Morgunblaðið - 18.01.2004, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 18.01.2004, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. JANÚAR 2004 31 Í BÓKINNI Armed Guardians, sem bandaríski herinn gaf út, kemur fram að fyrsta árið á Íslandi hafi bandaríska setuliðið, nánar til tek- ið fjarskiptadeild þess, lagt svo umfangsmikið fjarskiptanet um Ísland að líkja megi við köngulóar- vef: „Til þess að auka skilning á umfangi þeirra verkefna sem fjar- skiptadeildin hefur leyst af hendi, má vitna í opinberar tölur sem segja að ríflega fimm milljónum dala hafi verið varið til efniskaupa, þá ekki meðtalinn búnaður svo sem borðsímar, verkfæri og vöru- bílar. Meira en 4.000 símtæki eru í notkun hjá bandaríska hernum á Íslandi og tengjast á að giska 40 símstöðvum sem eru starfræktar allan sólarhringinn.“ Fjölbreyttum verkefnum deildarinnar er lýst í fáeinum orðum, allt frá þjálfun bréfdúfna og til þess að lesa úr dulmálssendingum og dulkóða sendingar til og frá bækistöðvum bandamanna á Bretlandseyjum og í Bandaríkjunum. „Þegar er búið að leggja nokkur þúsund míl- ur af vírum og köplum ofanjarðar og -neðan, og er metnaðarfullum markmiðum fjarskiptadeildarinn- innar þó fjarri því lokið.“ Frá bréfdúfum til dulmálssendinga þjóðernissinna um ævarandi hlutleysi eyjakrílisins í norðri beðið afhroð. Enda standast fæstar rómantískar grillur svínsleg próf veruleikans. Ári síðar var raunsæið komið á það stig að ríkisstjórnin kinokaði sér ekki við að samþykkja komu bandaríska hers- ins – og þóttu það kannski að ekki öllu leyti afleit skipti. Á friðartímum var unnt að flagga hugsjónum, í stríðs- vindum voru þær haldlitlar. Í huga margra Íslendinga þýddi ákvörðun ríkisstjórnarinnar að fjallkonan var búin að missa leifarnar af meydómi sínum – og enginn endurheimtir glat- að sakleysi – aðrir voru allshugar fegnir að tengjast stórveldi sem var ekki þátttakandi í stríðinu á þessum tíma. Alþingi var kvatt saman tveim- ur dögum síðar til aukaþings, enda vantaði sárlega lögformlegt sam- þykki á þessum leynisamningum, og samþykktu þingmenn herverndina með miklum meirihluta, eða 39 at- kvæðum á móti þremur atkvæðum þingmanna Sósíalistaflokksins. „Hnífurinn er á barka okkar“ Eðlilega lá mönnum þó mikið á hjarta um efnið og gerðu flestir þing- menn hlutleysið að sérstöku umfjöll- unarefni. Margir fögnuðu mjög íhlut- un Bandaríkjamanna og töldu réttmæti samningsins hafið yfir allan vafa, aðrir voru varfærnir í ályktun- um en studdu þó ákvörðun ríkis- stjórnarinnar. Gera má ráð fyrir að í ummælum Sigurðar E. Hlíðar, þing- manns Sjálfstæðisflokksins, hafi kristallast skoðanir margra þing- manna og raunar Íslendinga í þessu máli. Hann gerði orðalag svarskeytis Bandaríkjaforseta að umtalsefni og sagði: „Er þetta orð, „hættuástand,“, ekki allteygjanlegt? Og á því Banda- ríkjaforseti að dæma um það, hvenær þessu hættuástandi er lokið? Getur það ekki verið, að því teljist ekki lokið fyrr en löngu eftir að styrjöldinni linnir, eða er þetta fyrirheit um það, að þeir ætli aldrei að fara aftur?