Morgunblaðið - 18.01.2004, Síða 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. JANÚAR 2004 9
Námsflokkar Hafnarfjarðar
Miðstöð símenntunar
Námsflokkar Hafnarfjarðar
– Miðstöð símenntunar
Fjölbreytt úrval námskeiða á vorönn 2004
TUNGUMÁL – BYRJENDUR OG FRAMHALD
ÍSLENSKA FYRIR ÚTLENDINGA
RÉTTRITUN - MÁLFRÆÐI
ÞÝSKA
SPÆNSKA
ÍTALSKA
FRANSKA
RÚSSNESKA
DANSKA
NORSKA
SÆNSKA
ENSKA
UNDIRBÚNINGUR FYRIR SAMRÆMD PRÓF
Í 10. BEKK
DANSKA
ENSKA
STÆRÐFRÆÐI
ÍSLENSKA
NÁTTÚRUFRÆÐI
HANDVERK OG LISTIR
TRÉÚTSKURÐUR
TÁLGUNÁMSKEIÐ FYRIR BÖRN OG FULLORÐNA
ELDSMÍÐI
LEIRMÓTUN
GLERSKURÐUR
GLERBRÆÐSLA
MYNDLIST FYRIR BÖRN
HÖNNUN OG TEIKNING PORTFOLIO
TEIKNING
OLÍUMÁLUN
SKRAUTRITUN
MYNDLIST
VÍKINGAFÉLAGIÐ RIMMUGÝGUR –
HANDVERKSNÁMSKEIÐ
SAUMANÁMSKEIÐ
FATASAUMUR/ HÖNNUN
BÚTASAUMUR/CRAZY QUILT/ÚTSAUMUR
OPIÐ NÁMSKEIÐ
TÖLVUR, BÓKHALD OG REKSTUR
STOFNUN OG REKSTUR SMÁFYRIRTÆKJA
MARKAÐSFRÆÐI FYRIR SMÆRRI FYRIRTÆKI
TÖLVUBÓKHALD/MBS - NAVISION
NÁMSEFNISGERÐ/MICROSOFT PUBLISHER
AUTOCAD - BYRJENDUR
BLOGGNÁMSKEIÐ
INTERNETIÐ
ALMENNT TÖLVUNÁM
PHOTOSHOP
HEILSA OG HREYSTI
SLÖKUN
NUDDNÁMSKEIÐ
SVÆÐANUDD
GÖNGUHÓPUR
LÍFSHAMINGJA
ORKUHÓPUR – 12–16 ÁRA
TÓNLIST
HLJÓMBORÐ
SÖNGNÁMSKEIÐ
GÍTARNÁMSKEIÐ
RAFMAGNSGÍTAR
NÁMSKEIÐ FYRIR HLJÓMSVEITIR
HARMONIKKUNÁMSKEIÐ
ÝMIS NÁMSKEIÐ
BRIGDENÁMSKEIÐ
LEIKRÆN TJÁNING FYRIR BÖRN
FÖRÐUNARNÁMSKEIÐ FYRIR 13–16 ÁRA
FLUGUHNÝTINGAR
FLUGUKAST
DULVÍSINDI/DULSPEKI
HEIMUR TAROTSINS
MYNDBANDSUPPTÖKUVÉLIN ÞÍN
ÁTT ÞÚ ÞÉR FRAMTÍÐARDRAUM?
ÖRYGGI Í PRÓFTÖKU
VOPN & VEIÐAR
SNYRTINÁMSKEIÐ
NOTKUN HELSTU KENNSLUTÆKJA Í FYRIRLESTRUM
MATREIÐSLA
GRÆNN KOSTUR
ELDUN FISKRÉTTA
SÚPUR, SALÖT OG ELDUN SMÁRÉTTA
ELDUN OG VERKUN Á VILLIBRÁÐ
SMURBRAUÐSNÁMSKEIÐ
NÁMSKEIÐ FYRIR ELDRI BORGARA
SPÆNSKA
ALMENNT TÖLVUNÁM
TÁLGUNÁMSKEIÐ
DANSKA
GARÐYRKJA
HÖNNUN HEIMILISGARÐSINS
SUMARHÚSALÓÐIR
SAMRÖÐUN RUNNAGRÓÐURS
FRÆÐSLUKVÖLD
FRAMHALDSSKÓLANÁM - PRÓFÁFANGAR Í
SAMSTARFI VIÐ FLENSBORGARSKÓLA
SPÆNSKA 203
SPÆNSKA 403
ÍSLENSKA 102
ENSKA 102
ENSKA 202
STÆRÐFRÆÐI 102
Innritun og upplýsingar í síma 585 5860 og á heimasíðu Námsflokkanna www.namsflokkar.hafnarfjordur.is
Í lok janúar mun Kuoni, einn stærsti og virtasti ferðaskipu-
leggjandi heims, opna söluskrifstofu á Íslandi í samvinnu
við Langferðir ehf. sem er ný íslensk ferðaskrifstofa.
