Morgunblaðið - 18.01.2004, Síða 4
FRÉTTIR
4 SUNNUDAGUR 18. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
„ÞESSI keppni hefur eitthvað við sig,
gífurlegar vinsældir, gleði og ham-
ingju. Idol hefur orðið til þess að við
sjáum áhorfstölur sem við höfum ekki
séð áður. Ég veit ekki hvaða áhorf við
vorum með [á föstudagskvöld] en
þegar göturnar eru tómar og 150.000
manns hringja, sem er nánast tvö-
földun á metinu hjá RÚV eftir því
sem ég kemst næst, sem ég held að
séu 80.000 atkvæði í Eurovision, þá
getur maður rétt ímyndað sér hversu
margir voru að horfa,“ segir Heimir
Jónasson, dagskrárstjóri Stöðvar 2.
Úrslitaviðureignin í Idol-stjörnu-
leit fór fram í Smáralind í fyrrakvöld
og sendi Stöð 2 beint út frá fjórum
stöðum. Heimir segir vinsældir Idol-
stjörnuleitar hafa haft gífurlega þýð-
ingu fyrir Stöð 2, bæði fjárhagslega
og eins hafi það lífgað upp á andann
meðal starfsmanna . „Það er náttúr-
lega búið að vera erfitt. Núna er rosa
meðbyr,“ segir Heimir. Hann segir
áskrifendum stöðvarinnar hafa fjölg-
að mjög frá því sýningar
á Idol-stjörnuleit hófust.
„Ég veit ekki hvað við
komumst hátt en við fór-
um sögulega hátt núna
um jólin. Þetta byrjaði
bara í september þegar
Idol fór í loftið. Það
mynduðust biðraðir í
áskriftinni hvern einasta
föstudag,“ segir Heimir.
Kostnaðurinn
50–60 milljónir
Hann segir Idol-
keppnina dýrasta verk-
efni sem Stöð 2 hafi ráð-
ist í og segist geta
ímyndað sér að kostnaðurinn við
Idol-þættina sé um 50–60 milljónir.
„Það sér enginn eftir því í dag,“ segir
Heimir.
Alls unnu 40 manns við útsend-
inguna á föstudagskvöld, en venju-
lega vinna um 30 manns við hverja út-
sendingu. Heimir
segir að mikið spennu-
fall hafi orðið hjá
tæknifólkinu eftir að
útsendingu lauk en þá
var blásið til teitis í
Vetrargarðinum þar
sem keppnin fór fram.
„Við erum ánægð,
raddlaus og dauð-
þreytt. Það fór ekki
brosið af fólki fyrr en
það fór heim og brosið
er kannski ekki farið
ennþá,“ segir Heimir.
Alls voru um
500.000 atkvæði
greidd meðan á
keppninni stóð, en 99 krónur voru
innheimtar fyrir hvert símtal sem
ætti að þýða 49,5 milljónir í tekjur.
Heimir segir Fremantle, sem á sýn-
ingarréttinn á Idol, fá mjög hátt hlut-
fall af tekjum sem komi inn í at-
kvæðagreiðslu. Þá taki
símafyrirtækin einnig góðan skerf af
kökunni.
„Við reiknuðum aldrei með svona
miklum símatekjum, en þetta er það
dýrt að það er ágætt að við fáum eitt-
hvað upp í þennan gríðarlega kostn-
að. Ég geri ekki ráð fyrir því að pró-
grammið standi undir sér, en við
förum alla vega langt upp í það. Það
er eftir að reikna þetta út, endanlegur
kostnaður liggur heldur ekki fyrir,“
segir hann.
Leit að nýrri íslenskri
söngstjörnu hefst í haust
Heimir segir að blásið verði til
stjörnuleitar í haust og í sumar verði
leitað eftir nýju fólki. Næsta föstudag
verði lokaþátturinn í Idol-stjörnuleit
þar sem farið verði yfir farinn veg.
Sama kvöld hefjist sýningar á Am-
erican Idol, þannig að þeir sem ekki
hafi fengið sinn skerf af keppninni
geti haldið áfram að fylgjast með
stjörnuleit þó að á erlendri grundu sé.
Idol-stjörnuleitin er kostnaðarsamasta verkefni Stöðvar 2 frá upphafi
„Við erum ánægð, dauð-
þreytt og raddlaus“
Heimir Jónasson
HALLDÓR Blöndal, forseti Alþingis
og 2. þingmaður Norðausturkjör-
dæmis, fagnar því mjög að Hólmi ehf.
skuli hafa eignast
71,12% hlutafjár í
sjávarútvegsfyr-
irtækinu Eskju
hf. á Eskifirði.