“ Hann bætti síðan við til að skýra stuðning sinn við samninginn um her- verndina: „Þó að ég sé „ídealisti“ og vilji lifa í friði við allar þjóðir, neyðist ég líklega til að vera raunsæismaður í þessu máli og beygja af. Mun ekki verða komist hjá því að gera þennan samning við Bandaríkin, því að hníf- urinn er á barka okkar.“ Brynjólfur Bjarnason, þingmaður Sósíalistaflokks Íslands, sagði að „þetta skref, sem nú hefur verið stig- ið, er áreiðanlega örlagaríkasta skref- ið, sem stigið hefur verið í utanrík- ismálum Íslands, síðan landið fékk innlenda stjórn,“ og kvaðst telja að „samningur sá, sem íslenska ríkis- stjórnin hefur gert við stjórn Banda- ríkjanna, er gerður í fullu heimildar- leysi og umboðslaust frá þjóðinni.“ Hann gat þess ennfremur að atburð- irnir hefðu ekki átt að koma neinum á óvart: „Í 1. maí ávarpi kommúnista 1940 er frá því skýrt, að Bandaríkin hafi í hyggju að sölsa undir sig yf- irráðin á Grænlandi og Íslandi. Frá þessu var skýrt í þessu ávarpi fyrir meira en ári síðan. Þetta var nokkru áður en breskur her steig hér á land.“ Ríkisstjórnin var spurð út í ástæð- ur þess að upplýst var um hervernd- arsamninginn í útvarpi, samdægurs og herliðið kom til landsins, en Al- þingi ekki kvatt saman áður. Ólafur Thors, þáverandi atvinnumálaráð- herra og formaður Sjálfstæðisflokks- ins, kvaðst hafa verið hvatamaður þessa og ástæðan verið sú að vegna tímamismunar á milli landanna þriggja hefðu fregnir af samningun- um borist hingað frá Englandi, hefðu Íslendingar ekki orðið fyrri til. „Það var að mínum dómi óboðlegt íslensku þjóðinni, að hún ein allra þjóða væri leynd þessum mikilvægu samningum, hún, sem þó var annar samningsaðili, eða einn þeirra þriggja – og sá, sem þeir vörðuðu mest.“ Hann kvaðst jafnframt þeirrar skoðunar að með samningnum hefði „í einni svipan“ tekist þrennt í senn: „Að tryggja sjálfstæði þjóðarinnar, að losna við erlent hernámslið og að sjá borgið af- komu þjóðarinnar í atvinnu- og fjár- málum.“ Ólafur harðneitaði því að gengið væri í berhögg við hlutleysi Ís- lands með samningnum, en Þór Whitehead sagnfræðingur kveðst hins vegar líta svo á að á þessum við- sjárverðu átakatímum hafi „hlutleys- ið [verið ] orðið ótryggt athvarf.“ Samningurinn hafi í raun og veru sýnt að stjórnarherrar Íslands á þessum tíma hefðu verið meðvitaðir um öryggi landsins „í víðtækri merk- ingu“ [Morgunblaðið 4. apríl 1979]. Með því að ganga á svig við stefnuna um ævarandi hlutleysi hafi náðst jafnvægi á milli raunsæis annars veg- ar og hlutleysisstefnunnar hins vegar og „lánast að bjarga öryggis- og við- skiptahagsmunum þjóðarinnar úr bráðum háska“. Í Bandaríkunum skiptust menn í tvö horn í afstöðu sinni til þessa skrefs sem stjórnvöld höfðu stigið í átt að þátttöku í stríðsátökunum í Evrópu. Andstæðingar Roosevelts létu mjög til sín heyra en almenning- ur virðist þó ekki hafa verið ýkja mót- fallinn landgöngunni á Íslandi. Þann- ig leiddi skoðanakönnun sem Gallup birti í Bandaríkjunum 25. júlí í ljós að 61% aðspurðra væri fylgjandi ákvörðun stjórnarinnar en 17% and- vígir. Í