Morgunblaðið - 18.01.2004, Síða 65
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. JANÚAR 2004 65
Nissan Patrol GR Disel Turbo
árg. '91. Vél 1998, ekin 100 þ. km.
Nýtt hedd 10 þ. km. Ný tímareim.
Ný kúpling, lakk mjög grjótbarið,
spil (bilað), dráttarkúla, rafdrifnar
rúður, samlæsingar, stigbretti,
túrbína, upphækkaður, útvarp +
magnari frá Nissan. Veltistýri,
vökvastýri. Uppl. 894 4928.
Toyota Landcruiser VX, árg.
'95. Ek. 280 þús., sjálfsk., túrbó,
intercooler, toppl., 36" br., 35"
dekk. Glæsil. bíll. V. 2.490 þús. Til
sölu eða skipti á ód. S. 860 1180.
Toyota Touring, árg. 1992, til
sölu. Ljósblár, ekinn 110 þúsund
km. Upplýsingar í símum 561 2234
og 862 0065.
Nissan Terrano II '95.Verð
790.000 kr. Ekinn 170 þús. km.
Bensínbíll. Nýskoðaður. Góð
smurbók. Álfelgur, höfuðpúðar
framan og aftan, pluss-áklæði,
rafdrifnar rúður, samlæsingar,
stigbretti, útvarp, vökvastýri,
dráttarkrókur, nýr altenator, mjög
gott lakk. Skipti möguleg á stat-
ion bíl, ódýrari. Uppl. í s. 824
4184/567 1844.
Fíat árg. '00, ek. 36 þús. km. Til
sölu Fiat 2,8 TDI dísel húsbíll. Bíll-
inn hefur svefnpláss f. 6, er inn-
réttaður með baðh. og sturtu,
Flat-tv, gervihnattamótt., eldhúsi
og fortjaldi. Uppl. í s. 824 5437.
Glæsilegur M. Benz E 230
avantgarde árg. 1997, ek. 166 þ.,
sjálfsk., ABS, ASR-spólv., álf.,
fjarstart, Bose-hátalarar, CD
og magasín, hraðast., leður, rafm.
í öllu, gler-toppl., hleðsluj. o.fl. V.
2.350.000. Áhv. 750 þ., 28 þ. á
mán. Uppl. 820 8096.
Korando dísel 10/97. 5 gíra, ekinn
108 þús. km, álfelgur, dráttarkúla
o.fl. Verð 990 þús.
Bílabúð Benna - Notaðir bílar,
Bíldshöfða 10 - sími 587 1000.
Jeep Grand Cherokee Limited
árg. '99, 4 l 6 cyl., svartur, ekinn
68.500 mílur, cd, stereó, tape,
topplúga, leðursæti, dökkir glugg-
ar, bíll í topplagi, einn eigandi,
með nýjum loftbóludekkjum. Uppl.
í síma 554 2161 eða 894 0061.
Gabríel höggdeyfar, hagstætt
verð. Asco kúplingssett frá
Japan.
GS varahlutir,
Bíldshöfða 14, sími 567 6744.
Gírkassi í Ford Ranger Vantar
gírkassa og millikassa eða bara
millikassa í Ford Ranger,
árg. 1991/'92.
Upplýsingar í síma 862 0438.
Jeppapartasala Þórðar,
Tangarhöfða 2, sími 587 5058
sérhæfum okkur með varahluti
í jeppa og Subaru.
Nýrifnir: Patrol '92, Cherokee '89,
Terrano'90 og Vitara '91-'97
Notaðir varahlutir í Scania,
Volvo, Benz og fleiri.
Einnig Case-580.
Uppýhsingar í síma 660 8910.
Til sölu 351-Windsor með 4ra
hólfa blöndungi. 205 millikassi,
C6 skipting, 9" afturhásing með
6 gata deilingu og NO-SPIN.
Upplýsingar í síma 822 0600
Superchips á Íslandi
Superchips er þekkt gæðamerki
í kraftkubbum. Meira afl, snerpa
og færri gírskiptingar. Kíktu inn
a www.superchips.is og sjáðu
hvað við getum gert fyrir bifreið-
ina þína. S. 567 8575/895 6611.