Fyrir átti Hólmi
37,5% hlut í
Eskju. Að rekstri
Hólma standa
Elvar Aðalsteins-
son, Þorsteinn
Kristjánsson og
Kristinn Aðalsteinsson, sem tóku við
félaginu af Aðalsteini Jónssyni og
Guðlaugu Stefánsdóttur á fimmtu-
dag.
„Eskja er hefur verið burðarás í
atvinnulífinu á Eskifirði og þess
vegna eru það góð tíðindi að heima-
menn skuli ráðnir í að halda því hjá
sér,“ segir Halldór. „Þetta fyrirtæki
á mjög góða sögu. Við vitum að Að-
alsteinn Jónsson hefur axlað betur en
flestir aðrir þá ábyrgð sem því fylgir
að vera burðarás í sínu byggðarlagi
og mér finnst að Elvar Aðalsteinsson
hafi farið í fótspor hans. Mér finnast
þetta því mjög ánægjuleg tíðindi.
Nú er mikið framundan í atvinnu-
lífinu í Fjarðabyggð og ég hef alltaf
sagt að það fari mjög vel saman að
þessi byggðarlög byggi á þessum
tveim sterku einingum, þessum
grónu sjávarútvegsfyrirtækjum og
álverinu sem þar mun rísa. Það styð-
ur hvort annað og veitir meiri fjöl-
breytni í byggðarlaginu þannig að
fólk getur valið úr störfum og á ekki
of mikið undir sama atvinnurekand-
anum. Kjarni málsins er sá að heima-
menn hafa eignarhald á Eskju og eru
staðráðnir í að byggja fyrirtækið upp
með hagsmuni heimabyggðar fyrir
augum.“
Fagnar
auknum
hlut Hólma
í Eskju
Halldór Blöndal
„ÞETTA er eingöngu sett fram í
áróðursskyni,“ segir Guðmundur
Hauksson, sparisjóðsstjóri SPRON,
um könnun Gall-
up á viðhorfum
almennings til
sparisjóðanna og
kaupa banka á
þeim.
Í könnuninni
kemur meðal
annars fram að
nær 68% lands-
manna lítist illa á
þær hugmyndir
að SPRON verði selt Kaupþingi
Búnaðarbanka eða KB banka eins
og hann heitir nú. Guðmundur segir
að mjög leiðandi spurningar séu í
könnuninni og þær snúist ekki um
kjarna málsins, það er um framtíð
SPRON og það sem þar sé verið að
gera. Það sé enginn vandi að spyrja
fólk tilfinningaspurninga á borð við
þær sem séu í könnuninni. „Þá er
niðurstaðan fyrirfram ljós,“ segir
hann.
Guðmundur segir að rangt sé
spurt þegar spurt sé hvort fólk sé
sammála því að það megi selja
stofnfé á yfirverði með þeim hætti
sem það sé að gera. „Það er alls
ekki verið að selja stofnfé á yfir-
verði, þannig að spurningar eru
rangar og það er enginn vandi að fá
villandi niðurstöður þegar svo er
gert,“ segir hann.
Viðhorf almennings til
sparisjóða og kaup
banka á þeim
Segir
könnunina
gerða í áróð-
ursskyni
Guðmundur
Hauksson
KARLI Bjarna Guðmundssyni, eða
Kalla Bjarna, fyrstu Idol-stjörnu Ís-
lands, var fagnað vel og innilega við
komuna heim til Grindavíkur að-
faranótt laugardags eftir að sig-
urinn var í höfn. „Þetta var alveg
rosalegt. Það var tekið á móti mér
með blysum og þetta var rosalega
flott. Það var búið að mynda göng í
gegnum mannmergðina þar sem
allir klöppuðu og svo bara löbb-
uðum við inn og beint upp á svið.
Þar hélt bæjarstjórinn mikla þakk-
arræðu frá bæjarstjórninni, ég fékk
blómakörfu og bærinn gaf mér
100.000 krónur. Þetta var mikil
upplifun,“ sagði Kalli Bjarni hrærð-
ur í gærmorgun þegar Morg-
unblaðið sló á þráðinn til hans.
Brutust í gegnum
ófærðina á jeppa
Keppninni lauk rétt fyrir mið-
nætti en stuðningsmenn Kalla
Bjarna fylgdust með í félagsheim-
ilinu Festi í Grindavík þar sem sigr-
inum var fagnað vel og innilega.
Vonskuveður var á suðvesturhorni
landsins meðan keppnin fór fram
og segir Idol-stjarnan að ferðin til
Grindavíkur hafi gengið ágætlega.