bréfum þeim sem Roosevelt barst frá bandarískum almenningin mátti hins vegar greina meiri mun, þó ekki meiri en svo að hlutfall andstæð- inga aðgerðanna annars vegar og stuðningsmanna hins vegar var nokk- uð jafnt. Corgan greinir frá því að á meðal þeirra sem skipuðu sér í fyrr- nefnda hópinn hafi verið kona sem skrifaði: „Sveitir okkar má ekki senda í dauðann á því guði gleymda landi Ís- landi. Annar bréfritari, frá Kanada, ályktaði það af lestri Eddukvæða að „Íslendingar gætu séð um sig sjálf- ir.““ Einn merkasti viðburður frá stríðsbyrjun Heimildir eru fyrir því að Íslands- för Bandaríkjamanna hafi komið Hit- ler á óvart og að vonum tóku Þjóð- verjar fregnunum illa. Verið væri að ögra Þriðja ríkinu og ómögulegt að sjá fyrir afleiðingarnar af slíkum ögr- unum. Þeir héldu því einnig fram að íhlutun Bandaríkjamanna væri Ís- lendingum á móti skapi. Hins vegar var haft eftir Winston Churchill að samkomulagið um her- verndina væri einhver merkasti við- burður sem orðið hefði frá upphafi styrjaldar. Ánægja hans var auðskil- in. Hann taldi víst að markmið hans hefði náðst; Bandaríkin stæðu nú á þröskuldi þess að taka fullan þátt í styrjöldinni og aðeins tímaspursmál hvenær þeir tækju skrefið til fulls. Hann gat þess einnig að breskur her- afli yrði áfram á Íslandi, sem kom að vísu flestum Íslendingum í opna skjöldu. Þeir höfðu skilið samninginn um herverndina sem svo að hann stafaði einvörðungu af brýnni nauð- syn, þar sem Englendingar þyrftu á setuliði sínu að halda á ótilgreindum öðrum stöðum. Bretar héldu hins vegar enn um stjórnartaumana í her- stöðvum sínum og það var raunar ekki fyrr en rúmum níu mánuðum eftir komu Bandaríkjamanna, eða í lok apríl 1942, að tilkynnt var með formlegum hætti í Washington að Bandaríkjamenn hefðu tekið við yf- irhersjórn á Íslandi. Íslendingar þurftu hins vegar engar opinberar staðfestingar eftir tíu mánaða sam- búð með Bandaríkjamönnum. Flest dagblöðin sem gefin voru út á þeim tíma voru varfærin í forystu- greinum sínum daginn eftir komu Bandaríkjamanna; Alþýðublaðið kvaðst treysta því að Bandaríkja- menn héldu öll sín drengskaparheit gegn varnarlausri smáþjóð, Nýtt dagblað, arftaki Þjóðviljans, sagði um „nauðungarsambúð“ vera að ræða en gerði þó fyrst og fremst kröfu um gagnkvæma aðgát í samskiptum hers og þjóðar, og Tíminn kvaðst þeirrar skoðunar að um eðlilegt samkomulag væri að ræða í ljósi aðstæðna í heims- málum. Í forystugrein Vísis sagði hins vegar að engin breyting fylgdi í raun komu Bandaríkjamanna og yf- irlýstum áformum um brottför Breta: „Erlent herlið er erlent herlið og verður aldrei annað, undir hvaða for- merkjum sem það flytst hingað inn í landið, og hvernig sem er um hnútana búið.“ Í forystugrein Morgunblaðsins sagði m.a.: „Rás heimsviðburðanna varðandi Ísland hefur nú tekið nýja stefnu. Bandaríki Norður-Ameríku hafa samið svo um við íslensk stjórnvöld, að þau tækju landið í vernd sína. Jafnframt verði hinu breska hernámi létt af. Það, sem hér hefur gerst, eru einir hinir örlagaríkustu atburðir. Þess er að vænta, að þjóðin taki þeim með stillingu og kjarki og horfi með festu gegn framtíðinni.