Morgunblaðið - 18.01.2004, Page 34
LISTIR
34 SUNNUDAGUR 18. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Söngleikurinn Chicago erbyggður á leikriti fráárinu 1926 eftir blaða-manninn Maurine Dallas
Watkins, þar sem segir frá
óþekktri söng- og danskonu, Roxie
Hart, sem drepur ótrúan eig-
inmann sinn og tekst að sleppa við
fangelsisdóm með hjálp lögfræð-
ingsins Billy Flynn og notfærir sér
síðan athygli fjölmiðlanna við rétt-
arhöldin til að komast á toppinn í
skemmtibransanum ásamt öðru
dansandi morðkvendi, Velmu
Kelly. Höfundar söngleiksins, John
Kander og Fred Ebb, tóku þennan
ádeilukennda söguþráð og spunnu
úr honum léttara efni sem í þýð-
ingu og aðlögun Gísla Rúnars
Jónssonar hefur verið flutt frá Chi-
cago 3. áratugarins með öllum sín-
um þjóðsagnakenndu sérkennum
yfir í nútímalegra og almennara
umhverfi sem gæti allt eins verið
hér á Íslandi í dag.
Ísland í dag eða gær
„Chicago í þessari sýningu er
ekki tiltekin borg í Bandaríkj-
unum, heldur getur verið skemmti-
staður eða kabarett þar sem allt
getur gerst,“ segir Þórhildur leik-
stjóri og dregur ekki dul á að þetta
sé flókin sýning og mikil vinna sem
liggur á bakvið að setja hana sam-
an svo allt gangi smurt fyrir sig.
„Það sem gerir þetta flókið í
sýningu er einmitt það sem gerir
þetta að skemmtilegu leik-
húsverki,“ segir hún. „Atriðin
renna hvert inn í annað, atburða-
rásin er ekki rakin í einfaldri
framvindu heldur er
söguþráðurinn brotinn upp og
ýmsum aðferðum leikhússins beitt
til að segja þessa sögu á sem fjöl-
breyttastan og litríkastan hátt.
Þetta er semsagt skemmtilegt leik-
húsverk og greinilegt að höfund-
arnir kunna ýmislegt fyrir sér í
þeim efnum. Hér er allt undir í
einu og verkefni okkar sem stjórn-
um sýningunni er að sjá til þess að
allt gangi snurðulaust fyrir sig og
framvindan skýri sig sjálf. Hér er
öllu tjaldað til sem Borgarleik-
húsið hefur yfir að ráða, Íslenski
dansflokkurinn er samstarfsaðili
Leikfélagsins við sýninguna og
leikararnir með Hönsu (Jóhönnu
Vigdísi Arnardóttur), Steinunni
Ólínu og Svein Geirsson í farar-
Allt fyrir frægðina
Leikfélag Reykjavík-
ur frumsýnir í kvöld á
Stóra sviði Borg-
arleikhússins söng-
leikinn Chicago í leik-
stjórn Þórhildar
Þorleifsdóttur.
Morgunblaðið/Eggert
Leiðir Roxie og Velmu liggja saman í kvennafangelsinu.
Morgunblaðið/Eggert
Velma K berst við Roxie um athygli fjölmiðla. Jóhanna Vigdís Arnardóttir.
Höfundar: John Kander og
Fred Ebb.
Þýðing, leikgerð og aðlögun:
Gísli Rúnar Jónsson
Leikarar: Jóhanna Vigdís Arn-
ardóttir, Steinunn Ólína Þor-
steinsdóttir, Sveinn Geirsson,
Margrét Helga Jóhannsdóttir,
Eggert Þorleifsson, Bergur
Þór Ingólfsson, Birna Hafstein,
Ellert A. Ingimundarson, Guð-
mundur Ólafsson, Gunnar
Hansson, Halldór Gylfason,
Hanna María Karlsdóttir, Ilm-
ur Kristjánsdóttir, Marta Nor-
dal og Theodór Júlíusson.
Dansarar: Aðalheiður Hall-
dórsdóttir, Guðmundur Helga-
son, Guðmundur Elías Knud-
sen, Katrín Ingvadóttir, Katrín
Á. Johnson, Peter Anderson,
Steve Lorenz, Unnur Elísabet
Gunnarsdóttir, Valgerður Rún-
arsdóttir.
Tónlistarmenn: Karl O. Ol-
geirsson, Róbert Þórhallsson,
Jóhann Ó. Hjörleifsson, Sam-
úel Jón Samúelsson, Kjartan
Hákonarson, Sigurður Flosa-
son, Matthías Stefánsson.
Myndband: Hákon Már Odds-
son
Ljós: Lárus Björnsson
Búningar: Elín Edda Árna-
dóttir
Leikmynd: Sigurjón Jóhanns-
son
Tónlistarstjóri: Jón Ólafsson
Danshöfundur: Jochen Ulrich
Leikstjóri: Þórhildur Þorleifs-
dóttir
Chicago
Önnur námskeið:
Fjármál heimilanna - leiðin til velgengni, matreiðsla
fyrir karlmenn - byrjendur, matreiðsla sjávarrétta -
framhald fyrir karla, kynning á trúarbrögðum heims -
síðdegis- og kvöldnámskeið.
Myndlist og handverk:
Fatasaumur, skrautskrift - stig 1 og 2, glerlist,
mósaík, teikning og vatnslitamálun, olíumálun,
prjón, húsgagnaviðgerðir - að gera upp gömul
húsgögn, viðhald og viðgerðir á gömlum
timburhúsum.
ÍSLENSKA FYRIR ÚTLENDINGA
Morgun-, síðdegis- og kvöldkennsla fyrir byrjendur og lengra komna (stig 1-5).
Íslenska talflokkar og ritun.
Fjarnám í íslensku á netinu - skráning á www.vefskoli.is
INNRITUN: 13.-22. janúar milli kl. 9 og 21. Kennsla hefst 26. janúar.
Innritun fer fram í Miðbæjarskóla, Fríkirkjuvegi 1.
Upplýsingar í síma 551 2992.
Netfang: nfr@namsflokkar.is - Vefsíða: www.namsflokkar.is
Kennt er í Miðbæjarskólanum og í Mjódd, Þönglabakka 4.
SVO LENGI LÆRIR SEM LIFIR
FULLORÐINSFRÆÐSLA Í 65 ÁR
Morgun-, síðdegis- og kvöldnámskeið.
PRÓFADEILD - ÖLDUNGADEILD
Grunnskólastig - Framhaldsskólastig - Fjarnám
Félagsliðanám - brú fyrir starfsfólk í umönnun aldraðra og fatlaðra.
Innritun stendur yfir. Kennsla hefst 15. janúar
Sérkennsla í lestri og ritun - viðtöl og einkatímar.
Íslenska: aukin lestrarfærni, stafsetning og málfræði.
ALMENNIR FLOKKAR - FRÍSTUNDANÁM
Fjölbreytt tungumálanám: Byrjenda- og framhaldsflokkar. Norska, sænska, enska, þýska, hollenska, franska,
ítalska, spænska, portúgalska, pólska, rússneska, tékkneska, arabíska, hebreska og tælenska.
Talflokkar og upprifjun í dönsku, sænsku, ensku og ítölsku. Daglegt mál.
Aðstoðarkennsla í stærðfræði fyrir nemendur í 9. og 10. bekk grunnskóla.