Morgunblaðið - 10.01.2004, Síða 67
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JANÚAR 2004 67
DAGBÓK
Byrjendanámskeið í kvennaguðfræði hefst þriðjudaginn 13. janúar
og framhaldsnámskeið mánudaginn 12. janúar.
Tími: Kl. 17.30 til 19.00 í sex vikur.
Úrvalskennarar.
Námskeið um líðan fólks sem annast langveika ættingja hefst
fimmtudaginn 15. janúar
Tími: Kl. 17.30 til 19.00 í fjórar vikur.
Úrvalskennarar.
Kvennakirkjan, Laugavegi 59, sími 551 3934
Hvernig líður þér?
Það skiptir mestu hvað þú hugsar, sérlega um sjálfa
þig. Og að þú leyfir þér að gera lífið skemmtilegt.
Kvennaguðfræðin ber fram grundvallarspurningar
og góð svör.
Allt á að seljast
Laugavegi 20b, sími 552 2515
ÚTSALAN ER BYRJUÐ
50% AFSLÁTTUR
Gerðu kaup ársins
ÚT-
SALA
hefst í dag
laugardag 10. janúar
MINNST 40% AFSLÁTTUR
Opið laugard. 10 -18
sunnud. 13 - 17
Kringlunni 7, sími 588 4422
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
STEINGEIT
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert þrautseig/ur og úr-
ræðagóð/ur. Þú hefur mik-
inn metnað og leggur hart
að þér til að ná markmiðum
þínum. Gerðu ráð fyrir auk-
inni einveru á komandi ári.
Þú þarft að læra eitthvað
mikilvægt.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þér líður betur en þér hefur
gert að undanförnu. Þú ert
örugg/ur og vinsamleg/ur og
færð miklu áorkað.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Ferðaáætlanir þínar líta sér-
staklega vel út. Þú gætir einn-
ig fengið gott tækifæri í
tengslum við framhalds-
menntun, lögfræði og útgáfu-
starfsemi.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Það lítur út fyrir að alheim-
urinn muni bera þig á höndum
sér í dag. Þú munt hugsanlega
njóta góðs af auði annarra.
Hafðu augun opin fyrir nýjum
tækifærum.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú átt auðvelt með að
skemmta þér með öðrum í
dag. Það eru góðvild, sam-
kennd og jafnvægi í kringum
þig. Láttu það ekki á þig fá
þótt það fari meiri tími í spjall
en vinnu í dag.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú getur afkastað miklu í dag.
Þú ættir þó að líta gagnrýnum
augum á það sem þú ert að
gera og íhuga hvort það þjóni
markmiðum þínum.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þetta getur orðið mjög
skemmtilegur dagur.
Skemmtanalífið og ástarmálin
ættu að ganga vel. Njóttu lífs-
ins.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Dagurinn hentar vel til að
huga að umbótum á heimilinu.
Leitaðu leiða til að bæta að-
stæður fjölskyldu þinnar með
einhverjum hætti.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Bjartsýni þín laðar að þér fólk
í dag. Þú ert svo jákvæð/ur og
vinsamleg/ur að fólk hreinlega
stenst það ekki. Vertu opin/n
fyrir hvers konar nýjungum.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú munt hugsanlega auka
tekjur þínar með einhverjum
hætti í dag. Þú gætir líka
keypt þér eitthvað stórt sem
mun veita þér ánægju.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú ert bjartsýn/n og jákvæð/
ur og ættir því að geta gert
mikilvægar breytingar á lífi
þínu án hiks eða ótta.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú ert umburðarlynd/ur og
opin/n fyrir nýjum viðhorfum í
dag. Þú sérð að þau eru þér
ekki jafn framandi og þú hafð-
ir áður haldið.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Gefðu þér tíma til að njóta
samvista við einhvern sem
skiptir þig miklu máli í dag.
Öll samskipti ættu að ganga
vel.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
HUGGUN
Ertu nú horfin, þú unaðs tíð,
er álfur í hverri lilju bjó?
Og hvernig er rósin blessuð og blíð
og blómin á fjarrum heiðar mó!
Ertu nú horfin, þú yndis tíð,
er Alvitur fýstist á myrkvan við,
og Svanhvít á dúni svanafríð
söngfugla gladdist við ástarklið?
- - -
Benedikt Sveinbjarnarson Gröndal
LJÓÐABROT
ÁRNAÐ HEILLA
80 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 10.
janúar, er áttræður Sveinn
Pálsson. Hann dvelur,
ásamt eiginkonu sinni Eddu
Ingibjörgu Margeirsdóttur,
á hótel Tenequia á Kan-
aríeyjum.
80 ÁRA afmæli. HjördísSelma Constance
Sigurðardóttir ætlar að
halda upp á afmælið sunnu-
daginn 11. janúar milli kl. 15
og 18 í Ystaseli 26. Hún von-
ast til að vinir og vanda-
menn líti inn en án gjafa eða
blóma.
SVEIT Orkuveitu Reykja-
víkur fór af stað af mestum
krafti í Reykjavíkurmótinu
á miðvikudaginn, en þá hófu
17 sveitir mikla törn, sem
heldur áfram alla helgina og
lýkur næstkomandi laug-
ardag. Á miðvikudaginn
voru spilaðar tvær umferðir
og fékk OR næstum því fullt
hús, eða 49 stig. Í öðru sæti
er Grant Thornton með 45
stig, en sveit Þriggja
Frakka er í þriðja sæti með
43 stig. Fjórar umferðir fara
fram í dag og þrjár á morg-
un. Spilað er í húsnæði BSÍ,
Síðumúla 37, og eru áhorf-
endur velkomnir.