Íslenskir ferðahópar eiga þess nú kost að ferðast til nýrra
áfangastaða um víða veröld á kjörum sem vart hafa áður sést
hérlendis. Hvort sem hugurinn stefnir til Suður-Evrópu eða
til annarra áfangastaða í fjarlægum heimshornum er örugglega
vert að kanna hvað Kuoni, sólarlandaskrifstofa þeirra, Apollo,
og Langferðir hafa að bjóða.
Á heimasíðunum www.kuoni.dk og www.apollorejser.dk
má kanna þá fjölmörgu möguleika sem eru í boði og verðið
á eftir að koma á óvart. Um næstu mánaðarmót verður opnuð
ný íslensk heimasíða undir slóðinni www.kuoni.is.
Sendu Langferðum tölvupóst á langferdir@simnet.is og
kynntu okkur hugmyndir þínar og langanir.
Við munum síðan hafa samband!
Er hópurinn þinn
á leið til útlanda?
Skólahópar, fyrirtæki, félög og vinahópar
JE Vélaverkstæði á Siglufirði er orðið rótgróið fyrir-
tæki. Það var stofnað á áttunda áratugnum af þeim Jóni
Dýrfjörð og Erlingi Jónssyni. Síðar eignaðist Jón hlut
Erlings í fyrirtækinu, en seldi síðan fyrirtækið árið 2001.
Kaupendur voru 6 starfsmenn ásamt Gunnari Júlíussyni
útgerðarmanni, en eignarhlutar starfsmanna eru mis-
jafnlega stórir.
Framkvæmdastjóri fyrirtækisins er nú Guðni Sig-
tryggsson. Hann hefur starfað hjá fyrirtækinu um nokk-
urra ára skeið og er annar aðaleigenda þess ásamt
Gunnari. Starfsmenn núna eru tíu og þar af einn starfs-
maður á skrifstofu.
Fyrirtækið hefur í gegnum tíðina annast alla almenna
málm- og blikksmíði, en á síðustu árum einnig haslað sér
völl í fullsmíði á bátum. Fréttaritari spurði Guðna Sig-
tryggsson hvernig það hafi komið til að fyrirtækið fór að
snúa sér að þessum markaði.
„Þetta var verkefni sem Jón Dýrfjörð réðst í fyrir
nokkrum árum og var unnið sem íhlaupaverk þegar
minni vinna var í málmsmíðinni. Meðan Jón átti fyr-
irtækið voru smíðaðir og afgreiddir fimm bátar. Þetta
hefur farið fram með þeim hætti að keyptir hafa verið
plastskrokkar sem síðan hafa verið fullkláraðir til sjó-
setningar hérna. Jón keypti skrokkana frá Kanada og
aðila á Blönduósi, en við höfum keypt þá frá Siglu í
Reykjavík.
Þessir bátar hafa verið seldir til staða vítt og breitt um
landið, til Akraness, Borgarfjarðar eystra og Sauð-
árkróks svo nokkuð sé nefnt, auk þess sem einn er hérna
á Siglufirði. Þessir bátar hafa verið misjafnlega stórir.
Sá sem við erum að vinna með núna er langstærstur
þeirra, en hann er um 15 brúttólestir, en þeir minnstu
voru rúmlega 6 lestir.“
Guðni sagðist telja að að baki hverjum bát lægju á
milli 1500 og 1800 vinnustundir. Það væri þó auðvitað
mismunandi eftir því hvernig menn vildu hafa bátana.
Megnið af þessari vinnu færi fram hjá JE Vélaverkstæði,
en inni í þessari tölu væri um 200 stunda vinna rafvirkja.
Að lokum sagði Guðni að það hafi tekist ágætt sam-
starf með JE og Siglu og taldi líklegt að það yrði nokkurt
framhald á þessari starfsemi. Þetta hentaði fyrirtækinu
prýðilega þar sem hægt sé að stýra verkinu nokkuð vel
eftir því hvernig stendur á öðrum verkum. Fyrirtækið
hafi líka öðlast töluverða reynslu og þekkingu á þessu
sviði og mjög góð reynsla hafi verið af þeim bátum sem
þegar hafi verið afhentir.
Vélaverkstæði haslar
sér völl í bátasmíði
Siglufirði. Morgunblaðið.
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn