Morgunblaðið - 18.01.2004, Page 58

Morgunblaðið - 18.01.2004, Page 58
MINNINGAR 58 SUNNUDAGUR 18. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ Elsku afi, hvað við eigum eftir að sakna þín, en nú líður þér bet- ur. Það var nú gaman þegar við fórum með þér í heyskap og allt sem við kom kindunum, þá var alltaf mjög gaman hjá okkur, eins þegar við komum upp á Höfðaveg þá tókst þú og amma allt- af vel á móti okkur. Þú varst alltaf svo glaður og ákveð- inn og vissir alveg hvað þú vildir. En ef við ættum að segja frá öllum góðu stundunum sem við áttum sam- an gætum við skrifað heila bók, en við verðum að láta þetta duga. Við geymum bara minninguna vel hjá okkur og segjum okkar börnum frá þeim. Við viljum því þakka þér fyrir allt saman og biðjum góða Guð að geyma þig Kveðja, Sveinn, Helga og Arnþór. Einn af síðustu aflamönnunum, sem börðust harðast um efstu sætin á vetrarvertíðum í Vestmannaeyjum um og eftir miðjan áratug síðustu ald- ar er fallinn frá. Á þeim tíma voru gerðir þaðan út um og yfir eitt hundr- að bátar, þannig að margir tóku þátt í baráttunni um toppinn. Nú er síðasti víkingurinn horfinn, siglingunni lokið og akkerið í botni. Sveinn Hjörleifsson, sem alltaf í daglegu tali var kallaður Svenni á Krissunni eða Sveinn Víkingur hefur SVEINN HJÖRLEIFSSON ✝ Sveinn Hjörleifs-son frá Skálholti í Vestmannaeyjum fæddist þar 1. ágúst 1927. Hann andaðist á Landspítalanum – háskólasjúkrahúsi, við Hringbraut, 4. janúar síðastliðinn og var útför hans gerð frá Landa- kirkju í Vestmanna- eyjum 10. janúar. lokið lífshlaupi sínu. Víkingsnafnið fékk hann fyrir mikinn dugn- að og ósérhlífni. Ég man fyrst eftir Sveini, þegar hann hóf for- mennsku á Kristbjörgu VE 70, 15 tonna báti ár- ið 1954, en þá var ég að hefja mína fyrstu vertíð á Helga Helgasyni. Sveini var ekki spáð björgulega í byrjun, en hann rótfiskaði þessa fyrstu vertíð og keypti svo nokkru seinna 40 tonna bát frá Dan- mörku í félagi við þrjá aðra og var hann skírður Kristbjörg 2. Sveinn fiskaði mjög vel á þessa Kristbjörgu og var alltaf með þeim aflahæstu. Ár- ið 1959 semur Sveinn um smíði á nýrri Kristbjörgu 120 tonna stálbát í Nor- egi og átti hann að afhendast um ára- mótin 1960. Í nóvember 1959 hafði ég samband við Svein og falaðist eftir stýrimannsplássi á nýja bátnum og varð það strax fastmælum bundið og að ég færi til Noregs að sækja bátinn og sigldi honum upp. Þegar ég fór til fógeta að sækja skipstjórabréf mitt, sagði fógeti „Hvað heldurðu að Vík- ingurinn segi, þegar hann fær ekki að sigla, sem stýrimaður á bátnum? Ég sagði, hann segir ábyggilega: Víking- ar fara ekki að lögum. Fógeta setti hljóðan. Við fórum síðan fjórir til Noregs að sækja bátinn, en afhending dróst á langinn og biðum við á annan mánuð eftir að báturinn yrði tilbúinn, en í dag er ég eini eftirlifandi af fyrstu áhöfninni. Ég var síðan stýrimaður með Sveini í nokkur ár eftir þetta og voru þetta sannkölluð ævintýraár oft mikið fiskirí með hörkuduglegum mannskap og aldrei nein lognmolla yfir lífinu. Þetta voru árin þegar as- dikið og kraftblökkin voru nýtekin í notkun og voru uppspretta margra sjóarasagna, sem hafa gengið í gegn- um tíðina um samskipti okkar Sveins, margar góðar, sumar sannar, aðrar skáldaðar. Sveinn var athugull og gætinn sjó- maður og á fyrstu árunum ákaflega kappsamur og sótti sjóinn mjög fast og man ég að eina vertíðina vorum við í þrjá daga