Morgunblaðið - 18.01.2004, Blaðsíða 37
hringurinn er einnig myndlíking fyr-
ir hugmyndaheim okkar, sýn okkar
takmarkast við sjóndeildarhring
okkar í yfirfærðri merkingu. Í verk-
inu Reykjavík, myndröð, á sér einn-
ig stað viss skrásetning þar sem
áhorfandinn getur skemmt sér við
að skoða myndirnar eftir stærð, lög-
un og viðfangsefni og fundið þannig
út skrásetningarkerfi það sem lista-
maðurinn hefur notað við uppsetn-
ingu og gerð þeirra.
Smáheimurinn
Annars konar skrásetning á sér
stað í rými því sem Ólafur sýnir og
inniheldur líkön af mörgum verka
hans eða mögulegum verkum. Hér
kemur fram rannsókn á formum og
eiginleikum þeirra, möguleikum
speglunar og skuggamynda, ýmis
atriði sem Ólafur notar gjarnan við
gerð verka sinna. Aftur verður til-
finningin um endurreisnarmanninn
sterk, listamaðurinn birtist sem eins
konar vísindamaður á rannsóknar-
stofu sinni.
Í næsta rými er svo áhorfandinn
algjörlega í aðalhlutverkinu en þar
hefur verið komið fyrir leikföngum
sem sýningargestir geta sett saman
að eigin vild og búið til margvísleg
líkön. Leikföng af þessum toga eru
notuð við stærðfræðikennslu. Það
verður gaman að sjá hvað mun
verða til í þessum sal, það sem núna
er að mestu leyti hrúga af plast-
hlutum mun vaxa upp í alls kyns
turna og líkön á næstu tveimur mán-
uðum.
Fjölbreytt heild
Af ofanskráðu má sjá að sýningin
í heild er fjölbreytt og býður upp á
skemmtilegar upplifanir. Verk Ólafs
hafa lag á því að kalla fram marg-
víslegar vangaveltur og vekja fólk til
umhugsunar um leið og þau eru
hrein sjónræn upplifun og skemmt-
un. Hafnarhúsið fylgir stefnu Ólafs
mjög vel eftir með því að bjóða upp
á margvíslegt jaðarefni, listsmiðjur
fyrir alla fjölskylduna, listamanns-
spjall og fyrirlestra. Þetta jaðarefni
er sérstaklega skemmtilegt og
fræðsludeild safnsins til mikils
sóma, hér kemur loksins fram starf-
semi sem er í takt við starfsemi
safna erlendis, safnið kemur fram
með spennandi og skemmtilegt efni
fyrir almenning og ekki síst fyrir
börn, listamenn og listneytendur
framtíðar.
Það er ástæða til að gleðjast
vegna þessarar sýningar og óska
Listasafni Reykjavíkur og forráða-
mönnum þess til hamingju með hana
og það fræðslu- og kynningarstarf
sem henni fylgir, allt er þetta til
þess fallið að sýna fram á möguleika
myndlistarinnar í samfélaginu og
það er frábært út af fyrir sig. Sýn-
ingin hefði svo aldrei tekist án
styrktaraðila og óskandi að þeir sem
þetta styrktu sjái mikilvægi þess að
koma fleiri íslenskum listamönnum
á kortið. Forsetafrúin okkar hefur
hér komið fram á óvæntan hátt í
sambandi við þessa sýningu og veitt
íslenskum listamönnum stuðning við
að koma list sinni á framfæri með
því að vera milliliður milli þeirra og
erlendra blaðamanna og sýningar-
stjóra sem hingað hafa komið í sam-
bandi við þessa sýningu. Framtak
hennar er lofsvert en sýnir um leið
hversu hlálegt ástandið er í kynn-
ingarmálum íslenskra listamanna.
Nú verða ráðamenn að fara að taka
þetta mál alvarlega, því Dorrit getur
þetta varla ein.
Það er ljóst að ekki aðeins verður
þessi sýning til þess að opna augu
margra hér á landi fyrir möguleik-
um myndlistarinnar í dag heldur
verður hún án efa til þess að hjálpa
íslenskum listamönnum á einhvern
hátt við að koma sér á framfæri.
Ólafur er Björk íslenskra myndlist-
armanna.
Ragna Sigurðardóttir
Sjón og skynjun áhorfandans er í aðalhlutverki í innsetningu Ólafs, Sjóndeildarhringur athafna þinna.
