Leifsstöð. Sjálfur framvísaði
hann fölsuðu bresku vegabréfi.
Gæsluvarðhaldsvist ákærða
frá 7. nóvember var dregin frá
refsingunni.
Guðmundur L. Jóhannesson
héraðsdómari dæmdi málið.
Verjandi ákærða var Sveinn
Andri Sveinsson hrl. og sækj-
andi Sævar Lýðsson fulltrúi
sýslumannsins á Keflavíkur-
flugvelli.
5 mánaða
fangelsi
fyrir smygl
á fólki
KARLMAÐURINN sem
fannst meðvitundarlaus á botni
Breiðholtslaugar á miðviku-
dagskvöld er enn á gjörgæslu-
deild Landspítalans við Hring-
braut. Honum er haldið sofandi
í öndunarvél og er líðan hans
óbreytt frá innlögn.
Maðurinn fannst á 180 cm
dýpi í lauginni og var strax sett
af stað neyðaráætlun hjá
starfsfólki laugarinnar sem hóf
lífgunartilraunir á meðan beðið
var eftir sjúkrabíl.
Enn á gjör-
gæslu eftir
sundlaug-
arslys
NÍU ára stúlka sem varð fyrir
riffilskoti á Hallormsstað síð-
astliðinn mánudag er á bata-
vegi á legudeild Barnaspítala
Hringsins. Hún var útskrifuð af
gjörgæsludeild á fimmtudag og
segir læknir hennar að bati
hennar gangi kraftaverki næst,
en hún fékk riffilkúlu í gegnum
brjóstholið eftir voðaskot. Lög-
reglan á Egilsstöðum rannsak-
ar tildrög slyssins.
Á batavegi
eftir voðaskot
TVEIR erlendir karlmenn,
annar frá Evrópu og hinn frá
Afríku voru dæmdir í 4 mán-
aða fangelsi í Héraðsdómi
Reykjaness í gær fyrir skjala-
fals. Mennirnir voru hand-
teknir 19. og 20. desember,
annar strax í Leifsstöð með
falsað vegabréf og hinn daginn
eftir á gistiheimili í Reykjavík.
Í fórum þeirra fundust gögn
sem bentu til þess að þeir
hefðu komið hingað til lands til
að stunda fjársvik.
Mönnunum var birt ákæra
sýslumannsins á Keflavíkur-
flugvelli í gær og játuðu sak-
argiftir varðandi stofnun ís-
lenskrar kennitölu og þriggja
bankareikninga og framvísun
á fölsuðu vegabréfi.
Málið dæmdi Jónas Jó-
hannsson héraðsdómari. Verj-
endur ákærðu voru Jóhannes
Albert Sævarsson hrl. og
Sveinn Andri Sveinsson hrl.
Sækjandi var Eyjólfur Krist-
jánsson sýslumannsfulltrúi.
4 mánaða
fangelsi fyrir
skjalafals
STUTT
VERIÐ er að skipta um hreyfil í
Boeing 777 breiðþotu bandaríska
flugfélagsins United sem lenda varð
sl. þriðjudag á Keflavíkurflugvelli
vegna hreyfilbilunar. Nokkrir flug-
virkjar félagsins voru sendir til lands-
ins til að vinna að verkinu sem áætlað
er að taki kringum 20 tíma.
Vinna þarf að verkinu utan dyra
þar sem vélin kemst ekki að í við-
haldsstöð Icelandair. Trausti Tómas-
son, starfsmaður hjá flugvallarstjóra
Keflavíkurflugvallar, upplýsti Morg-
unblaðið að þar sem veður væri hag-
stætt ætti verkið að ganga vel.
Boeing 747 breiðþota frá bandaríska
fraktfélaginu Kalitta var væntanleg í
gærkvöld með nýjan hreyfil og nauð-
synlegan búnað til að skipta um.
Áætlað er að þotan haldi héðan að
morgni sunnudags.
Þormóður Þormóðsson, rannsókn-
arstjóri Rannsóknarnefndar flug-
slysa, segir málið til meðferðar hjá
nefndinni. Hafa fulltrúar RNF haft
samband við bandarísku rannsóknar-
nefndina. Niðurstaðna sé að vænta á
næstunni en tveggja hreyfla vélar
sem fljúga á langleiðum yfir sjó lúta
sérstökum reglum.
Allt er þegar þrennt er
Fram hefur komið að flugstjórinn
var sá sami og lenda varð sams konar
vél á Keflavíkurflugvelli í ágúst vegna
bilunar. Þormóður nefndi að þegar
hann fékk tilkynningu um atvikið til
RNF hafði hann strax samband við
bandarísku nefndina og þá varð fyrir
svörum sami sérfræðingur á vakt og
hafði verið í ágúst-tilvikinu. Í þriðja
lagi voru sömu flugvirkjar á vakt hjá
Icelandair að þessu sinni og þegar
flugvirkjar voru kallaðir til í ágúst.
Unnið að hreyfil-
skiptum í þotu United