einskipa á sjó í vitlausu veðri og vorum með 40 tonn í hverjum róðri. Því miður verður oft vík milli vina og skildi leiðir okkar Sveins eftir að ég flutti frá Eyjum, en við höfum þó fylgst með hvor öðrum í gegnum árin úr fjarlægð. Við Hilmir Þorvarðarson, sem vor- um fyrrum skipsfélagar af Krissunni, keyptum fyrir nokkrum árum lítinn plastbát, sem við skírðum í höfuðið á Sveini, eða Svein Víking. Þegar Sveini voru tjáð tíðindin, lét hann sér fátt um finnast, en sagði blessaður vertu, þeir þora aldrei á sjó á þessu horni. Þetta rættist nokkurn veginn, því fleytan var mest staðsett á túni og talin tún- fiskveiðari. Að endingu vil ég flytja Heiðu eig- inkonu Sveins, börnunum þeirra og fjölskyldum innilegustu samúðar- kveðjur frá okkur Helgu um leið og við biðjum ykkur Guðsblessunar. Guð blessi minningu Sveins Hjör- leifssonar. Jón Berg. Víkingur og veiðimaður af Guðs náð er stysta lýsing sem hægt er að hafa um Svein Hjörleifsson skipstjóra og útgerðarmann frá Vestmannaeyj- um, Svenna á Krissunni, en hann átti Kristbjörgu VE. Svenni var af þeirri kynslóð skipstjóra í Eyjum sem gerði garðinn frægan um og upp úr miðri tuttugustu öldinni, fyrir svona 20-50 árum.Þar voru magnaðir persónu- leikar, Binni í Gröf, Óskar Matt, Helgi Bergvins, Hilmar Rós, Bjarnhéðinn Elíasson, Siggi Vídó, Kristinn á Berg, Júlli á Skjaldbreið, Sighvatur Bjarna- son, Siggi Þórðar, Eyvi á Bessastöð- um, Halli á Baldri, Gvendur Eyja, Steini á Sjöfninni, Guðmundur í Holti , Siggi í Hlaðbæ, Einar á Kapinni, svo nokkrir séu nefndir af skipstjóraveldi 100 báta flota Eyjamanna á þessum árum og þeir settu líka mikinn svip á Eyjavertíðarnar Austfjarðaskipstjór- arnir Hilmar á Björginni, Bóas á Snæfuglinum og Jón á Eyjaberginu. Allir þessir menn voru magnaðar fiskiklær og skemmtilegir persónu- leikar hver með sínu sniði. Í þessum hópi var ekki til neitt lull, skynsemin og brjóstvitið voru látin ráða ferð. Ef það þurfti að hnýta var hnýtt, ef það þurfti að spúla var spúlað, ef það þurfti að snyrta sig að lögum og reglugerðum, þá var það gert til ár- angurs. Þetta var vettvangur Svenna á Krissunni. Hann gat verið harðsækn- ari en andskotinn og orðljótari, en hann gat líka verið blíðari en bjartasti júlímorgunn þegar kom að málleys- ingjunum og þeim sem minna máttu sín hjá mannanna börnum. Síðustu árin var hann sauðfjárbóndi og hrossabóndi með tilþrifum, því hvar sem Sveinn Hjörleifsson vann hvers- dagsverkin sín setti hann eftirminni- legan svip á samfélagið. Líklega var það árið 1960 sem ég sigldi í fyrsta sinn með Gullfossi til Kaupmanna- hafnar. Svenni var um borð. Mér fannst það tilkomumikið þegar hann bauð mér, strákpjakknum, niður í klefa til sín til þess að sýna mér al- gjört leyndarmál. Þar dró hann und- an rúminu marglæsta tösku og gætti að hvort nokkur væri á hleri við klefa- dyrnar eða á gægjum við kýraugað áður en leyndardómurinn opinberað- ist. Þá dró hann upp teikningar af nýrri Kristbjörgu og hann var svo stoltur og spenntur að það er ógleym- anlegt. Og allt gekk þetta eftir, það voru ekki mörg misserin liðin áður en Svenni og skipsmenn hans sóttu nýju Krissuna til Askeyjar við Bergen. Allt gekk það að óskum en eitt atvik var eftirminnilegt. Kristbjörgin lá við festar nýtt og glæsilegt skip, mann- skapurinn að taka á sig náðir undir miðnætti, þegar slíkur djöfulgangur hófst á þilfarinu að allt ætlaði af göfl- unum að ganga og það var eins og járnbrautalest færi um þilfarið með ógnarhávaða. Svenni og Jón Berg stýrmaður gættu að, en ekkert sást þegar upp á dekk var komið, enginn óboðinn gestur um borð og engan að sjá nálægt skipinu sem var á ber- svæði. Óútskýranlegt, en kona eig- anda skipasmíðastöðvarinnar féll frá nákvæmlega á sama tíma og hraðlest- in fór um þilfar Krissunnar. Það hefur lengi tíðkast í hópi sjó- manna og ekki síst skipstjóranna á þessum árum að rækta prakkaraskap og þær eru ófáar sögurnar um Svenna á Krissunni. Einu sinni voru þeir að draga netin. Allir voru á dekk- inu nema Svenni í brúnni. Með Kriss- unni höfðu fylgt 4 bombur. Kapteinn- inn hafði prófað eina. Jón Berg Halldórsson stýrimaður hjá Svenna var einhver stríðnasti hrekkjalómur flotans. Hann hafði eitthvað verið að snudda orðum að Svenna í brúar- glugganum, en það var allt á fullu í að- gerðinni á þilfarinu og allir granda- lausir. Allt í einu finnur Jón Berg púðurlykt, lítur upp í brúargluggann og fannst kallinn eitthvað skrítinn á svip en hugsaði með sér að það gæti ekki verið sem honum datt í hug. Í því sprakk sprengjan í Kárahnjúkastíl, bandhankir sem sprengjan lenti á tættist, en í sömu andrá lét Jón Berg sig falla í fiskkösina sem dauður væri. Allt fór í fát og mönnum brá hrika- lega. Himmi, Hilmir Þorvarðarson, var næstur Jóni Berg og kallar strax upp í brúargluggann: „Þú er búinn að drepa hann Jón Berg.“ Svenni skipti litum í brúarglugganum, blóðdropa var ekki að sjá og á augabragði varð hann hvítari en froðan í kjölfari skips- ins og kallaði: „Jón Berg minn, er ekki allt í lagi, er nokkuð að.“ Allir fóru að stumra yfir Jóni Berg, en Himma léttu stórlega þegar Jón Berg náði að blikka hann svo enginn annar sá. „Strákar mínir, beriði hann inn, við verðum að sigla í land,“ hrópaði nú kapteinninn úr brúnni í miklu fáti og strákarnir byrjuð að drösla stýri- manninum úr fiskkösinni, en þá spratt hann á fætur, skellihló og henti þorskhaus í brúargluggann hjá Sveini. „Heldurðu að ég hafi ekki vit- að að þú varst að leika,“ sagði Svenni þá á stundinni. Einu sinni þegar pabbi kom í land var hann alveg kolvitlaus og blótaði Svenna með tvöföldum hnykk. Svenni hafði siglt samskipa pabba þar sem Elsku afi. Þegar við hugsum til baka til allra þeirra tíma sem við áttum saman förum við ósjálf- rátt að brosa. Þú komst okkur alltaf til að hlæja þegar okkur leið illa og þegar hlut- irnir virtust ekki ganga upp varstu alltaf með réttu svörin. Við Andri Val- ur hlökkuðum alltaf til áramótanna því það skemmtilegasta við þau var þegar þú dróst okkur öll með þér út eftir Skaupið að skjóta upp flugeld- um. Það varst alltaf þú sem sást til þess að nóg væri til og allir fengju að gera eitthvað. En afi, hver á að sjá um þetta þegar þú ert ekki lengur hjá okkur? Þegar allar dyr virðast lok- aðar og við sjáum þig ekki lengur vit- um við að þú munt vera hjá okkur í anda og halda í hönd okkar. „Garðyrkjumaðurinn gróðursetti tré sáttur við að fá aldrei að sjá það fullvaxið – það er honum að þakka að við sitjum hér og njótum forsælunn- ar“. (Þúsund hamingjuspor, bls. 398). Elsku afi, þú munt aldrei fara úr hjarta okkar. Það muntu verma alla okkar ævi. Anna Kristín og Andri. Elsku Mummi. Ég trúi ekki að þú sért farinn. Ég hringdi út til ykkar 27. desember og þá varst þú svo hress, úti að hreinsa blómabeð í garðinum við draumahúsið ykkar. Þar voruð þið