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. JANÚAR 2004 37
MENNINGARBORGARSJÓ‹UR
AUGL†SIR EFTIR UMSÓKNUM
Ári› 2001 stofnu›u menntamálará›herra og borgar-
stjórinn í Reykjavík sérstakan sjó› sem ber heiti›
Menningarborgarsjó›ur og hafa fali› Listahátí› í
Reykjavík ums‡slu hans. Hlutverk sjó›sins er a› stu›la
a› fjölbreytilegu menningarstarfi um allt land, í
framhaldi af menningarborgarárinu.
HÉR ME‹ ER AUGL†ST EFTIR UMSÓKNUM UM STYRKI FYRIR
ÁRI‹ 2004.
Augl‡st er eftir umsóknum til:
• N‡sköpunarverkefna á svi›i lista.
• Menningarverkefna á vegum sveitarfélaga á
landsbygg›inni.
• Menningarverkefna fyrir börn og ungt fólk.
Jafnframt ver›ur úthluta› til verkefna á svi›i menningar-
tengdrar fer›afljónustu.
Umsóknum skal fylgja:
L†SING Á VERKEFNINU
Lög› skal fram greinargó› l‡sing á verkefninu, umfangi
fless og markmi›um.
TÍMA- OG VERKÁÆTLUN
Ger› skal grein fyrir undirbúningi, áætla›ri framvindu
verksins og verklokum. Verkefni skal loki› innan árs frá
úthlutun.
UPPL†SINGAR UM HELSTU A‹ILA
a) Lag›ar skulu fram uppl‡singar um helstu a›ila sem a›
verkefninu standa og ger› grein fyrir flætti fleirra í verkefninu.
b) Einnig skal greint frá sta›festum samstarfsa›ilum,
stofnunum og fyrirtækjum sem a› verkefninu koma og
fleirra flætti í flví.
FJÁRHAGSÁÆTLUN
Tilgreina skal tekjur og gjöld verkefnisins, framlag samstarfs-
a›ila og fjárhæ› sem sótt er um.
Ef umsókn fylgja ekki ofangreindar uppl‡singar ver›ur hún
ekki tekin til greina.
Athugi›
Styrkir eru veittir til verkefna. Ekki eru veittir styrkir til
almenns rekstrar, byggingaframkvæmda, tækjakaupa,
námskei›ahalds og fer›a.
Umsóknarfrestur er til 17. febrúar 2004 og ver›ur öllum
umsóknum svara›. Úthluta› ver›ur í mars.
Umsóknir skal senda til Listahátí›ar í Reykjavík,
pósthólf 88, 121 Reykjavík, merktar: Menningarborgarsjó›ur.
Allar nánari uppl‡singar eru veittar á skrifstofu
Listahátí›ar í Reykjavík, Lækjargötu 3b, 101 Reykjavík,
sími 561 2444, fax 562 2350, artfest@artfest.is,
www.listahatid.isHagsmunaaðilar eru hvattir til að mæta og kynna sér verkefnið. Nánari
upplýsingar um fundina má fá í síma 430 2008 (Skaginn hf.) og í síma 530 8646/863 8013 (Rf).
BÆTT ARÐSEMI Í LANDVINNSLU
KYNNINGARFUNDUR Á HÓTEL KEA, AKUREYRI
Áður boðuð kynning Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins og Skagans hf. á
fyrstu niðurstöðum í rannsóknaverkefninu „Áhrif roðkælingar á gæði fiskflaka“,
verður haldin mánudaginn 19. janúar á Hótel KEA, Akureyri, kl. 13:00-15:00.
Dagskrá:
- Kynning á tilurð verkefnisins,
Sigurður Guðni Sigurðsson framkvæmdastjóri Skagans hf.
- Staða verkefnisins og helstu niðurstöður geymsluþolsrannsókna,
Emilía Martinsdóttir, deildarstjóri Rf.
- Mælingar á nýtingu, hitastigi og afurðaskiptingu hjá Tanga hf. Vopnafirði,
Þorvaldur Þóroddsson, sjávarútvegsfræðingur Rf.
- Uppbygging roðkælivinnslulínunnar,
Einar Brandsson, Skaganum hf .
- Ávinningur og reynsla af roðkælingu,
Einar Víglundsson framleiðslustjóri Tanga hf. Vopnafirði.
- Fyrirspurnir og umræður.
Rannsóknarstofnun
fiskiðnaðarins
Stórútsala
Efni í allan fatnað
35-50% afsláttur
Laugavegi 71, sími 551 0424Seyma
Seyma