Morgunblaðið - 18.01.2004, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. JANÚAR 2004 21
Fást í verslunum um land allt
H. Blöndal ehf.
Sími 517 2121
www.hblondal.com
Purga-T sjálfvirku
slökkvitækin fyrir
sjónvörp
• Alltaf á vakt
• Slekkur eldinn strax
• Fullkomlega öruggt
„Minn frið gef ég yður“
Alþjóðleg samkirkjuleg bænavika 18.-25. janúar:
Alþjóðleg bænavika verður haldin í kirkjum um heim allan vikuna
18.-25. janúar. Um allan heim er beðið fyrir einingu kristins fólks
þessa viku. Bænir vikunnar koma frá söfnuðum í Aleppo í
Sýrlandi og er sérstaklega beðið fyrir friði.
Dagskrá alþjóðlegrar samkirkjulegrar bænaviku 18.-25.
janúar:
Sunnudagur: Útvarpsmessa í Dómkirkjunni. Sr. María
Ágústsdóttir og sr. Jakob Á. Hjálmarsson þjóna fyrir altari,
major Anne Marie Reinholdtsen, forstöðukona
Hjálpræðishersins á Íslandi, predikar. Fulltrúar annarra trúfélaga
lesa ritningarlestur. Léttur hádegisverður í safnaðarheimilinu eftir
messu.
Mánudagur: Bænastund kl. 12 í Hvítasunnukirkjunni Fíladelfíu,
Hátúni 2, Reykjavík.
Bænastund kl. 20 í Karmelklaustri í Hafnarfirði.
Þriðjudagur: Bænastund klukkan 12 í Fríkirkjunni Veginum,
Smiðjuvegi 5, Kópavogi.
Miðvikudagur: Samkoma kl. 20 í Kristskirkju í Landakoti.
Ræðumaður: Jóhannes Gijsen, biskup.
Fimmtudagur: Samkoma kl. 20 hjá Hjálpræðishernum,
Kirkjustræti 2, Reykjavík. Ræðumaður: Högni Valsson,
forstöðumaður í Fríkirkjunni Veginum.
Föstudagur: Samkoma kl. 20 hjá Hjálpræðishernum á Akureyri,
Hvannavöllum 10. Ræðumaður: Sr. Guðmundur Guðmundsson,
héraðsprestur.
Laugardagur: Lokasamkoma kl. 20 í Íslensku Kristskirkjunni,
Bíldshöfða 10. Ræðumaður er Svanhildur Sigurjónsdóttir frá
Óháða söfnuðinum.
Undirbúningur bænavikunnar hérlendis er í höndum samstarfs-
nefndar kristinna trúfélaga. Aðild að nefndinni eiga: Aðventistar,
Fríkirkjan Vegurinn, Hvítasunnukirkjan, Hjálpræðisherinn,
Íslenska Kristskirkjan, Kaþólska kirkjan, Óháði söfnuðurinn og
Þjóðkirkjan.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
hitinn gufa sem er notuð til að fram-
leiða rafmagn. Síðan er hún sett í
varmaskipta og hitar upp kalt vatn
sem sent er til Kópavogs. Það getur
þó fundist hitaveitulykt af vatninu
vegna þess að í það er látið blæða svo-
lítið af brennisteinsvetni til að halda
súrefni í skefjum svo það skemmi
ekki lagnir.
Um tíma tóku menn upp á að
blanda saman upphitaða vatninu og
borholuvatni. Þessi efnablanda stífl-
aði mörg rörin og olli miklu fári, en at-
vinnuskapandi var hún fyrir pípu-
lagningamenn.
Gömlu mennirnir sögðu stundum í
hljóði hver við annan: „Það er vonandi
að það frjósi vel um jólin,“ – þá fór
fólk seint á fætur og kveikti seint upp,
þá fraus í rörum og allt var vitlaust að
gera hjá pípulagningamönnunum eft-
ir hátíðarnar.“
Um tíma var lítill áhugi hjá ungu
fólki á að læra pípulagnir en það er að
breytast. Ég hef komið að endur-
menntun pípulagingamanna á seinni
árum, útvegað bækur og vann við að
semja nýja námskrá, sem nú er kennt
eftir. Pípulagningar eru fjölþætt iðn í
dag og krefjast undirstöðugóðrar
þekkingar t.d. á efnum og vatni. Það
eru mörg þúsund afbrigði af vatni á
Íslandi, þetta er því mikil flóra.“
Kvonfang úr klausturskóla
Ég er nú orðin óþolinmóð að frétta
hvenær Sigurður Grétar hafi getað
fundið sér stund til þess að kynnast
eiginkonunni Helgu Harðardóttur og
stofna til heimilis og barneigna með
henni?