SIGURMUNDI ÓSKARSSON ✝ Sigurmundi Ósk-arsson fæddist 10. desember 1935. Hann lést á heimili sínu á Spáni 29. des- ember síðastliðinn og var útför hans gerð frá Grafarvogs- kirkju 12. janúar. búin að vinna að því síð- ustu árin að búa ykkur notalegan stað sem þið ætluðuð að búa í á vet- urna en sumrunum ætl- uðuð þið að verja hér heima. Þið voruð svo hress og kát að bíða eft- ir gestum í mat til ykkar og einnig ræddum við hugsanlega heimsókn okkar hjóna til ykkar í febrúar. Á mánudegin- um 29. desember, að- eins tveimur dögum síð- ar er hringt í mig og mér færðar þær hræði- legu fréttir að þú hefðir dáið í örmum elsku Olgu þinnar. Henni hafðir þú bundist sem unglingur og elskað æ síðan. Þú varst fyrsta ömmubarn hennar mömmu og gafst henni fyrsta langömmubarnið þegar hún var 57 ára gömul. Þó að þröngt hafi verið í litla húsinu á Bergþórugötu 12, þar sem við öll systkinin fæddumst og þú líka, var þar hlýtt og gott að vera. Þú varst eins og bróðir okkar og við átt- um góða fjölskyldu. Þegar þú varst um fermingu giftist Klara, mamma þín, Villa og þar eignaðist þú gott heimili hjá þeim og síðar þremur systrum og tveimur bræðrum. Þetta er yndisleg fjölskylda. Svo stofnaðir þú þitt eigið heimili með Olgu og þið eignuðust þrjú myndarleg börn sem nú eru, ásamt ástvinum sínum, harmi slegin. Við hjónin þökkum allar skemmti- legu tjaldferðirnar og bústaðaferðirn- ar þar sem við sungum og skemmtum okkur fallegar sumarnætur. Nú er þetta löngu liðið en hlýjar minning- arnar lifa. Ég bið góðan Guð að styrkja elsku Olgu, börnin hennar, tengdabörn og barnabörn. Mig langar að kveðja með versi sem bæði mamma og Klara, mamma þín, fóru með þegar þær lásu bænir til að svæfa okkur: Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (M. Joch.) Steinvör Bjarnadóttir. Aldrei hefði mig órað fyrir því að ég ætti eftir að skrifa kveðjuorð til þín, elsku besti vinurinn okkar, og það frá Kýpur. Ég minnist þín fyrst sem ellefu ára unglings. Þú varst há- vaxinn, dökkhærður og brosmildur. Við áttum eftir að kynnast betur og féll þar aldrei skuggi á. Ég kom inn í fjölskyldu þína er ég giftist móður- bróður þínum, en þið ólust upp saman uns móðir þín giftist Vilhelm Sigurðs- syni. Síðar eignaðist þú þrjár systur og tvo bræður og var alla tíð mjög kært með ykkur systkinunum. Það var í kalsaveðri einn síðbúinn vetrardag er þú glæsilegur ungur maður komst til okkar í Skógargerðið með fallegu konuna þína er síðar reyndist fjarskyld frænka mín. Þið höfðuð meðferðis böggul í fanginu en í honum var frumburður ykkar, eng- ilfagur drengur, nokkurra mánaða gamall. Við vorum nýflutt í kjallar- ann, annað var óklárað. Þetta voru erfiðir tímar og ykkur vantaði húsa- skjól. Þið fluttuð inn til okkar og þarna bjuggum við öll saman í tveim- ur herbergjum og litlu eldhúsi. Allt gekk vel og aldrei féll styggðaryrði, þótt þröngt væri búið og börnin fjög- ur. Þið Olga voruð kornung en þið tók- uð að ykkur að standsetja risið. Að því var unnið eftir vinnu og um helg- ar. Þetta var erfitt verk og mikið og peningar af skornum skammti en það tókst fyrir dugnað ykkar beggja. Þá fluttum við í risið en þið bjugguð áfram í kjallaranum og urðu árin þar tíu. Á þessum tíma fæddist Klara, yndislega stúlkan ykkar. Samgangur- inn var svo mikill að börnin ólust upp saman og voru þannig börnin okkar allra. Á þessum tíma allsleysis og þrengsla hefði þetta getað