Morgunblaðið - 18.01.2004, Side 12
ÍÞRÓTTIR
12 SUNNUDAGUR 18. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Jakobsen sagði eftir skellinn gegn Íslandi áfimmtudagskvöldið (33:28) að íslenska lið-
ið væri geysilega sterkt um þessar mundir og
til alls líklegt í Slóveníu. „Ís-
land er með frábæra leikmenn
þar sem Ólafur Stefánsson er
fremstur í flokki, en líka stóra
línumanninn, Sigfús, og litla
leikstjórnandann (Snorra
Stein Guðjónsson), svo einhverjir séu nefndir.
Ég held að íslenska liðið geti farið mjög langt í
þessari keppni. Það er mjög samstillt, enda
hafa margir leikmenn þess spilað lengi saman.
Ísland sýndi í heimsmeistarakeppninni fyrir
ári síðan að það er komið skrefi lengra en áður í
alþjóðlegum handknattleik og með smáheppni
getur það hæglega komist alla leið í undan-
úrslitin í Slóveníu.
Staðan er sú í handboltanum í dag að það eru
tíu til tólf mjög sterk lið, jafnvel allt að fimm-
tán, sem öll geta unnið hvert annað og gert það
gott í þessari keppni.
Ég á von á að Evrópumeistarinn komi úr
hópi Frakka, Þjóðverja, Svía, Rússa, Serba eða
Króata, þjóðanna sem hafa lengst af verið í far-
arbroddi í handboltaheiminum, en bæði Ís-
lendingar og við geta hæglega náð langt.“
Jakobsen var einn af fáum leikmönnum
Dana sem stóðu fyrir sínu í leiknum gegn Ís-
landi á fimmtudagskvöldið. Hann sagði að ís-
lenska liðið hefði leikið virkilega vel en hluti
skýringarinnar á óförunum væri sá að dönsku
leikmennirnir hefðu gengið í gegnum mjög erf-
itt æfingaprógramm dagana fyrir leikinn. „Við
vorum þungir á okkur en það skýrir ekki allt.
Ísland átti ekki að vinna svona auðveldan sig-
ur. En við förum til Slóveníu með það markmið
að leika til sigurs í hverjum leik fyrir sig og sjá
hvert það leiðir okkur.
Riðillinn okkar getur verið mjög snúinn,
Króatar eru heimsmeistarar og firnasterkir,
ég spila sjálfur á Spáni og veit að spænska liðið
verður geysilega öflugt, og þó Portúgalir séu
að byggja upp ungt lið verða þeir erfiðir. Við
getum unnið alla á góðum degi og tapað fyrir
öllum á slæmum degi en ég vonast til að við
komumst áfram til að byrja með og eftir það
ræður dagsformið.
Vonast eftir ólympíusæti
Auðvitað vonumst við eftir því að ná í þetta
eina ólympíusæti sem stendur til boða í Slóven-
íu en það verður afar erfitt að ná því vegna
þess að þá þurfum við að vera fyrir ofan lið eins
og Svíþjóð, Serbíu og Slóveníu, sem hafa held-
ur ekki tryggt sér þátttökurétt á Ólympíuleik-
unum,“ sagði Claus Möller Jakobsen, sem tók
við leikstjórnandahlutverkinu í danska liðinu
snemma leiks gegn Íslandi eftir að Klavs Bru-
un Jörgensen dró sig í hlé vegna tognunar.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Ólafur Stefánsson er talinn einn besti handknattleiksmaður heims. Hér skorar hann mark í landsleik gegn Sviss í Laugardalshöllinni á dögunum.
Leikstjórnandi danska landsliðsins í hand-
knattleik hrósar landsliðsmönnum Íslendinga
Ísland er til
alls líklegt í
Slóveníu
CLAUS Möller Jakobsen, leikstjórnandi danska landsliðsins í handknattleik og
spænska liðsins Altea, sagði við Morgunblaðið að Ísland og Danmörk væru í hópi 8–
10 þjóða, jafnvel fleiri, sem gætu farið alla leið í komandi Evrópukeppni landsliða í
Slóveníu. Danir eru þar í riðli með Spánverjum, Króötum og Portúgölum en Íslend-
ingar takast á við Slóvena, Ungverja og Tékka.
Víðir
Sigurðsson
skrifar frá
Kaupmanna-
höfn
Íslenska liðið er virkilega gott um þessarmundir og við þurftum mikið að hafa fyrir því
að sigra það. Með Ólaf Stefánsson sem besta
mann og Sigfús Sigurðsson sér-
lega erfiðan andstæðing, stóran
og sterkan, er það orðið mjög
öflugt. Jaliesky Garcia er
greinilega góður liðsauki, hann
var okkur allavega mjög óþægurljár í þúfu, og
mér líst vel á nýja markmanninn (Reyni Þór
Reynisson) – hann er nokkuð góður. Lið Íslands
getur stillt upp hávaxinni sex núll vörn og þegar
það leikur hana vel er afar snúið að spila gegn
Íslendingum þegar þeir ná að þétta vörnina.
Varnarleikur Íslands getur verið mjög sterkur.
Ég er mjög ánægður með að hafa náð að sigra í
Malmö því það var mikilvægt fyrir yngri leik-
mennina í mínu liði, gefur þeim meira sjálfs-
traust,“ sagði Bengt.
Spáir Íslandi efsta
sæti í sínum riðli
Bengt spáir íslenska liðinu sigri í sínum riðli í
Slóveníu. „Möguleikar Íslendinga eru mjög góð-
ir gegn Slóvenum, Tékkum og Ungverjum. Þeir
verða þó að gæta sín vel á Tékkum sem eru betri
en flestir telja og Slóvenar eru mjög sterkir, en
Íslendingar eiga að geta unnið öll þessi lið og
orðið efstir. Það á ekki að geta komið fyrir að ís-
lenska liðið tapi öllum leikjunum og falli úr
keppni. Það kom mér mjög á óvart að sjá hversu
vel Ísland lék gegn Danmörku en miðað við
frammistöðu þess og styrk á þessu móti á það
alla möguleika á að komast langt í Slóveníu og
getur hæglega spilað um verðlaunasæti.„Það er
langt um liðið síðan sænska landsliðið hefur spil-
að á Íslandi og Morgunblaðið hefur orðið vart
við pirring í röðum HSÍ yfir því að þeir sænsku
skuli aldrei þekkjast boð um Íslandsför.
Þegar það var borið undir Bengt sagði hann
að það væri alls ekkert til í því að hann vildi ekki
koma til Íslands með sitt lið. „Það er ekki rétt,
við viljum endilega spila á Íslandi. En það hefur
ekki hentað okkur upp á síðkastið og til dæmis
völdum við að fara frekar á mót í Túnis og spila
þar fyrr í þessum mánuði, en að fara til Íslands.
Enda er mun betra veður í Túnis í janúar og við
viljum mikið frekar heimsækja Ísland að vor-
lagi. Síðan fórum við til Moskvu, tókum boði um
það þó það væri okkur ekki sérstaklega að skapi,
en Íslendingar völdu að fara ekki þangað. Við
eigum eftir að koma til Íslands, þú mátt vera
viss um það,“ sagði Bengt Johansson.
Sænska landsliðið lék síðast á Íslandi 1994, er
Svíar léku í móti með landsliðum Íslands, Spán-
ar og Danmörku. Síðan þá hefur íslenska lands-
liðið heimsótt Svía sex sinnum.
Þess má geta að það þarf að fara allt aftur til
desember 1988 til að finna gögn um að Svíar hafi
komið til að leika vináttulandsleiki á Íslandi. Þá
voru þeir lagðir að velli í Laugardalshöllinni,
23:22. Guðmundur Hrafnkelsson stóð í marki Ís-
lands þá, eins og hann gerði í Malmö á föstu-
dagskvöldið. Var þá að leika sinn53 landsleik, en
lék sinn 379 landsleik í Malmö. Guðmundur
Þórður Guðmundsson, landsliðsþjálfari, var þá
leikmaður og náði að skora eitt mark úr vinstra
horninu.
Bengt Johansson, landsliðsþjálfari Svía, segir
að íslenska landsliðið leiki sterkan varnarleik
Ísland getur
vel leikið um
verðlaun
BENGT Johansson, þjálfari sænska landsliðsins í handknattleik, hefur verið lengi í
bransanum. Undir hans stjórn hefur sænska liðið verið sérlega sigursælt undanfarin
þrettán ár, og jafnan haft betur gegn Íslendingum í viðureignum þjóðanna, þó heldur
hafi dregið saman með þeim í undanförnum leikjum. Eftir hinn nauma sigur gegn Ís-
landi í Malmö á föstudagskvöldið, 29:28, sagði Bengt að íslenska liðið væri til alls lík-
legt á Evrópumótinu í Slóveníu og gæti vel leikið um verðlaun eins og það gerði í síð-
ustu Evrópukeppni – í Svíþjóð fyrir tveimur árum, þegar Íslendingar máttu þola tap
fyrir Dönum í leik um bronsið.
Víðir
Sigurðsson
skrifar
frá Malmö