Suður gefur; allir á hættu.
Norður
♠KG873
♥975
♦432
♣92
Vestur Austur
♠D106 ♠942
♥DG6 ♥1084
♦DG ♦Á876
♣ÁK1076 ♣G85
Suður
♠Á5
♥ÁK32
♦K1095
♣D43
Spilið að ofan kom upp í
fyrstu umferð og vakti litla
athygli á flestum borðum.
Yfirleitt vakti suður á einu
grandi og varð svo sagnhafi
í tveimur spöðum eftir yf-
irfærslu. Spilið liggur vel og
flestir sagnhafar fengu níu
slagi með því að svína
spaðagosanum.
Nema þar sem Helgi Jó-
hannsson var í vörninni:
Vestur Norður Austur Suður
– – – 1 grand
Dobl 2 hjörtu * Pass 2 spaðar
Pass Pass Pass
* Yfirfærsla.
Helgi var í vestur. Hann
kom út með laufás, fékk frá-
vísun frá makker sínum
Guðmundi Hermannssyni í
austur, og skipti þá yfir í
hjartadrottningu. Suður tók
slaginn og lagði niður
trompásinn.
Helgi sá hvert stefndi og
lét spaðadrottninguna fum-
laust undir ásinn! Sagnhafi
kolféll fyrir þessari blekk-
ingu. Kom þar tvennt til:
Bæði hvað Helgi var snögg-
ur að láta drottninguna
detta, og svo hitt að dobl
Helga á grandinu lofaði
langlit einhvers staðar (sem
líklega er laufið) og þar með
var ekki ósennilegt að ein-
hvers staðar væri hann
stuttur fyrir.
Suður ákvað sem sagt að
hreyfa ekki trompið meira
að sinni. Hann spilaði hjarta
tvisvar og Helgi lenti inni á
gosanum. Og spilaði tígul-
drottningu. Guðmundur tók
með ás og spilaði laufgosa.
Aftur kom lauf og trompað í
blindum. Nú spilaði sagn-
hafi tígli á kónginn (og gos-
inn féll). Þegar hér er komið
sögu er orðið ljóst að ein-
hvers staðar er maðkur í
mysunni, en suður var enn á
valdi blekkingarinnar og
spilaði hjarta. Helgi tromp-
aði (óvænt) og sagnhafi
henti tígli úr borði. Þá kom
lauf og þar með varð
trompnía austur að slag!
Vörnin fékk þannig tvo
slagi á tromp og spilið fór
einn niður.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson
70 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 10.
janúar, er sjötugur Hjörtur
Guðmundsson, Hjalla-
brekku 15, Kópavogi. Eig-
inkona hans er Guðný Erna
Sigurjónsdóttir. Hann og
fjölskylda hans taka á móti
gestum í Gjábakka, Fann-
borg 8, Kópavogi, frá kl.
15.30.
50 ÁRA afmæli. Sunnu-daginn 11. janúar
verður fimmtugur Kristján
G. Jóhannsson. Í tilefni af
því taka hann og eiginkona
hans, Inga S. Ólafsdóttir, á
móti gestum í dag, laug-
ardaginn 10. janúar, frá kl.
19 í sal Frímúrara á Ísafirði.
1. c4 Rf6 2. Rc3 e6 3. g3 d5
4. cxd5 exd5 5. Bg2 c5 6. e3
Rc6 7. Rge2 Be6 8. Rf4 Dd7
9. d4 cxd4 10. exd4 Bb4 11.
O-O O-O 12. a3 Ba5 13. He1
Hfe8 14. Be3 a6 15. Rxe6
Hxe6 16. Bh3 Hae8 17.
Bxe6 Hxe6 18. Db3 Bxc3
19. bxc3 Ra5 20. Dc2 Hc6
21. f3 h6 22. g4 Rc4 23. h4
Staðan kom upp á
alþjóðlegu ung-
lingamóti sem Tafl-
félagið Hellir hélt
fyrir skömmu. Gylfi
Davíðsson (1225)
hafði svart gegn
norska skákmann-
inum Rune Erlands-
en (1371). 23...
Rxg4! Besta leiðin
til að verða sér út
um mótspil þar sem
í framhaldinu þarf
hvítur að tefla af
mikilli nákvæmni til
að halda jafnvæg-
inu. 24. fxg4 Dxg4+ 25.
Dg2 Dxh4 26. Bf2 Dh5 27.
He8+ Kh7 28. Hae1 Rd2!
29. H8e3 Hg6 30. Bg3 Re4
31. Dh2 Dg4 32. Kg2 f5 33.
Hf1 f4 34. Hee1 Rxg3 og
hvítur gafst upp. Íslands-
mót barna hefst í dag, 10.
janúar og fer fram í húsa-
kynnum Taflfélags Reykja-
víkur, Faxafeni 12. Nánari
upplýsingar um mótið er að
finna á vefsíðunni
www.ruv.is./skak.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
Fáðu úrslitin
send í símann þinn
MORGUNBLAÐIÐ birtir til-
kynningar um afmæli, brúð-
kaup, ættarmót og fleira les-
endum sínum að kostnaðar-
lausu. Fólk getur hringt í síma
569-1100, sent í bréfsíma 569-
1329, eða sent á netfangið
ritstj @mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík