Morgunblaðið - 18.01.2004, Side 32
LISTIR
32 SUNNUDAGUR 18. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
K
alli Bjarni, Karl
Bjarni Guðmunds-
son, sjómaður í
Grindavík er popp-
stjarna Íslands. Eft-
ir margra mánaða
keppni við verðuga
andstæðinga var hann vel að sigr-
inum kominn eftir afburðaflutning
á laginu Mustang Sally sem Wilson
Pickett gerði frægt árið 1966.
Idol hefur verið ein athyglisverð-
asta uppákoman í íslensku tónlist-
arlífi í vetur. Hugmyndin er sótt til
útlanda – til Englendingsins Sim-
ons Fullers sem er er sannkallaður
poppmógúll, umboðsmaður,
pródúsent og hugmyndafræðingur.
Það var hann sem skapaði Spice
Girls á sínum tíma og hann er líka
„höfundur“ annarrar vinsællar
poppgrúppu, S
Club 7. Simon
Fuller á þó
lengri sögu í
bransanum því
hann hefur um
árabil verið um-
boðsmaður frægra stjarna og fer
þar Eurythmics-söngkonan Annie
Lennox sjálfsagt fremst í flokki.
Fuller stofnaði umboðsskrifstofu
sína, 19 Entertainment Group, árið
1984 og frá þeim tíma hafa popp-
stjörnur á hans vegum komið 96
lögum og 79 plötum í fyrstu sæti
bresku vinsældalistanna. Á nýliðnu
ári seldu stjörnur hans meir en 10
milljón plötur um allan heim. Hann
er því enginn viðvaningur í brans-
anum.
H
ugmyndin að Pop-idol
varð að veruleika í bresku
sjónvarpi fyrir tæpum
þremur árum og sló í
gegn. Bandaríkjamenn voru fljótir
að taka við sér og fá Simon Fuller
til að skapa amerískt idol sem notið
hefur gríðarlegra vinsælda. Í dag
er þátturinn staðfærður og sýndur
í tæplega þrjátíu löndum og sífellt
fleiri bætast við.
Hugmyndin er einföld; ungir
söngvarar taka þátt í keppni þar
sem þrír dómarar, vel heima í
poppi, dæma. Eftir undankeppni og
undanúrslit komast níu keppendur
á svið og þá er það almenningur
sem sest í dómarasætið en getur þó
stuðst við umsagnir dómaranna
þriggja og eins gestadómara. Sá
sem fæst atkvæði fær í símakosn-
ingu er úr leik. Verðlaun fyrir
sigurvegara í lokaþættinum eru
plötusamningur.
Þ
ær gagnrýnisraddir hafa
vissulega heyrst að Idol sé
lágmenningarleg skemmtun
þar sem þáttarframleið-
endur nýti sér ungt hæfileikaríkt
fólk til að maka eigin krók án þess
að krakkarnir njóti nokkurs nema
ef til vill stundarvinsælda.
Hvort söngvararnir ungu njóti
aðeins stundarvinsælda eða eigi
eftir að uppskera raunverulegan
frama í popptónlist á eftir að koma
í ljós. Hitt er ljóst að þátturinn hef-
ur notið meiri vinsælda en flest
annað fjölmiðlaefni hvar sem hann
hefur verið sýndur. Þau ólíkindi
urðu við kosninguna á föstudags-
kvöld að 150.000 símaatkvæði bár-
ust sem þýðir það að rúmlega ann-
að hvert mannsbarn á landinu
hefur kosið eða þorri fullorðinna
Íslendinga. Það verður þó að gera
ráð fyrir því að einhverjir hafi not-
fært sér þann möguleika að kjósa
oftar en einu sinni til að standa enn
betur að baki sínum keppanda.
B
andaríski fjölmiðlafræðing-
urinn og blaðamaðurinn dr.
Roy Peter Clark getur sér
til um það hvers vegna vin-
sældir Idol hafa orðið svo miklar
sem raunin er. Hann segir að í
fyrsta lagi sé Idol framhaldssaga. Í
hverjum þætti sögunnar á ákveðið
uppgjör á sér stað – og ný niður-
staða fæst. Í sögulok er áhorfand-
anum svo lofað stærsta uppgjörinu,
endanlegri niðurstöðu. „Sagan er
einföld og sögð á einfaldan hátt,“
segir hann, „hvaða söngvari stend-
ur eftir í lok síðasta þáttar.“ Það er
kjarni málsins. Þá segir Clark það
skipta máli um vinsældirnar að
persónur og leikendur, ungu söngv-
ararnir, eigi hver sína sögu og eigi
nokkurs að freista með þátttök-
unni. Fjórða atriðið sem máli skipt-
ir er að í þættinum er líka „vondi
karlinn“; í bresku og bandarísku
þáttunum er það dómarinn Simon
Cowell sem dæmir af umbúðalausri
hreinskilni sem sumum þykir jafn-
vel ótuktarleg og allt að því grimm.
En hlutverk vonda karlsins er líka
mikilvægt fyrir vinsældirnar skap-
ar dýnamík og spennu. Í fimmta
lagi skiptir spennan sjálf máli –
biðin eftir niðurstöðunum sem
verður jafnspennandi fyrir þátttak-
endurna og þá sem heima sitja.
Engin góð saga er án spennu og í
Idol er það vissulega spennandi að
fylgjast með bæði gengi keppend-
anna og úrslitum kosninganna. Það
er reyndar það síðastnefnda sem
Clark nefnir að lokum sem mikil-
vægt atriði í vinsældum þáttanna;
kosningin sjálf. Þar er almenningur
virkjaður á gagnvirkan hátt; hver
og einn sem heima situr fær tæki-
færi til að segja sína skoðun og
hafa þannig persónulega áhrif á
framvindu sögunnar.
Í
slenska ídolið er alveg eftir for-
skriftinni og nýtur ekki minni
vinsælda en erlendu þættirnir.
Það sem hefur lukkast hvað
best við íslensku stjörnuleitina er
ekki síst umgjörðin sjálf en það er
sjaldgæft að sjá svo vandvirknisleg
vinnubrögð í íslenskum þætti af
þessum toga. Kynnarnir tveir, þeir
Sigmar Vilhjálmsson og Jóhannes
Ásbjörnsson, eða Simmi og Jói,
eins og þeir heita á sjónvarpsmáli,
hafa staðið sig feiknavel. Þeir eru
lausir við tilgerð og stæla sem sum-
um sem í slíkar stöður komast er
svo tamt að beita en hafa fyrst og
fremst verið skemmtilegir um leið
og þeir hafa sýnt af sér fag-
mennsku. Þeir hafa sprellað
skemmtilega – eins og þeir gerðu
til dæmis frábærlega í diskóþætt-
inum með nettum diskósporum –
án þess að sprellið hafi orðið að ein-
hverjum fíflagangi. Þeir hafa líka
verið í því erfiða hlutverki að vera
einhvers konar stuðpúðar milli
keppenda og dómara og sýnt
væmnislausa nærfærni þegar kepp-
endur hafa komið misbugaðir af
fundi dómaranna.
Dómararnir eru vel valdir og all-
ir með mikla reynslu í bransanum.
Þorvaldur Bjarni fer fyrir dóm-
nefndinni og er alltaf sanngjarn og
fagmannlegur í dómum sínum.
Sigga Beinteins hefur líka verið
góð og tekið keppendur á beinið
fyrir framkomu og túlkun. Bubbi
Morthens hefur verið í hlutverki
vonda karlsins og hefur ekki verið
með neitt rósamál við keppendur.
En hreinskiptnin er líka spennandi
og bestu stundirnar í Idol hafa ein-
mitt verið þegar dómarana hefur
greint á um frammistöðu keppenda
og það hefur einmitt oft hent þá
Þorvald og Bubba.
E
n þá að keppendunum sjálf-
um. Það var hreint með ólík-
indum að 1.400 ungmenni á
aldrinum 16–29 ára skyldu
telja sig eiga erindi í stjörnuleit
Idol-þáttanna. Þó var eiginlega enn
ótrúlegra hve margir efnilegir
söngvarar hafa verið kynntir til
leiks. Auðvitað eru alltaf fleiri kall-
aðir en útvaldir en til þess er jú
leikurinn gerður. Í fljótu bragði
gæti ég ímyndað mér að á milli
fimm og tíu keppendur í undan-
úrslitum ættu eftir að láta til sín
taka í söng í framtíðinni fyrir utan
þá níu sem komust alla leið í
Smáralindina þar sem úrslitin hafa
farið fram. Þarna hefur verið hægt
að sjá alvöru talenta. Í þeim hópi
má nefna þær Ölmu Rut og Arndísi
Ósk, báðar kraftmiklar söngkonur
með góðar raddir og mikla hæfi-
leika sem gaman verður að sjá
Stjarnan fundin
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sigurvegarinn, Kalli Bjarni, sjómaður í Grindavík.
AF LISTUM
Eftir Bergþóru
Jónsdóttur
begga@mbl.is
Morgunblaðið/Garðar
Þau ólíkindi urðu við kosninguna á föstudagskvöld, að 150.000 símaatkvæði bárust í keppnina.