“ Í Bretlandi sagði The Times meðal annars að herfræðilegar og efnahags- legar hvatir stýrðu Bandaríkjamönn- um; þeir væru svo að segja nauð- beygðir: „Bandaríkjamenn hafa byggt upp hagkerfi sitt að miklu leyti á útflutningi til annarra heimsálfa. Þeir geta ekki setið auðum höndum, meðan markaðir þeirra eru lagðir í rústir.“ Bandarískur her fór af Íslandi 1946, utan þess að ýmsir liðsmenn hersins komu að rekstri Keflavíkur- flugvallar, sem Bandaríkjamenn sömdu um að stjórna, og kom ekki aftur fyrr en með varnarsamningnum 1951. Bandarískur her hefur því verið hér óslitið í rúma hálfa öld og með fyrrnefndu hléi í rúm sextíu ár. Dag- urinn sem bandarískur herafli steig á land á Íslandi markar að margra mati þáttaskil í sögu þjóðarinnar á sein- ustu öld, varðandi þróun menningar hennar, tækniframfara og afkomu, en dagurinn sá hafði áhrif víðar. Að mati Corgan er 7. júlí 1941 „mikilvægur í nútímasögu Íslands, en fyrir Banda- ríkin hafði hann þó jafnvel enn meiri þýðingu. Hann táknaði meiri háttar umskipti hvað varðaði grundvallar- reglu í utanríkisstefnu Bandaríkj- anna, stefnu sem ekki minni maður en sjálfur George Washington hafði arfleitt þjóðina að.“ Þann dag hófu Bandaríkjamenn bein afskipti af þró- un alþjóðamála sem staðið hafa óslitið síðan og ótal dæmi eru um, hvort sem litið er til Evrópu, Suður-Ameríku, Afríku eða Asíu eins og nýliðin innrás í Írak og hersetan þar er ótvírætt dæmi um. Eftir Íslandsförina 1941 hafa Bandaríkjamenn verið á þeyt- ingi og ekkert lát verið á heimsóknum þeirra um víða veröld. Ekki er heldur að sjá nein merki þess að þeir ætli að halda sig við heimahagana í bráð. En hvort þeir telji ástæðu til að fram- lengja dvölina á „sögueyjunni“ eða ekki, kemur væntanlega í ljós fyrr en varir. Höfundur er rithöfundur Tónlistin að heiman heillar: Þröngt á þingi í hljómplötuversluninni Fálkanum 8. september 1942 Bandarískir fótgönguliðar munda sprengjuvörpu á æfingu við Austurbæjarskól- ann í október 1943. Við enda skólabyggingarinnar sér í syðsta braggann í Skip- ton Camp á Skólavörðuholti þar sem nú er Hallgrímskirkja. Snjómokstur og hálkuvarnir á Akureyri 2004-2006 Tækni- og umhverfissvið Akureyrarbæjar, framkvæmdadeild, fyrir hönd Bæjarsjóðs Akureyrar, óskar eftir tilboðum í tímavinnu við snjómokstur og hálkuvarnir á Akureyri árin 2004- 2006. Verkefnið felst í hreinsun á snjó og krapa af götum, gangstígum og bifreiðastæðum ásamt snjómokstri og -akstri, auk sandburðar á götur, gangstíga og bifreiðastæði. Útboðsgögnin verða afhent í þjónustuanddyri Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, Akureyri. Tilboðum skal skila í þjónustuanddyri eigi síðar en fimmtudaginn 29. janúar kl. 13.00 og verða þau þá opnuð í fundarsal á 1. hæð að viðstöddum þeim bjóðendum, eða fulltrúum þeirra, sem þess óska. Bæjarverkfræðingurinn á Akureyri. Akureyrarbær • Geislagötu 9 • 600 Akureyri Sími 460 1000 • Fax 460 1001 • www.akureyri.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.