„Við vorum á rútu og Econoline-
jeppa á 44" dekkjum. Jeppinn ruddi
leiðina og svo kom rútan á eftir,“
segir Kalli Bjarni. Það var greini-
lega allt gert til að komast í partíið.
„Svo höfðum við orð á því að björg-
unarsveitin yrði bara kölluð út ef
þetta myndi ekki duga til, miðað við
alla fyrirhöfnina sem var í bænum.“
Kalli Bjarni tók nokkur lög fyrir
stuðningsmenn sína eftir komuna
til Grindavíkur. Hann segir að
bróðurparturinn af keppendunum
sem komust í 32 manna úrslit í Idol-
keppninni hafi ákveðið að skella sér
á sveitaball og komið með í rútuna
til Grindavíkur.
Aðspurður segir Kalli Bjarni að
það hafi verið ótrúlegt að vakna í
gærmorgun sem fyrsta Idol-stjarna
Íslands. „Mér líður bara mjög vel.
Maður er farinn að átta sig á því að
þetta er búið og maður komst alla
leið og það er bara alveg frábært,“
segir Kalli Bjarni sem segir að nú
ætli hann að hella sér af fullum
krafti út í tónlistina. „Ég verð að
halda áfram að syngja. Nú er tæki-
færið. Ég er nú kannski ekki búinn
að segja skilið við sjómennskuna
fyrir fullt og allt, en það verður nú
kannski lítið núna meðan maður er
að sinna því sem fylgir því að vinna
þessa keppni.“ Hann segir að hann
sé strax byrjaður að fá tilboð um að
koma fram, en hann ætli að tala við
umboðsmanninn sem honum var út-
hlutað eftir að sigurinn var í höfn.
En á hann von á að sigurinn
breyti lífi hans mikið? „Það kemur
ábyggilega til með að gera það á já-
kvæðan hátt fyrir mig sem tónlist-
armann. Ég ætla að vona það. Það
er einmitt það sem er aðalbreyt-
ingin að maður fær helling að gera.
Ég hef alltaf óskað þess að geta að
hluta til eða jafnvel alveg lifað af
því sem mér finnst skemmtilegast
að gera og það er einmitt að syngja
og semja tónlist,“ segir Kalli Bjarni.
Sigurlaunin í keppninni voru
plötusamningur og kynningin sem
honum fylgir og þjónusta umboðs-
manns. „Það er byrjað á því að
semja um eina plötu. Þetta er bara
samningsatriði, maður þarf að setj-
ast niður með þessu fólki og finna
út úr þessu.“
Steinhissa hve margir kusu
Alls voru 150.000 atkvæði greidd
í símakosningunni á föstudag og
fékk Kalli Bjarni 49% stuðning. „Ég
var steinhissa hvað heildar-
atkvæðatalan var há. Metið var bú-
ið að vera rúmlega 70 þúsund, þetta
var rúmlega helmingi meira en í
þættinum á undan. Það er nátt-
úrlega alveg rosalegt. Ég vil þakka
öllum sem kusu mig alveg hjart-
anlega fyrir,“ segir Kalli Bjarni.
En hvað finnst honum standa upp
úr nú þegar keppninni er lokið og
sigurinn í höfn? „Fyrst og fremst er
ég hissa á því hvað þetta er búinn
að vera mikill skóli. Skóli sem í mín-
um huga er milljóna virði, það er
jafnvel ekki hægt að skrá sig í
svona skóla neins staðar. Þar sem
maður er með fjölmiðlana í kring-
um sig, er í sjónvarpi og öllu saman
í hverri einustu viku. Maður lærir
alveg helling í sambandi við sjálfan
sig í svona stífu prógrammi,“ segir
Kalli Bjarni sem segist hiklaust
mæla með keppninni fyrir aðra sem
stefna langt í tónlistinni.
Kalli Bjarni, sigurvegari í Idol, hrærður yfir góðum móttökum í Grindavík
„Ég verð
að halda
áfram að
syngja“
Morgunblaðið/Garðar
Kalli Bjarni segist hrærður yfir hversu góðar móttökur hann fékk í félagsheimilinu Festi í Grindavík. Stuðnings-
menn hans biðu úti meða blys þegar Kalli Bjarni, og aðrir keppendur sem komust í 32 manna úrslit, komu í rútu
beint úr Smáralind. Grindvíkingar og gestir þeirra skemmtu sér síðan fram á rauða nótt.
„Ég hef alltaf óskað þess að geta að hluta til eða jafnvel alveg lifað af því
sem mér finnst skemmtilegast að gera og það er einmitt að syngja og semja
tónlist,“ segir Kalli Bjarni sem ætlar að einbeita sér að tónlistinni.
Stjarnan fundin/32
♦♦♦