Morgunblaðið - 18.01.2004, Qupperneq 68
DAGBÓK
68 SUNNUDAGUR 18. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Delmar, Selfoss og
Sylvia koma í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Namai kemur í dag.
Mannamót
Bólstaðarhlíð 43.
Þorrablót verður
föstudaginn 30. janúar
og hefst kl. 17, sal-
urinn opnaður kl.
16.30. Feðgarnir Þor-
valdur Halldórsson og
Þorvaldur Þorvalds-
son syngja, Þorvaldur
Halldórsson og fé-
lagar leika fyrir dansi,
happdrætti, fjölda-
söngur og fleira.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Dansleikur í
kvöld kl. 20. Caprí-tríó
leikur fyrir dansi.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraun-
seli, Flatahrauni 3.
Sparidagar Hótel Örk
15 til 19. mars. Skrán-
ing og upplýsingar í
Hraunseli sími
555 0142.
Félagsstarf aldraðra í
Garðabæ: Þorrablót á
vegum Kiwanis verður
haldið fimmtudags-
kvöldið 22. janúar kl.
19.30 í Kirkjuhvoli.
Húsið opnað kl. 19.
Miðar seldir við inn-
ganginn. Verið er að
stofna pílukastshóp í
Garðabergi, fyrsta
mæting er á morgun,
mánudag, kl. 13.
Skráning stendur yfir
í ullarþæfingu og
snyrtinámskeið. Ull-
arþæfing verður á
föstudögum kl. 13.30
og byrjar 23. janúar
og í snyrtinám-
skeiðum verður um-
hirða húðarinnar
kennd á morgun 19.
janúar og litgreining
og förðun 23. janúar.
Skráning í síma
820 8553.
Félagsstarf eldri
borgara í Mosfellsbæ.
Púttkennsla í Íþrótta-
húsinu Varmá, á
sunnudögum kl. 11–
12.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Þriðjudag-
inn 20.janúar kl. 14.30
mun Anna Þrúður
Þorkelsdóttir, fyrrver-
andi stjórnarformaður
Rauða kross Íslands,
halda fyrirlestur um
ársdvöl sína í borginni
Kimverley í Suður-
Afríku. Hún segir frá
störfum sínum þar og
verður með myndir frá
dvölinni.
Gjábakki, Fannborg
8. Þorrablót eldra
fólks í Kópavogi verð-
ur laugardaginn 24.
janúar, húsið opnað kl.
18, borðhald hefst kl.
18.30. Á dagskrá m.a.
einsöngur við undir-
leik Jónasar Ingi-
mundarssonar, fjölda-
söngur og dans.
Þátttökuskráning haf-
in í Gjábakka s.
554 3400. Miðasala
hefst kl. 13 miðviku-
daginn 21. janúar og
gilda miðar sem happ-
drættismiðar. Miða
þarf að sækja fyrir kl.
16. föstudaginn 23.
janúar Borð tekin frá
þegar þeir eru sóttir.
Gerðuberg, fé-
lagsstarf. Fjölbreytt
dagskrá hvern virkan
dag frá 9–16.30
veitingar í kaffitíma
og hádegi í Kaffi Berg.
Sím 575 7720.
NA (Ónefndir fíklar).
Neyðar- og upplýs-
ingasími 661 2915.
Opnir fundir kl. 21 á
þriðjudögum í Héðins-
húsinu og á fimmtu-
dögum í KFUM&K,
Austurstræti.
Fjölskylduhjálp Ís-
lands Eskihlíð 2–4 í
fjósinu við Miklatorg.
Móttaka á vörum og
fatnaði, mánudaga kl.
13–17. Úthlutun mat-
væla og fatnaðar,
þriðjudaga kl. 14–17.
Sími skrifstofu er
551 3360, netfang dal-
ros@islandia.is gsm
hjá formanni 897 1016.
Karlakór Reykjavík-
ur. Aðalfundur fyrir
árin 2002 og 2003
verðar haldnir í Tón-
listarhúsinuÝmi
mánudaginn 26. jan-
úar kl. 20. Venjuleg
aðalfundastörf.