Til sölu 38" hálfslitin Monster
Mudder. Brettakantar og skyggni
á Econoline ásamt tveimur ílöng-
um húsbílagluggum. Einnig 220
l. aukatankur. Sími 822 0600
Til sölu Yamaha 700 SRX 2001,
ek. 5,300 km. Aukabúnaður: Raf-
geymir f. GPS, fjöðrun breytt í
11,5" úr 8,5", nýr demp. í búkka,
nýir meiðar og legur. S. 896 1634.
Nissan Almera ek. 73 þús. km.
1,8 lúxuri. Tilboð! 160 þúsund út
+ yfirtaka á láni 760 þús., afborg-
un 17 þús. á mán. Einnig Ford
transit '99, 2.5 dísel. Verð 600
þús. Ath! Verð langt undir lista-
verði. S. 822 4167.
Isuzu Trooper 3000cc dísel, 08/
00, 35” breyttur, ek. 76 þ. km. Ál-
felgur, dráttarkúla, geislaspilari,
fjarst. Samlæs. Verð 2.790 þús.
Bílabúð Benna - Notaðir bílar,
Bíldshöfða 10 - sími 587 1000.
STJÓRN Bandalags starfsmanna
ríkis og bæja (BSRB) mótmælir
harðlega þeirri stefnu ríkisstjórn-
arinnar að þröngva Landspítala –
háskólasjúkrahúsi til niðurskurðar á
þeirri þjónustu sem spítalinn veitir
landsmönnum. Kemur þetta fram í
ályktun sem stjórn hefur BSRB
samþykkt.
„Margumræddur halli á rekstri
LSH er annars vegar tilbúningur og
hins vegar raunverulegur,“ segir í
ályktuninni. „Hann er tilbúningur
að því leyti að stjórnvöld ákvarða
bókhaldslegan halla sjálf með því að
útdeila meðvitað minna fé til rekstr-
arins en nauðsynlegt er. Hann er
hins vegar raunverulegur að því
leyti, að fjárskortur leiðir til verri
þjónustu. Sú umhyggja, færni,
þekking og tækni sem til staðar er
innan veggja spítalans nýtist ekki.
Niðurskurðurinn leiðir því til
beinnar sóunar á fjármunum og
tíma sem á að nýtast við það starf
sem arðsamast er fyrir þjóðina: Að
lækna og líkna sjúkum og að
tryggja heilbrigði almennings.“
Aukinn kostnaður
annars staðar
„BSRB bendir á að sá sparnaður,
sem ætlað er að ná fram með sam-
drætti í heilbrigðiskerfinu, mun
leiða til aukins kostnaðar annars
staðar í þjóðfélaginu. Sparnaðurinn
er því sjónhverfing ein auk þess
sem lífsgæði þeirra sem þurfa á
heilbrigðisþjónustu að halda munu
versna.
Niðurskurðurinn er vanhugsaður
og mun auka á vandann fremur en
að leysa hann. Hann mun leiða til
hnignunar LSH sem vinnustaðar;
óöryggi og kvíði vegna yfirvofandi
uppsagna og aukið álag á þá sem
eftir sitja leiðir til verri starfsanda.
Lokun deilda og vannýting á starfs-
aðstöðu og tækjum leiðir til þess
sama. Til lengri tíma litið eru afleið-
ingarnar stöðnun og mannflótti.
Heilbrigðiskerfið, starfsmenn þess
og almenningur munu því gjalda
forgangsröðunar ríkisstjórnarinnar.
Með þessum niðurskurði er verið
að fara bakdyraleið til að markaðs-
væða heilbrigðisþjónustuna; veikja
fyrst þjónustu sjúkrahúsanna og
bjóða síðan upp á einkarekstur.“
Niðurskurður
á LSH sóun á
fjármunum
Ályktun stjórnar BSRB
ÁSKRIFTARDEILD netfang: askrift@mbl.is, sími 569 1122