„Árið 1959 var Félagsheimili Kópa-
vogs vígt með viðhöfn og í tilefni af því
ákvað Leikfélag Kópavogs að ráða til
sín danskan leikstjóra, Gunnar Ró-
bertsson Hansen, fjölhæfan heims-
borgara, til að leikstýra kínverskum
ævintýraleik. Meðal þeirra sem léku
var Guðrún Þór og ég. Guðrún lék for-
sætisráðherrafrú og ég garðyrkju-
mann hennar sem flekaði dóttur
hennar og varð í framhaldi af því
tengdasonur forsætisráð-
herrahjónanna. Einhvern tíma varð
Guðrúnu að orði að ég hefði gert þetta
vel og hún gæti sem best hugsað sér
að eignast mig fyrir tengdason. Ég
sagði að hún ætti bara svo unga dótt-
ur að það kæmi vart til greina. Þá
sagðist Guðrún eiga eldri dóttur sem
hún geymdi í klausturskóla í Írlandi,
enda kaþólsk.
„Ég lít á gripinn þegar hún kemur
heim,“ sagði ég og gleymdi þessu svo.
En þegar Músagildran eftir
Agöthu Christie var sýnd kom ung
stúlka í miðasöluna sem mér leist
bráðvel á. Þar var þá komin elsta
dóttir Guðrúnar Þór og Harðar Þór-
hallssonar viðskiptafræðings. Hann
var mikill sjálfstæðismaður og um
tíma ritstjóri Voga, blaðs sjálfstæð-
ismanna í Kópavogi. Ég kynntist hon-
um lítillega. Hann var berklaveikur
og dó áður en við Helga giftumst,“
segir Sigurður.
„Ég hafði búið í Kópavogi frá
tveggja ára aldri. Amma mín Abelína
var kaþólsk og hún hafði áhrif á að ég
var send í klausturskólann, sem mér
líkaði reyndar svo vel í að ég var um
tíma að hugsa um að ganga í klaust-
ur,“ skýtur Helga inn í og hlær.
„Sú ráðagerð rann endanlega út í
sandinn þegar við giftum okkur í
mars 1961 og mátti ekki seinna vera
því dóttir okkar fæddist í júní. Það
var raunar kaþólski biskupinn í
Landakoti sem gifti okkur, Jóhannes
Gunnarsson, hann var ömmubróðir
minn.
Ég er afkomandi „hins drengsins“,
Gunnars Einarssonar, sem fór með
Nonna, Jóni Sveinssyni rithöfundi, út
í skóla,“ bætir Helga við.
„Það hefur verið sterkari kynhvöt í
honum en Jóni,“ segir Sigurður Grét-
ar og hlær.
„Abelína giftist Þórhalli Árnasyni
sem var kvennagull bæjarins á þeim
tíma og glæsimenni mikið. Þau eign-
uðust einn son, föður Helgu, og skildu
síðan,“ bætir hann við.
Stofnun fyrirtækis og eignamissir
„Við Helga settumst að í bílskúrn-
um hjá tengdamömmu og fyrr en
varði vorum við orðin áhyggjuefni
fjölskyldunnar því við eignuðumst
þrjú börn á þremur árum. Þegar
þröngt var orðið í 30 fermetra skúrn-
um brugðum við á það ráð að reisa
okkur hús efst við Bjarnhólastíg og
bjuggum þar með börnin okkar fimm,
Kolbrúnu, Hörð, Fjalar, Sváfnir og
Erp, til ársins 1985 – en þá fór illa fyr-
ir okkur. Við misstum húsið vegna
þess að við töpuðum öllu sem við átt-
um. Ég hafði stofnað fyrirtæki á verð-
bólgutímum og hóf þá innflutning á
ýmsu sem laut að pípulögnum, en ég
hugsaði þar meira um nýjungar í
Helga Harðardóttir og Sigurður Grétar Guðmundsson í hlutverkum sínum í Tíu litlir negrastrákar eftir Agöthu Christie
sem Leikfélag Kópavogs sýndi. Hjónin léku þá saman í fyrsta skipt og þá þær tvær persónur sem af komast í l eikritinu.