Minningarkort
Minningarkort Rauða
kross Íslands eru seld
í sölubúðum Kvenna-
deildar RRKÍ á
sjúkrahúsum og á
skrifstofu Reykjavík-
urdeildar, Fákafeni
11, s. 568 8188.
Minningarkort Hvíta-
bandsins fást í Kirkju-
húsinu, Laugavegi 31,
s. 562 1581 og hjá
Kristínu Gísladóttur,
s. 551 7193 og Elínu
Snorradóttur, s.
561 5622.
Minningarkort
Sjúkraliðafélags Ís-
lands eru send frá
skrifstofunni, Grens-
ásvegi 16, Reykjavík.
Opið virka daga kl. 9–
17. S. 553 9494.
Minningarkort Vina-
félags Sjúkrahúss
Reykjavíkur eru af-
greidd í s. 525 1000
gegn heimsendingu
gíróseðils.
Minningarkort Kven-
félagsins Hringsins í
Hafnarfirði. Minning-
arsjóður í vörslu kven-
félagsins Hringsins í
Hafnarfirði.
Minningarkortin fást
nú í Lyfjum og heilsu
verslunarmiðstöðinni
Firði í Hafnarfirði.
Kortið kostar kr. 500.-
Í dag er sunnudagur 18. janúar,
18. dagur ársins 2004. Orð dags-
ins: Jesús segir við hann: „Þú trú-
ir, af því þú hefur séð mig. Sælir
eru þeir, sem hafa ekki séð og
trúa þó.“
(Jh. 20.)
Jón G. Hauksson, rit-stjóri Frjálsrar versl-
unar, segir að harkaleg
viðbrögð Akureyringa
við sölunni á ÚA hafi ver-
ið eitt helsta umræðuefni
dagsins og sitt sýnst
hverjum. „Menn hafa
spurt sig að því hvort við-
brögðin séu hræsni því
Akureyringar sjálfir með
KEA, Samherja og ÚA í
fararbroddi hafi verið
duglegastir allra við að
kaupa sjávarútvegsfyr-
irtæki og kvóta úr öðrum
byggðarlögum og hafi á
góðum stundum hrósað
sér af því að kunna hvað
best á leikreglur kvóta-
kerfisins. Þá hefur um-
ræðan í kaffistofunum
snúist um það hvort
„fyrstu viðbrögð“ norð-
anmanna hefðu ekki átt
að vera þau að bjóða þá
feðga af Snæfellsnesi vel-
komna og líta frekar á
kaup þeirra sem styrk við
atvinnulífið á Akureyri
fremur en veikleika. Ak-
ureyringar óttast hins
vegar að feðgarnir frá
Rifi muni rífa og tæta fyr-
irtækið í sundur og selja
það í bútum út úr bæj-
arfélaginu og hafa ein-
hverjir gárungar gantast
með það að gamla mál-
tækið „margur heldur
mig sig“ eigi við norð-
anmenn í þessu tilviki.“
Áfram heldur Jón: „Þeirfeðgar frá Rifi segj-
ast sjálfir ekki ætla að
rífa og tæta ÚA í sundur
heldur hafa starfsemi fé-
lagsins áfram á Akureyri.
En geta norðanmenn
treyst því? Að vísu hefur
Guðbrandur Sigurðsson,
forstjóri Brims og ÚA,
sagt að ÚA sé með eina
sterkustu landvinnslu við
norðanvert Atlantshaf,
framúrskarandi starfs-
fólk, mikla kvótaeign og
að í þessu felist styrkur
fyrirtækisins. Af þessum
orðum Guðbrands má
ráða að fyrirtækið verði
ekki svo auðveldlega tætt
í sundur án þess að við
það glatist verðmæti.“
Jón segir að það verði aðætla að kvótakerfið
standi af sér þá gagnrýni
sem komin er upp. „Það
eru engin ný tíðindi að
flestir stóru risanna í
sjávarútvegi eru almenn-
ingshlutafélög og ekki
lengur í eigu heima-
manna heldur tugþús-
unda „tilfinningalausra“
hluthafa suður á mölinni
sem og um allt land. Hin
sterku tengsl við heima-
menn hafa minnkað. Þeir
sem „áttu plássin“ og litu
á íbúana sem fjölskyldu
sína eru löngu horfnir og
um þá verður fyrst og
fremst lesið í sögubók-
um,“ segir Jón.