orðið erfitt en þið voruð einstök. Ég leyfi mér að segja að hjónabandið ykkar hafi verið svo fallegt og gott að margur mátti læra af. Sí og æ mátti heyra „elsku Olga“ og „elsku Mummi“. Þetta er því mikil sorg og ótímabært að þú skulir fara svona fljótt og einmitt nú er þið höfðuð eignast hús á Spáni sem þið ætluðuð að njóta er kaldir vindar blésu á veturna heima en koma svo eins og farfuglarnir á vorin í sumar- bjarta landið í nýju íbúðina ykkar. Við sem eftir sitjum með sorg í hjarta eigum erfitt með að skilja þennan tilgang en þetta gerðist og því verður ekki breytt. Við verðum því að reyna að sætta okkur við orðinn hlut. Elsku hjartans Olga mín, Óskar, Klara og Þorsteinn. Minningarnar ykkar eru miklar og góðar, varðveitið þær. Það er sárt að vera svona fjarri en við erum með ykkur í huga og hjarta og biðjum guð að styrkja ykk- ur og styðja. Guðmundur, Már og Kolla senda hugheilar samúðarkveðj- ur til ykkar allra. Elsku Mummi. Við þökkum þér af alhug fyrir allt sem þú hefur verið okkur. Far þú í friði, friður guðs þig blessi. Brynhildur Bjarnarson. Enginn á sér tryggan morgundag, hvorki ungur né gamall. Á þetta erum við minnt við fráfall Sigurmunda Ósk- arssonar. Við tengjumst honum fjöl- skylduböndum í gegnum dóttur okk- ar Margréti Björgu sem er gift Þorsteini syni Sigurmunda og Olgu. Við höfum átt margar ánægjustundir saman á gleðistundum í fjölskyldunni og í sameiginlegu áhugamáli að ferðast um landið okkar. Sigurmundi og Olga hafa verið mjög dugleg að ferðast, bæði hér heima og erlendis, og eru þær margar útilegurnar sem við höfum farið í saman með fjölskyldum og vinum og oft verið fjölmennt og alltaf gaman. Öll okkar samskipti í gegnum árin hafa verið ánægjuleg og góð vinátta tekist með fjölskyldum okkar og komum við til með að sakna Sigur- munda. En mestur verður þó söknuður Olgu, barna og barnabarnanna. Við sendum þeim samúðarkveðjur. Megi góður Guð vera með þeim og gefa þeim styrk á erfiðum stundum. Kveðja Guðrún og Karl. Með miklum trega sest ég niður til að setja nokkur kveðjuorð á blað til vinar okkar Sigurmunda Óskarsson- ar, eða Mumma eins og hann var ávallt kallaður. Kynni okkar og vinátta spannar nær 50 ára tímabil, eða frá þeim tíma þegar nokkrar yngismeyjar í tilhuga- lífinu ákváðu að stofna með sér saumaklúbb. Þessi saumaklúbbur samanstóð af Olgu og tveimur systr- um hennar, systur minni, eiginkonu og mágkonu og góðri æskuvinkonu Olgu. Allt var þetta fólk ásamt tilvon- andi mökum alið upp á Laugavegi, Njálsgötu og Bergþórugötu en sakir tengsla og æskuvinskapar náði þetta fólk vel saman. Við höfum í gegnum árin deilt ham- ingju og sorg. Við fylgdumst með börnum hvert annars vaxa úr grasi og verða nýtir samborgarar. Við vorum í fjölskylduboðum, skírnum, ferming- um, giftingum, að ógleymdum árleg- um árshátíðum saumaklúbbsins og tjaldferðum með börnin okkar, ásamt ótal öðrum uppákomum. Á þessu tímabili hafa þrjú af vinum okkar fall- ið í valinn og er Mummi sá fjórði sem við nú kveðjum. Mummi var alla tíð sérlega vel á sig kominn líkamlega og mikill útivistar- maður. Enda vorum við karlarnir í þessum hópi fullvissir um að hann myndi fylgja okkur öllum síðasta spölinn þegar kallið kæmi. Stærsta hluta starfsævi sinnar vann Mummi við bílasprautun og rak fyrirtækið Málningarverk í Kópavogi í tugi ára. Hann orðaði það við mig

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.