„En ekki veit ég hvern-
ig það getur gerst að Ís-
lendingar gangi í Evrópu-
sambandið og afhendi
„vondum körlum í Bruss-
el“ yfirráðin yfir kvót-
anum þegar allt verður
vitlaust yfir því að „vond-
ir karlar í Reykjavík og af
Snæfellsnesi“ séu að
höndla með Útgerð-
arfélag Akureyringa,“
segir í pistlinum á heim-
ur.is.
STAKSTEINAR
Heimamenn betri
en vondu karlarnir
í Brussel
Leita óþekkts bróður
SANTINEAU-fjölskyldan
leitar óþekkts bróður á Ís-
landi. Móðir hans hét
Emma. Okkur er sagt að
þau séu rauðhærð. Sameig-
inlegur faðir okkar var
Raymond Santineau sem
nú er látinn. Hann vann við
vegagerð fyrir verkfræð-
ingasveit landhersins
(Army Corps of Engineers)
á Íslandi á sjötta áratugn-
um. Við viljum aðeins fá
tækifæri til að ræða við þig
ef þú ert tilbúinn til þess.
Vinsamlegast skrifaðu mér
á netfangið: steven sant-
ineau@yahoo.com
Dýrahald
Jónas er týndur
JÓNAS er svartur 5 ára
fress, geldur og eyrna-
merktur. Hann var með
hálsól með rauðu nafn-
spjaldi. Hann týndist 7.
janúar í hesthúsahverfinu
Kjóavöllum. Jónas er blíð
innikisa en er mjög var um
sig. Þeir sem hafa séð hann
eða vita um afdrif hans vin-
samlega hafi samband í
síma 895 9336 eða 567 4504.
Fundarlaun.
Brandur
er týndur
GRÁBRÖNDÓTTUR kött-
ur með hvíta bringu og
hvítar hosur hvarf frá
Kópavogsbraut 95 sunnu-
daginn 11. janúar. Hann er
eyrnamerktur og með
rauðköflótta ól með tveim-
ur bjöllum. Þeir sem hafa
orðið hans varir hafi sam-
band í síma 898-4869.
Tapað/fundið
Vefur um týndar og
fundnar myndavélar
Á VEFNUM www.ljos-
myndari.is er boðið upp á
ókeypis smáauglýsingar er
tengjast ljósmyndun, þar
sem fólk getur sett inn
smáauglýsingar, hvort sem
það er tapað, fundið eða
jafnvel stolið.
Gullarmband
týndist
Í LOK október 2003 tapaði
ég gullarmbandi mínu sem
mér er mjög annt um. Arm-
bandið er með múrsteins-
munstri, 1 cm á breidd,
demantsskorið öðrum meg-
in og slétt hinum megin. Ég
var á ferð t.d. í Fellsmúl-
anum, Kringlunni og Skeif-
unni á þessum tíma. Skilvís
finnandi hafi samband í
síma 660 5226.
Gleraugu
týndust
ÉG tapaði gleraugunum
mínum milli jóla og nýárs, í
Linda- eða Hjallahverfi í
Kópavogi. Þetta eru tví-
skipt gleraugu með titan-
spöng, mjög létt. Þeirra er
sárt saknað. Skilvís finn-
andi hafi samband í síma
899 2340.
Gsm-sími
í óskilum
GSM-sími fannst laugar-
dagskvöldið 15. nóvember í
Logafold. Upplýsingar í
síma 696 9683.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
LÁRÉTT
1 lítt hagganlegur, 8 tíð-
indi, 9 endurgjald, 10
stórfljót, 11 lét, 13 land-
spildu,
15 vinna, 18 raki, 21
greinir, 22 fiskurinn, 23
flón, 24 afbrotamaður.
LÓÐRÉTT
2 vanfær, 3 varkárni, 4
örugg, 5 nef, 6 eldstæðis,
7 klettanef, 12 dreitill, 14
borða, 15 vers, 16 örlög,
17 hafa upp á, 18 sveins-
taula, 19 hamingju, 20 sjá
eftir.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 hikar, 4 fátæk, 7 pipra, 8 rifta, 9 róm, 11 reit,
13 haki, 14 ærnar, 15 flár, 17 ágæt, 20 grá, 22 álfur, 23
rætið, 24 innan, 25 sinna.
Lóðrétt: 1 hopar, 2 kippi, 3 róar, 4 farm, 5 tafla, 6 krani,
10 ógnar, 12 tær, 13 hrá, 15 fjáði, 16 álfan, 18 gætin, 19
tuðra, 20 grín, 21 árás.
Krossgáta
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Víkverji skrifar...
Víkverji hefur keppt á snjóbrettireglulega frá því um áramót.
Hann hefur bæði keppt í „free-
style“ við félaga sína, sem og á al-
vöru mótum og þá við reyndara
brettafólk. Víkverji hefur reyndar
stundað þessa íþrótt innandyra og
ekki komið nálægt snjó í þessu
samhengi. Hann hefur ef satt skal
segja ekki ennþá stigið á snjóbretti.
Mótin og keppinautarnir sem Vík-
verji nefndi eru nefnilega aðeins til
í Playstation-tölvuleiknum SSX 3.
Víkverji hefur ekki spilað mikið
tölvuleiki frá því hann var krakki
og Sinclair Spectrum-leikirnir
Chucky egg, Monty Mole og tölvu-
spil á borð við Donkey Kong tröllr-
iðu öllu. En SSX 3 breytti því. Því
má ekki gleyma í allri umræðu um
tölvuleiki að inni á milli allra of-
beldisleikjanna er að finna stór-
skemmtilega leiki sem reyna á
snerpu og útsjónarsemi leikmanna.
x x x
Skífan ákvað fyrir mörgum mán-uðum að selja ekki börnum
yngri en 16 ára grófa ofbeldisleiki
og merkti þá sérstaklega sem slíka.
Þessum reglum fylgir starfsfólkið
samviskusamlega. Verslanir BT
selja hins vegar hverjum sem er
tölvuleiki, jafnvel þótt innflytjendur
telji þá innihalda gróft ofbeldi og
merki þá þannig. Víkverji er sam-
mála BT-mönnum sem svöruðu fyr-
ir þetta í Morgunblaðinu um dag-
inn, að ábyrgðin væri fyrst og
fremst foreldranna. En það er al-
veg út í hött að skýla sér á bak við
það að á meðan engar reglur séu til
um sölu og eftirlit tölvuleikja þá
geti verslanir ekki annað en selt þá
hverjum sem er. BT ætti að sjá
sóma sinn í því að fara eftir þeim
merkingum sem innflytjendur setja
og öðlast þar með virðingu foreldr-
anna, sem eru jú þeir sem
fjármagna í flestum til-
fellum tölvuleikjakaup
barna sinna.
Víkverji getur ekki látið
vera að nefna það hversu
dýrir tölvuleikir eru. SSX
3 kostar um 6.300 krónur
sem sonur Víkverja er um
hálft ár að safna fyrir með
vasapeningunum!
x x x
Víkverji er vanur því aðsofa út á laug-
ardögum, helst langt fram
yfir hádegi. Það er svo
sem gott og blessað, enda
ekki nokkur þörf að vakna
fyrr, nema hvað þá missir Víkverji
ávallt af hinum annálaða útvarps-
þætti Þorfinns Ómarssonar, Í viku-
lokin. Víkverji sér ekki að þáttinn
sé hægt að nálgast á hinum ágæta
vef Ríkisútvarpsins, en þar er m.a.
að finna Spegilinn og Morgunvakt-
ina auk fréttatíma útvarpsins. Vík-
verja finnst þó upplagt að Í viku-
lokin sem og aðrir fréttatengdir
þættir, verði einnig sett á vefinn
svo svefnpurkur landsins og aðrir
sem vilja fylgjast náið með mál-
efnum líðandi stundar, fái notið
þeirra.
Reuters
Víkverji á snjóbrettinu. Nei, bara grín!